Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 20
22. janúar 2015 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
L
áki jarðálfur átti foreldrana Snjáka og Snjáku. Þau hófu
alla sína daga á því að lýsa því yfir að þann daginn ætluðu
þau bara að gera það sem teldist reglulega ljótt. Hvöttu
þau son sinn til að gera slíkt hið sama svo að hann gæti
orðið reglulega stór og ljótur jarðálfur, eins og pabbi hans.
Einhverra hluta vegna koma þessar persónur barnabók-
menntanna upp í hugann þegar fregnir berast af framferði
borgarstjórnarflokks Framsóknarflokksins og flugvallarvina
í Reykjavík. Nýjasta afrek
borgarfulltrúa flokksins, Guð-
finnu Jóhönnu Guðmundsdóttur
og Sveinbjargar Birnu Björns-
dóttur (sem vel að merkja
komust til áhrifa með fordóma-
hjali í garð múslima á Íslandi í
tengslum við byggingu mosku
í Reykjavík) er að skipa Gústaf
Níelsson, alræmdan fordómapúka úr röðum sjálfstæðismanna,
varamann í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar.
Þeirri kenningu hefur heyrst fleygt að um hannaða atburða-
rás sé að ræða til þess að forystumenn í flokknum geti stokkið
fram og fordæmt skipanina, með svipuðum hætti og forysta
Sjálfstæðisflokksins brást við í síðustu viku þegar Ásmundi
Friðrikssyni, þingmanni flokksins, varð á að opinbera eigin for-
dóma. Mannorð flokksins í borginni sé þegar svo laskað að ekki
skipti máli þótt þar bætist við ein syndin enn.
Þessi kenning er hins vegar líklega röng og ástæða til að
hrósa því forystufólki Framsóknar sem í gær steig fram og lét í
sér heyra, þar á meðal Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráð-
herra og Eygló Harðardóttur félagsmálaráðherra, sem sögðu
skipan Gústafs í þessa stöðu varamanns óásættanlega og hana
bæri að afturkalla. Og svo Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, for-
manni flokksins, sem greindi frá því að hann hefði tekið málið
upp við fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina í gær.
Í kjölfarið var skipan Gústafs dregin til baka og sneypuförin
öll líklega frekar til marks um einangrun og dómgreindarleysi
fulltrúa framboðsins í Reykjavík. Að þar á bæ telji jaðarsettir
fulltrúarnir sig í stöðu til þess að gera bara hvaða vitleysu sem
er til þess eins að vekja umtal og flagga sínum furðuskoðunum
og fordómum. Að forystan Framsóknar og flugvallarvina
í borginni vakni upp með þá hugsun í kollinum á hverjum
morgni að í dag ætli þær að gera eitthvað reglulega ljótt.
Það er hins vegar raunverulegt áhyggjuefni hversu margir
virtust tilbúnir til þess að verja þennan heimskugjörning
Framsóknar og flugvallarvina, því á samfélagsmiðlum mátti
í gær víða sjá enduróm fordóma og hræðslu við útlendinga.
Uppgangur mannhaturs og fordóma hér á landi, líkt og víðar í
Evrópu, virðist staðreynd og það vekur ugg.
En hver veit, kannski á eitthvað gott eftir að koma út úr
þessu öllu saman. Þeir sem þekkja söguna um Láka muna að
þótt hann hafi byrjað sem jarðálfur sem unun hafði af því að
hrekkja aðra, þá komst hann til nokkurs þroska og breyttist á
endanum í dreng sem vissi að betra væri að reyna að láta gott
af sér leiða.
Í Framsókn eru jarðálfar íslenskra stjórnmála:
Sumir hafa unun
af því að gera ljótt
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Rótin var stofnuð sem vettvangur fyrir
konur til að þrýsta á um bætta þekkingu á
fíknivanda og meðferð við honum. Ástæð-
an var ekki síst sú staðreynd að mjög hátt
hlutfall kvenna, sem glíma við þennan
vanda, hefur verið beitt ofbeldi, orðið
fyrir áföllum eða á við geðrænan vanda að
stríða samhliða fíkninni. Við teljum nauð-
synlegt að komið verði á fót greiningar-
miðstöð þar sem vandi einstaklinga er
greindur á heildstæðan hátt svo hægt sé
að haga meðferðinni í samræmi við þarfir
hvers og eins. Hluti af því er að bjóða upp
á sérstaka kynjaskipta meðferð.
Þó að Rótin hafi ekki náð tveggja
ára starfsafmæli eru hátt í 300 konur í
félaginu. Meðal þeirra er fjöldi kvenna
sem þekkir vandann af eigin raun og
hefur farið hefðbundna leið í íslenska með-
ferðarkerfinu, þ.e.a.s. í afvötnun á Vogi og
eftirmeðferð á Vík. Þar fyrir utan þekkj-
um við sem stöndum að Rótinni ótal konur
í batasamfélaginu sem hafa sagt okkur
sögu sína í þeim tilgangi að hún leiði til
góðs. Lykilhugtakið í okkar starfi er vald-
efling og ekki að ástæðulausu.
Meðferð þarf að taka mið af fjölþættum
vanda og sögu kvenna. Það þarf að hlusta
á þær og taka mark á orðum þeirra. Hefð-
bundin meðferð sem ekki tekur þetta til
greina getur aukið á vanda þeirra (e.: re-
traumatisation). Það er þyngra en tárum
taki hve margar konur hafa ekki fundið
leið til bata með þeim aðferðum sem nú
eru í boði og allt of margar ekki séð aðra
leið en að svipta sig lífi.
Meðferð sem gerir ráð fyrir því að sjúk-
lingurinn horfi þröngum augum á fíknina
án þess að skoða heildarmyndina, þar sem
ætlast er til að hann gefi frá sér allt pers-
ónulegt vald og setji allt sitt traust á æðri
mátt, hvort sem það er guð, hópurinn eða
læknirinn, er ekki í samræmi við fersk-
ustu strauma innan heilbrigðisvísindanna
þar sem valdeflingu sjúklinga er gert hátt
undir höfði.
Það að halda því fram að áföll flækist
fyrir, að konur viti ekki hvað er þeim fyrir
bestu, að þær beri fyrir sig þunglyndi eða
aðra erfiðleika er forræðishyggja og van-
virðing við þær konur sem leita sér hjálp-
ar vegna áfengis- og vímuefnavanda.
Slíkar áherslur mátti því miður lesa í
nýlegu fréttablaði SÁÁ en blaðið er hvat-
inn að greinarskrifum okkar um valdefl-
ingu kvenna.
Endurkoma hysteríunnar
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Kristín I.
Pálsdóttir
Gunný Ísis
Magnúsdóttir
í ráði Rótarinnar,
félags um málefni
kvenna með áfengis-
og fíkniefnavanda
Guðrún Ebba
Ólafsdóttir
Íslenski kúrinn í skammdeginu
Nú eru góðar horfur fyrir það fólk sem
hallast að íslenska kúrnum, en fremst
í þeim flokki fer forsætisráðherrann
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hvers
vegna er þetta nefnt núna? Jú, vegna
þess að bændur hafa nú undan með
framleiðslu á beikoni og annarri kjötvöru
sem flytja þarf annars inn frá útlöndum,
til að hægt sé að borða íslenskt í öll mál.
Þegar sól hefur hækkað verulega á lofti
og fleiri munna þarf að metta,
með öllu því ferðafólki sem
hingað kemur, fer svo aftur
í fyrra horf og erlent kjöt
verður meðal þess íslenska
og hættur kunna að skapast
og þá verður torsótt
að vera á íslenska
kúrnum.
Methafi í Framsókn?
Gústaf Adolf Níelsson var ekki lengi
kjörinn varanefndarmaður í nafni
Framsóknarflokks. Hörð viðbrögð
voru við skipan hans. Gústaf náði ekki
að láta til sín taka áður en hann var
gerður brottrækur úr varamennskunni.
Fá dæmi eru um jafn stutt stopp í þágu
hins opinbera. Helst að vera kunni að
viðkoma annars framsóknarmanns,
Auðuns Georgs Ólafssonar, í stóli
fréttastjóra Ríkisútvarpsins fyrir
réttum tíu árum, kunni að vera
styttri en seta varamannsins
Gústafs Adolfs Níelssonar. Það
voru viðbrögð framsóknar-
manna sjálfra sem
bundu enda á
feril Gústafs
í mannrétt-
indaráði.
Samhengislaust rugl
Varaformaður Vinstri grænna, Björn
Valur Gíslason, lætur til sín taka á Al-
þingi, þar sem hann hefur sæti nú sem
varaþingmaður. Framgöngu hans á þingi
var getið hér í gær. Við upphaf þing-
fundar í gær gerði hann að umtalsefni
yfirlýsingar beggja oddvita ríkisstjórnar-
flokkanna, um afnám fjármagnshaft-
anna. „Niðurstaðan er í stuttu máli sú
að yfirlýsingar formanna stjórnarflokk-
anna um afnám gjaldeyrishaftanna
eru meira og minna samhengilaust
rugl. Þeir virðast hvorki hafa skilning
á viðfangsefninu né getu til að takast
á við það. Þeir hafa með misvísandi
yfirlýsingum sínum skaðað íslenska
hagsmuni og veikt samningsstöðu
landsins gagnvart erlendum aðilum,“
sagði Björn Valur.
sme@frettabladid.is
➜ Meðferð þarf að taka mið af
fjölþættum vanda og sögu kvenna.
Það þarf að hlusta á þær og taka
mark á orðum þeirra.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
7
-C
2
8
8
1
7
F
7
-C
1
4
C
1
7
F
7
-C
0
1
0
1
7
F
7
-B
E
D
4
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K