Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Blaðsíða 4
FRIÐUR Á MILLI SIGUR- JÓNS OG FORSTJÓRANS D V greindi frá því í síðustu viku að mikil átök væru inn­ an raða fataframleiðandans 66° Norður. Óánægja væri með störf Helga Rúnars Ósk­ arssonar, sem tók við sem forstjóri fyrirtækisins í upphafi árs 2011. Fjöldi starfsmanna hefur verið sagt upp eða hefur hætt störfum hjá fyrirtækinu, vegna óánægju með stjórnarhætti Helga Rúnars. Margir þeirra gegndu stjórnunarstörfum hjá fyrir tækinu og má þar nefna framkvæmdastjóra verslunarsviðs, útflutningsstjóra, inn­ kaupastjóra og fjármálastjóra. Fjórir starfsmenn í markaðsmálum létu einnig af störfum. Samkvæmt heim­ ildum DV sagði yfirmaður heildsölu síðan upp störfum nú í vikunni. Þá vék Halldór Gunnar Eyjólfsson, sem var forstjóri þegar Helgi Rúnar tók við. Þannig virðast sex af æðstu stjórn­ endum 66°Norður hafa hætt störfum á undanförnum tveimur árum. Vildi lögbann Starfsmenn 66°Norður hafa einn ig verið óánægðir með að komu Bjarn­ eyjar Harðar dóttur, sam býlis konu Helga Rúnars, að rekstri 66° Norður. Starfs menn hafi upp lifað hana sem hálf gerðan skugga stjórnanda fyrir­ tækisins. Kvikmynda framleið and­ inn Sigur jón Sighvatsson, sem fer fyrir 49 prósenta hlut í fyrirtæk­ inu, óskaði eftir því að sett yrði lög­ bann á aðkomu Bjarneyjar að rekstri 66°Norður. Var málið tekið fyrir af Héraðsdómi Reykjaness sem hafn­ aði lögbannskröfu Sigurjóns síðasta haust. Þá greindi DV einnig frá því að Sigurjón Sighvatsson hefði verið að reyna að selja 49 prósenta hlut sinn í fyrirtækinu en ekki hefði enn fundist kaupandi að hlutn­ um. Sá hlutur er skráður á félagið Egus Inc. sem skráð er á Tortola á Bresku Jómfrúaeyjunum. Kaup­ þing í Lúxemborg stofnaði félag­ ið árið 2003. Nokkrir aðilar sem DV ræddi við töldu að hlutur Sig­ urjóns væri til sölu á um 750 millj­ ónir króna. Því vísar Sigurjón hins vegar á bug. Sigurjón þvertekur fyrir átök „Það er ekki rétt að ágreiningur sé á milli mín og Helga Rúnars Óskars­ sonar, forstjóra 66°Norður. Það mál var leyst fyrir dómstólum í fyrra og frá þeim tíma hefur samstarfið á milli okkar verið með ágætum,“ segir Sigur jón Sighvatsson í samtali við DV. Sigurjón áréttar að það sé ekki rétt að 49 prósenta hlutur Egus Inc. í 66°Norður sé til sölu eða verið sé að leita að kaupanda. Hann tekur einnig fram að aðrir aðilar eigi einnig hlut í Egus Inc. þótt hann hafi tekið að sér að fara fyrir hlutnum í 66°Norður. Sigurjón segist reglulega fá fyrir­ spurnir frá fjárfestum um hlutinn í 66°Norður. Þannig hafi það lengi verið enda 66°Norður áhugavert fé­ lag. Engin áform séu hins vegar uppi um að selja hlutinn og viðræður um slíkt hafi ekki farið fram við neinn að­ ila. Þá hafi 2012 verið besta söluár í sögu 66°Norður. n n Sigurjón segir engin átök lengur á milli hans og forstjóra 66°Norður Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is „Frá þeim tíma hefur samstarfið á milli okkar verið með ágætum. Orðinn sáttur við forstjórann Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson segist hafa náð sáttum við Helga Rúnar Óskarsson, forstjóra 66°Norður eftir að deila þeirra var útkljáð fyrir dómstólum. 4 Fréttir 25. febrúar 2013 Mánudagur Þrjú vopnuð rán í röð n Hrina vopnaðra rána á höfuðborgarsvæðinu um helgina Þ rjú vopnuð rán voru framin í verslunum á höfuðborgar­ svæðinu um helgina og eru þau óupplýst. Þrír menn hafa verið handteknir í tengslum við eitt þeirra. Fyrsta ránið var framið í versl­ un 10–11 í Þverbrekku í Kópavogi rétt upp úr miðnætti á föstudag. Þar komu inn menn og hótuðu starfs­ stúlku, tóku hana hálstaki og neyddu hana til þess að opna sjóðvél. Þaðan tóku þeir peninga og höfðu lítilræði upp úr krafsinu. Þeir komust und­ an. Starfsstúlkuna sakaði ekki en var skiljanlega talsvert brugðið. Á svipuðum tíma og ránið í Þver­ brekku átti sér stað fór maður inn í Pétursbúð í Vesturbænum og hót­ aði þar starfsmanni með einhverju sem virtist vera hnífur. Maðurinn var grímuklæddur og skipaði starfs­ manninum að opna peningakassann sem og hann gerði. Þjófurinn hafði um fimmtán þúsund krónur upp úr ráninu og hvarf síðan út í myrkrið. Starfsmaðurinn slapp ómeiddur en var töluvert brugðið. Þriðja ránið var svo framið um hádegi á laugardag í verslun 10–11 við Seljaveg í Reykjavík. Þar ruddist inn grímuklæddur maður og ógn­ aði starfsmanni með glerbroti. Hann náði smávegis af peningum úr pen­ ingakassanum og komst undan á hlaupum. Engann sakaði í ráninu en þrír menn voru handteknir stuttu síðar í tengslum við það. Ekki er vit­ að hvort fleiri hafi verið handteknir vegna ránanna en óvenjulegt verð­ ur að teljast að svo mörg vopnuð rán séu framin á jafn mörgum stöðum á svona stuttum tíma. n Mikil starfsmannavelta Margir af helstu stjórnendum 66°Norður hafa látið af störfum hjá fyrirtækinu eftir að Helgi Rúnar Óskarsson tók þar við sem forstjóri. 10–11 og Pétursbúð Vopnað rán var framið í verslunum 10–11 í Þverbrekku í Kópavogi og á Seljavegi í Reykjavík. Auk þess var framið vopnað rán í Pétursbúð í Reykjavík. Tvær líkams- árásir Lögreglan á höfuðborgarsvæð­ inu fékk tilkynningar um tvær lík­ amsárásir aðfaranótt sunnudags. Klukkan 5.39 barst tilkynning um líkamsárás við Hringbraut. Þar var ráðist á mann en vegfarandi stöðvaði árásina og létu árásar­ mennirnir tveir sig hverfa. Sá sem ráðist var á var fluttur á slysa­ deild. Rétt fyrir sjö um morguninn barst tilkynning um líkamsárás á veitingastað í Kópavogi. Árásar­ aðilinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði, en áverkar brotaþola voru ekki miklir og lögregla leiðbeindi honum um framhald málsins. Slasaður vél- sleðamaður Björgunarsveit Slysavarna­ félagsins Landsbjargar var kölluð út á sjötta tímanum á laugardag vegna vélsleða­ manns sem hafði slasast við Heiðarhús í Flateyjardal. Hjúkrunarfræðingur fór með vélsleðamönnum björgunar­ sveitarinnar á slysstað og var hinum slasaða gefið verkja­ stillandi. Hann var svo fluttur með jeppa sveitarinnar niður á þjóðveg og þaðan á slysadeild spítalans á Akureyri á tíunda tímanum. Meiðsl mannsins voru ekki talin alvarleg. Vann 48 milljónir Einn heppinn lottóspilari var með allar tölurnar réttar í útdrætti laugardagsins. Lottóspilarinn heppni hlaut rúmar 48 milljón­ ir óskiptar í sinn hlut. Miðinn var seldur í áskrift samkvæmt tilkynn­ ingu frá Íslenskri getspá en ekki er vitað hvort lottóeigandinn viti af vinningnum. Einn fékk bónusvinninginn í sinn hlut sem var 633 þúsund krónur. Miðinn var einnig keyptur í áskrift. Þá hlutu tveir Jókervinn­ ing upp á 100 þúsund krón­ ur. Miðarnir voru seldir í Jolla í Hafnarfirði og Olís við Gullinbrú.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.