Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Page 19
Tölvuleikjarisinn CCP tók við
Útflutningsverðlaununum á
Bessastöðum í gær. Fyrirtækið gerir út
leikinn EVE Online og virðist ekkert lát
vera á velgengni hans. HILMAR
VEIGAR PÉTURSSON, forstjóri CCP,
tók við verðlaununum en um 320.000
áskrifendur eru nú að leiknum á
heimsvísu.
400.000 MANNS
Í ÁRSLOK
26. mars í fyrra komu hátt í 2.000
sjálfstæðismenn saman til lands-
fundar í Laugardalshöll, meðal
annars til þess að kjósa sér nýjan
formann. Geir H. Haarde, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins og forsætis-
ráðherra, hafði blásið af landsfund
sem upphaflega átti að vera tveim-
ur mánuðum áður. Ríkisstjórn hans
var í þann veginn að láta undan
þunga reiðrar þjóðar eftir banka-
hrunið. Sjálfur átti Geir við veik-
indi að stríða og þurfti að gangast
undir aðgerð. Hann tilkynnti þjóð-
inni að hann gæfi ekki kost á sér
til formennsku í Sjálfstæðisflokkn-
um. Þetta var 23. janúar 2009. Eld-
ar höfðu logað á Austurvelli og lög-
regla hafði átt fullt í fangi með að
halda aftur af fjöldanum fyrir fram-
an Alþingi.
Landsfundurinn í lok janúar átti
að marka stefnu flokksins í Evrópu-
málum. Þegar leið á janúarmánuð
varð æ ljósara að heimastjórnar-
armur flokksins og sjónarmið út-
gerðarvaldsins höfðu yfirhöndina.
Hinir, sem gældu við að skoða ofan
í Evrópupakkann með beinni aðild-
arumsókn, voru í minnihluta.
Á landsfundinum tveimur mán-
uðum síðar höfðu andstæðingar að-
ildarumsóknar betur.
Armar flokksins
Heimastjórnararmurinn hafði einn-
ig undirtökin þegar kom að upp-
gjöri í flokknum. Engin iðrun og
enginn kallaður til ábyrgðar. Dav-
íð Oddsson kom í ræðustól, svart-
ur af bræði, og úthúðaði endur-
reisnar- og yfirbótarskýrslu sem
tugir sjálfstæðismanna höfðu sett
saman undir stjórn Vilhjálms Egils-
sonar. Í skýrslunni stóð meðal ann-
ars: „Pólitísk ábyrgð snýst ekki um
að kjörinn fulltrúi eigi að sitja sem
fastast þrátt fyrir mistök hans sjálfs
eða undirmanna, heldur hið gagn-
stæða. Að standa upp og fara þegar
áföll verða þótt engin lög hafi verið
brotin af viðkomandi er siður sem
þarf að komast inn í íslenska stjórn-
málahefð.“
Bjarni Benediktsson og Kristj-
án Þór Júlíusson tókust á um for-
mannsstólinn sem Geir hafði stað-
ið upp úr. Hvorugur þeirra gekk að
sigrinum vísum þótt Bjarni þætti
sigurstranglegri.
Stuðningsmenn Bjarna voru
einkum flokksmenn sem tilheyrðu
valdakjarnanum, flokkseigendun-
um. Má nefna Sigurð Kára Kristj-
ánsson, Þorgerði Katrínu Gunnars-
dóttur, Illuga Gunnarsson, Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, Gísla Mart-
ein Baldursson, Ólöfu Nordal,
Tryggva Þór Herbertsson og Ragn-
heiði Ríkharðsdóttur. Landsfund-
arfylgi Bjarna var með öðrum
orðum ættað úr þéttbýlinu á suð-
vesturhorni landsins, einkum í
nágrenni höfðuborgarinnar og
einbýlishúsahverfum höfuðborgar-
innar.
Það kom Kristjáni Þór Júlíussyni
áreiðanlega á óvart þegar hann varð
þess áskynja rétt fyrir landsfund-
inn að hann átti góðan stuðning í
grasrót sjálfstæðismanna í Reykja-
vík. Ungir SUS-menn, eins og Bolli
Thoroddsen, lögðust í víking fyr-
ir Kristján innan höfuðborgarinn-
ar. Helstu forkólfar hverfisfélaga
og deilda innan höfuðborgarinn-
ar mættu á stuðningsmannafund
skömmu fyrir landsfundinn. Gras-
rót flokksins í Reykjavík hafði verið
virkjuð í þágu Kristjáns Þórs en ekki
Bjarna.
Stuðningsmenn Bjarna
urðu þess áskynja degi
fyrir lok landsfundar
að Bjarni ætti ekki
vísan sigurinn. Þeir
gerðu skyndikönn-
un úr úthringiveri
meðal hundraða
landsfundarfulltrúa
og komust að því að
Kristján Þór hafði yfir-
höndina þá stund-
ina.
Nú
voru góð ráð dýr. Formannskjör átti
að fara fram daginn eftir. Með þess-
ar upplýsingar í höndum ákváðu
stuðningsmenn Bjarna að leggja allt
í sölurnar; maður á mann skyldi það
vera á síðasta degi landsfundar.
Eins og allir vita urðu lyktir þær
að Bjarni hlaut 58 prósent greiddra
atkvæða en Kristján Þór liðlega 40
prósent. Þetta var ekki ýkja mikill
munur.
Nú hefur fylking Bjarna riðlast.
Illugi hefur stigið út á hliðarlínu
vegna rannsóknar sérstaks saksókn-
ara á peningamarkaðssjóðum. Þor-
gerður Katrín hefur sagt af sér emb-
ætti varaformanns sem hún talaði
sig inn í með framboðsræðu um
eiginmanninn, sjálfa sig og gróu-
sögurnar.
Bráðum stendur Bjarni
einn, með Engeyjarætt sína
laskaða, launhelgar flokksins
eins og opið sár og bálreiða al-
menna flokksmenn sem enga
þolinmæði hafa með sjálftöku
og braski hrunverja.
Það er næsta auðvelt að spá
því, að annaðhvort víki Bjarni
sjálfur á næstunni eða falli í
formannskjöri á lands-
fundi sem hann
vill flýta.
„Að standa
upp og fara þeg-
ar áföll verða
þótt engin
lög hafi verið
brotin,“ voru
þeirra eigin
orð.
Hvort fer hann eða fellur?
JÓHANN
HAUKSSON
útvarpsmaður skrifar
„Að standa upp
og fara þegar áföll
verða þótt engin lög
hafi verið brotin af
viðkomandi er siður
sem þarf að komast
inn í íslenska stjórn-
málahefð.“
UMRÆÐA 21. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 19
1 LAUS ÚR EINANGRUN: SENDUR Í ANNAN SKÓLA Nemandi úr
Langholtsskóla hefur verið sendur í
Brúarskóla.
2 MAGNAÐ MYNDBAND SÝNIR HÖGGBYLGJUR Magnað mynd-
band sem Ómar Ragnarsson tók
af eldgosinu í Eyjafjallajökli sýnir
kraftinn í gosinu.
3 VORHREINGERNING Í DAUÐA-BELTINU Um tuttugu nepalskir
klifurgarpar halda upp á Everestfjall
til að taka til.
4 ÓLAFUR RAGNAR VARAR HEIMSBYGGÐINA VIÐ KÖTLUGOSI
Forseti Íslands segir gosið nú aðeins
sýnishorn af Kötlugosi.
5 VILT ÞÚ 30% LAUNAHÆKKUN? Hægt er að spara mikið á því að selja
bílinn sinn.
6 ALMENNINGUR LEGGIST Á EITT OG AÐSTOÐI BÆNDUR Á HAM-
FARARSVÆÐUM Njörður Snæland
trésmiður vill að fólk aðstoði bændur
á hamfarasvæðum.
7 OPIÐ BRÉF VEGNA HAMFARA: JÓHANNA BÚIN AÐ SVARA Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra
hefur svarað opnu bréfi Esterar
Sveinbjarnardóttur frá Ysta-Bæli.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er maðurinn? „Hilmar Veigar
Pétursson tölvunörd.“
Hvað drífur þig áfram? „Að leysa flókin
vandamál.“
Hvar ertu uppalinn? „Garðabænum.“
Hvað ertu menntaður? „Tölvunarfræð-
ingur frá Háskóla Íslands.“
Hvað varstu gamall þegar þú fékkst
fyrstu tölvuna þína? „Ég var átta ára.
Það var Sinclair Spectrum og ég bar út
Moggann heilt sumar til að hafa efni
á henni. Hún kostaði 6.500 krónur í
Kaupfélagi Hafnarfjarðar.“
Hvað þýða þessi verðlaun fyrir CCP?
„Fyrst og fremst mikil viðurkenning fyrir
starfsfólkið sem hefur unnið að þessu
hörðum höndum í 13 ár. Svo er alltaf
gaman þegar fólk „fattar“ hvað við erum
að gera.“
Hvað eru í dag margir áskrifendur að
leiknum? „320.000“
Hvert er markmiðið? „Markmið fyrir
þetta ár er að ná 400.000 áskrifendum.“
Hvað spila margir Íslendingar? „Það
eru 1.400 manns.“
Er leikurinn í stöðugri þróun? „Já,
hann er í stöðugri þróun og eykst með
hverjum deginum.“
Spilar þú sjálfur EVE Online? „Nei,
ég get ekki sagt að ég spili hann en ég
logga mig inn til að fylgjast með.“
MAÐUR DAGSINS
KJALLARI
„Hvorugt hefur áhrif á mínar áætlanir,
ég bara fer í frí.“
HELGI DANÍELSSON
63 ÁRA, KIRKJUVÖRÐUR
„Ég held að náttúruhamfarir gætu haft
vinninginn.“
BRYNDÍS AXELSDÓTTIR
30 ÁRA, LÖGFRÆÐINEMI
„Hamfarir af mannavöldum, það er
augljóst.“
ÞÓR SÍMON RAGNARSSON
70 ÁRA, EFTIRLAUNAÞEGI
„Hamfarir af mannavöldum.“
RAGNHEIÐUR MJÖLL
36 ÁRA, TÆKNITEIKNARI
„Það eru vitanlega hamfarir af manna-
völdum.“
KRISTINN BJÖRNSSON
27 ÁRA, KENNARI
HVORT TRUFLAR SUMARLEYFI ÞITT MEIRA, NÁTTÚRUHAMFARIR EÐA HAMFARIR AF MANNAVÖLDUM?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
Hryggur Hrafn „Þetta verður allt eyðilagt á endanum,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson þegar ljómyndara bar að garði í gær. Þá höfðu
starfsmenn borgarinnar þegar hafist handa við að tæma vatn úr tjörnum sem Hrafn hafði gert í grennd við hús sitt á Laugar-
nestanganum. „Gæsin hættir sjálfsagt að koma þegar búið er að þurrka upp tjarnirnar. Ég er alltof sorgmæddur til þess að taka
myndir eða skrásetja þetta eitthvað.“ MYND SIGTRYGGUR ARI