Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 3
FRÉTTIR 21. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 3 Á Vík í Mýrdal hafa íbúar heldur betur fengið að kynnast áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli. Ask- an hefur lagst yfir bæjarfélagið og vegir hafa verið lokaðir, sem þýð- ir einnig að ferðamannastraum- ur hefur verið enginn. Það er þó þannig að sumir sem þar búa eiga allt sitt undir ferðaþjónustu og einn þeirra er Sigurður Elías Guð- mundsson sem rekur bæði hótelið á Vík og Víkurskála. Hann er væg- ast sagt ósáttur við það að forset- inn skyldi láta hafa það eftir sér að þetta væri bara æfing og fólk ætti að búa sig undir náttúruhamfar- ir.  „Ummæli forsetans eru bara hræðileg og dæma sig sjálf. Ég krefst þess að forsetinn segi af sér eftir þetta. Við sem eigum allt okk- ar undir ferðamannastraumnum erum að reyna að halda umræð- unni á jákvæðum nótum, reyna að róa fólk niður og leiðrétta stað- reyndavillur en svo tekst forsetan- um að stráfella ferðamannaiðnað- inn á einu augabragði. Í ákveðnum skilningi er forsetinn markaðs- stjóri fyrir Ísland og markaðs- stjóri sem dregur upp svo dökka mynd af vörunni sem hann er að selja er óhæfur. Núna þurfum við að halda að okkur höndunum og þetta er bara hræðilegt, í einu orði sagt hræðilegt. Við erum að reyna að byggja eitthvað upp og það er óþarfi að gefa svona höggstað á okkur.“ Milljóna tap Tapið sem Sigurður Elías hef- ur þegar orðið fyrir nemur allt að tveimur milljónum króna. „Ég hendi ekki alveg reiður á því hvað tapið er mikið í raun, en ef ástand- ið helst óbreytt nokkra daga í við- bót mun það hlaupa á milljónum. Núna er þetta kannski spurning um einhver hundruð þúsund, jafn- vel milljón eða tvær. Undir venju- legum kringumstæðum eru upp undir fimm rútur sem koma hing- að í Víkurskála á dag þegar komið er fram í lok apríl. Hér hefur ekki sést rúta í viku og við vitum ekki hversu lengi þetta heldur áfram. Ég bind vonir við það að gosið sé að breytast og vegurinn haldist opinn svo þetta detti í rétt horf. Ég trúi enn á það að þetta verði í lagi. Ég leyfi mér ekki að hugsa fram í tímann að öllu óbreyttu, ég horfi bara til morgundagsins, á morg- un kemur nýr dagur og hann verð- ur betri en dagurinn í dag. Aldrei þessu vant hlakka ég mikið til þess að fá rigningu.“ Gestir afbóka Á hótelinu hafa einstaklingar og hópar afbókað komu sína allt fram í maí. „Hingað áttu tvö íþróttalið að koma og gista á hótelinu hjá mér og borða í Víkurskála. Eðlilega komu þau ekki, það er enginn að fara út að hlaupa í þessum mekki og viðbjóði sem hér hefur verið. Breskir skóla- hópar sem hafa alltaf verið hjá mér í mars og apríl komu heldur ekki. Ef þetta ástand varir fram í byrjun maí verð ég að fara endurskoða mín mál. Þetta er auðvitað þungt fyrir mig þar sem ég stend í framkvæmdum og því fylgja heilmikil fjárútlát.“ Hann er að byggja við hótelið og ætlar að bæta 370 fermetrum við, ellefu herbergj- um og veitingasal. Til stóð að opna hótelið fimmtánda maí en eins og gefur að skilja hafa framkvæmdir tafist eftir að gosið hófst. „Það staur- stífluðust náttúrulega allar aðflutn- ingsleiðir þegar gosið hófst og síð- an hefur það bara verið höktandi hvernig efni og annað hefur skilað sér. Þetta er fyrsti dagurinn í rúma viku þar sem vegurinn er opinn, þannig að það hefur auðvitað verið alveg steindautt hérna.   Það er alveg ljóst að ég mun ekki þola slæmt sumar, ekki frekar en að bændurnir þola mökklegin tún. Ég fæ fjölmargar fyrirspurnir varðandi Kötlugos, útlendingar halda að það sé hafið endar eru miklar rangfærsl- ur í fréttaflutningi erlendis. Það þarf að róa þá niður og leiðrétta þenn- an misskilning. Forsetinn er ekki að hjálpa til.“ „ÞETTA ER BARA HÖRMUNG“ langt að fara í Austur-Landeyjar og það er spurning hversu bætt við erum með því að flytja búfénað þangað. Það er óvíst hvað gerist þar.“ Hann vill líka taka það fram að fylfullar hryss- ur og kindur sem eru að því komnar að bera séu best geymdar heima hjá sér, það séu allir gripir á þessu svæði komnir í hús eða að húsi þar sem þeir fá gjöf þannig að þeim líði eins vel og hægt sé undir þessum kringumstæð- um, þannig að öllu óbreyttu sé óþarfi að flytja þá á milli staða. Það sé óþarfi að búa til vandamál. FORSETINN SKAÐAR FERÐAÞJÓNUSTUNA Sigurður Elías Guðmundsson sem rekur hótelið á Vík og Víkur- skála er mjög ósáttur við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, vegna ummæla hans um að Kötlugos kunni að vera í vændum. Hann krefst þess að forsetinn segi af sér eftir þessi ummæli. Ef þetta ástand varir fram í byrj- un maí verð ég að fara endurskoða mín mál. INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is Vill forsetann burt Sigurður Elías Guðmundsson á allt undir ferðaþjón- ustu þar sem hann rekur bæði hótelið á Vík og Víkurskála. Hann er vægast sagt ósáttur við ummæli forsetans og krefst afsagnar hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.