Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FRÉTTIR Lögreglan í Venesúela hefur handtek- ið par sem sakað er um að þykjast vera lýtalæknar og hafa séð um brjósta- stækkanir og ígræðslur í sitjanda fjölda kvenna á ólöglegri læknastofu, sem staðsett var í íbúð í borginni Mar- acay í vesturhluta landsins. Fegrunaraðgerðir, einkum og sér í lagi brjóstastækkanir, eru afar al- gengar í Venesúela, enda tengja marg- ir landið við fegurðardrottningar sem unnið hafa fjölda alþjóðlega tiltla á því sviði. Karlmaðurinn, Reinaldo Henriqu- es, var ákærður fyrir ítrekaða svik- samlega starfsemi en aðstoðarkona hans, Hersi Rodriques, var ákærð fyr- ir aðstoð við Reynaldo með því að finna skjólstæðinga og koma með þá á læknastofuna. Reinaldo Henriques, 26 ára, og Hersi Rodriques, 34 ára, eru bæði fyrr- verandi snyrtifræðingar og tilheyrðu gengi sem gekk undir nafninu „Silik- on“ sem laðaði að viðskiptavini með því að bjóða upp á aðgerðir fyrir afar lágt verð. Lögreglan fékk upplýsingar um skötuhjúin frá fyrrverandi viðskipta- vini þeirra 12. apríl. Lögreglan réðst síðan til inngöngu á læknastofu þeirra og hafði hendur í hári þeirra, og fann að auki áhöld til skurðlækninga. Þrátt fyrir að Venesúela sé í greip- um djúprar efnahagslægðar nú um stundir hefur ásókn Venesúelamanna í fegrunar-, og lýtaaðgerðir ekki dregist saman og fjöldi fólks er reiðubúinn til að steypa sér í skuldir til að lyfta ásjónu sinni og anda, segja þarlendir læknar. Gervilæknar handteknir af lögreglunni í Venesúela: Ólöglegar brjóstastækkanir Spilar golf af miklum móð Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur leikið golf þrjátíu og tvisvar sinnum síðan hann tók við embætti, og hefur skotið George W. Bush, for- vera sínum í starfi, ref fyrir rass í því tilliti. Barack lék síðast golf á sunnu- daginn þegar aska úr Eyjafjallajökli hindraði hann í að vera við jarðar- för pólsku forsetahjónanna í Kraká í Póllandi. Oft var dregið dár að Bush vegna golfástríðu hans, en hann lék golf tuttugu og fjórum sinnum alla sína forsetatíð. Þessar tölur eru fengnar frá Mark Knoller, útvarpsmanni hjá CBS, en hann er nefndur óopinber tölfræð- ingur Hvíta hússins. Of seint í rassinn gripið Að mati fyrrverandi embættismanns bandaríska varnarmálaráðuneytis- ins kann að vera um seinan að koma í veg fyrir að Íran þrói kjarnorku- vopn. Í viðtali, undir nafnleynd, sagði maðurinn í viðtali við The Times að Barack Obama, forseti Bandaríkj- anna, hefði beðið of lengi með harð- ar aðgerðir gegn Íran. „Á fimmtán mánaða tíma ríkis- stjórnar hans hefur Íran ekki staðið frammi fyrir alvarlegum afleiðingum vegna áframhaldandi úranauðgunar landsins,“ sagði embættismaðurinn fyrrverandi. Hreinsað til í hæstu hæðum Tuttugu nepalskir fjallgöngugarp- ar munu leggja á brattann á Everest í vikunni. Tilgangur ferðarinnar er að reyna að fjarlægja áratuga gam- alt rusl af fjallinu. Fjöldi erlendra göngumanna, sem og innfæddra, hafa áður hreinsað til á fjallinu, en enginn hefur treyst sér til hreinsun- arstarfa fyrir ofan 26.246 metra hæð, á svæði sem þekkt er sem „dauða- svæðið“. Everest-fjall hefur getið sér orð fyrir að vera hæsti ruslahaugur ver- aldar því margir fjallgöngumenn skilja þar eftir útbúnað sinn þegar þeir halda niður fjallið, vegna ör- mögnunar og súrefnisskorts. Lýtalæknar að störfum Óprúttið fólk bauð upp á ódýrar fegrunaraðgerðir í Venesúela. ÖSKUFALL OG ÓVISSA Öskufall vegna gossins í Eyjafjallajökli hef- ur sett flugsamgöngur víða í veröldinni úr skorðum. Stjórnendur flugfélaga eru þeirr- ar skoðunar að stjórnvöld víða hafi gengið of langt í að loka loftrými vegna öskufalls- ins og varkárni hafi verið meiri en ástæða var til. Þrátt fyrir að í gær hafi flugvellir víða verið lokaðir voru þess þó dæmi að flugvellir væru opnir og vélar bæði tækju á loft og væri lent. Talið er að flugbannið hafi haft áhrif á um sjö milljónir farþega. Þrátt fyrir að margir evrópskir flug- vellir hafi verið lokaðir á þriðjudag- inn sökum öskufalls voru þess þó dæmi að flugvélar tækju á loft í Norð- ur-Evrópu. Í Madríd, París, Amster- dam og Frankfurt tóku vélar sig á loft og vonir stóðu til þess að flugumferð gæti hafist að nýju. Flugumferðarstjórar í Bretlandi deildu ekki þeirri bjartsýni þar sem ný öskuský bárust yfir landið, en eitt- hvað flug átti sér þó stað frá flugvöll- um í Skotlandi og norðurhluta Eng- lands. Í viðleitni til að koma böndum á ástandið ákvarðaði samgöngustjórn Evrópusambandsins flugbannsvæði, með takmörkuðu flugi og hrein loft- svæði. Svissnesk og ítölsk yfirvöld opn- uðu loftrými landa sinna og sögðu Svisslendingar að rannsóknir sýndu verulega minnkun ösku í andrúms- loftinu og farþegum stafaði engin hætta þar af. Gert var ráð fyrir því að 14.000 flug gengju eftir í evrópsku loftrými, en það er um helmingur ætlaðs flugs. Flugvélar þurftu að fljúga í að minnsta kosti 20.000 feta hæð þar sem loftrými undir þeirri hæð var bannað eða takmörkunum háð. Mikið óvissuástand Þrátt fyrir að flugferðir hafi haf- ist með takmörkunum víða í Norð- ur-Evrópu ríkir enn mikil óvissa um framhald þar á. Á þriðjudaginn var 95 af 100 flugferðum frestað, en þó höfðu komið inn til lendingar vélar frá Bandaríkjunum og víðar að. Í Madríd mættu flugfarþegar tím- anlega fyrir flug sitt, en þurftu síðar að bíða á milli vonar og ótta um hvort af því yrði eður ei. Á sama tíma og þessi óvissa ræður ríkjum er þráttað um réttmæti þess að flugvöllum sé lokað og flug bann- að í jafnmiklum kæli og raunin hef- ur orðið. Ákafur áróður af hálfu flug- KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Yfirvöld almenn-ingssamgangna byggja ákvörðun sína á því sem flugumferð- areftirlit ríkisins segir þeim. Það byggir sína ákvörðun á upplýsing- um sem veðurstofan lætur þeim í té. Alþjóðlegi flugvöllurinn í Kuala Lumpur í Malasíu Áætlað tap Asia Pacific-flug- félagsins er áætlað um 40 milljónir bandaríkjadala á dag. MYND AFP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.