Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 44
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28
➜ Gestum Bóka-
safns Kópavogs
býðst að spreyta
sig á að safna
saman þekktum
ljóðlínum á ljóða-
vegg.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverð-
laun kvenna, voru veitt í níunda
skipti við hátíðlega athöfn í Höfða
síðdegis í gær. Tilgangur Fjöru-
verðlaunanna er að stuðla að auk-
inni kynningu á ritverkum kvenna
og hvetja konur í rithöfundastétt til
dáða. Venju samkvæmt fengu verð-
launahafar keramikegg eftir lista-
konuna Koggu en að þessu sinni
steig frú Vigdís Finnbogadóttir á
svið og afhenti verðlaunahöfum
gjafabréf fyrir dvöl á Kolkuósi í
Skagafirði. Veitt eru verðlaun í
þremur flokkum; fagurbókmennt-
um, barna- og unglingabókmenntum
og fræðibóka og rita almenns eðlis.
Sigurvegari í flokki fagurbók-
mennta að þessu sinni er Elísa-
bet Jökulsdóttir fyrir ljóðabókina
Ástin ein taugahrúga. Enginn dans
við Ufsaklett. Ljóð Elísabetar lýsa á
óvenju opinskáan og einlægan hátt
ástarsambandi ljóðmælanda við
ofbeldismann og hvernig hún fest-
ist í þráhyggju og ástarfíkn.
„Það ríkir bara rosaleg gleði og
hamingja með þessi verðlaun enda
voru þetta allt góðar bækur sem
voru tilnefndar í ár,“ segir Elísabet,
sem vann reyndar einnig til Fjöru-
verðlauna árið 2007. „Þessi viður-
kenning skiptir máli og þá ekki síst
upp á umræðuna um það sem ég
er að takast á við í mínum ljóðum.
Margir upplifa þessi mál sem hafa
verið svo mikið tabú í samfélaginu
svo lengi og ef þetta hjálpar í þeirri
umræðu þá gleður það mig. Ég
gæti reyndar gefið út annað bindi
af Ufsakletti og á líka til efni í sam-
búðina. Mig langar til þess að vinna
með þessa innilokun og ofbeldið. Ég
vaknaði reyndar á jóladag með hug-
mynd að bók um mennskuna og hún
á að vera svona doðrantur eins og
strákarnir eru alltaf að senda frá
sér. Málið er að ég ætla að láta þetta
vinna með mér og ég er mjög stolt af
þessum verðlaunum.
Það er athyglisvert að í flokki
fræðibóka og rita almenns eðlis
fara verðlaunin til bókar þar sem
tekist er á við mál sem skyld eru
Ufsakletti Elísabetar. Ofbeldi á
heimili – með augum barna, rit-
stjóri Guðrún Kristinsdóttir. Guð-
rún segir Fjöruverðlaunin vera
myndarlegt framtak og þar sem
hér sé fjallað um efni sem snerti
ekki síst konur hafi þessi verðlaun
sérstaka þýðingu. „Við höfum verið
að fá ágætis viðbrögð og vonum að
bókin verði notuð í háskólakennslu
innan skamms auk þess sem við
erum að senda mikilvæg skilaboð
inn í menntakerfið í heild. Að skoða
heimilisofbeldi út frá sjónarhorni
barna er frumkvöðlastarf á Íslandi
og við teljum mikilvægt að koma því
á framfæri við fagstéttir á borð við
félagsþjónustu og lögreglu að tala
við börnin á vettvangi og huga að
þeim sérstaklega.“
Hafnfirðingabrandarinn eftir
Bryndísi Björgvinsdóttur hlýtur
Fjöruverðlaunin í ár í flokki barna-
og unglingabókmennta. Þar er einn-
Þakklæti og hvatning efst í huga
Fjöruverðlaunin voru afh ent við hátíðlega athöfn í Höfða í gær og þau eru verðlaunahöfunum hvatning til þess að halda ótrauðir áfram.
VERÐLAUNAHAFAR Þær Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir og Bryndís Björgvinsdóttir tóku við Fjöruverðlaununum í gær og eru hér kampakátar með Degi Egg-
ertssyni borgarstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
➜ Ástin ein tauga-
hrúga. Enginn dans
við Ufsaklett
Eftir Elísabetu
Jökulsdóttur
Lífið er enginn dans á rósum
í ljóðabók Elísabetar Kristínar
Jökulsdóttur, Ástin ein tauga-
hrúga. Enginn dans við Ufsaklett.
Ljóðin lýsa á óvenju opinskáan
og einlægan hátt ástarsambandi
ljóðmælanda við ofbeldismann
og hvernig hún festist í þráhyggju
og ástarfíkn.
Ljóðmælandi þráir ástina og
er haldinn ástarfíkn. Hún fær
stöðugt viðvörunarmerki um
að maðurinn sem hún hefur
ákveðið að fá með sína „sam-
búð hvað sem það kostaði“ sé
ofbeldismaður. Hún ber kennsl á
viðvörunarmerkin en hunsar þau
og tapar sér í ástarfíkn.
Ljóðmælandi skoðar ferlið úr
fjarlægð með írónískum augum,
hissa á því að hafa ekki losað sig
úr þessum ástarfjötrum fyrr og
spyr „kannski vissi ég ekki hvar
dyrnar voru?“
➜ Ofbeldi á heimili–
með augum barna
Ritstjóri Guðrún
Kristinsdóttir
Bókin Ofbeldi á heimili– með
augum barna er yfirgrips-
mikil rannsókn á upplifun
barna á heimilisofbeldi. Höf-
undar nálgast efnið frá mörgum
sjónarhornum og sýna fræði-
legan metnað með því að byggja
rannsóknina á breiðum grunni
megindlegrar og eigindlegrar
aðferðafræði.
Bókin samþættir niðurstöður
víðtækrar könnunar á þekkingu
barna á heimilisofbeldi, viðtöl
við börn og mæður þeirra sem
búið hafa við ofbeldi á heim-
ilum, ásamt greiningu á orðræðu
fjölmiðla um heimilisofbeldi.
Áhersla er lögð á börn sem
áhrifavalda í eigin lífi, frekar
en óvirka þolendur, og upplif-
anir þeirra settar í brennidepil.
Þannig er rofin sú þögn sem
hefur ríkt um tilfinningar barna
sem verða fórnarlömb ofbeldis á
heimilum.
➜ Hafnfirðinga-
brandarinn
Eftir Bryndísi
Björgvinsdóttur
Bókin er vel skrifuð og skemmti-
leg, söguþráður frumlegur og
listilega fléttaður. Frásagnarstíll-
inn er ærslafullur og myndrænn
og lestrarupplifunin á stundum
eins og horft sé á kvikmynd. Frá-
sögnin er margradda og þær segja
grípandi sögu sem vekur sterka
samlíðan með persónunum.
Helsti styrkur sögunnar er
hvernig hún fjallar um samskipti
kynslóða og dregur upp flóknar
sögupersónur af eldri kynslóðinni,
persónur sem eru margbrotið
og áhugavert fólk. Heimur eldri
borgara er gerður merkingarbær
og spennandi fyrir ungt fólk og
veitt er óvenjuleg innsýn í líf
þeirra.
Sagan fjallar um það að taka
ábyrgð á eigin lífi og sínum
nánustu og horfast í augu við
sjálfan sig.
Dómnefnd telur að Hafnfirð-
ingabrandarinn hafi alla burði til
að verða sígild unglingabók.
ÚR RÖKSTUÐNINGI DÓMNEFNDA
Dagar ljóðsins hófust í gær í
Kópavogi og standa til 25. janú-
ar. Við setningu þeirra í Saln-
um var tilkynnt að enginn hlyti
Ljóðstaf Jóns úr Vör að þessu
sinni, þar sem ekkert 180 inn-
sendra ljóða uppfyllti gæðakröf-
ur. Þetta er í annað sinn í fjór-
tán ára sögu ljóðasamkeppninnar
sem dómnefnd ákveður að ekk-
ert innsendra ljóða hljóti fyrstu
verðlaun. Hins vegar var úthlut-
að verðlaunum í ljóðasamkeppni
grunnskóla Kópavogs og var
Unnur Hlíf Reynisdóttir, nem-
andi Vatnsendaskóla, þar hlut-
skörpust fyrir tvö ljóð.
Vegfarendur mega eiga von á
að rekast á ljóð á hinum ólíkleg-
ustu stöðum í Kópavogi næstu
daga, í sundi og strætó, á vefsíð-
um og við verslunarkjarna. Ljóð
fást gefins í Bókasafni Kópavogs
og víða um bæ poppar ljóðalest-
ur upp.
Höfundur vikunnar á Bóka-
safni Kópavogs er Gerður
Kristný skáld. Gestum safnsins
býðst að spreyta sig á að blanda
saman þekktum ljóðlínum á
ljóðavegg og mynda þar með sitt
eigið ljóð.
- gun
Ljóð á hinum ólíklegustu stöðum í Kópavogi næstu daga
Enginn hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör á Ljóðahátíð Kópavogs þetta ár því innsend ljóð uppfylltu ekki gæðakröfur dómnefndar.
KÓPAVOGS-
SKÁLDIÐ
Jón úr
Vör prýðir
Hamra-
borgina.
ig m.a. annars unnið með sjónar-
horn barnsins, fjallað um samskipti
kynslóða og heimur eldri borg-
ara gerður áhugaverður og spenn-
andi fyrir ungt fólk. Bryndís segir
verðlaun sem þessi fyrst og fremst
hvetjandi ekki síst með tilliti til
þess að hún hafi verið mjög stress-
uð fyrir viðtökum bókarinnar.
„Málið er að ég tileinka þessa
bók frænda mínum og frænku
sem ég hitti aldrei. Hann var
Hafnfirðingur sem þótti sérlund-
aður á sínum tíma en var þó að
mörgu leyti á undan sinni sam-
tíð. Hann var uppfinningamað-
ur, pældi í sjálfbærni og lífrænni
ræktun og var mikill friðarsinni.
Fyrir vikið þótti karlinn vera hálf-
gerður brandari og þangað sæki
ég titil bókarinnar. Frænka mín
fór ung af landi brott eftir að hafa
kynnst dáta og lifði það sem eftir
var ævinnar í Bandaríkjunum og
reyndar sem vottur Jehóva. Þetta
fólk sem ég þekkti aldrei er mikil-
vægt í þessari bók og því er hún
tileinkuð þeim. Minningar þeirra
vegna hafa þessar góðu viðtök-
ur skipt mig miklu máli. Það sem
Fjöruverðlaunin gera fyrir mig
er fyrst og fremst að veita mér
ákveðna ró og kyrrð til þess að
halda áfram að skrifa og fyrir það
er ég ákaflega þakklát.“
MENNING
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
8
-4
C
C
8
1
7
F
8
-4
B
8
C
1
7
F
8
-4
A
5
0
1
7
F
8
-4
9
1
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K