Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 9
Stefna stjórnvalda eykur neyslu n Jón Steinar segir engan eðlismun á fíkniefnum og áfengi V ið höldum lífi í neðanjarðar- veröld þar sem glæpamenn stjórna,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, um fíkniefna- stefnu stjórnvalda. Jón Steinar skrif- aði grein í Morgunblaðið á þriðjudag þar sem hann reifar skoðanir sínar á þessum málaflokki. „Vestrænar þjóðir fara villur vega í þessu málasviði með banni og þungum refsingum sem við beinum að þeim sem hafa ekki annað til saka unnið en að verða neytendur, það ætti öllum að vera ljóst fyrir löngu síðan. Að mínu mati verður enginn ár- angur af núverandi stefnu, það eykst bara neyslan,“ segir Jón Steinar í sam- tali við DV. Jón Steinar segir að stefna stjórn- valda geri það að verkum að undir- heimar verði til þar sem alvarleg brot séu framin, og oft séu þau ekki kærð vegna þess að samfélagið nái ekki nægilega vel þangað niður. Hann segir að nauðsynlegt sé að hugsa málaflokk- inn upp á nýtt og bera saman stefnu ríkisins gagnvart áfengissjúklingum annars vegar og fíkniefnaneytendum hins vegar. „Nauðsynlegt er að átta sig á því að þeir sem neyta fíkniefna eru í raun sjúklingar eins og þeir sem of- nota áfengi. Það á við sama vandann í grundvallaratriðum, frekar þarf að hjálpa fólki við að átta sig á lífi sínu og ná stjórn á því og taka ábyrgð á sjálf- um sér. Það eru engar aðrar aðferðir til. Maður man þá tíð er áfengið var aðal- fíkniefni þjóðarinnar og þá dóu menn og frömdu glæpi undir áhrifum þess, það er enginn eðlismunur á því og þessum yngri efnum,“ segir Jón Steinar. „Það er eins og það sé einhver van- máttarkennd sem leiði til þess að við högum okkur svona í þessum mála- flokki. Við vitum af fólki sem fer illa út úr neyslu og það er eins og við höfum ekki kjark í að fást við þetta með því að slaka á klónni frekar en að herða,“ seg- ir Jón Steinar að lokum. n hjalmar@dv.is Fréttir 9Miðvikudagur 11. september 2013 Nefnda- upptalning Sigmundar „Ég er í þeim hópi sem finnst hæstvirt ríkisstjórn hafi farið ró- lega af stað, svo ég orði það pent,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi á þriðjudag. Sama dag flutti Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra skýrslu um störf ríkisstjórnarinnar. Heyra mátti á Steingrími að honum þætti ekki mikið til hennar koma. Hann sagði að skýrslan hafi lítið fjallað um eiginleg verk ríkis- stjórnarinnar heldur hafi verið nefndaupptalning. „Ég vona að ríkisstjórnin komi sér til verka. Það vinnst ekkert með eintómu pönnukökuáti.“ Ríkisstjórnin „Afsakið hlé“ „Mér finnst eins og þessi ríkis- stjórn sé réttnefnd Afsakið hlé. Ég vona innilega að dagskráin hefjist aftur,“ sagði Guðmund- ur Steingrímsson, annar tveggja formanna Bjartrar framtíðar, á Alþingi á þriðjudag. Þar gagn- rýndi hann ríkisstjórnina fyrir að veita óskýr svör um hvaða áætlun hún hefði í stærstu málaflokkun- um og vera ráðþrota gagnvart því hvernig hún hygðist efna kosn- ingaloforðin. Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup eykur Björt framtíð fylgi sitt frá því í síðustu alþingiskosningum, úr 8,2 pró- sentum í 8,8 prósent. Jón Steinar Gunnlaugs- son Segir þungar refs- ingar ekki vera lausnina við fíkniefnavanda þjóðarinnar. Vilja efla leigumarkað Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram þingsályktun um bráðaaðgerðir til að efla leigu- markað. Meðal þess sem þing- flokkurinn leggur til er að lagt verði fram frumvarp um nýjar húsnæðisbætur sem taki mið af fjölskyldustærð og tekjum og tryggi sambærilegan stuðning við leigjendur og eigendur. Þannig verði bundinn endi á það óréttlæti að opinberir aðilar styðji betur við bak fjölskyldna sem búa í eigin húsnæði en þeirra sem leigja. Þá er lagt til að ónýttar lóðir ríkisins verði boðnar fram til byggingar leiguíbúða og Íbúðalánasjóði verði gert að koma íbúðum í útleigu svo fljótt sem verða má.n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.