Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Blaðsíða 12
12 Erlent 25. febrúar 2013 Mánudagur Berjast gegn þróun tortímenda n Noel Sharkey er í baráttuhópi sem telur vélmenni geta ógnað öryggi mannkyns B aráttuhópur gegn vígavél- mennum hefur kallað eftir því að gerður verði sáttmáli sem kemur í veg fyrir frekar þróun á vélmennum sem hönnuð eru fyrir hernað. Dr. Noel Sharkey er einn þeirra sem skipa þennan baráttuhóp sem rekur herferð sem nefnist Stop The Killer Robots. Sharkey hefur sér- hæft sig í gervigreind og hönnun vélmenna og kennir við Sheffield- háskólann í Bretlandi. Hann seg- ir þróunina á bak við þessi vígavél- menni vera langt komna og að þau verði komin í notkun innan áratugar. Hann telur að þróun þessara vopna eigi sér stað án alls eftirlits og ekki sé litið til siðferðislegra álita- mála og alþjóðlegra laga þegar kem- ur að framleiðslu þessara véla. Hann er einn af þeim sem mynda baráttuhópinn sem ætlar að reka herferðina Stop The Killer Robots. Í samtali við breska dagblaðið The Observer sagði Sharkey að víga- vélmennin sem um ræðir séu ekki bara til í vísindaskáldskap. „Innan Pentagon í Bandaríkjunum er verið að vinna að mannlausri flugvél sem nefnist X47B sem getur snúið sér á hljóðhraða og gæti enginn mað- ur flogið þessari vél sem er hægt að fara með hvert sem er á plánet- unni í hernaðarlegum tilgangi,“ seg- ir Sharkey sem segir Bandaríkjaher þjálfa fleiri til að stjórna ómönnuð- um flugvélum en alvöru flugmenn. Sharkey er á móti þeim rökum að vélmenni verði notuð til að hlífa mannfólki við hernaði. Hann seg- ir engan búnað geta gert vélmenni kleift að greina á milli barns með leik- fang og fullorðnum einstaklingi með byssu. Í nóvember síðastliðnum var greint frá því að opnuð verður mið- stöð sem nefnist Terminator Cent- er sem ætlað er að vera vettvangur fyrir fræðimenn til að rannsaka þá hættu sem mannkyninu stafar af vél- mennum. Verður miðstöðin rekin í Cambridge-háskólanum. Er talið að mannkyninu stafi gríðarleg hætta af fjórum þáttum: gervigreind, loftlagsbreytingum, kjarnorkustríði og líftæknihernaði. n n Laura Willmott, 18 ára, lést eftir fimm ára baráttu við anorexíu Á tján ára stúlka, Laura Will- mott, lést eftir langa og erf- iða baráttu við anorexíu eft- ir að hún ákvað að hætta í meðferð við sjúkdómn- um. Willmott, sem fæddist í Bristol á Englandi, ákvað stuttu eftir að hún varð 18 ára og sjálfráða að freista þess að takast sjálf á við sjúkdóminn, en það reyndist henni ofviða. Hún hafði barist við sjúkdóminn í fimm ár, eða frá 13 ára aldri, og var banamein hennar hjartaáfall. Þegar hún lést vó hún einungis rétt um 30 kíló. Breska blaðið Daily Mail fjallaði um sögu stúlkunnar á dögunum. Útskrifuð af sjúkrahúsi Foreldrar stúlkunnar eru óánægðir með þá staðreynd að dóttir þeirra hafi verið útskrifuð af sjúkrahúsi þrátt fyrir að hún glímdi við erfið veikindi. Hún var flutt á sjúkrahús þegar ástand hennar var orðið það slæmt að hún gat ekki lengur gengið. Aðeins ellefu dögum síðar var hún útskrifuð og mátu læknar það svo að hún væri „líkamlega reiðubúin“ til að snúa aftur heim. Það reyndist foreldrum hennar ómögulegt að berjast gegn þeirri ákvörðun enda var Willmott orðin 18 ára og sjálfráða og vildi sjálf fara heim. Áður en hún yfirgaf sjúkra- húsið fékk hún mataráætlun sem hún lofaði að fylgja í einu og öllu. En sjúk- dómurinn hafði öll tök á Wilmott og fljótlega eftir að hún kom heim af sjúkrahúsinu fór hún aftur í sama farið og léttist mikið. Aðeins tveimur vikum eftir að hún var útskrifuð, í desember 2011, hneig hún niður á heimili sínu af völdum hjartaáfalls. Hún var flutt á sjúkrahús en læknum tókst ekki að bjarga lífi hennar. Var dauðadæmd „Miðað við ástand hennar var hún ekki fær um að taka þessa ákvörðun,“ sagði móðir stúlkunnar, Vicky Towns- end, í yfirlýsingu sem var lesin upp þegar niðurstaða réttarrannsóknar lá fyrir. „Ég á erfitt með að sjá að dóttir mín hafi verið eitthvað öðruvísi þegar hún var 17 ára og 364 daga gömul en þegar hún var 18 ára og eins dags gömul,“ sagði hún en það var þá sem hún ákvað að hætta í meðferðinni. Hún segir að á þessum tímapunkti hafi dóttir hennar í raun verið dauða- dæmd. „Leiðin lá aftur niður á við. Hún var áhyggjufull og sagði við mig að hún óttaðist um líf sitt. Hún reyndi allt sem hún gat til að fá enga nær- ingu og blekkingarnar sem hún beitti voru ótrúlegar.“ „Róttæk aðgerð“ Það var árið 2007 sem Laura fór fyrst til læknis vegna sjúkdómsins. Í með- ferðinni náði hún hægum bata og stuttu eftir 17 ára afmæli hennar hafði ástand hennar batnað töluvert þó lík- amsþyngdin væri enn of lítil. Sem fyrr segir ákvað hún þó að hætta allri meðferð eftir að hún varð átján ára og varð þeirri ákvörðun ekki haggað. Móðir hennar vill þó meina að dóttir hennar hafi ekki verið fær um að taka upplýsta ákvörðun og ábyrgðin liggi hjá heilbrigðiskerfinu. Geðlæknirinn Hugh Herzig er einn þeirra sem kom að meðferð Willmotts. Hann segir að hann hafi verið tregur til að meina Willmott að taka eigin ákvarðanir. „Ég vissi ekki hvernig það myndi fara með hana að senda hana heim. En að svipta sjúkling sjálfræði er mjög rót- tæk aðgerð,“ segir Herzig. Vicky segir að dóttir sín hafi verið „indæl og hæfileikarík stúlka“ og hana hafi langað að starfa við hjúkr- un. Hún segist þess fullviss að ef dótt- ir hennar væri á lífi þá myndi hún vilja sjá breytingar til að aðrar stúlk- ur lendi ekki í sömu sporum og hún. Í heilbrigðiskerfinu sé pottur brot- inn í meðferð anorexíusjúklinga. „Ég er ekki að ásaka einn eða neinn en það er alveg ljóst að kerfið er ekki að virka.“ n Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is „Ég er ekki að ásaka einn eða neinn en það er alveg ljóst að kerfið er ekki að virka HÆTTI Í MEÐFERÐ EN DÓ Í KJÖLFARIÐ Erfið barátta Laura Willmott lést af völd­ um anorexíu stuttu eftir 18 ára afmælis­ daginn sinn. Berbrjósta á kjörstað Óvænt uppákoma átti sér stað á kjörstað á Ítalíu í gær, sunnu- dag, þegar gamli refurinn, Silvio Berlusconi, mætti til að greiða at- kvæði. Þá reyndu þrjár berbrjósta konur að stökkva á forsætisráð- herrann fyrrverandi. Þeim virtist mislíka að karlinn væri í fram- boði því þær voru með áletrunina „Basta Berlusconi“ ritaða á bak sér, eða „Ekki meira af Berlusconi“ eins og það gæti hljómað á ís- lensku. Konurnar, sem tilheyra hreyf- ingu femínista á Ítalíu, voru hand- járnaðar og dregnar af kjörstað – á meðan reynt var að hylja nekt þeirra. Límdi fyrir munn og augu sonar síns Bandaríkjakonan Tiffany Ennis, 31 árs frá Ohio-fylki, verður seint valin móðir ársins. Hún hefur ver- ið ákærð fyrir að vefja höfuð son- ar síns með sterku límbandi. Hún límdi fyrir augu, enni og munn barnsins en neitar þrátt fyrir það að hafa gert nokkuð rangt. Upp um ofbeldið komst þegar hún tók mynd af syni sínum og sendi barnsföðurnum. Honum var ekki skemmt og hafði samband við lögregluna. Tiffany mun einnig hafa not- að límband á höfuð annars barns. Konan segir þó að þetta hafi allt ver- ið í gríni og börnin ekki boðið skaða af. Hún var þó engu að síður hand- tekin, yfirheyrð og að lokum ákærð. Guð hrakti Benedikt 16. úr embætti Guð, en ekki hver, sagði Benedikt páfa 16. að hætta í embætti, að því er fram kom í síðustu messu hans í embætti á Péturstorgi á sunnu- dag. Hann sagðist ekki ætla að yf- irgefa kirkjuna en tugir þúsunda hlýddu á hann flytja sín síðustu orð í embætti páfa. Benedikt 16. sagðist ætla að setjast í helgan stein en að drott- inn hafi hvatt hann til að helga sig enn frekar bænum og hugleiðslu. Mörg af stærstu blöðum heims, þar á meðal Guardian, hafa greint frá því að afsögn páfa tengist með einhverjum hætti hópi samkyn- hneigðra hefðaklerka sem af- hjúpaðir hafa verið í Vatíkaninu. Talsmaður Benedikts páfa hefur hvorki viljað staðfesta né neita að uppsögnina megi rekja til þessa. Stop The Killer Robots Noel Sharkey beitir sér gegn vígavélmennum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.