Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 54
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 38 BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar Johnny Depp er ekki hrifinn af því þegar kvikmyndastjörnur hefja feril sem tónlistarmenn. „Mér verður óglatt af tilhugsun- inni. Ég hef aldrei þolað þetta,“ sagði hinn 51 árs leikari, sem lék á sínum tíma í söngvamynd- inni Sweeney Todd. „Ég þoli ekki þegar þetta gerist. „Komið og sjáið mig spila á gítar vegna þess að þið hafið séð mig í tólf mynd- um.“ Sjálfur hefur Depp farið upp á svið með gítarinn sinn og spilað með Oasis, Marilyn Man- son og Keith Richards en hefur engan áhuga á tónlistarferli. „Tónlist er enn hluti af lífi mínu en þið munuð aldrei heyra í The Johnny Depp Band. Það verður aldrei stofnað.“ Ekki áhuga á tónlistarferli JOHNNY DEPP Leikarinn hefur engan áhuga á að hefja tónlistarferil. NORDICPHOTOS/GETTY WEDDING RINGER KL. 8 - 10.30 TAKEN 3 KL. 8 - 10.20 PADDINGTON ÍSL TAL KL. 5.30 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 5.30 WEDDING RINGER KL. 5.40 - 8 - 10.20 WEDDING RINGER LÚXUS KL. 8 - 10.20 BLACKHAT KL. 8 - 10.25 TAKEN 3 KL. 8 - 10.50 THE HOBBIT 3 3D 48R KL. 5 - 8 THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 5 PADDINGTON ÍSL TAL 2D KL. 3.30 - 5.45 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 3.30 - 5.45 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.30 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK siAMS TIME m.a. BESTA MYND ÁRSINS Besti Leikari í aðalhlutverki - Bradley Cooper 5:50 6 10:20 8, 10:15 6, 9 ÆVINTÝRALEGA SKEMMTILEG MYND FRÁ FRAMLEIÐANDA HARRY POTTER Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Jón Gunnar Geirdal, „plöggari“ og eigandi markaðsfyrirtækisins Yslands, heldur í fyrsta sinn nám- skeið í PR, eða samskiptum við fjölmiðla, 18. febrúar. „Mér finnst vera mikil þörf á þessu. Hvort sem það eru fyrir- tæki eða einstaklingar sem finnst erfitt að fóta sig í þessu flókna umhverfi sem eru fjölmiðlar. Ég er búinn að veltast um í því umhverfi í tæp 25 ár og sérhæfi mig í að vekja athygli á verkefn- um, viðburðum og hverju sem er,“ segir Jón Gunnar, sem hefur starfað með fyrirtækjum eins og til dæmis Ölgerðinni, Pepsi, Nike, Nova og Tuborg. Honum til halds og trausts verður Guðmundur Arnar Guð- mundsson, markaðsstjóri Nova, sem einnig kennir markaðsfræði við Háskólann í Reykjavík. Þeir munu leggja áherslu á breytt hlutverk almannatengsla þar sem netmiðlar og bloggarar hafa mun meiri skoðanamyndandi áhrif en áður. Skráning á námskeiðið er á slóðinni Online.is/pr-og-sam- felagsmidlar. - fb „Plöggari“ með PR-námskeið JÓN GUNNAR GEIRDAL Kennir fólki að fóta sig í flóknu fjölmiðlaumhverfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þarna var verið að bregðast við þeim aðstæðum sem voru komnar upp. Þetta er í raun í fyrsta sinn sem leki er tæklaður á þennan hátt,“ segir Ásmundur Jónsson hjá Smekkleysu en áttunda plata Bjarkar Guðmundsdóttur, Vulni- cura, kom út á iTunes í gær eftir að henni var lekið á netið. Upphaf- lega átti platan að koma út í mars. Herbragðið virðist hafa heppn- ast því platan skaust á toppinn víða um heim samkvæmt vefsíð- um sem byggja á rauntímaupp- lýsingum frá iTunes. Meðal landa þar sem platan skaust á toppinn má nefna Bretland, Mexíkó, Hol- land, Pólland og Rússland. Að auki var hún í öðru sæti hjá Þjóð- verjum og Frökkum og í fjórða sæti í Bandaríkjunum. „Það að bregðast við leka á þennan hátt er mjög óvenjulegt og ég efast um að það hafi verið reynt áður,“ segir Ásmundur. Um leið og tónlistin sé komin á netið byrji aðdáendur að deila henni sín á milli og séu flestir búnir að hlusta á plötuna aftur á bak og áfram áður en hún kemur loks út. Björk greindi frá tíðindun- um á heimasíðu sinni. Þar segir hún meðal annars að platan hafi í fyrstu einkennst af ástarsorg, hluti hennar sé saminn fyrir skilnað og hluti skömmu eftir. Hún vonast til að lögin geti hjálp- að fólki sem stendur í þeim spor- um. Tónlistarmennirnir Arca og The Haxan Cloak aðstoðuðu Björk við gerð plötunnar. Í viðtali við tónlistartímaritið Pitchfork segir Björk að hún hafi verið stressuð fyrir plötunni. Á síðustu plötu, Biophilia, hafi hún samið um alheiminn en Vulni- cura sé talsvert venjulegri. Um tíma hafi hún óttast að hún yrði of fyrir sjáanleg og leiðinleg. Þrátt fyrir að stutt sé síðan platan kom út hafa gagnrýn- endur tímarita og blaða víða um heim keppst um að ausa hana lofi. Alexis Petredis, blaðamaður The Guardian, segir að Vulnicura sé mikilvægasta plata Bjarkar síðan Vespertine kom út árið 2001. Starfsbræður hans víða um heim taka í sama streng. Ásmundur gerir ráð fyrir því að plötunni verði fylgt eftir með fjölda tónleika. Nú þegar hefur verið tilkynnt um sjö tónleika sem munu fara fram í New York. Hann er ánægður með viðtök- urnar sem platan hefur fengið en skilur lítið í þeim sem leka verk- um annarra. „Gerð plötunnar tók mörg ár og það hljóta að liggja einhverjar annarlegar hvatir að baki hjá fólki sem gerir svona.“ johannoli@frettabladid.is Herbragðið skilaði tilætluðum árangri Vulnicura, plata Bjarkar Guðmundsdóttur, kom út sex vikum fyrr en áætlað var eft ir að henni var lekið á netið. Útgáfustjóri Smekkleysu segir þetta vera í fyrsta skipti sem leki er tæklaður á þennan hátt. Platan toppar sölulista iTunes. Gerð plötunnar tók mörg ár og það hljóta að liggja einhverjar annarlegar hvatir að baki hjá fólki sem gerir svona. Ásmundur Jónsson. VULNICURA Svona lítur umslag nýjustu plötu Bjarkar út. Ég er rosalega mikið að reyna að muna nafnið á þessum náunga sem gerði allt vitlaust í gær. Það er eins og mig minni að hann eigi bróður sem er alþing- ismaður. Eða bakari. Ég man það ekki. Þessi náungi hefur bullað um alls konar minnihlutahópa undanfarin ár og ver- andi hvítur karl sem er kominn af besta skeiði er enginn betur til þess fallinn en einmitt hann. ÉG man samt ekki hvað hann heit- ir. Grani? Guffi Nielsen? Þessu er algjörlega stolið úr mér. Ég man samt að hann er hræddasti maður landsins. Hann er svo hrædd- ur við homma og múslima að hann byrjaði að blogga um það á Moggablogginu áður en Björn Bjarnason lærði að kveikja á tölvunni sinni. Hann er líka með eitthvert undarlegt steypublæti vegna þess að hann elskar Reykjavíkurflugvöll meira en fólk. ÉG get samt ekki komið fyrir mig nafninu á þessum manni. Ég sá mynd af honum og hann leit út fyrir að hafa troðið upp í sig saltkjöti þangað til hver einasti dropi af vökva í lík- ama hans var kyrfilega bundinn. Georg Njálsson? Nei, ég man þetta ekki. Ein- hverjar fréttir birtust af heilsuátaki hans um daginn. Hann hlýtur að hafa gefist upp á því þegar hann uppgötvaði að hommar og múslimar ganga óáreittir um líkamsræktarstöðvar landsins. HVAÐ heitir þessi maður? Guðjón? Geir? Ég er ekki að fara að muna þetta. Ég man bara að hann virtist mjög hræddur. Og ég skil hann vel. Ég væri líka hræddur ef ég væri í útrýmingar- hættu. Þessi náungi tilheyrir nefnilega stofni af útþöndum frethólkum sem er hægt og rólega að hverfa af yfirborði jarðar. HONUM var sparkað úr mannréttinda- ráði Reykjavíkurborgar nánast um leið og hann var skipaður. Það hefði samt verið þess virði að leyfa honum að taka einn fund til að sýna honum hversu lítið erindi hann á í ráð sem fer með málefni minnihlutahópa. Tegund í útrýmingarhættu 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 F 8 -2 0 5 8 1 7 F 8 -1 F 1 C 1 7 F 8 -1 D E 0 1 7 F 8 -1 C A 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.