Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 50
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| MENNINGBÍÓ | 34
MAX ÚTSALA
MAX ÚTSALAN ER Á FULLU!
Stærri en nokkru sinni fyrr með lægri
VSK og fullt af vörum nú án vörugjalda!
ALLAR VÖRUR
Á LÁGMAX
VERÐI!
Sjá allt úrvalið
á max.is
BEINT Á MÓTI IKEA SÍMI 412 2200
BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS
6,9/107,1/10 8,2/10 90%
FRUMSÝNINGAR
Mortdecai
Gamanmynd
Helstu hlutverk: Johnny Depp og
Gwyneth Paltrow.
Search Party
Gamanmynd
Helstu hlutverk: T.J. Miller, Alison
Brie og Krysten Ritter.
The Imitation Game
Drama
Helstu hlutverk: Benedict Cumber-
batch, Keira Knightley og Matthew
Goode.
50 ára Diane Lane leikkona
Þekktust fyrir: Unfaithful
Leikstjórinn George Lucas, höf-
undur Star Wars, segir að öllum
hugmyndum sínum fyrir nýju Star
Wars-myndina hafi verið ýtt út af
borðinu af fyrirtækinu Disney.
Um hugmyndir sínar fyrir Star
Wars VII. sagði hann í viðtali við
vefsíðuna Cinemablend: „Varðandi
þær sem ég seldi Disney-mönnum
komust þeir að þeirri niðurstöðu
að þeir vildu þær eiginlega ekki. Í
staðinn fengu þeir sínar eigin hug-
myndir. Þannig að þetta eru ekki
hugmyndirnar sem ég skrifaði upp-
haflega [fyrir Star Wars: The Force
Awakens],“ sagði Lucas, sem vildi
leikstýra myndinni áður en Disney
eignaðist fyrirtæki hans Lucas-
films árið 2012.
Leikstjórinn vildi ekki fara út
í smáatriði varðandi hvaða hug-
myndir hans þóttu ekki nothæfar.
Ljóst er að J. J. Abrams, leikstjóri
Star Wars: The Force Awakens,
ákvað að fara með kvikmyndabálk-
inn í allt aðra átt en síðustu þrjár
Star Wars-myndir Lucas þar sem
tölvubrellur fengu að njóta sín.
Lucas hlakkar mikið til að sjá
nýju myndina sem aðdáandi. „Það
eina sem ég sé eftir varðandi Star
Wars er að ég gat aldrei séð hana.
Ég heillaðist ekki upp úr skónum í
bíó þegar geimskipið fór yfir tjald-
ið. Ég get notið næstu myndar eins
og hver annar.“
Sjálfur framleiðir Lucas teikni-
myndina og fantasíuna Strange
Magic sem verður gefin út vestan-
hafs á morgun. Hún er byggð á
sögu eftir Lucas sem er undir
áhrifum frá verkinu A Midsum-
mernight’s Dream eftir William
Shakespeare.
Vildu ekki hugmyndir
Lucas um Star Wars
Disney hafði ekki áhuga á pælingum George Lucas.
GEORGE LUCAS Öllum hugmyndum hans varðandi nýju Star Wars-myndina var ýtt
út af borðinu. NORDICPHOTOS/GETTY
Vill prófa hasar
Kristen Stewart getur ekki beðið eftir
því að hrista upp í ferli sínum og segist
vera tilbúin að leika í ofurhetjumynd á
borð við Captain America. „Ég elska að
horfa á þessar myndir. Það væri gaman
að sýna fólki að ég get gert meira en
að vera bara Kristen Stewart í annarri
mynd í öðrum kringumstæðum,“ sagði
hún. „Ég er viss um að gæti
komist um borð hjá Captain
America, vitið þið hvað ég
meina? Það yrði að vera rétta
verkefnið.“ Nýjasta mynd
Stewart er Still Alice þar
sem hún leikur á móti
hinni Óskarstilnefndu
Julianne Moore.
Byssuframleiðandinn sem útveg-
aði byssurnar fyrir Liam Neeson
í Hollywood-myndinni Taken 3
hefur gagnrýnt leikarann fyrir
ummæli hans um byssulög í
Bandaríkjunum.
Fyrirtækið PARA USA seg-
ist „sjá eftir“ að hafa unnið með
Neeson eftir að hann lét hafa eftir
sér að byssueign í Bandaríkjun-
um væri „skammarleg“. Byssu-
framleiðandinn bætti því við að
hann ætlaði að slíta á öll tengsl
við Taken-myndirnar og hvatti
önnur fyrirtæki til að gera slíkt
hið sama, samkvæmt vefsíðu
BBC.
„Við munum hætta að útvega
vopn fyrir kvikmyndir með Liam
Neeson í aðalhlutverki og óskum
eftir því að vinir okkar og félagar
í Hollywood forðist að tengja
vörumerkið okkar og vörur við
verkefni hans,“ sagði í yfirlýsingu
fyrirtækisins á Facebook.
„Það eru bara of margar…
byssur þarna úti,“ sagði írski leik-
arinn við Gulf News í Dúbaí í síð-
ustu viku. „Sérstaklega í Banda-
ríkjunum. „Mér finnst þetta
hneyksli. Í hverri viku sjáum við
í dagblöðum: Nokkur börn til við-
bótar voru drepin í skólum,“ bætti
hann við. Ummælin hafði hann
uppi er hann svaraði spurningu
um Charlie Hebdo-skotárásina í
París fyrr í mánuðinum sem kost-
aði fjölda manns lífið.
Neeson, sem hefur leikið Bryan
Mills fyrrverandi starfsmann
bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA, í þremur Taken-myndum,
sagði að byssuvandamálið tengd-
ist ekki hasarmyndum frá Holly-
wood. „Ég ólst upp við að horfa á
kúrekamyndir og elskaði að gera
þetta [byssuhreyfing] með fingr-
unum: Bang, bang, bang, þú ert
dauður! Ég endaði ekki sem morð-
ingi,“ sagði hann. „Persóna eins
og Bryan Mills leggur af stað með
byssurnar og leitar hefnda: þetta
er fantasía.“
PARA USA sagði að ummæli
Neesons endurspegluðu „van-
þekkingu á menningu og stað-
reyndum sem grafa undan
stuðningi við bandarísku stjórn-
arskrána og bandarískt frelsi“.
Taken 3 fór á toppinn, bæði í
Bandaríkjunum og Bretlandi,
yfir aðsóknarmestu myndirnar
eftir að hún var frumsýnd fyrr í
þessum mánuði. Hún hefur einn-
ig notið mikillar aðsóknar hér á
landi.
Byssuframleiðandi
sniðgengur Neeson
Bandarískur byssuframleiðandi hefur sett leikarann Liam Neeson og Taken-
myndirnar á svartan lista vegna ummæla hans um byssueign í landinu.
MEÐ BYSSUNA Á LOFTI Liam Neeson með byssuna á lofti í hasarmyndinni Taken 3.
Við munum hætta að
útvega vopn fyrir kvik-
myndir með Liam Neeson í
aðalhlutverki og óskum
eftir því að vinir okkar og
félagar í Hollywood tengi
ekki vörumerkið okkar og
vörur við verkefni hans.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
6
-B
C
D
8
1
7
F
6
-B
B
9
C
1
7
F
6
-B
A
6
0
1
7
F
6
-B
9
2
4
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K