Fréttablaðið - 22.01.2015, Side 44

Fréttablaðið - 22.01.2015, Side 44
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28 ➜ Gestum Bóka- safns Kópavogs býðst að spreyta sig á að safna saman þekktum ljóðlínum á ljóða- vegg. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Fjöruverðlaunin, bókmenntaverð- laun kvenna, voru veitt í níunda skipti við hátíðlega athöfn í Höfða síðdegis í gær. Tilgangur Fjöru- verðlaunanna er að stuðla að auk- inni kynningu á ritverkum kvenna og hvetja konur í rithöfundastétt til dáða. Venju samkvæmt fengu verð- launahafar keramikegg eftir lista- konuna Koggu en að þessu sinni steig frú Vigdís Finnbogadóttir á svið og afhenti verðlaunahöfum gjafabréf fyrir dvöl á Kolkuósi í Skagafirði. Veitt eru verðlaun í þremur flokkum; fagurbókmennt- um, barna- og unglingabókmenntum og fræðibóka og rita almenns eðlis. Sigurvegari í flokki fagurbók- mennta að þessu sinni er Elísa- bet Jökulsdóttir fyrir ljóðabókina Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett. Ljóð Elísabetar lýsa á óvenju opinskáan og einlægan hátt ástarsambandi ljóðmælanda við ofbeldismann og hvernig hún fest- ist í þráhyggju og ástarfíkn. „Það ríkir bara rosaleg gleði og hamingja með þessi verðlaun enda voru þetta allt góðar bækur sem voru tilnefndar í ár,“ segir Elísabet, sem vann reyndar einnig til Fjöru- verðlauna árið 2007. „Þessi viður- kenning skiptir máli og þá ekki síst upp á umræðuna um það sem ég er að takast á við í mínum ljóðum. Margir upplifa þessi mál sem hafa verið svo mikið tabú í samfélaginu svo lengi og ef þetta hjálpar í þeirri umræðu þá gleður það mig. Ég gæti reyndar gefið út annað bindi af Ufsakletti og á líka til efni í sam- búðina. Mig langar til þess að vinna með þessa innilokun og ofbeldið. Ég vaknaði reyndar á jóladag með hug- mynd að bók um mennskuna og hún á að vera svona doðrantur eins og strákarnir eru alltaf að senda frá sér. Málið er að ég ætla að láta þetta vinna með mér og ég er mjög stolt af þessum verðlaunum. Það er athyglisvert að í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis fara verðlaunin til bókar þar sem tekist er á við mál sem skyld eru Ufsakletti Elísabetar. Ofbeldi á heimili – með augum barna, rit- stjóri Guðrún Kristinsdóttir. Guð- rún segir Fjöruverðlaunin vera myndarlegt framtak og þar sem hér sé fjallað um efni sem snerti ekki síst konur hafi þessi verðlaun sérstaka þýðingu. „Við höfum verið að fá ágætis viðbrögð og vonum að bókin verði notuð í háskólakennslu innan skamms auk þess sem við erum að senda mikilvæg skilaboð inn í menntakerfið í heild. Að skoða heimilisofbeldi út frá sjónarhorni barna er frumkvöðlastarf á Íslandi og við teljum mikilvægt að koma því á framfæri við fagstéttir á borð við félagsþjónustu og lögreglu að tala við börnin á vettvangi og huga að þeim sérstaklega.“ Hafnfirðingabrandarinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur hlýtur Fjöruverðlaunin í ár í flokki barna- og unglingabókmennta. Þar er einn- Þakklæti og hvatning efst í huga Fjöruverðlaunin voru afh ent við hátíðlega athöfn í Höfða í gær og þau eru verðlaunahöfunum hvatning til þess að halda ótrauðir áfram. VERÐLAUNAHAFAR Þær Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir og Bryndís Björgvinsdóttir tóku við Fjöruverðlaununum í gær og eru hér kampakátar með Degi Egg- ertssyni borgarstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ Ástin ein tauga- hrúga. Enginn dans við Ufsaklett Eftir Elísabetu Jökulsdóttur Lífið er enginn dans á rósum í ljóðabók Elísabetar Kristínar Jökulsdóttur, Ástin ein tauga- hrúga. Enginn dans við Ufsaklett. Ljóðin lýsa á óvenju opinskáan og einlægan hátt ástarsambandi ljóðmælanda við ofbeldismann og hvernig hún festist í þráhyggju og ástarfíkn. Ljóðmælandi þráir ástina og er haldinn ástarfíkn. Hún fær stöðugt viðvörunarmerki um að maðurinn sem hún hefur ákveðið að fá með sína „sam- búð hvað sem það kostaði“ sé ofbeldismaður. Hún ber kennsl á viðvörunarmerkin en hunsar þau og tapar sér í ástarfíkn. Ljóðmælandi skoðar ferlið úr fjarlægð með írónískum augum, hissa á því að hafa ekki losað sig úr þessum ástarfjötrum fyrr og spyr „kannski vissi ég ekki hvar dyrnar voru?“ ➜ Ofbeldi á heimili– með augum barna Ritstjóri Guðrún Kristinsdóttir Bókin Ofbeldi á heimili– með augum barna er yfirgrips- mikil rannsókn á upplifun barna á heimilisofbeldi. Höf- undar nálgast efnið frá mörgum sjónarhornum og sýna fræði- legan metnað með því að byggja rannsóknina á breiðum grunni megindlegrar og eigindlegrar aðferðafræði. Bókin samþættir niðurstöður víðtækrar könnunar á þekkingu barna á heimilisofbeldi, viðtöl við börn og mæður þeirra sem búið hafa við ofbeldi á heim- ilum, ásamt greiningu á orðræðu fjölmiðla um heimilisofbeldi. Áhersla er lögð á börn sem áhrifavalda í eigin lífi, frekar en óvirka þolendur, og upplif- anir þeirra settar í brennidepil. Þannig er rofin sú þögn sem hefur ríkt um tilfinningar barna sem verða fórnarlömb ofbeldis á heimilum. ➜ Hafnfirðinga- brandarinn Eftir Bryndísi Björgvinsdóttur Bókin er vel skrifuð og skemmti- leg, söguþráður frumlegur og listilega fléttaður. Frásagnarstíll- inn er ærslafullur og myndrænn og lestrarupplifunin á stundum eins og horft sé á kvikmynd. Frá- sögnin er margradda og þær segja grípandi sögu sem vekur sterka samlíðan með persónunum. Helsti styrkur sögunnar er hvernig hún fjallar um samskipti kynslóða og dregur upp flóknar sögupersónur af eldri kynslóðinni, persónur sem eru margbrotið og áhugavert fólk. Heimur eldri borgara er gerður merkingarbær og spennandi fyrir ungt fólk og veitt er óvenjuleg innsýn í líf þeirra. Sagan fjallar um það að taka ábyrgð á eigin lífi og sínum nánustu og horfast í augu við sjálfan sig. Dómnefnd telur að Hafnfirð- ingabrandarinn hafi alla burði til að verða sígild unglingabók. ÚR RÖKSTUÐNINGI DÓMNEFNDA Dagar ljóðsins hófust í gær í Kópavogi og standa til 25. janú- ar. Við setningu þeirra í Saln- um var tilkynnt að enginn hlyti Ljóðstaf Jóns úr Vör að þessu sinni, þar sem ekkert 180 inn- sendra ljóða uppfyllti gæðakröf- ur. Þetta er í annað sinn í fjór- tán ára sögu ljóðasamkeppninnar sem dómnefnd ákveður að ekk- ert innsendra ljóða hljóti fyrstu verðlaun. Hins vegar var úthlut- að verðlaunum í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs og var Unnur Hlíf Reynisdóttir, nem- andi Vatnsendaskóla, þar hlut- skörpust fyrir tvö ljóð. Vegfarendur mega eiga von á að rekast á ljóð á hinum ólíkleg- ustu stöðum í Kópavogi næstu daga, í sundi og strætó, á vefsíð- um og við verslunarkjarna. Ljóð fást gefins í Bókasafni Kópavogs og víða um bæ poppar ljóðalest- ur upp. Höfundur vikunnar á Bóka- safni Kópavogs er Gerður Kristný skáld. Gestum safnsins býðst að spreyta sig á að blanda saman þekktum ljóðlínum á ljóðavegg og mynda þar með sitt eigið ljóð. - gun Ljóð á hinum ólíklegustu stöðum í Kópavogi næstu daga Enginn hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör á Ljóðahátíð Kópavogs þetta ár því innsend ljóð uppfylltu ekki gæðakröfur dómnefndar. KÓPAVOGS- SKÁLDIÐ Jón úr Vör prýðir Hamra- borgina. ig m.a. annars unnið með sjónar- horn barnsins, fjallað um samskipti kynslóða og heimur eldri borg- ara gerður áhugaverður og spenn- andi fyrir ungt fólk. Bryndís segir verðlaun sem þessi fyrst og fremst hvetjandi ekki síst með tilliti til þess að hún hafi verið mjög stress- uð fyrir viðtökum bókarinnar. „Málið er að ég tileinka þessa bók frænda mínum og frænku sem ég hitti aldrei. Hann var Hafnfirðingur sem þótti sérlund- aður á sínum tíma en var þó að mörgu leyti á undan sinni sam- tíð. Hann var uppfinningamað- ur, pældi í sjálfbærni og lífrænni ræktun og var mikill friðarsinni. Fyrir vikið þótti karlinn vera hálf- gerður brandari og þangað sæki ég titil bókarinnar. Frænka mín fór ung af landi brott eftir að hafa kynnst dáta og lifði það sem eftir var ævinnar í Bandaríkjunum og reyndar sem vottur Jehóva. Þetta fólk sem ég þekkti aldrei er mikil- vægt í þessari bók og því er hún tileinkuð þeim. Minningar þeirra vegna hafa þessar góðu viðtök- ur skipt mig miklu máli. Það sem Fjöruverðlaunin gera fyrir mig er fyrst og fremst að veita mér ákveðna ró og kyrrð til þess að halda áfram að skrifa og fyrir það er ég ákaflega þakklát.“ MENNING 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 F 8 -4 C C 8 1 7 F 8 -4 B 8 C 1 7 F 8 -4 A 5 0 1 7 F 8 -4 9 1 4 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.