Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Blaðsíða 16
Er krafsað í vEggi?
16 Neytendur 25. febrúar 2013 Mánudagur
Íþróttaviðburðir banvænir fyrir símann
n „Það kom okkur verulega á óvart hversu margir skemmdu símann í æsingi sínum“
Þ
að er stórhættulegt að vera
með farsímann í hönd þegar
horft er á íþróttaviðburði,
að minnsta kosti ef marka
má nýjustu rannsókn Square
Tradetryggingafyrirtækisins. Sam
kvæmt rannsókninni hafa 23 millj
ónir Bandaríkjamanna lent í því að
skemma farsíma sinn á meðan þeir
fylgdust með íþróttaviðburði.
Áhugaverð tölfræði fylgir rann
sókninni en þar sést að rúmlega 2,7
milljónir Bandaríkjamanna hafa
skemmt símann sinn í reiði eða
annars konar spenningi í tengslum
við íþróttaviðburð. Þetta eru alls 12
prósent atvika.
„Miðað við hversu margir tísta,
senda sms eða taka myndir á leik
vöngum, í stofum og á sportbör
um um land allt þá kom það okkur
ekki á óvart að einn af hverjum tíu
Bandaríkjamönnum hafi skemmt
síma sinn meðan á leik stóð,“ segir Ty
Shay yfir maður á markaðssviði hjá
Square Trade. „En það sem kom okk
ur verulega á óvart var hversu margir
misstu bjór yfir símann eða einfald
lega skemmdu hann í æsingi sínum
– það segir mikið um ástríðu margra
Bandaríkjamanna fyrir íþróttum.“
Flestir misstu þó símann óvart,
um 33 prósent. Næst flestir, eða 18
prósent, misstu símann í vatn – til
dæmis í klósettvatn – eða misstu vatn
yfir símann. Þrettán prósent misstu
bjór yfir símann sinn, eða tæp
ar 3 milljónir Bandaríkjamanna. Þá
misstu átta prósent aðspurðra sím
ann sinn niður af barborði með þeim
afleiðingum að hann skemmdist.
Til þess að koma í veg fyrir
ótímabæran dauða farsímans gefur
Square Trade nokkur ráð sem gott er
að fylgja: 1) Hafðu símann nærri en
ekki halda á honum, settu hann ein
hvers staðar nálægt sófanum þar sem
þú getur fundið hann auðveldlega. 2)
Teldu rólega upp að tíu eftir alla vafa
sama dóma og leikmannamistök. 3)
Taktu aldrei símann með þér inn
á baðherbergi. 4) Íhugaðu að nota
handfrjálsan bjórdrykkjubúnað. 5)
Notaðu sérhannaðar símahlífar.
simon@dv.is
Algengt verð 264,7 kr. 262,7 kr.
Höfuðborgarsvæðið 264,6 kr. 262,5 kr.
Reykjavík 264,4 kr. 262,4 kr.
Algengt verð 264,9 kr. 262,7 kr.
Algengt verð 266,9 kr. 262,7 kr.
Höfuðborgarsvæðið 264,5 kr. 262,5 kr.
Eldsneytisverð 24. feb.
Bensín Dísilolía
Á kaf Fjölmargir Bandaríkjamenn hafa
lent í því að missa bjór yfir símann, eða
missa símann í bjór, meðan á íþróttavið-
burði stendur. Þetta eru niðurstöður nýrrar
könnunar á vegum tryggingafyrirtækisins
SquareTrade sem framkvæmd var í janúar.
Byggingar-
kostnaður eykst
Byggingarkostnaður jókst veru
lega í mánuðinum. Samkvæmt
nýjum tölum var kostnaðaraukn
ingin frá janúar til febrúar í ár
um 2,3 prósent. Síðustu tólf
mánuði hefur hækkunin verið
alls 5,1 prósent.
Vélar, flutningur og orkunotk
un hækkaði um 6 prósent í verði.
Verð á innlendu efni hækkaði
um 2,2 prósent og er það nokkru
meira en verðhækkun á innfluttu
efni, sem var 0,8 prósent. Þá
hækkaði kostnaður vegna vinnu
liða um 2,9 prósent vegna samn
ingsbundinna hækkana í laun
um sem tóku gildi fyrsta febrúar.
M
aður fyrirbyggir sjaldan að
þetta berist með matvæl
um. En það er náttúrulega
mjög góð regla að geyma
mjölvöru og slíkt alltaf í
lokuðum ílátum. Ef það skyldi eitt
hvað leynast í þeim er best að gefa
því ekki færi á að fara út,“ segir Erling
Ólafsson skordýrafræðingur hjá Nátt
úrufræðistofnun um þau skordýr sem
leggjast gjarnan á matvæli í híbýlum
manna.
Étur frá þér húsið
Ýmsir skaðvaldar eru í skordýraheim
inum og leggjast þeir ýmist á föt,
áklæði, mat eða við. Flestir þeir sem
hér eru útlistaðar eru illviðráðanlegir
ef þeir ná bólfestu. Það er þó mismik
ill skaðinn sem þær geta valdið.
Spillt matvæli er eitt – en það
er einungis ein tegund á Íslandi
sem getur étið undan þér húsið.
„Veggjatítlan er án efa mesti skað
valdurinn – sá eini sem getur étið frá
manni húsið,“ segir Erling.
Berst með korni
Erling segir það góða reglu að frysta
korn áður en það er tekið í notkun.
Það drepur þau skordýr sem kunna að
leynast í pakkningunum. Sérstaklega
mikilvægt er að gera þetta þegar um
gæludýramat er að ræða. „Varðandi
fugla og hamstrakorn og slíkt, það
er nokkuð algengt að því fylgi óværa.
Þess vegna er gott að setja það í fryst
inn á undan, það ætti eiginlega að vera
regla,“ segir Erling.
DV tók saman tíu skaðvalda úr
skordýraheiminum hér á landi en
stuðst er að fullu við upplýsingar frá
Náttúrufræðistofnun Íslands. Á vef
stofnunarinnar má lesa frekar um þær
tegundir sem hér eru útlistaðar. Mynd
irnar af skordýrunum eru allar teknar
af Erling Ólafssyni.
Fúll gulur vökvi spillir mat
Hveitibjallan er sérstaklega hvimleitt
kvikindi enda spillir hún öllum mat
sem hún kemst í. Hún gefur frá sér
illa lyktandi gulan vökva í varnarskyni
og lyktin er sérlega áleitin. Hún getur
loðað við fingur í nokkurn tíma eftir á
og spillir strax matvörum, en hveiti
bjallan sækir fyrst og fremst í mjöl.
Það sem meira er, hún getur lifað
í allt að þrjú ár og kemst af svo
mánuðum skiptir án þess að
fá næringu. Hún fyrirfinnst
alls staðar nema á suð
austanverðu landinu.
lífseig kryddæta
Tóbaksbjallan sækist
sérstaklega eftir tóbaki,
kaffi og kakóbaunum,
kryddi og þurrkuðum ávöxtum og
grænmeti. Þá leggur hún sér einnig
til munns þurrkuð skordýr, plöntur,
leður og vax. Skaðvaldurinn á einnig
til að leggjast á textílvörur, bækur og
stoppuð húsgögn.
Hún er einstaklega lífseig og þol
ir jafnvel skordýraeitur ágætlega
og étur raunar ýmis lyf og eiturefni.
Erling segir að hún geti náð sér vel á
strik komi hún upp í eldhússkápum
– hún er snögg og vel fleyg og fljót að
þefa uppi krydd. Erling mælir með
því að nota kælingu og þurrkun gegn
bjöllunni frekar en eitur.
sýgur blóð í skjóli nætur
Veggjalúsin lifir alfarið á blóði og
leggst því oftar en ekki á menn. „Hún
er viðloðandi hér á landi og berst oft
með ferðamönnum, hún berst auð
veldlega í ferðatöskum,“ segir Erling.
Kvikindið lifir í glufum og sprung
um í tréverki – oft nálægt svefnstöð
um, kemur sér fyrir í rúmdýnum og
á öðrum myrkum stöðum. Svo þegar
hungrið leitar á lúsina skríður hún úr
fylgsni sínu og sýgur allt að sjöfalda
þyngd sína af blóði. Eftir það fer hún
í skjól aftur. Það er erfitt að losna
við lúsina úr húsinu, hafi hún kom
ið sér fyrir. „Það er heilmikið vesen
að losna við hana,“ segir Erling. „Ég
get ekki sagt hvað á að gera, það þarf
að meta. Hvert tilfelli er styrjöld út af
fyrir sig – það þarf að gera hernað
aráætlun.“
Meta þarf aðstæður og best er að
leita til kunnáttumanns í þeim efn
um. En eitt húsráð er sagt virka. Inn
byrði maður svefnlyf áður en lýsnar
láta til skarar skríða sofna þær, sam
kvæmt þessu ráði, og um morgun
n Heimilið getur hýst ýmsar tegundir skordýra n Tíu tegundir óværu í skordýraheiminum og ráð gegn þeim n Veggjatítlan verst
Borholur Veggjatítlan skilur eftir sig borholur þegar fullvaxin bjallan borar sig út úr við. Þetta getur veikt burðarvirki húsa til muna.
MynDir erling ÓlaFsson
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Góðir öku-
menn borga
mun meira
Bandarísku neytendasamtök
in hafa birt niðurstöður athyglis
verðrar rannsóknar á vinnubrögð
um tryggingafyrirtækja þar í landi.
Í ljós kemur að við mat á trygg
ing um nota trygginga fyrirtækin
við mið sem mismuna fólki eftir
stétt og stöðu og það sem meira
er, öruggir og góðir öku menn með
háar trygg ingar eru oft með lág
laun.
Neytendasamtökin segja þetta
gefa til kynna að tryggingafyrir
tæki notist við viðmið sem mis
muni fólki við útreikninga sína.
Menntun og laun hafa því meira
að segja en ökuhæfni þegar kemur
að bílatryggingum.
Tekin voru tvö fræðileg dæmi:
ritari með stúdentspróf og stjórn
andi með háskólagráðu. Báðar
konurnar voru 30 ára, höfðu keyrt
í 10 ár og bjuggu í sömu götu. En
tvennt var ólíkt með þeim, rit
arinn var með sína íbúð á leigu
meðan stjórnandinn átti sína.
Þess utan var ritarinn einstæð á
meðan stjórnandinn var giftur.
Þá hafði stjórnandinn með há
skólagráðuna orðið valdur að slysi
á eigin ábyrgð á síðustu þremur
árum. Niðurstaðan?
Tveir þriðju tryggingatilboða
voru lægri til stjórnandans. Oft
munaði meira en 25 prósentum á
tilboðunum en neytendasamtök
in leituðu 60 tilboða í 12 mismun
andi borgum.