Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Side 21
Menning 21Miðvikudagur 8. maí 2013 L eikstjórinn Egill Heiðar Anton Pálsson hefur verið ráðinn prófessor við hinn virta leik- listarháskóla Ernst Busch í Berlín. Skólinn var stofnaður árið 1905 og er einn frægasti leiklistar- skóli Evrópu. Egill Heiðar hefur gegnt stöðu prófessors við Konunglega leiklistar skólann í Kaupmanna- höfn síðustu ár. Auk þess hefur hann sett upp verk um öll Norður- lönd, í Þýskalandi og á Íslandi og verið fastráðinn kennari við leik- listardeild Listaháskóla Íslands. „Þeir í Ernst Busch hafa verið að leita að prófessor í ein þrjú ár og þeir komu svo að máli við mig og ég sótti um,“ segir Egill Heiðar. En að hverju voru þeir í Ernst Busch að leita? „Það er kannski ákveðin endur- nýjun að eiga sér stað í skólanum. Tími hinna gömlu austurþýsku in- tellektúala er að líða undir lok og þá langar í nýtt blóð til að lífga upp á skólann. Hér heima hef ég mót- að nám fyrir leikara sem byggist á kennisetningum Stanislavski og hið sama hef ég gert sem prófess- or í leikstjórn í Kaupmannahöfn. Ætli það sé ekki það sem þeir líta til þegar þeir leita til mín.“ Egill Heiðar er virkur leikstjóri auk þess sem hann sinnir kennslu og fræðistörfum. Egill er eki ókunn- ugur leikhúsheiminum í Berlín. Nú er á fjölunum verkið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson í leikstjórn Egils í Schaubühne-leikhúsinu í Berlín. Egill segist hlakka til að taka við stöðunni. „Það er er margt að gerast í Ernst Busch;nýbúið að bæta við meistaranámi í dramatúrgíu og þarna lærir maður allt um gömlu meistarana, Berthold Brecht og Stanislavski.“ n Ráðinn prófessor við Ernst Busch n Egill Heiðar hefur vinnu við einn virtasta leiklistarháskóla í heimiBaltasar endurreisir Berlínarmúrinn „Ég hafði einhverja drauma sem varla virtust líklegir til að rætast. Þegar ég var að alast upp í Kópavog- inum hefði fólk ekki talið það mögu- legt að fara einhvern tímann að gera bíómyndir í Hollywood. Reyndar ætl- aði ég í fyrstu að verða dýralæknir, en um leið og ég ákvað að verða leikstjóri ákvað ég að reyna að gera það eins vel og ég get.“ Sólin er að setjast yfir Alexander- platz. Tökum dagsins er lokið. Kalda stríðið sem eitt sinn teygði anga sína til Reykjavíkur mun næstu daga vera háð undir skugga Berlínarmúrsins sem hefur verið reistur á ný í Búdapest. n Gæðasjónvarp Sjónvarpsstöðin HBO hefur orðið þekkt fyrir framleiðslu á frumlegu sjónvarps- efni sem jafnframt hefur notið gríðar- legra vinsælda líkt og Sex and the City og The Sopranos, og framleiðir þessa dagana meðal annars Game of Thrones, The Newsroom, True Blood og Curb Your Enthusiasm. „Sjónvarps- stöðinni er ekki stjórnað af sölu- deildinni, það er ekki hún sem vinnur hugmyndavinnuna. Í kvikmyndum er meira hugað að fjármálunum,“ segir Steve Levinson, framleiðandi þáttanna. Hann bætir við: „Þegar þú ert að reyna að gera eitthvað öðruvísi eru alltaf líkur á að það mistakist, en þess vegna reynir maður að fá besta hugsanlega fólkið í starfið.“ Varðandi Baltasar, sem hann kallar „Balt“ eins og flestir á settinu gera, segir hann: „Baltasar er ekki í neinum kassa, hann getur gert hvað sem er. Honum ferst vel að vinna með fólki, en getur líka gefið skipanir þegar þess þarf með, sem er það sem maður leitar eftir í leikstjóra.“ Baltasar við vinnu ,,Markmiðið er að gera áhugaverðar myndir sem tekst að ná til áhorfenda líka.“ Myndir CHristian sCHulz Egill Heiðar anton Pálsson Er spenntur fyrir nýrri stöðu í Berlín. „Satt að segja var smá austantjalds- fílingur í gangi þegar ég var að alast upp á Íslandi. Opið fyrir umsóknir til 10. maí í meistaranám í listkennslu Ertu listamaður langar þig að kenna? mEistaranám í listkEnnslu inntökuskilyrði: BA gráða eða sambærilegt nám í listgrein. Auk þess er tekið á móti umsóknum frá einstaklingum með B.Ed gráðu eða sambærilegt 180 eininga nám í kennslu og umtalsverða menntun og/eða reynslu á sviði leiklistar, tónlistar eða dans. Nánari upplýsingar um nám í listkennsludeild og inntökuskilyrði á lhi.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.