Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 18
Fyrstu ákærurnar sem tengdar eru hrun- inu eru á hendur níu mótmælendum sem sakaðir eru um að rjúfa friðhelgi Alþingis og ógna öryggi þess. Þetta er ömurleg stað- reynd í landi þar sem efnahagur er í rúst vegna hamfara af mannavöldum. Siðleys- ingjar urðu þess valdandi að lífskjör allra Ís- lendinga eru skert. Af gjörðum þeirra varð til jarðvegur þeirrar réttlátu reiði sem birtist í harkalegustu mótmælum Íslandssögunn- ar framan við Alþingi. Með því að brjóta sér leið inn í Alþingishúsið og upp á þingpalla 8. desember 2008. Þá eru mótmælendurnir einnig ákærðir fyrir ofbeldi gegn þingvörð- um og lögregluþjónum. Er þetta fyrsta ákæran sem ríkissaksókn- ari hefur gefið út vegna óeirða sem brutust út í kjölfar bankahrunsins. Þorri þjóðarinn- ar fylltist réttlátri reiði og mætti til að mót- mæla framferði þingmanna og ráðherra sem höfðu ekki staðið undir þeirri heilögu skyldu sinni að varðveita fjöregg Íslands. Það var í þessu andrúmslofti sem hópur mótmælenda reyndi að komast á þingpalla. Átök urðu við lögreglu og þingverði. Og nú er búið að ákæra þá sem fylltust ofsareiði í garð þeirra spilltu sem eyðilögðu afkomu Íslendinga með vanrækslu sinni. Þetta er hörmuleg framganga lögreglu og dómstóla. Þar ættu menn að vera önnum kafnir við að koma lögum yfir spillingaröfl hrunsins. En menn hafa enn hikstað á því að kalla sam- an landsdóm vegna vanrækslu ráðherra. Og það sýnir vel áherslur réttarkerfisins að þar er fólk nú í óðaönn að þagga niður mál hórkarla sem urðu uppvísir að lögbrot- um. Leitað er allra leiða til að ekki verði op- inberað hvaða hópur manna keypti blíðu gleðikvenna. Á meðan eru mótmælendur miskunnarlaust dregnir fyrir dóm vegna borgaralegrar óhlýðni. Í ljósi ástandsins á Íslandi haustið 2008 ættu dómarar að leita allra leiða til að komast hjá því að dæma þá sem aðeins vildu mótmæla mesta skemmd- arverki lýðveldissögunnar. Það er engin eft- irspurn í samfélaginu eftir því að koma sak- leysingjum í fangelsi. SÆTTIR Á SÖGU n Í nóvember síðastliðnum kastaðist í kekki milli Arnþrúðar Karlsdóttur, eiganda Útvarps Sögu, og Guðmund- ar Ólafssonar hagfræðings sem hafði í nokkur miss- eri verið fasta- gestur Sigurðar G. Tómasson- ar á föstudags- morgnum og notið gríðar- legra vinsælda. „Við getum ekki liðið Guðmundi það að vera ítrekað með ærumeið- andi ummæli, nú er mælirinn fullur,“ sagði Arnþrúður eftir að Guðmund- ur hafði átalið hana fyrir framgöngu gegn fólki austur á landi. Sagði Arn- þrúður að spjall Sigurðar G. við Guð- mund nyti vaxandi óvinsælda. Nú hafa Arnþrúður og Guðmundur sæst heilum sáttum og má því búast við að alfræðingarnir Sigurður G. og Guð- mundur taki upp þráðinn aftur. LÍFRÓÐUR BJARNA nBjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, stendur nú í lífróðri til að bjarga eigin skinni. For- maðurinn er að mestu án baklands í flokknum og eru að myndast fylking- ar til að koma að nýju fólki. Stór hluti sjálfstæðismanna horfir til Kristjáns Þórs Júlíussonar sem á sínum tíma fór gegn Bjarna í formannskjöri en tapaði naumlega. Aðrir mæla með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgar- stjóra en pólitísk framtíð hennar velt- ur á því hvort hún heldur flokknum í meirihluta í Reykjavík. BJÖRN Á FLÓTTA n Stjórnmálamenn fyrri tíðar eru nú hver um annan þveran að sverja af sér ábyrgð á því samfélagi sem reyn- ist vera gegn- sýrt af spillingu. Meðal þeirra sem reyna að hlaup- ast undan ábyrgð sinni er Björn Bjarnason, fyrr- verandi dóms- málaráðherra, sem á að baki umdeildar skipanir í réttarkerfinu. „Ég var ekki í liðinu, sem mærði út- rásina,“ bloggar Björn og nefnir sér- staklega Baugsmálið sem honum var hugleikið. Björn hefur aftur á móti aldrei hallað orði á Björgólfsfeðga en tengdasonur hans er einmitt í vinnu hjá þeim. „VIÐ SJÁLFGRÆÐIS- MENN“ n Tímabundnar afsagnir innan Sjálf- stæðisflokksins og Samfylkingar hafa vakið óskipta athygli. Sterk krafa er uppi í samfélag- inu um að fleiri axli sín skinn. Þar er meðal annars bent á Jóhönnu Sigurð- ardóttur, formann Samfylkingar, og Bjarna Benediktsson, formann Sjálf- stæðisflokks, sem raunar hefur vafn- ingalaust sagt að hann beri ekki sök. Vísnaskáldið Ingi Gunnar Jóhanns- son orti vísukorn í tilefni afsagna sjálfstæðismanna. Við græðum á daginn og grillum á kvöldin, það gefur oss þróttinn og eflir vorn móð. Við sjálfgræðismenn erum sólgnir í völdin og seilumst í vasann hjá íslenskri þjóð. Steinunn Valdís Óskarsdótt-ir heitir kona, BA í sagnfræði. Snemma varð hún virk í fé-lagsstörfum. Hún varð for- maður Félags sagnfræðinema, fór í Stúdentaráð Háskólans og endaði í borgarstjórn. Eftir nokkur ár í stjórn- málum komst hún heldur betur í álnir. Hvert stórfyrirtækið á fætur öðru beið í röð eftir að gefa Steinunni pening. Fyrst kom Atlantsolía með 500 þúsund. Atlantsolía lifir á því að geta fengið lóðir undir bensínstöðvar. Svo kom Eykt með 650 þúsund. Eykt er verktakafyrirtæki og þarf líka á lóð- um að halda. Á eftir Eykt kom Hönn- un með 500 þúsund. Það er líka verk- takafyrirtæki. Því næst kom Nýsir, sem er þróunar- og fasteignafélag. Slíkt félag þarf nauðsynlega góðan aðgang að lóðum og velvilja borgar- stjórnar að halda. Steinunn Valdís fékk heila milljón frá Nýsi. Þegar þarna var komið við sögu hafði Steinunn Valdís fengið heilar tvær og hálfa milljón krónur í gjöf frá stór- fyrirtækjum sem vantaði lóðir. Það er meira en meðallaunamaður fær út- borgað á heilu ári. Steinunn Valdís var heppin og sæl. Og fyrirtækin fengu lóðir og byggðu hús. En svo komu fleiri stórfyrirtæki og vildu vera góð við Stein-unni Valdísi. Nokkur þeirra gáfu henni minna en 500 þúsund og Steinunn vill ekki segja okkur hver þau voru, af því að hún þarf þess ekki. Einn daginn var hún svo lánsöm að FL Group ákvað að gefa henni milljón krónur. FL Group var á þessum tíma með mikinn áhuga á grænni orku, og viti menn, Reykja- víkurborg átti orkuveitu. Um sama leyti ákvað Reykjavíkurborg og FL Group að fara í samstarf í fyrirtækjun- um Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy. Ekkert lát var enn á láni Steinunnar. Sama ár og hún fékk allar þess-ar gjafir, upp á rúmar fjórar milljónir, frá vinalegu stór-fyrirtækjunum, ákvað Baug- ur líka að gefa Steinunni pening. Baugur átti FL Group, eða FL Group Baug, og því var ekki skrítið að örlæti þeirra leitaði í sama farveg. Auk þess vantaði Baug lóðir fyrir verslanirnar sínar. Og Baugur gaf Steinunni millj- ón krónur. Hvað heldurðu að okkur muni um 25 milljónir?“ spurði Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbank- ans, þegar rannsóknarnefndin spurði hann af hverju hann gaf svona mik- inn pening. Hann sagðist hafa gefið öllum sem spurðu. Og Landsbank- inn gaf Steinunni Valdísi 1,5 milljónir króna. Svona var það að Steinunni Valdísi Óskarsdóttur voru gefnar átta milljónir króna á því herrans ári 2006, eða sem nemur næstum fjórföldum útborguðum meðallaunum Ís- lendinga. Árið eftir fékk hún bara 4,6 milljónir frá Landsbankan- um, Baugi og FL Group. Í fyrra var Steinunn svo hógvær að hún vildi ekki segja blaðamanni DV hvað hún hefði fengið í styrki. Hún var þá að bjóða sig fram til Alþingis. Steinunn Valdís er viðtak-andi örlætisins, uppáhald verktakanna og vinsæl-asti stjórnmálamaðurinn hjá vinaþurfi stórfyrirtækjum. Hvers vegna ætli hún hafi feng- ið 12 milljónir í gjöf, þegar aðrir þyrftu að vinna í næstum sex ár fyrir því? Er hún bara svona ynd- isleg? Eða vann hún kannski fyrir þessu? STEINUNN VALDÍS Í ÁLNIR „Ég hef bara ekki haft tíma fyrir það undanfarið til að athuga hvort það hafi breyst,“ segir Ómar Ragnarsson fréttamaður sem hefur náð inn á rúmlega hundrað milljón heimili um allan heim með umfjöllun sinni um eldgosið í Eyjafjallajökli. ERTU ORÐINN HEIMS- FRÆGUR? „Við erum alveg á fullu hérna, ég get bara ekki talað núna.“ n Ómar Ragnarsson þegar blaðamaður DV náði tali af honum á sunnudag. Hann var önnum kafinn við að aðstoða starfsfólk Aljazeera- fréttastofunnar en hann var sérstakur ráðgjafi hennar um eldgosið í Eyjafjallajökli. - DV „Þetta myndi örugglega gera mörgum gott.“ n Njörður Snæland trésmiður sem hvetur atvinnulausa og alla sem vettlingi geta valdið til þess að bjóða bændum undir Eyjafjöllum aðstoð sína. - DV.is „Mér þótti því ekki skynsam- legt fyrir FL Group að kaupa Sterling.“ n Ragnhildur Geirsdóttir, fyrrverandi forstjóri FL Group, um hvers vegna hún hætti störfum. Hún hafi ekki þegið mútur eins og ýjað sé að í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. - DV.is „Þetta er auðvitað grafal- varlegt mál.“ n Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar um yfirlýsingar Ólafs Ragnars Grímssonar um hugsanlegt Kötlugos. Sem blaut tuska í andlitið á ferðaþjónustunni. - Visir.is  „...láta Al- mannavarnir og vísinda- menn um það að meta hvort eldgos í Kötlu sé á næsta leiti.“ n Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vegna ummæla Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um Kötlugos. Forsetinn virðist hvergi hafa aflað sér vinsælda með þessum ummælum sínum. - Visir.is Þeir hlífa hórkörlum REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Á meðan eru mótmælendur miskunnarlaust dregnir fyrir dóm. 18 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 UMRÆÐA SANDKORN LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. LEIÐARI SPURNINGIN SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.