Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 4
Árni og Hallbjörn
græddu 726 milljónir
Högnuðust vel Þeir Árni
og Hallbjörn högnuðust vel á
hlutabréfum sínum í Högum
í fyrra en félagið sem heldur
utan um hlutabréfin græddi
726 milljónir króna.
4 Fréttir 11. september 2013 Miðvikudagur
Brást við fréttaflutningi
n Seðlabankinn sendi kæru í Samherjamálinu aftur til saksóknara
S
eðlabanki Íslands virðist hafa
brugðist við fréttaflutningi DV
af málum Samherja á mánu
daginn með því að senda
kæru í meintu brotamáli fyrirtækis
ins aftur til sérstaks saksóknara þá
um morguninn eftir að blaðið kom
út. Í DV á mánudaginn kom fram að
embætti sérstaks saksóknara hefði
sent kæru sem Seðlabanki Íslands
sendi til embættisins aftur til baka til
frekari úrvinnslu og að því væri mál
ið nú í höndum Seðlabankans.
Um helgina var, með öðrum orð
um, ekkert sem benti til annars en
að kæra væri nú hjá Seðlabanka Ís
lands sem gæti betrumbætt hana eft
ir atvikum og lagfært þau atriði sem
embætti sérstaks saksóknara setti
út á. Strax um morguninn á mánu
daginn sendi Seðlabanki Íslands
hins vegar frá sér tilkynningu þess
efnis að kæran hefði verið send aftur,
betrumbætt, til embættis sérstaks
saksóknara. Því er málið nú aftur
komið til hans.
Málið er nokkuð vandræðalegt
fyrir Seðlabanka Íslands því það hef
ur áður gerst að kærur frá bankanum
í meintum gjaldeyrisbrotamálum
hafi ekki verið teknar til rannsóknar
og að viðkomandi mál hafi verið látin
niður falla hjá embættinu. Þetta var
til dæmis raunin í máli sem tengd
ist fjárfestinum Heiðari Má Guðjóns
syni og fjárfestingafélagi hans, Úrsus.
Líkt og fram hefur komið marg
sinnis í fjölmiðlum snýst rannsóknin
á Samherja um meint gjaldeyrislaga
brot fyrirtækisins í útflutningi á fiski
frá Íslandi. n
ingi@dv.is
n Eiga 2,2 milljarða króna og skulda ekki neitt
V
iðskiptafélagarnir og
vinirnir Árni Hauksson
og Hallbjörn Karlsson
græddu tæplega 726
milljónir króna inni í
eignarhaldsfélagi sínu, Hagamel
ehf., í fyrra. Þetta kemur fram í árs
reikningi félagsins sem skilað var til
ársreikningaskrár ríkisskattstjóra
fyrir nokkrum dögum. Ársreikn
ingurinn var samþykktur á stjórnar
fundi í félaginu þann 30. ágúst síð
astliðinn.
Þeir Árni og Hallbjörn eiga
félagið að tveimur þriðju hlutum
en hinn þriðjunginnn á Sigurbjörn
Þorkelsson í gegnum félag sitt, Capi
tal ehf. Félagið sem heldur utan um
hlut þeirra Árna og Hallbjörns heitir
Vogabakki ehf. Í skýrslu stjórnar var
ekki gerð tillaga um greiðslu arðs
til hluthafa þrátt fyrir þennan góða
hagnað.
Einn stærsti hluthafi Haga
Þeir Árni og Hallbjörn efnuðust
mjög þegar þeir seldu hlutabréf í
Húsasmiðjunni til Baugs árið 2005.
Kaupverðið er talið hafa numið
rúmlega tveimur milljörðum króna
en það hefur aldrei verið gefið upp
opinberlega. Næstu árin á eftir
héldu þeir að sér höndum í íslensku
viðskiptalífi og segir sagan að þeir
hafi ávaxtað fjármuni sína erlendis
meðan góðærið og hrunið gekk yfir.
Eftir hrunið komu þeir Árni og
Hallbjörn hins vegar inn í íslenskt
viðskiptalíf og keyptu hlutabréf í
smásölukeðjunni Högum eftir að
félagið hafði lent í fanginu á Arion
banka vegna skulda eignarhalds
félagsins 1998 ehf. við bankann.
Hagar eiga og reka verslanir eins
og Bónus, Hagkaup, Útilíf og fleiri.
Smásölukeðjan er sú stærsta á Ís
landi. Hagamelur ehf. heldur utan
um þessi hlutabréf þeirra í dag,
samtals 8,2 prósent hlutafjár í Hög
um. Í ársreikningi félagsins kemur
fram að fjárfestingin í hlutabréfun
um í Högum hafi numið rúmlega
1.300 milljónum króna. Þetta kaup
verð var greitt með greiðslu hluta
fjár inn í félagið upp á þessa upp
hæð.
Engar skuldir
Í ársreikningi Hagamels kemur
fram að eignarhlutur þess er í Hög
um er metinn á rúmlega 2,2 millj
arða króna. Á móti þessum eignum
eru nánast engar skuldir – ein millj
ón króna. Þeir Árni og Hallbjörn
skuldsettu því ekki félagið þegar
hlutabréfin í Högum voru keypt
og eiga þeir því bréfin skuldlaust
ásamt Sigurbirni. Miðað við að
kaupverð bréfanna hafi verið rúm
lega 1.300 þúsund krónur á sínum
tíma, árið 2011, þá sést að hluta
bréfin í Högum hafa hækkað í verði
um nærri því einn milljarð króna á
rúmlega tveimur árum.
Í ársreikningnum er tekið fram
að félagið hafi, auk Hagabréfanna,
fjárfest í hlutabréfum í trygginga
félaginu VÍS á árinu. Þau viðskipti
áttu sér stað í apríl og keypti Haga
melur þá tæplega 10 prósenta hlut í
vátryggingafélaginu. Í júní á þessu
ári seldi félagið 4,7 prósenta hlut
í VÍS skömmu fyrir aðalfund VÍS
þar sem Hallbjörn var svo kjörinn
stjórnarformaður. Félagið er því að
færa sig upp á skaftið í fjárfesting
um enda er staða þess glimrandi
góð. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Aftur til sérstaks Kæra á hendur
Samherja Þorsteins Más Baldvinssonar er
nú komin aftur til sérstaks saksóknara frá
Seðlabanka Íslands.
Lúxusvandi í
Njarðvíkurskóla
Á heimasíðu Reykjanesbæjar er
greint frá því með nokkuð alvar
legum undirtóni að sálfræðinemi
við Háskóla Íslands hafi orðið að
breyta fyrirhugaðri lestrarrann
sókn sem til stóð að framkvæma
í Njarðvíkurskóla í Reykjanesbæ.
Þegar til átti að taka fundust ekki
tíu nemendur á yngsta stigi sem
glímdu við alvarlegan lestrar
vanda. Sálfræðineminn þurfti því
að breyta rannsókninni. Um 370
nemendur eru í skólanum öllum.
Haft er eftir staðgengli
fræðslustjóra, með gamansöm
um undirtóni, að svona atvik
séu litin alvarlegum augum og
skoðuð með það að markmiði að
af þeim verði lært. Farið hafi verið
yfir kennslu á yngsta stigi skólans
og sagt að lestrarstefnu skólans
væri um að kenna. Rifja má upp
að Reykjanesbær kom á dögun
um afar vel út úr árlegri lestrar
skimun.
Ríkisstjórnin
hvött áfram
Öryrkjabandalag Íslands og
Landssamband eldri borgara
stóð fyrir hvatningafundi á
Austur velli á þriðjudag. Þar var
ríkisstjórnin hvött til að halda
áfram að efna loforð sem gef
in voru fyrir síðustu alþingis
kosningar. Þau loforð lutu með
al annars að afnámi þeirra
skerðinga sem síðasta ríkisstjórn
stóð fyrir gagnvart öryrkjum og
eldri borgurum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs
son forsætisráðherra ávarpaði
fundinn og sagði að til stæði að
gera það. Bjarni Benediktsson
mætti einnig en þeim báðum voru
gefin hvatningarspjöld að fundi
loknum.