Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1942, Blaðsíða 12
8
Verslunarskýrslur 1940
var fyrir nokkrum árum 6—10%, en síðustu árin hefur hann farið mjög
minkandi, og 1940 var hann ekki nema 0.2%.
Bæði á innflutningi og útflutningi er nokkur munur eftir árstíðum.
Innflutningur er venjulega mestur á vorin og sumrin, en útflutningurinn
á haustin.
2. Innfluttar v'örutegundir.
Importation des marchandises.
Tafla III A (bls. 4—40) sýnir, hve mikið hefur flust til landsins af
hverri vörutegund. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir hinni alþjóðlegu
vöruskrá Þjóðabandalagsins, sem var fyrst lögð til grundvallar í versl-
unarskýrslunum fyrir árið 1948. Þar sem sundurliðun hefur áður verið
meiri í íslensku verslunarskýrslunum heldur en í þessari vöruskrá, sem
er lágmarkslisti til samanburðar við önnur lönd, þá hefur þeirri sund-
urliðun víðast verið haldið jafnnákvæmri sem áður, með því að
skifta númerum vöruskrárinnar í undirliði. Þær vörutegundir, sem áður
hafa verið taldar sérstakar i verslunarskýrslunum, finnast því flest-
allar í þessari töflu, þótt þeim sé öðruvísi niðurraðað, en í registrinu
aftan við eru þær allar taldar i stafrófsröð, og má því með aðstoð þess
fljótlega finna, hvar þær eru lilfærðar. í verslunarskýrslunum fvrir árin
1935—37 var líka birt aukalega tafla, sem var raðað eftir vöruskrá
Þjóðabandalágsins (tafla VI), og má nota þær töflur beinlínis til saman-
hurðar við aðaltöfluna 1938—1940.
Öllum vörutegundum í vöruskránni er skift í 49 vöruflokka og þeim
aftur í 16 stærri vörubálka. Yfirlit um þessar skiftingar eru í töflu I og
II (bls. 1—3), en í sjálfri vöruskránni sést, hvaða vörutegundir teljast
lil hvers vöruflokks og vörubálks.
Niðurskipun vörutegundanna í vöruskránni og skifting þeirra í vöru-
flokka og stærri vörubálka (sjá töflu I og II) hefur ekki verið miðuð
allsstaðar við eina og sömu reglu. Að mjög miklu leyti hefur verið farið
eftir þvi, úr hvaða efni varan er, en sumstaðar hefur þó notkun vör-
unnar ráðið skiftingunni, og stundum hefur líka .komið til greina vinslu-
stig vörunnar, eða hvort hún er óunnin, Htt unnin eða fullunnin. En
fyrir utan flokkunina í I. og II. töflu, sem algerlega fylgir niðurröðun
vöruskrárinnar, þá hefur einnig verið gerð önnur flokkun, sem algerlega
miðast við notkun varanna og vinslustig þeirra. Hvernig vörurnar skift-
ást samkvæmt þessari flokkun, sést á 2. yfirliti (bls. 9*), sem er gert sam-
kvæmt fyrirmynd Þjóðabandalagsins og því sambærilegt við samskonar
yfirlit annara þjóða, sem hafa tekið upp skýrslugerð bygða á vöruskrá
Þjóðabandalagsins.
Eftir notkun er vörunum skift i 2. yfirliti í framleiðsluvörur, 7 flokka,
og neysluvörur, 3 flokka. 6 fyrstu flokkarnir eru hrevfifé, sem hverfur