Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 2
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRéTTIR | 2
SpURnInG DAGSInS
heimkaup.is
Keyrum út 7 daga
vikunnar
ÚTSALA
RISA
afsláttur
60%
1.599,-
3.999,-
afslætti
Allar bækur
Össur, eruð þið fullir svart-
sýni?
„Nei, við erum fullir af bjartsýni.“
Össur Hafþórsson bareigandi segir veitinga-
menn óttast að eigendur greiðslukorta eigi
erfitt með að muna pin-númerin þegar þeir
eru undir áhrifum áfengis.
MennTAMál Hugmynd Illuga
Gunnarssonar menntamála
ráðherra um að sameina þrjár
háskólastofnanir í Norðvestur
kjördæmi í eina hefur ekki verið
rædd við alla þrjá rektora skól
anna. Björn Þorsteinsson, rektor
Landbúnaðarháskólans á Hvann
eyri, telur litla möguleika á sam
legðaráhrifum vegna sameining
ar.
Tveir háskólar eru með aðset
ur í Borgarbyggð, það eru Bifröst
og Landbúnaðarháskólinn. Hug
myndir ráðherra ganga út á að
sameina þessa skóla auk Háskól
ans á Hólum í Hjaltadal, í eina
sjálfseignarstofnun.
Erla Björk Örnólfsdóttir, rekt
or Háskólans á Hólum, hefur ekki
fengið erindi þess efnis inn á borð
til sín og ekki verið boðuð á fund
með ráðherra menntamála. Það
boð hafa hins vegar Björn Þor
steinsson, rektor Landbúnaðarhá
skólans, og Vilhjálmur Egilsson,
rektor Háskólans á Bifröst, fengið
og sótt fund ráðherrans um hug
myndir að sameiningu háskóla
stofnananna þriggja.
Björn Þorsteinsson
segir samlegðaráhrif
in af mögulegri samein
ingu lítil. „Að mínu mati
er mjög erfitt að sameina
þessar þrjár háskólastofn
anir. Í dag erum við í sam
vinnu með Háskólanum á
Bifröst í ákveðnum þátt
um skólastarfsins og einn
ig erum við í samvinnu við
Háskólann á Hólum. Ég sé ekki
mikil samlegðaráhrif að sameina
stofnanirnar undir einn hatt að
svo stöddu. Það getur einnig verið
aukinn kostnaður í því að
reka stofnanir á þremur
stöðum,“ segir hann.
Björn telur þó að hægt
sé að skoða þetta með
opnum hug. „Við vitum
að stofnanirnar hafa átt í
ákveðnum þrengingum og
þessar stofnanir eru til
tölulega veikar fjárhags
lega. Það er þó hægt að
skoða þessar hugmyndir ráðherra
með opnum hug og fara yfir málin
en þá þarf líka að horfa á hlutina
með sanngjörnum augum og fara
mjög vel ofan í saumana á sam
einingarhugmyndum.“
Erla Björk, rektor Háskólans
á Hólum, sagðist ekki getað tjáð
sig um hugmyndir ráðherra að svo
stöddu þar sem hún hefði engar
upplýsingar fengið um í hverju
sameiningin fælist. Að hennar
mati þyrfti ráðherra menntamála
að sýna á spilin til að hægt væri
að ræða málið af yfirvegun.
Ekki náðist í Vilhjálm Egilsson,
rektor Háskólans á Bifröst, þar
sem hann var staddur á ráðstefnu
erlendis. sveinn@frettabladid.is
Lítill hagur af sam-
einingu háskólanna
Björn Þorsteinsson, rektor LbhÍ, segir samlegðaráhrif vera lítil með sameiningu
þriggja háskólastofnana í NV-kjördæmi. Erfitt sé að sameina þrjá fjárhagslega
veikburða skóla. Rektor Háskólans á Hólum hefur ekkert heyrt frá ráðuneytinu.
HvAnneyRI Gangi hugmyndir menntamálaráðherra eftir munu þrír háskólar í
Norðvesturkjördæmi sameinast í eina sjálfseignarstofnun. fréttablaðið/Gva
eRlA BjöRk
öRnólFSDóTTIR
InDóneSíA Þessi þriggja mánaða gamli Bengal-tígur var baðaður áður
en hann fékk sprautu í Mangkang-dýragarðinum í Semarang í Indó-
nesíu í gær. Dýrin í garðinum eru bólusett fyrir hundaæði. Tígris-
unginn virtist ekki vera ósáttur við baðið en engum sögum fer af því
hvernig hann brást við sprautunni. - vh
Bólusetning fyrir hundaæði í Mangkang-dýragarðinum:
Tígrisungi baðaður fyrir sprautu
BólUSeTnInG bengalinn er bólusettur fyrir hundaæði. fréttablaðið/Getty
ReykjAvíkURBoRG „Þó ég sé öllu
jöfnu ekki talsmaður miðstýr
ingar þá verður að koma í veg
fyrir lausatök í fjármálum eins og
þessi,“ sagði Júlíus Vífill Ingvars
son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis
flokks, í umræðum í borgarstjórn
á þriðjudag um innkaupamál hjá
borginni.
Eins og fram hefur komið telur
innri endurskoðun Reykjavíkur
borgar að engri af tólf ábending
um hennar frá árinu 2010 um inn
kaup á vegum borgarinnar hafi
verið fylgt. Frá þeim tíma hafa
verkefni innkaupaskrifstofu verið
færð undir fjármálaskrifstofu.
„Með því hefur verið dregið úr
sjálfstæði innkaupaeiningarinnar
og möguleikum hennar á að halda
utan um innkaupin. Það er alveg
ljóst að það gengur ekki að yfir
þúsund manns gangi um og kaupi
inn í nafni Reykjavíkurborgar án
þess að eftirlit sé með því,“ sagði
Júlíus Vífill í borgarstjórn. Sagði
hann hættu á mistökum og mis
ferli. - gar
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks gagnrýnir eftirlitsleysi í innkaupum:
Óttast misferli hjá starfsfólkinu
júlíUS víFIll InGvARSSon
„Slík staða getur skapað hættu á mis-
tökum og misferli,“ sagði borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks. fréttablaðið/DaNíel
SAMGönGUR Ökumenn Strætó
sem sinna akstursþjónustu fatl
aðra mættu tíu mínútum of seint
eða meira í tæplega 150 ferðir
sem farnar voru á þriðjudag. Það
eru um tíu prósent af heildar
fjölda ferða.
Bílstjórarnir mættu tuttugu
mínútum of seint eða meira í 2,4
prósent ferða eða í um 34 ferðir.
Þá voru sjö ferðir ekki farnar
vegna villuskráningar.
Í heild var 1.441 ferð ekin á
þriðjudag. - ih
Aksturþjónusta fatlaðra:
Of seinir í tíu
prósent ferða
SkólAMál „Þetta hafa verið
atvik frá hótunum um að sníkja
peninga, notkun á til dæmis loft
byssum og svo bara svona hótan
ir,“ segir Ingibjörg Jósefsdóttir,
skólastjóri í Hagaskóla, um hót
anir og ógnanir sem nemendur
skólans hafa orðið fyrir undan
farna mánuði.
Gerendurnir eru nokkrir og
aðeins hluti þeirra nemendur
við skólann. Málið hefur undið
nokkuð upp á sig og atvikin orðið
alvarlegri. „Það var barn hér
fyrir helgi sem sá á,“ segir Ingi
björg. Verið er að vinna að lausn
málsins í samstarfi við lögreglu
og barnaverndaryfirvöld.
- lvp
Börn orðið fyrir ógnunum:
Loftbyssa notuð
vIðSkIpTI Fasteignaverð á höfuð
borgarsvæðinu hækkaði verulega
í desember, eða um 2 prósent, þar
af hækkaði verð á fjölbýli um 1,1
prósent og sérbýli um 5 prósent.
Þetta kemur fram í Hagsjá
Landsbankans.
Verðhækkanir á árinu 2014
voru miklar. Í heild hækkaði
fasteignaverð um 8,5 prósent frá
fyrra ári, þar af hækkaði verð á
fjölbýli um 9,8 prósent og sérbýli
um 4,6 prósent.
Þetta eru mestu verðhækkanir
milli ára sem sést hafa frá árinu
2007.
- sáp
Veruleg hækkun í desember:
Fasteignaverð
hækkaði
STjóRnSýSlA Áætlaður kostn
aður ríkisins vegna tæplega 500
virkra langtímasamninga við aðila
utan ríkisins á síðasta ári nemur
61 milljarði króna, að því er fram
kemur í nýju áliti Ríkisendur
skoðunar. Er þá horft til samn
inga til lengri tíma en eins árs og
þar sem greiðslur nema þremur
milljónum króna eða meira á ári
hverju.
Fram kemur í álitinu að Ríkis
endurskoðun telji að bæta þurfi
skráningu og utanumhald samn
inga sem ráðuneyti og stofn
anir gera við aðila utan ríkis
ins. Yfirlit um slíka samninga
sem birt sé í fjárlagafrumvarpi
ár hvert sé ófullkomið. Þá þurfi
að samræma betur upplýsing
ar milli ráðuneyta og tryggja að
yfirlit sé tæmandi auk þess sem
endurskoða þurfi reglurnar sem
um samningana gilda og efla
eftir lit með framkvæmd þeirra.
Af þeim samningum sem undir
eru tilheyrði 161 vel ferð ar ráðu
neyti, 127 mennta og menning
ar mála ráðu neyti, 52 utan ríkis
ráðu neyti og 40 atvinnuvega og
nýsköp un ar ráðu neyti. „Samn ing
ar annarra ráðuneyta voru á bilinu
16 til 34,“ segir í umfjöllun Ríkis
endur skoðunar. Bent er á að af þess
um 500 samningum hafi 36 verið
útrunnir árið 2014 en engu að síður
hafi verið starfað samkvæmt þeim.
„Áætlaður kostnaður þeirra nam
um 5,5 milljörðum króna.“ - óká
HAnDSAl ríkisendurskoðun segir mikinn misbrest á að ráðuneyti og stofnanir fari eftir
leiðbeiningum um hvernig standa skuli að undirbúningi, gerð og eftirliti með samning-
um. fréttablaðið/Pjetur
Ríkisendurskoðun kallar á bætta skráningu og utanumhald samninga ríkisins:
Tengdur kostnaður 61 milljarður
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
6
-B
C
D
8
1
7
F
6
-B
B
9
C
1
7
F
6
-B
A
6
0
1
7
F
6
-B
9
2
4
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K