Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FRÉTTIR Í störfum sínum grennslaðist rann- sóknarnefnd Alþingis fyrir um orða- skipti Sigurðar Einarssonar, stjórn- arformanns Kaupþings banka, og Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra á aðalfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins í Washington laugardaginn 20. október 2007. Sigurður hafði sagt opinberlega að Davíð hefði haft í hótunum um að „taka bankann niður“. Málið kom upp um það leyti sem bankarnir féllu og tengdist óskum Kaupþingsmanna um að færa bókhald bankans í evrum og jafnvel að tekin yrði upp evra í stað krónunnar. Sigurður svaraði spurningum nefndarmanna um orðahnippingar sínar við Davíð í kvöldverðarboði eft- ir aðalfundinn. Við sama borð sátu, auk Sigurðar, eiginkona hans, Dav- íð, Árni M. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráð- herra, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, starfsmaður í Seðlabankanum. Síðar kom að borðinu Sturla Pálsson, yfir- maður alþjóðasviðs Seðlabankans. Borðhald leystist upp í rifrildi Í skýrslu Sigurðar segir síðan: „Seðla- bankastjóri byrjar strax að ræða það við utanríkisráðherra og fjármála- ráðherra að það sé alveg nauðsynlegt að sameina Fjármálaeftirlit og Seðla- bankann, bara að leggja Fjármála- eftirlitið inn í Seðlabankann. Ég sá bara að fjármálaráðherra sökk niður í sætinu, hafði einhvern tíma upplif- að þessa umræðu áður. Og svo spyr seðlabankastjóri, eða hvort það var utanríkisráðherra eða seðlabanka- stjóri: Hvað segir þú um það, Sigurð- ur? Og ég sagði: Ja, það væri kannski ágætis hugmynd þegar væri búið að taka peningastjórnina af Seðlabank- anum og búið að taka upp evruna, þá hefðu þeir eitthvað að gera með því að sinna Fjármálaeftirlitinu. Og þetta svar mitt mæltist ekki vel fyr- ir og síðan leið og beið og maturinn var búinn og það var ekki einu sinni komið kaffi, þá stóð fjármálaráðherra upp og sagði: Ah, það er best að ég fari eitthvað annað. Og utanríkisráð- herra líka. Það endaði með því að ég sat þarna einn með seðlabankastjór- anum og urðu langar og mjög harð- ar umræður á milli okkar og með- al annars þar sem hann lét þessi orð falla að ef við ætluðum að halda fast við það að fara yfir í þessar evrur þá skyldi hann sjá til þess að við yrðum gjaldþrota. Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef verið að „referera“ þessi orð og ætlaði aldrei að gera þau að neinu efni. [...] Ég man ekki en ég held að ég hafi ekki svarað neinu. Svo end- aði þessi samkoma þannig að fram- kvæmdastjóri alþjóðasviðs sem var þarna var að toga í öxlina á seðla- bankastjóra og var að reyna að koma honum heim og konan mín togaði í öxlina á mér og var að reyna að koma mér heim og aðstoðarkonan sat bara uppgefin í horninu.“ „Orðalag sem ég mundi aldrei nota“ Rannsóknarnefndin spurði einnig Davíð út í umræddar orðahnipping- ar. Kvað hann frásagnir af þessu orða- skaki hafa verið „dramatíseraðar“. „Þetta var á veitingastað sem heitir – þess vegna man maður það – heit- ir Perlan og ég man nú ekkert yfirleitt eftir veitingastöðum en ég mundi þetta út af þessu, þessari tengingu við Perluna okkar hér og það hefur ver- ið venja á þessum fundum Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins að Seðlabank- inn byði íslenskum þátttakendum til samkvæmis, kvöldsamkvæmis.“ Davíð staðfesti veru ofangreindra manna við borðið í upphafi. Nefndar- menn spurðu Davíð hvort hann hefði viðhaft þau orð sem vitnað hefði ver- ið til í fjölmiðlum, um að hann myndi „taka bankann niður“. Davíð svaraði: „Ég held að ég hafi nú reyndar svarað þessu opinber- lega að þetta er orðalag sem ég hef aldrei á ævi minni nefnt og notað. Því að þetta er einhver enskusletta sem að gæti verið að Sigurði sé tamt en – væntanlega „take the bank down“ væntanlega, þetta er orðalag sem ég mundi aldrei nota. [...] Skoðanaskipt- in snerust aðallega um mismunandi viðhorf okkar til þess hvort íslensk- ir bankar ættu að skrásetja sig í er- lendum gjaldmiðli og það var búið að halda því að með miklum eða skrá starfrækslu gjaldmiðilsins, svo mað- ur reyni nú að vera svolítið nákvæm- ur í þessu.“ Kvöldverður Davíðs Oddssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra, og Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnar- formanns Kaupþings, að loknum aðalfundi AGS í Washington haustið 2007 leystist upp í þrúgandi orðaskak þar sem Davíð hótaði að gera bankann gjaldþrota. Sigurður hafði áður tekið undir það í samræðum að óhætt væri að setja Fjármálaeftirlit undir Seðlabankann þegar búið væri að taka af honum peningastjórnina með upptöku evru. BORÐHALDIÐ LEYSTIST UPP VEGNA RIFRILDIS JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Þá stóð fjármálaráðherra upp og sagði: Ah, það er best að ég fari eitthvað annað. Og utanríkisráðherra líka. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að fjarlægja alla sandkassa borgarinn- ar í sparnaðarskyni. Framkvæmdin nær til allra sandkassa á svokölluð- um opnum svæðum borgarinnar og eru starfsmenn hverfastöðva langt komnir með verkið. Það er vegna sparnaðar sem þessi ákvörðun var tekin á framkvæmda- sviði Reykjavíkurborgar en fram til þess höfðu borgarstarfsmenn reglu- lega þurft að skipta um sand í köss- unum. Það er hreinlætisins vegna sem nauðsynlegt er að skipta um sandinn og þau skipti þykja ráða- mönnum á framkvæmdasviðinu kostnaðarsöm. Um er að ræða var- anlega ráðstöfun, í mörgum tilfellum hafa sandkassar nú þegar verið fjar- lægðir og möl sett í staðinn. Baldur Magnússon, skrifstofufull- trúi hverfastöðvar Reykjavíkurborg- ar við Stórhöfða, staðfestir að skip- un um að taka sandkassana burt hafi komið að ofan, frá framkvæmdasviði borgarinnar. Það segir hann gert þar sem kostnaður við sífelld sandskipti, vegna heilsuverndarsjónarmiða, hafi einfaldlega verið of mikill. „Þetta er á öllum opnu svæðunum, ekki inni á leikskólunum heldur á opnum leik- svæðum. Þeir eru teknir vegna heil- brigðiskrafna. Við erum einfaldlega uppgefnir af því að halda sandköss- unum hreinum, við þurftum alltaf að vera að skipta um sand og það kostar gommu af peningum,“ segir Baldur. „Hreinlætiskröfurnar eru mikl- ar og mjög dýrt að framfylgja þeim. Þetta er heilmikil fyrirhöfn og við höfum verið að setja möl og eitthvað í staðinn. Þessar ordrur komu af framkvæmdasviðinu og voru sendar á allar hverfisstöðvarnar. Við erum nú á síðustu metrunum í því að fram- fylgja þessu og það er eitthvað búið í öðrum hverfum.“ Aðspurður segir Baldur nokk- uð um að kvartanir hafa borist eft- ir að sandkassar hafi verið fjarlægð- ir. „Það er eitthvað um kvartanir þar sem fólk lýsir óánægju sinni yfir því að kassarnir séu fjarlægðir. Fólk spyr af hverju sé verið að þessu,“ segir Baldur. trausti@dv.is Ráðamönnum hjá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar þykja sandskipti í sandkössum of dýr: Sandkassar rifnir í sparnaðarskyni Teknir burt Sandkassar á opnum svæðum borgarinnar verða allir fjarlægðir þar sem mikill kostnaður fer í að gæta að hreinlæti í þeim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.