Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 6
Aldrei hafa fleiri heimsótt frétta-
vefinn DV.is en í síðustu viku þegar
171.579 notendur lögðu leið sína á
síðuna. Gamla aðsóknarmetið var
149.133 notendur. Að sama skapi
hafa flettingar og innlit á DV.is aldrei
verið fleiri en í síðustu viku; fletting-
arnar voru rúmar 4,7 milljónir og
innlitin rúmlega milljón.
Síðan vefurinn DV.is var opnaður
haustið 2007 hefur aðsóknin aukist
jafnt og þétt og hefur vefurinn fest
sig í sessi sem einn áreiðanlegasti
fréttavefur landsins þegar stórvið-
burðir eru annars vegar. Þannig var
DV.is með gríðarlega öfluga umfjöll-
un um skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis á mánudag og á eftir
því fylgdi yfirgripsmikil umfjöllun
um áhrif og afleiðingar eldgossins í
Eyjafjallajökli.
Ekki er nema ár síðan metfjöldi
notenda á DV.is var 91 þúsund og
því hafa notendur tæplega tvöfald-
ast á aðeins einu ári.
Fyrir páska voru gerðar breyt-
ingar á vefnum með það að mark-
miði að efla hann enn frekar og gera
hann notendavænni fyrir lesendur.
Lesendur hafa tekið þessum breyt-
ingum vel sem endurspeglast í auk-
inni notkun almennings. Eru les-
endum færðar þakkir fyrir þessar
góðu viðtökur.
Síðustu daga hafa fjölskyldur flúið
heimili sín undir Eyjafjöllum vegna
eldgossins í Eyjafjallajökli. Í flestum
tilfellum eru það mæður með börn
sín sem hafa flutt til ættingja eða vina
á meðan heimilisfaðirinn heldur bú-
skapnum í horfi.
Anna Björk Ólafsdóttir, íbúi á
Raufarfelli undir Eyjafjöllum, er ein
þeirra mæðra sem flúði með börn-
in sín um nýliðna helgi þar sem hún
óttaðist um hag þeirra. Hún segir
það hreinan hrylling að búa á svæð-
inu í kjölfar eldgossins. „Myrkrið sem
helltist yfir okkur er hræðilegt. Það er
allt hreinlega svart. Ég hef ekkert get-
að sofið heima vegna eldinga þar sem
húsið hefur gjörsamlega nötrað. Upp-
lifunin er skelfileg. Það er algjörlega af
ótta sem við tókum þessa ákvörðun,
að fara að heiman,“ segir Anna Björk.
Algjör viðbjóður
„Áður en við fórum endanlega höfð-
um við farið af öskusvæðinu, keyrð-
um burt bara til að komast út úr myr-
krinu. Þegar ég kom aftur heim sá
ég hversu mikill viðbjóður þetta er,
pakkaði niður því helsta og fór með
börnin. Það vildi ég gera áður en þau
uppgötva líka sjálf hversu hræðilegt
þetta er og ég get ekki ímyndað mér
annað en við verðum í burtu í dálít-
inn tíma, við getum ekki farið heim.
Það á ekki að vera með börn á þess-
um stað og ég get ekki boðið börnun-
um mínum upp á þetta,“ bætir Anna
Björk við.
Magðalena Jónsdóttir, íbúi á
Drangsheiðardal undir Eyjafjöll-
um, er búin að senda börnin sín tvö
til systur sinnar í Reykjavík. Henni
finnst erfitt að vita ekki hversu langt
verður þangað til jörðin verður aftur
ábúðarhæf. „Þetta er erfið upplifun
og þetta er farið að taka á taugarn-
ar, það er sennilega erfiðast að vita
ekki hversu lengi þetta varir. Fólk er
komið í þá stöðu að flýja heimilin
sín og þessar aðstæður. Ég veit ekk-
ert hvaða áhrif þessi mengun hefur
á börnin til frambúðar og því hef ég
þeirra hag í fyrirrúmi. Áður en þau
sjálf yrðu óttaslegin fannst mér best
að þau færu og þá þarf ég ekki lengur
að halda grímunni. Ég finn það núna
að ég fæ svona köst en það er í lagi á
meðan ég er bara að sinna skepnun-
um,“ segir Magðalena.
Flýja af ótta
Heiða Björg Scheving, leikskólastjóri
og íbúi á Hvassafelli, segir algengt að
mæður séu farnar með börn af heim-
ilum undir Eyjafjöllum. Sum börn-
in á leikskólanum hafa ekki komist
í leikskólann þar sem skólabíllinn
kemst ekki leiðar sinnar. „Mæðurnar
eru farnar að flýja með börnin til að
koma þeim í öryggi og minnka álag-
ið á þeim. Þannig hafa fjölskyldurn-
ar fengið inni á öruggari stöðum. Til
að koma í veg fyrir hræðslu hjá börn-
unum og til komast út úr þessum
óhugnanlegu aðstæðum hafa þær
farið til vina og ættingja,“ segir Heiða
Björg.
Aðspurð segir Anna Björk erfitt
fyrir þá sem ekki búa á svæðinu að
ímynda sér hversu hræðilegt ástandið
í sveitinni er. Hún segist vita af mörg-
um fjölskyldum sem einnig hafa flú-
ið heimili sín, sumar í nærliggjandi
sveitir og aðrar í höfuðborgina. „Þetta
eru nokkuð margar fjölskyldur sem
hafa farið. Svæðið undir Eyjafjöllum
er illa farið. Þetta eru aðallega mæð-
ur og börn, mennirnir eru heima og
sinna búinu á meðan. Þeir fara hins
vegar í burtu yfir miðjan daginn til
að forðast myrkrið og öskuna,“ segir
Anna Björk.
Óttaslegin vegna ættingjanna
Ester Sveinbjarnardóttir frá Ysta-
Bæli hefur áhyggjur af vinum sín-
um og ættingjum undir Eyjafjöllum.
Á þriðjudag sendi hún stjórnvöldum
bréf þar sem hún óskaði eftir aðgerð-
um til bjargar fjölskyldum undan
eldgosinu. „Þetta er alveg skelfilegt,
alveg skelfilegt. Það er einfaldlega
ekki búandi þarna núna og ég skil
ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki
boðið fólkinu aðra kosti. Núna eru
fjölskyldur farnar að flýja heimili sín,
mæður og börn, og 10 sentimetra lag
af ösku er yfir jörðinni okkar,“ segir
Ester.
„Ég þekki marga sem eru að flýja,
ástandið er svo alvarlegt að fólk er
að gefast upp. Lætin í fjallinu eru svo
ógnvekjandi og fólkið er beinlínis í
hættu á þessu svæði. Askan smýgur út
um allt og inn um allt hús. Ég á erfitt
með svefn út af áhyggjum, sérstaklega
vegna barnanna í þessum ósköpum.
Þarna verður ekki byggilegt næstu
árin og fólkinu þarf að bjarga þaðan.
Ég skora á stjórnvöld að hefjast handa
án tafar.“
6 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FRÉTTIR
MÆÐUR FLÝJA
MEÐ BÖRN SÍN
„Ég finn það núna að ég fæ
svona köst en það er í
lagi á meðan ég er bara
að sinna skepnunum.“
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Flúði með börnin Anna Björk
Ólafsdóttir segir það hreinan
hrylling að búa á svæðinu eftir
eldgosið. MYND RÓBERT REYNISSON
Rúmlega 170 þúsund notendur heimsóttu DV.is í liðinni viku:
Aldrei fleiri notendur á DV.is
„Ég get ekki boðið börnunum mínum upp á þetta lengur,“ segir Anna Björk Ólafsdóttir,
íbúi undir Eyjafjöllum, sem farin er að heiman með börnin sín. Hún er ein þeirra mæðra
sem yfirgefið hafa heimili sín undanfarna daga vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
A
PR
ÍL
2
00
9
M
A
Í 2
00
9
JÚ
N
Í 2
00
9
JÚ
LÍ
2
00
9
Á
G
Ú
ST
2
00
9
SE
PT
2
00
9
O
K
T
20
09
N
Ó
V
2
00
9
D
ES
2
00
9
JA
N
2
01
0
FE
B
20
10
M
A
R
S
20
10
A
PR
ÍL
2
01
0
91
.0
47
83
.5
41
82
.7
76
84
.0
04
10
5.
66
0
11
8.
91
6
12
0.
70
1
11
8.
00
4
12
4.
86
0
13
7.
67
0
13
2.
05
4
14
9.
13
3
17
1.
57
9
2,
1
m
ill
jó
n
ir
1,
88
5
1,
77
8
1,
87
2
2,
19
7
2,
59
2
2,
74
1
2,
78
7
3,
02
8
3,
36
5
3,
30
9
3,
42
7
4,
7
M
IL
L
JÓ
N
IR
A
PR
ÍL
2
00
9
M
A
Í 2
00
9
JÚ
N
Í 2
00
9
JÚ
LÍ
2
00
9
Á
G
Ú
ST
2
00
9
SE
PT
2
00
9
O
K
T
20
09
N
Ó
V
2
00
9
D
ES
2
00
9
JA
N
2
01
0
FE
B
20
10
M
A
R
S
20
10
A
PR
ÍL
2
01
0
FJÖLGUN FLETTINGA Á DV.IS
* Í MILLJÓNUM
FJÖLGUN NOTENDA Á DV.IS
* Í ÞÚSUNDUM
Loksins tjáir
Steingrímur sig
Steingrímur Ari Arason, fyrrverandi
meðlimur einkavæðingarnefndar,
tjáði sig loksins tæpitungulaust um
einkavæðingu Landsbankans og
Búnaðarbankans á þriðjudaginn. Í
viðtali við Rás 2 sagði Steingrímur að
hann væri 99,9 prósent viss um að
Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms-
son hefðu verið búnir að ákveða að
selja Samson og S-hópnum Lands-
bankann og Búnaðarbankann árið
2002. „Ég tel 99,9% líkur á því að þeir
hafi verið búnir að ákveða að selja
þessum tveimur aðilum bankana,”
sagði Steingrímur Ari.
Læknir hættir
á Akureyri
Uppsögn Friðriks E. Yngavason-
ar, lyflæknis við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri, hefur vakið
nokkuð hörð viðbrögð með-
al starfsmanna sjúkrahússins.
Friðrik hefur, samkvæmt starfs-
mönnum sjúkrahússins, sagt upp
starfi sínu á spítalanum vegna of
mikils vinnuálags og ráðið sig á
bráðamóttöku Landspítalans í
Reykjavík. Samkvæmt samstarfs-
manni hans er svo mikil mann-
fæð á sjúkrahúsinu meðal lækna
að „... endalaust er gengið á þá
sem fyrir eru þangað til gott þolir
ekki meira“.
Óvíst með
Kristján Þór
Kristján Þór Júlíusson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, hefur ekki
gert upp hug sinn um hvort hann
ætli að sækjast eftir varaformanns-
embættinu. Sjálfstæðisflokkurinn
er varaformannslaus þessa dagana
eftir að Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir sagði af sér um helgina.
Kristján bauð sig fram gegn Bjarna
Benediktssyni á landsfundi flokksins
í fyrra og tapaði fyrir honum með
minni mun en margur hefði talið
fyrir fram.
Lögreglan við
heimili Steinunnar
Lögreglan var við heimili Steinunnar
Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns
Samfylkingarinnar vegna mótmæl-
enda sem höfðu safnast saman fyrir
utan hjá henni á þriðjudagskvöld.
Þegar mótmælendur ætluðu að af-
henda Steinunni Valdísi yfirlýsingu
þar sem þess er krafist að hún segi
af sér þingmennsku komu laganna
verðir og sögðu mótmælendum að
láta sig hverfa af vettvangi. Lögregl-
an sagði við mótmælendur að ef þeir
myndu láta sjá sig aftur fyrir utan
hús Steinunnar Valdísar yrðu þeir
fjarlægðir.