Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 60
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 44
Við skoðuðum í
þaula útsaumsspor og
gúmmí ásamt því að
pæla í abstrakt hug-
myndum í kringum
prjónalykkjuna.
Magnea Einarsdóttir.
➜ Meðal þeirra sem
koma fram á hátíðinni eru
AmabAdamA, Bubbi og
Dimma og Gusgus.
Kaffihúsið Reykjavík Roasters
opnar nýtt kaffihús í Brautar-
holti í lok febrúar. Þar verður góð
aðstaða fyrir kaffiáhugafólk að
koma á vinnusmiðjuna #betra-
kaffiheima.
„Þetta verður mun stærra kaffi-
hús og tekur mun fleiri í sæti en
á Kárastígnum,“ segir Tumi Ferr-
er, einn eigenda Reykjavík Roas-
ters. „Það sem verður okkar helsta
viðbót er kennsluaðstaðan sem
við fáum, sem var það sem okkur
vantaði. Þarna geta kaffiáhuga-
menn komið á vinnusmiðjuna,
hvort sem það er einstaklingur eða
hópar og lært allt um kaffi. Fólk
fær að leika sér með kaffi, upp-
skriftir, aðferðir og leiðir nám-
skeiðið svolítið sjálft,“ segir Tumi.
Kaffinámskeiðið #betrakaffi-
heima er þróað af þeim Þuríði
Sverrisdóttir, sem er ein af eig-
endunum, og Íris Neri Gylfadóttir
kaffibarþjóni. „Þær þróuðu þessa
vinnusmiðju eftir námsferð til
Grikklands. Þær vildu brjóta upp
þetta hefðbundna námskeiðsform
með fyrirlestrum og sýna almenn-
ingi skref fyrir skref hvað kaffi-
heimurinn hefur upp á að bjóða,“
segir Tumi.
Reykjavík Roasters hefur undan-
farið skapað sér nafn í íslenska
kaffibransanum, en starfsmenn
rista og pakka öllu kaffi sjálfir. - asi
Opna nýja kaffi vinnusmiðju
Reykjavík Roasters opna nýtt kaffi hús og hafa bætt við sig kennsluaðstöðu.
BETRA KAFFI Tumi og félagar hjá
Reykja vík Roasters munu bjóða upp á
flott kaffinámskeið á nýja staðnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það sem verður
okkar helsta viðbót er
kennsluaðstaðan sem við
fáum, sem var það sem
okkur vantaði.
Vandað 5 svæðaskipt
pokagormakerfi. Minni hreyfing
betri aðlögun.
Steyptar kantstyrkingar.
Hægt að endasnúa.
Þykkt 30 cm.
Slitsterkt og mjúkt
bómullaráklæði.
Val um fleiri en eina gerð af botni.
Val um nokkrar gerðir af löppum.
HEILSURÚMIÐ
NÚ Á ÚTSÖLUVE
RÐI!
REYNIR heilsurúm
Leggur grunn að góðum degi
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Opi› virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100
Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
30%
AFSLÁTTUR
Reynir heilsurúm með Classic botni
STÆRÐ FULLT VERÐ ÚTSÖLUVERÐ
120x200 119.900 kr. 83.930 kr.
140x200 139.900 kr. 97.930 kr.
160x200 169.900 kr. 118.930 kr.
180x200 190.900 kr. 133.630 kr.
Aukahlutir á mynd: Gafl og
ferkantaðar állappir.
ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR!
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR | REYKJAVÍK | AKUREYR
Góð svampdýna
Breidd: 200 cm
Dýpt: 120 cm
Lingen svefnsófi Kr. 93.675
Fullt verð 124.900
25%
AFSLÁTTUR
LINGEN
Grátt slitsterkt áklæði.
Hönnuðir fatamerkisins MAGN-
EA hafa hannað skartgripalínu
í samstarfi við íslenska skart-
gripamerkið Aurum. „Þetta er í
fyrsta sinn sem við hönnum skart-
gripalínu undir þessu merki. Sig-
rún, hinn hönnuðurinn hjá okkur,
hefur þó ágæta reynslu af skart-
gripahönnun með hönnunarteym-
inu IIIF,“ segir Magnea Einars-
dóttir, stofnandi MAGNEA, sem
ásamt Sigrúnu Höllu Unnarsdótt-
ur á heiðurinn af skartgripalín-
unni.
Hugmyndin að samstarf-
inu kom eftir að Aurum sýndi
afraksturinn af samstarfi við
Mynd listar skólann í Reykjavík
á Hönnunarmars í fyrra. „Við
Magnea kennum báðar þar svo
okkur datt í hug að þau væru opin
fyrir samstarfi. Þetta gekk svo
frekar hratt fyrir sig, enda eru
þau fagmenn fram í fingurgóma
hjá Aurum,“ segir Sigrún.
Línan samanstendur af gróf-
um og fínum útgáfum af háls-
menum, hringum og eyrnalokk-
um og er innblástur að línunni að
mestu fenginn úr eldri hönnun frá
merkinu MAGNEA. „Við skoðuð-
um í þaula útsaumsspor og gúmmí
ásamt því að pæla í abstrakt hug-
myndum í kringum prjónalykkj-
una. Það er svo yfirfærslan á
þessum hráefnum í málm sem
gefur línunni karakter,“ segir
Magnea.
Skartgripalínan er þó nokkuð
frábrugðin því sem áður hefur
komið frá Magneu. „Það er allt-
af gaman að sjá hugmyndir sem
eru hugsaðar í eitthvert ákveð-
ið hráefni og tilefni yfirfært í
annan miðil sem maður er óvan-
ur að vinna með. Fatahönnun og
skartgripahönnun eiga það sam-
eiginlegt að þar er unnið út frá
þrívíðum formum og líkamanum
sjálfum, en stærðarmunurinn er
auðvitað gríðarlegur svo það er
hægt að segja að það sé helsti
munurinn á því sem við höfum
verið að gera,“ segja þær.
Spurðar út í frekara samstarf
með Aurum eða öðrum hönnuð-
um útiloka þær það ekki. „Það er
aldrei að vita. Það verður gaman
að sjá viðbrögðin sem þessi lína
fær og hvað gerist í framhald-
inu af því. Okkur þykir virkilega
gaman að vinna með öðrum hönn-
uðum og höfum góða reynslu af
því svo við erum opnar fyrir því.“
Línan, sem ekki hefur enn feng-
ið nafn, verður frumsýnd í Aurum
Bankastræti á Hönnunarmars og
verður nánari tímasetning aug-
lýst síðar. Að auki verður línan
sýnd á Reykjavík Fashion Festi-
val. adda@frettabladid.is
Magnea hannar
skart með Aurum
Hönnuðir hjá MAGNEA gerðu nýja skartgripalínu í samstarfi við Aurum og er
línan innblásin af gömlum útsaumssporum og prjónalykkjunni.
GOTT TEYMI Þær
Magnea Einars dóttir
og Sigrún Halla
Unnarsdóttir hjá
MAGNEA hlakka til
að frumsýna línuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Alltaf banani og kaffi. Það er mjög
gott, sérstaklega ef það er mjólkur-
kaffi.“
Helga Bergrún Sigurbjörnsdóttir, mynd-
listarnemi
MORGUNMATURINN
„Kosningin hefur farið gríðarlega
vel af stað. Þátttakan er mun betri
en hún var í fyrra,“ segir Jóhann
Örn Ólafsson, verkefnastjóri
Hlustendaverðlaunanna. Þegar
Fréttablaðið fór í prentun í gær
var atkvæðafjöldi kominn þó nokk-
uð yfir 17 þúsund en kosningunni
lýkur formlega á Vísi á sunnudag.
Í fyrra voru Hlustendaverðlaun-
in sameinuð í fyrsta sinn og segir
Jóhann það fyrirkomulag koma
vel út. Útvarpsstöðvarnar Bylgj-
an, FM 957 og X-ið 977 standa á
bak við verðlaunin. „Þetta tókst
gríðarlega vel í fyrra. Það er mikið
af þessari íslensku tónlist spilað á
öllum stöðvum, en ekki öll íslensk
tónlist. Þegar stöðvarnar eru sett-
ar saman í ein verðlaun þá þarf að
undirbúa kvöld sem höfðar til fjöl-
breyttari hóps,“ segir Jóhann.
Kynnar á hátíðinni verða þeir
sömu og í fyrra, þau Sveppi og
Saga Garðars. „Þau hafa ekki
verið mikið að vinna saman sem
kynnar en ætla að endurtaka leik-
inn.“ Meðal þeirra sem koma svo
fram á hátíðinni eru Amabadama,
Bubbi og Dimma og Gusgus og
Fleiri munu svo bætast í hópinn.
Hlustendaverðlaunin verða veitt
í Gamla bíói þann 6. febrúar og
verða þau sýnd í opinni dagskrá á
Stöð 2. - asi
Meira en 17 þúsund atkvæði komin í hús
Kosning fyrir Hlustendaverðlaunin gengur vonum framar en atkvæðagreiðslu lýkur á sunnudaginn.
KYNNAR KVÖLDSINS Þau Saga Garðars
og Sveppi ætla að endurtaka leikinn frá því
í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
7
-F
3
E
8
1
7
F
7
-F
2
A
C
1
7
F
7
-F
1
7
0
1
7
F
7
-F
0
3
4
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K