Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 14
ÓKEYPIS NÁMSKEIÐ Á vef Blómavals er að finna margvíslegan fróðleik um allt sem við kemur garðrækt og umhirðu plantna. Þar er með- al annars hægt að skrá sig á ókeypis námskeið í vor og sum- ar. Fullbókað er á næsta nám- skeið, sem fjallar um ræktun og klippingar rósa og flutning á trjám og runnum. Hins vegar fæst ekki betur séð en enn sé laust á námskeið hinn 6. maí um sígrænar og lauffallandi tegundir trjáa, runna og fjölær- inga. „Sagt verður frá harðgerði þeirra og sérkenni með mis- munandi notkun í huga,“ segir á blomaval.is. n Viðskiptavinur Hagkaups hugðist dreifa greiðslum á reiðhjóli á fjóra mánuði. Eftir mikla bið fengust þau svör að kreditkortið væri innistæðulaust. Það reyndist ekki rétt og fór viðskiptavinurinn aftur í Hagkaup þar sem sama bið tók við. „Stúlkan á kassanum var kurteis en sú á skrifstofunni alls ekki.“ n Lofið fær Rakang Thai fyrir góðan mat og gott verð. Blaðamaður keypti sér tvo rétti í hádegi og greiddi eitt þúsund krónur fyrir. Með fylgdi hálfur lítri af Toppi. Maturinn smakkaðist prýðilega og var þokkalega úti látinn. Umhverf- ið var notalegt og andrúmsloft- ið þægilegt. Staðurinn er við Lyngháls 4. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS DÍSILOLÍA Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 205,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 203,8 kr. Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 206,7 kr. VERÐ Á LÍTRA 204,9 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 208,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 218,7 kr. BENSÍN Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 206,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 204,7 kr. Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 206,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 204,8 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 208,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 206,8 kr. UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is el d sn ey ti 14 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 NEYTENDUR SALMONELLA Í KJÚKLINGI Grunur um salmonellu hefur komið í upp í kjúklingi fram- leiddum af Matfugli. Að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu þarf frekari rann- sóknir til að staðfesta gruninn en engu að síður þarf að inn- kalla kjúkling sem ber eftirfar- andi þrjú rekjanleikanúmer: 011-10-10-2-21, 011-10-10-3-02 og 011-10-10-7-33. Heilbrigðisyfirvöld hafa komið að því að innkalla vöruna. Hafi fólk ferska kjúklinga heima hjá sér með áðurnefndum númer- um skal honum skilað í þá versl- un sem hann var keyptur eða beint til Matfugls ehf. í Mos- fellsbæ. Í tilkynningunni segir að kjúklingurinn sé hættulaus ef farið er eftir leiðbeiningum um eldun. Kjötið þarf að stekja í gegn og passa að blóðvökvi smitist ekki á milli áhalda eða í meðlæti. RÆKTAÐU ÞINN EIGIN MAT Með aðgang að moldarbeði og smá vinnuframlagi má hæglega fá á bilinu 20 til 50 kartöflur úr einni uppskeru, ef vel gengur. Uppskeran ræðst með- al annars af veðurfari, gæðum jarð- vegsins, góðum áburði, og natni þess sem sáir en ekki er óvarlegt að gera ráð fyrir því að sá sem sáir 5 kílóum af spíruðum kartöflum að vori uppskeri um 50 kíló að hausti. Fimmtíu kíló af kartöflum kosta, samkvæmt Hagstof- unni, liðlega 9.000 krónur úti í búð. Jarðarber, rófur og kál Kartöflur eru hins vegar ekki eina grænmetið sem hægt er að rækta á Íslandi. Rófur, gulrætur og kál eru dæmi um annað grænmeti sem auð- velt er að rækta en þess utan má rækta alls kyns kryddjurtir og jafn- vel jarðarber, með lítilli fyrirhöfn. DV leitaði til garðyrkjufræðingsins Stein- unnar Reynisdóttur hjá Garðheim- um og fékk ráðleggingar er varða grænmetisræktun. Skjólsælt en sólríkt Þeir sem eiga grasflöt og vilja byrja að rækta ættu að velja stað á flötinni þar sem sólar nýtur helst og þar sem er skjólsælt. Steinunn segir að vel sé hægt að gera matjurtagarða fal- lega, jafnvel þótt þeir séu á áberandi stað á framlóðinni. „Ef maður setur til dæmis ramma utan um garðinn eða stikar hann af á einhvern hátt þá getur garðurinn vel verið fallegur,“ segir hún. Þeir sem ekki eiga garð geta leitað á náðir sveit- arfélagsins. Flest, ef ekki öll, sveit- arfélög leigja út skika á sann- gjörnu verði. Steinunn bendir þó á að á slíkum svæðum geti ver- ið erfitt að vökva, ef vatnslögn liggur ekki að garðinum. Þeir sem ekki hafa ráð á því að leigja skika og þeir sem ekki eiga eigin garð geta að sögn Steinunnar keypt ílát í Garðheimum til ræktunar á svölum. Þar sé til dæmis hægt að rækta gul- rætur, jarðarber, rófur og kál, án mik- illar fyrirhafnar og kostnaðar. Stingið upp garðinn „Það er gott að fara að huga að því að stinga upp garðana og láta lofta svo- lítið um þá. Nú er líka tíminn til að setja í þá lífrænan áburð á borð við þörungamjöl, hænsna- skít, moltu eða hrossatað,“ seg- ir Steinunn spurð hvort of snemmt sé að sá núna. Hún segir að nú sé ágætur tími til að sá fræjum innandyra; til dæmis af kryddjurtum og rófum. Í maí sé svo hægt að færa þær út, þegar hlýn- ar. „Gulrótum er hins vegar ekki gott að forsá inni. Það er best að sá þeim beint út í beð þegar líður á maí og fer að hlýna í veðri, eða þegar líkur á næturfrosti minnka,“ útskýrir hún. Það er þó ekki þar með sagt að uppskeran sé ónýt þótt það frysti á frumstigum ræktun- arinnar. „Það er gott að vera með hvítan akrýldúk, eitt eða tvö lög, yfir til að verja plönturnar fyrir nætur- frosti,“ segir hún. Sáningin Aðspurð hvenær hentugt sé að stinga niður kartöflum segir Steinunn að það sé einnig best að gera í maí. Þeir sem ætla að sá kartöflum þurfa að kaupa útsæði (eða nota eigin kart- öflur) í verslunum og láta þær forspí- ra. „Það er best að gera á björtum og hlýjum stað en ekki í sólarljósi. Þetta getur til dæmis verið á bílskúrsgólfi eða í vaskahúsi, þar sem birtan nær inn,“ útskýrir Steinunn en bætir við að útsæðiskartöflur séu yfirleitt seld- ar í fimm kílóa pokum. Um fjórar til sex vikur tekur að láta þær spíra. Þess má geta að fimm kíló af útsæði passa í garð sem er 15 til 20 fermetr- ar að stærð. Gott er að hafa um 25 til 30 sentímetra á milli kartaflna í einni röð og um 60 sentímetra á milli raða, ef þær eru fleiri en ein. Þá er gott að stinga útsæðinu 4 til 6 sentímetra niður í jarðveginn. Vatn og sól Yfir sumartímann er nauðsynlegt að matjurtagarðurinn fái nægt vatn. Hann ætti að vera rakur öll- um stundum en ekki má þó drekkja honum í vatni. Best er að vökva síðla dags. Gott er einnig, að sögn Steinunnar, að gefa garðinum nær- ingu yfir sumarið, til dæmis með lífrænum áburði. „Það vantar yfir- leitt einna helst snefilefni, svokall- að þrífosfat, sérstaklega ef þú ert með mikið af rótargrænmeti. Það er tilbúinn áburður sem örvar rót- ina,“ útskýrir hún en áburð af ein- BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Snyrtilegur kartöflugarður Steinunn segir að auðvelt sé að hafa matjurtagarð snyrtilegan, til dæmis með því að byggja um hann ramma. Þessi er þó í stærra lagi. Fátt er gómsætara en nýuppteknar kartöflur eða gulrætur; jarðarber sem maður ræktar sjálfur eða steik sem krydduð er með heimaræktuðum kryddjurtum. Steinunn Reynisdóttir hjá Garðheimum segir að nú sé tímabært að kaupa útsæði, forsá innandyra og stinga upp matjurtagarða. KARTÖFLURÆKTUN VOR (APRÍL–MAÍ) VOR OG SUMAR (MAÍ–ÁGÚST) HAUST (ÁGÚST–SEPTEMBER) VETUR (OKTÓBER–MARS) Kartöflur eru látnar spíra (ála) til að nota sem útsæði. Jarðvegur und- irbúinn. Útsæði sett niður. Kartöflugras vex upp af einni kartöflu (oft kölluð kartöflumamma). Nýjar kartöflur myndast. Þegar líður á haustið falla kartöflugrösin og gulna. Kartöflur teknar upp. Hluti uppskerunnar tekinn frá til að nota sem útsæði (ef það er ekki keypt). Nýjar kartöflur matreiddar og borðaðar. Kartöflur sem teknar voru frá eru geymdar í kaldri geymslu yfir veturinn. Þegar líður á vorið og hitinn helst lengur en nokkra daga í senn fara kartöflurnar að spíra. Kartöflur borðaðar á meðan uppskeran endist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.