Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 20
Leikstjórinn Louie kemst á snoðir um vel falið leyndarmál í vík einni í Taiji í Japan. Um er að ræða árlega höfr- ungaslátrun sem yfirvöld leggja sig fram um að halda leyndri. Louie rað- ar saman einvalaliði af aðgerðasinn- um sem líkjast helst hasarmynda- teymi. Með reynslu af hernaði, köfun, tæknibrellum og mynd- og hljóðupp- tökum við óhefðbundnar aðstæður hefst undirbúningur að því að svipta hulunni af blóðbaðinu. Það er mikil og skemmtileg áhersla á hlut Rics O’Barry, fyrrver- andi höfrungaþjálfara. Hann var ábyrgur fyrir höfrungunum fimm sem léku í sjónvarpsþáttunum Flipp- er á sínum tíma og vill bæta fyr- ir það með því að bjarga höfrung- um frá slátrun og ánauð. Myndin er skipulega uppsett og uppbygging- in er markviss fyrir klímaxið sem er opinberun höfrungaslátrunarinnar. Á leiðinni fáum við innsýn í hugar- heim aðgerðasinnanna og á hvaða forsendum þeir gera allt til að koma í veg fyrir að höfrungar séu drepn- ir eða hafðir í búrum mönnum til skemmtunar. Með í þessum pakka fáum við þessa klassísku tölu um hvað höfr- ungar séu nú gáfaðir og tengd- ir mönnum í vitsmunum. Við fáum góðan slatta af tilfinningarúnki, væl- andi kanakellingum og Paul Watson kemur þarna með nokkra gullmola. Engin gerir tilraun til að útskýra af hverju það er í lagi að éta önnur gáf- uð dýr eins og svín. Við sjáum blóð- baðið sem fylgir höfrungadrápunum og rétt eins og í grindhvaladráp- um færeyskra frænda okkar er það dramatískt á að líta og einstaklega grafískt að sjá sjóinn rauðan af blóði. En eftir stendur að aðfarirnar eru langt í frá markvissar og mannúð- legar og myndir sem sýna þetta eiga fullt erindi við almenning þótt jap- önsk stjórnvöld álíti það ekki. Kom- ið er inn á það hvernig Japan hefur tryggt sér leppatkvæði fátækra smá- þjóða í Alþjóðahvalveiðiráðinu með efnahagsaðstoð sem skiptimynt. Hið mikla magn kvikasilfurs í höfrunga- kjötinu er einnig mjög sterkur punkt- ur sem er ekki þeim iðnaði í hag. Í lok dags þarftu ekki einu sinni að vera sammála öllu hér. Bara það að sjá hina hliðina er meinhollt og Íslend- ingar hafa gert allt of lítið af því gegn- um tíðina hvað þessi mál varðar. Ís- lendingar hafa almennt verið hart fylgjandi hvalveiðum og ekkert ann- að hefur komist að. Svo það er í fína að hleypa þessari mynd að, fín inn- sýn í hvað „hitt liðið“ er að hugsa og bráðskemmtilega uppbyggð í leið- inni. Erpur Eyvindarson Bræður munu berjast HVAÐ HEITIR LAGIÐ? „Hlæðu með þótt þau séu að hlæja að þér og heimskulegu hlutunum sem þú gerir. Af því að þú heldur að fátækt sé kúl.“ Á MI ÐVIKUDEGI 20 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FÓKUS BARNAHÁTÍÐ Í REYKJANESBÆ Barnahátíð í Reykjanesbæ hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Setning hátíðarinnar fer fram í Du- ushúsum þar sem bréfdúfum verður sleppt með boð á hátíðina til allra barna á landinu. Meðal viðburða á barnahátíð má nefna listahátíð barna, listasmiðjur, ljósmyndasýn- ingu, hreystikeppni, dorgkeppni, hlaupakeppni, fjölskylduratleik, hestahátíð og sjóræningjaleik í Vatnaveröld þar sem þekktur sjó- ræningi lítur við, auk þess sem kálf- ar, lömb og kiðlingar verða í Víkinga- heimum. Á fimmtudag og laugardag verður einnig hægt að taka þar þátt í víkingaleik. Nánar á barnahatid.is. KVIKMYNDIR ÓSKAST Kvikmyndahátíðin Nordisk Pano rama og Wavelenghts-dag- skráin innan kvikmyndahátíðar- innar í Toronto leita nú að efni. Wavelength-dagskráin er helguð jaðarkvikmyndum og vídeólist og fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Umsækjendur þurfa hvorki að fylla út eyðublöð né borga gjald, heldur dugir að senda eintak af verkinu á heimilisfangið Wave- lengths, TIFF, Attention: Andréa Picard, 2 Carlton St, suite 1600, Toronto, ON M5B 1J3, Can- ada. Umsóknarfrestur á Nordisk Pano rama er til 15. maí en 17. maí á Wavelenghts. MANNAKORN Í HÁSKÓLABÍÓI Hin sögufræga hljómsveit Manna- korn hefur ákveðið að efna til mik- illar tónlistarveislu í Háskólabíói 15. maí í tilefni af útgáfu nýrrar safnplötu. Í aðalhlutverki verða að sjálfsögðu þeir Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson, sem hafa ver- ið kjölfestan í bandinu frá stofnun þess um miðjan áttunda áratuginn. Einvala lið tónlistarmanna verður þeim til halds og trausts, þau Ellen Kristjánsdóttir, Stefán Magnússon, Benedikt Brynleifsson, Ásgeir Ósk- arssson, Eyþór Gunnarsson, Elísabet Eyþórsdóttir og Ragnheiður Helga Pálmadóttir. Miðaverð er 3.900 krón- ur, miðasala á midi.is. Svar: Common People með Pulp Bræðurnir Rudo og Cursi búa í mik- illi fátækt í smábæ í Mexíkó. Rudo, leikinn af Diego Luna, þarf á lágum launum að sjá um fjölskyldu sína á meðan Cursi, leikinn af Íslandsvin- inum og hjartaknúsaranum Gael Garcia Bernal, er laus og liðugur glaumgosi. Eini tími bræðranna til að gleyma gráköldum veruleikan- um er einu sinni í viku þegar þeir keppa í fótbolta gegn liðum frá næstu bæum. Það vill líka svo til að þeir eru báðir virkilega góðir. Cursi fædd- ur markaskorari og Rudo frábær en gífurlega harðskeittur mark- vörður. Fyrir slysni uppgvötar stór umboðsmaður bræðurna en getur aðeins boðið öðrum með til stórborgarinnar. Cursi verð- ur fyrir valinu en skömmu síðar fylgir Rudo með og slá þeir báð- ir í gegn. Báðir eiga þeir þó aðra drauma sem heltaka þá og eyðileggja feril- inn smám saman. Cursi langar ekk- ert meira en að verða söngvari og draumur Rudos er miklir pening- ar, og það strax. Það þýðir aðeins eitt. Veðmál á veðmál ofan og spilar hann frá sér nær öllum peningum sem hann fær. Þá sem langar bara að sjá fót- boltamynd á borð við Goal verða sviknir af þessari mynd. Í raun er það sem gerist inni á vellinum í aukahlutverki. Hún fjallar í raun um ólíkar leiðir Rudo og Cursi á toppinn og aftur niður. Bæði þurfa þeir að berjast inni á vellinum en þess þá heldur utan hans. Það verður að segjast að myndin er eilítið súr en leikur bæði Bernal og Luna er frábær. Þeim tekst vel að halda í bræðra- ástina, nánast sama hvað bjátar á. Myndin er sykursæt og beisk til skiptis. Rússíbanareiðin endar svo inni í vítateig þar sem bræð- urnir þurfa að berjast. Og allt er undir. Þetta er fótboltamynd sem allir geta horft á, líka þeir sem hringja inn á RÚV þegar fótbolta- leikur truflar Kastljósið. Tómas Þór Þórðarson RUDO Y CURSI Leikstjóri: Carlos Cuarón Aðalhlutverk: Gael García Bernal, Diego Luna, Guillermo Francella. KVIKMYNDIR Bræðraást Rudo og Curci elska hvor annan en þurfa að berjast við margt. THE COVE Leikstjóri: Louie Psihoyos Heimildamynd Sýnd á Bíódögum Græna ljóssins KVIKMYNDIR HIN HLIÐIN Á HÖFR- UNGASTEIKINNI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.