Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 4
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 LEIÐRÉTT Rangt var farið með starfstitil Helgu Hlínar Hákonardóttur hdl. í aðsendri grein í Markaðnum í gær. Helga Hlín er meðeigandi hjá Strategíu ehf. og stjórnarmaður í atvinnulífinu. ÁRÉTTING Viðræður um fríverslun eru ekki hafnar milli Evrópusambandsins og Kína líkt og ranglega var haft eftir viðmælanda í Markaðnum í gær. Kínverjar hafa hins vegar sýnt því mikinn áhuga að hefja slíkar viðræður. ATVINNA Nemum í öllum greinum byggingageirans hefur fækkað um þriðjung frá árinu 2006. Þetta segir Guðmundur Hreinsson, skólastjóri Byggingatækniskólans. Meistara, sem margir eru farnir að eldast, vantar lærlinga í vinnu. „Það fóru færri í handverksnám 2006 þótt það væri brjálað að gera á þessum tíma og fækkunin held- ur áfram. Hún hófst nákvæmlega á þeim tíma þegar frjálst flæði vinnuafls milli landa byrjaði. Mitt mat er að það hljóti að vera sam- svörun þarna á milli, það er að það hafi verið meiri tilhneiging til að ráða útlendinga í störf,“ tekur Guðmundur fram. Hann kveðst vita til þess að byrjað sé að falast eftir útlending- um til vinnu í byggingageiranum nú þegar meira er orðið að gera. „Við vorum með frábæra útlenska handverksmenn hér á uppgang- sárunum en þeir fóru til Noregs í kjölfar hrunsins. Þeir fara ekk- ert frekar að koma aftur hingað en íslensku handverksmennirnir sem fóru utan.“ Að sögn Guðmundar kom ábending frá yfirvöldum í kjöl- far hrunsins um að veitt yrði sér- stakt svigrúm í námi handverks- nema. „Yfirleitt leyfðum við ekki nemum að fara á samning fyrr en þeir voru búnir með fyrstu grunn- önnina hér en með auknu svigrúmi gátu þeir byrjað á samningi og komið svo til okkar. Þetta er enn óbreytt. Sumir ílengjast í vinnu og skila sér ekki aftur en nú er gríðarlegur fjöldi farinn að fara í gegnum raunfærninám á vegum Iðunnar. Þetta er lýsandi fyrir ástandið sem verður þegar slit- ið er á milli skóla og vinnustaða- náms.“ Meiri tengsl milli skóla Nemum í byggingageiranum hefur fækkað um þriðjung Meistara, sem farnir eru að eldast, vantar lærlinga í vinnu. Byrjað er að falast eftir útlendingum í störf á ný en ólíklegt að þeir snúi aftur frá Noregi, segir Guðmundur Hreinsson, skólastjóri Byggingatækniskólans. „Við erum farnir að eldast, alveg eins og læknarnir sem sögðu að ekki væri nóg endurnýjun í stétt- inni. Þegar engir nýir byrja getum við gömlu karlarnir ekki hætt og slítum okkur út,“ segir Sigurður Heimir Sigurðsson, formaður Múrarameistarafélags Reykjavíkur. Hann segir aðeins fjóra sveina hafa útskrifast í múrverki í fyrra. Undanfarin ár hafi rúmlega 10 sveinar útskrifast á ári. Útskrifa þurfi 15 til 20 á ári til að endur- nýjun verði í stéttinni en á þessari önn eru 22 við nám í múrverki á öllum stigum námsins. „Nú er mikið að gera sem betur fer og það vantar fleiri menn. Margir múrarameistarar eru farnir að nálgast sjötugt. Þetta er ekki vinna fyrir gamalmenni. Ég er orðinn 65 ára og var að koma úr fjórðu axlaraðgerðinni. Þetta var mikill burður hér áður. Allt efni sem við vinnum með er þungt, eins og til dæmis steypan.“ Sem dæmi um hversu auðvelt er að fá vinnu í geiranum nú segir Sigurður að 28 ára gamall maður, sem langaði að byrja í faginu og komast á samning, hafi haft samband við hann. „Hálfri klukkustund eftir að ég sendi félögum mínum upplýsingar um hann var búið að ráða hann.“ - ibs ➜ Gömlu karlarnir geta ekki hætt þegar lærlinga skortir MEISTARINN OG LÆRLINGURINN Sigurður Heimir Sigurðsson, formaður Múrara- meistarafélags Reykjavíkur, ásamt lærlingnum Kristjáni Brynjarssyni. „Nú er mikið að gera sem betur fer og það vantar fleiri menn. Margir múrarameistarar eru farnir að nálgast sjötugt. Þetta er ekki vinna fyrir gamalmenni,“ segir Sigurður Heimir. og atvinnulífs eru í burðarliðn- um, að því er Guðmundur grein- ir frá. „Það eru tillögur nokkurra skóla að færa heildarnámið inn í skólana eins og gert er í Skand- inavíu. Núna sjáum við bara um skólaþáttinn en ekki vinnustaða- námið. Stefnt er að því að vera með tilraunakennslu í öllum þátt- um námsins næsta haust í til dæmis húsasmíði. Við vonumst til að námið verði þá markvissara og að þá verði mögulega hægt að stytta það.“ ibs@frettabladid.is FR ÉT TA BL AÐ IÐ /G VA ➜ Margir múrara- meistarar eru farnir að nálgast sjötugt. Það fóru færri í hand- verksnám 2006 þótt það væri brjálað að gera á þessum tíma og fækkunin heldur áfram. Guðmundur Hreinsson, skólastjóri Byggingatækniskólans BANDARÍKIN, AP Aðeins hálfum sólarhring eftir að Barack Obama Bandaríkjaforseti hafði flutt stefnuræðu sína hófust fyrstu formlegu viðræður bandarískra embættismanna við ráðamenn á Kúbu um bætt samskipti ríkjanna. Í stefnuræðu sinni hvatti Obama þingið til þess að hefja strax á þessu ári undirbúning að því að afnema viðskiptabann á Kúbu, sem hefur verið í gildi í hálfa öld. Hann sagði stefnubreytinguna gagnvart Kúbu verða til þess að Kúbustjórn hefði ekki lengur nein- ar „sýndarafsakanir fyrir höftum á Kúbu“, en um leið réttu Bandaríkin Kúbu vinarhönd og hvettu til þess að lýðræðisgildi yrðu í hávegum höfð. Stefnuræðu sína notaði Obama annars einkum til þess að kynna þinginu eins konar óskalista sinn og taldi upp fjölmörg atriði sem ættu að bæta hag bandarískrar millistéttar. Hann hótaði því jafn- framt að beita neitunarvaldi sínu ef þingið tæki upp á því að skerða einhver þeirra réttinda, sem hann hefði náð fram fyrir hönd milli- stéttarinnar. Repúblikanar eru í meirihluta á þinginu, þannig að Obama gerir sér væntanlega litlar vonir um að þing- ið fari að vinna ötullega að því að hrinda í framkvæmd óskalistanum sem hann kynnti í ræðu sinni. - gb Obama kynnti þinginu óskalista sinn í stefnuræðu, og boðar einnig betri tíma á Kúbu: Viðræður Bandaríkjanna við Kúbu hafnar ÞRÍR FORSETAR Joe Biden varaforseti stendur klappandi meðan þingdeildar- forsetinn John Boehner hlustar sitjandi á Obama forseta flytja stefnuræðu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Ísfell í Hafnarfirði hefur tekið við sölu og dreifingu á vörum norska fyrirtækisins Poly- form AS í Álasundi í Noregi. Polyform er þekktast fyrir framleiðslu á netabaujum og frí- holtum úr mjúku plasti, en Sæplast hf. á Dalvík (nú Promens) keypti fyrirtækið um aldamótin 2000. „Nú þegar samstarfi fyrir- tækjanna lýkur viljum við þakka starfsmönnum Sæplasts/Promens á Dalvík fyrir sérstaklega gott og árangursríkt samstarf á liðnum árum og óska þeim velgengni í framtíðinni,“ er í tilkynningu haft eftir Geir A. Gunnlaugssyni, stjórnarformanni Polyforms og öðrum eiganda fyrirtækisins. - óká Ísfell tekur við Polyform: Þakkar fólki hjá Promens BAUJUR OG FLOTHOLT Polyform AS er þekkt fyrir framleiðslu á netabaujum. MYND/ÍSFELL SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ M.A. BESTA MYNDIN – BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI – BESTI LEIKSTJÓRI BENEDICT CUMBERBATCH KEIRA KNIGHTLEY T H E I M I TAT I O N G A M E FRUMSÝND 23. JANÚAR “AN INSTANT CLASSIC”“BENEDICT CUMBERBATCH IS OUTSTANDING” “THE BEST BRITISH FILM OF THE YEAR” “EXCEPTIONAL” “FASCINATING & THRILLING” TILNEFND TIL 8 ÓSKARSVERÐLAUNA INSPIRING B A S E D O N T H E I N C R E D I B L E T R U E S TO R Y O F A L A N T U R I N G 1.197 karlar bjuggu í Fjallabyggð árið 2007 á móti 1.083 konum. Í byrjun árs 2014 eru konur fleiri en karlar, eða 1.009 á móti 1.001 karli. Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá ÉLJAGANGUR Suðvestanátt með éljum um sunnan og vestanvert landið næstu daga og kólnar heldur í veðri á ný. Lítur út fyrir fínt veður framan af laugardegi en síðdegis gengur í stífa suðaustanátt með úrkomu og hláku.. 0° 7 m/s 3° 10 m/s 3° 9 m/s 5° 10 m/s 5-10 m/s, en 8-13 S-til. Vaxandi SA-átt síðdegis. Gildistími korta er um hádegi 3° 24° -2° 4° 15° -1° 3° 1° 1° 19° 4° 13° 13° 17° 8° 0° 1° 2° 1° 6 m/s 4° 10 m/s 2° 7 m/s 2° 4 m/s 0° 5 m/s 1° 6 m/s -4° 9 m/s 0° -1° -2° -4° -1° -4° -4° -5° -3° -5° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur LAUGARDAGUR Á MORGUN 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 F 7 -5 A D 8 1 7 F 7 -5 9 9 C 1 7 F 7 -5 8 6 0 1 7 F 7 -5 7 2 4 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.