Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1942, Blaðsíða 19
Verslunarskýrslur 1940
15'
Innflutningur á f r a ni 1 e i ð s 1 u t æ k j u m, sem talin eru í 7. fl. i
2. yfirliti, hefur verið að verðmagni aðeins rúmlega % af innflutningnum
næsta ár á undan, eða 6.4 milj. kr. árið 1940, en 10.4 milj. kr. árið á
undan. Mestur hlutinn af þessum vörum eru vélar, skip og önnur flutn-
ingstæki, fyrir 5.9 milj. kr. árið 1940, en fyrir rúma % milj. kr. voru
ýmsar járn- og málmvörur (verkfæri o. fl.).
Innflutningur á neysluvörum öðrum en matvörum (9. og 10.
fl. í 2. yfirliti) hefur hækkað 1940 meir en um þriðjung að verðmagni.
Nam innflutningur þessara vara 5.5 milj. kr. árið 1939 en 7.o milj. kr. árið
1940. Stafar þessi hækkun að mestu leyti af verðhækkun á vörun-
um. í 9. fl. eru taldir óvaranlegir munir til notkunar. Er það einkum
fatnaðarvörur, en ennfremur lyf, bækur og blöð, leikföng og margt fleira.
Á þessum vörum hefur yfirleitt orðið töluverð verðhækkun, en inn-
flutningsmagnið minkað. 1 10. fl. eru aftur á móti taldir varanlegir munir
til notkunar, svo sem ýmisleg búsáhöld, reiðhjól og fólksbilar og aðrir
slíkir hlutir, sem lengi eiga að endast. Þessar vörur hafa lika yfirleitt
hækkað allmikið í verði, en innflutningsmagn þeirra hefur samt aukist
löluvert.
í 2. yfirliti (bls. 8*) eru vörurnar einnig flokkaðar eftir vinslu-
stigi eða í hrávörur, lítt unnar vörur og fullunnar vörur. Hrávörur telj-
ast afurðir af náttúruframleiðslu (landbúnaði, fiskveiðum, námugrefti
o. s. frv.), sem ekki hafa fengið neina verulega aðvinslu, en geta þó sumar
hverjar verið hæfar til neyslu. Sama máli er að gegna um ýmsar lítt unn-
ar vörur, sem fengið hafa nokkra aðvinslu, þó að þær, eins og hrávör-
urnar, séu einkum notaðar til framleiðslu. Samkvæmt yfirlitinu hefur
1940 nál. helmingur innfluttu varanna (að verðmæti) verið fullunnar
vörur, rúml. lítt unnar vörur og tæpl. % hrávörur. Árið 1940 hefur
innflutningur af hrávörum hækkað frá árinu á undan um 7.i milj. kr., af
lítt unnum vörum um O.s milj. kr. og af fullunnum vörum um 2.o milj.
kr. Verðhækkun hefur verið langmest á hrávöruin (rúmlega tvöföldun),
nokkru minni á hálfunnum vörum, en minst á fullunnum~vörum (þriðj-
ungshækkun). í öllum þessum flokkum hefur innflutningsmagnið mink-
að, mest af hálfunnum vörum (um tæpl. 30%) en líka töluvert af hrá-
vörum og fullunnum vörum (um 18%).
3. Útfluttar vörutegundir.
Exportation des marchandises.
1 töflu III B (bls. 41—46) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
skyldleika þeirra á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og eru yfirlit yfir
þá flokkaskiftingu í töflu I og II (bls. 1—3).