Fréttablaðið - 22.01.2015, Síða 8
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
(2.120.968 kr. án vsk)
GRIKKLAND Alexis Tsipras, leiðtogi
vinstriflokksins SYRIZA, segir að
flokkurinn muni bæði virða reglur
evrusvæðisins í ríkisfjármálum og
standa við markmið um lækkun rík-
isskulda.
„Stjórn SYRIZA mun virða skuld-
bindingar Grikklands, sem aðildar-
ríkis evrusvæðisins, um að halda
jafnvægi í ríkisfjármálum, og mun
standa við skuldalækkunarmark-
mið,“ sagði Tsipras í grein sem birt-
ist í Financial Times í gær.
Tsipras hefur talað hart gegn
aðhaldsaðgerðum núverandi stjórn-
valda í Grikklandi, sem staðið hafa
í ströngu við að minnka skuldasúpu
ríkissjóðs síðustu misserin.
Bæði Evrópusambandið og
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn komu
Grikkjum til bjargar með stórfelld-
um lánum, en kröfðust þess í staðinn
að Grikkir ynnu hörðum höndum að
því að koma lagi á efnahagsmál sín.
SYRIZA er spáð stórsigri í þing-
kosningum um helgina, og er vel-
gengni flokksins ekki síst talin
skýrast af andstöðu hans við
aðhaldsaðgerðirnar, sem bitnað hafa
hart á almenningi í landinu.
Eitt helsta kosningaloforð
SYRIZA hefur snúist um að ná fram
stórfelldri skuldaniðurfellingu fyrir
hönd gríska ríkisins.
Tsipras segist hreint ekki hafa
horfið frá þessu loforði, þvert á móti
sé hann bjartsýnn á að vel muni
ganga að semja um skuldaniður-
fellingar.
„Okkur ber skylda til þess að
ganga til samninga með opinskáum
og heiðarlegum hætti sem jafningj-
ar félaga okkar í Evrópusamband-
inu,“ skrifar hann. „Það er ekki
nokkur ástæða til þess að báðar
fylkingar fari að sveifla vopnum.“
Skuldir Grikklands nema nú 175
prósentum af þjóðarframleiðslunni,
en stefnt hefur verið að því að ná
þeim niður fyrir 130 prósent fyrir
lok þessa áratugar.
Andtonis Samaras, leiðtogi hægri-
flokksins Nýs lýðræðis, hefur verið
forsætisráðherra undanfarin þrjú
ár.
Nýju lýðræði er spáð 30 pró-
sentum atkvæða í kosningunum á
sunnudag, en SYRIZA getur reikn-
að með að fá 35 prósent, standist
skoðanakannanir. Öðrum flokkum
er spáð vel innan við tíu prósentum
atkvæða hverjum, og þar á meðal er
nýnasistaflokkurinn Gullin dögun
sem gæti reiknað með að fá rétt
rúmlega fimm prósent.
gudsteinn@frettabladid.is
Ekkert virðist stöðva
sigurgöngu SYRIZA
Vinstri flokknum SYRIZA er spáð stórsigri í grísku þingkosningunum á sunnudag.
SYRIZA hefur staðið hart á móti aðhaldsaðgerðum, en leiðtogi flokksins dró eitt-
hvað í land í gær og lofar að standa við skuldbindingar gagnvart evrusvæðinu.
KOSNINGAR Í NÁND Kosningaveggspjald, með mynd af Alexis Tsipras, fest upp á
staur í Aþenu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAG Áhugi á því að stofna
lífsskoðunarfélög hefur aukist, þó
einungis eitt félag, Siðmennt, sé
skráð sem slíkt hjá Hagstofunni.
Halldór Þormar Halldórsson,
sem annast skráningu þessara
félaga á starfsstöð sýslumanns
Norðurlands eystra á Siglufirði,
segir að tvö formleg erindi séu
í vinnslu hjá embættinu. Áhugi
almennings á stofnun slíkra
félaga er þó mikill og fyrirspurn-
um um umsóknarferli og viðmið
hafi fjölgað mjög hjá embættinu.
Lögum um trúar- og lífsskoð-
unarfélög var breytt árið 2013
og ákvæðum um viðurkenningu
á lífsskoðunarfélögum bætt við.
Til þess að verða skráð lífs-
skoðunarfélag þarf félagið að
byggja á veraldlegum lífsskoð-
unum, miða starfsemi sína við
ákveðin siðferðisgildi og mann-
rækt auk þess sem félagið þarf
að hafa náð fótfestu og meðlimir
þess að vera fleiri en 25 lögráða
einstaklingar.
Erindi væntanlegra lífsskoðun-
arfélaga fara fyrir sérstaka nefnd
sem innanríkisráðherra skipar úr
nokkrum deild-
u m H á skól a
Íslands. Hljóti
félag skráningu
er því skylt að
sjá um tilteknar
athafnir eins og
útfarir, gifting-
ar, skírnir og
fermingar.
Samfara þess-
ari þróun hefur þeim sem skrá
sig utan trúfélaga fjölgað mikið
milli ára, voru 10.336 árið 2010
en 17.218 árið 2014. Hópurinn sem
gefur sig upp sem ótilgreindan
eða í öðru trúfélagi en þeim sem
eru á skrá Hagstofunnar hefur
hins vegar verið nokkuð stór
lengi, í honum voru 19.647 árið
2010 en 20.959 árið 2014.
Þannig standa í dag um 40 þús-
und Íslendingar utan trú- eða lífs-
skoðunarfélaga eða þá að það sem
þeir aðhyllast hefur ekki hlot-
ið skráningu. Þá hefur trúfélög-
um fjölgað mikið frá árinu 2010
þegar 27 slík félög voru á skrá en
í dag eru þau 45.
- hkh
Veraldlegum lífsskoðunarfélögum gæti fjölgað:
Aukinn áhugi fyrir
lífsskoðunarfélögum
HALLDÓR Þ.
HALLDÓRSSON
MARGIR UTAN TRÚFÉLAGA Alls eru 45 skráð trúfélög á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
8
-D
2
1
8
1
7
F
8
-D
0
D
C
1
7
F
8
-C
F
A
0
1
7
F
8
-C
E
6
4
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K