Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Síða 15
Hlakka til að prófa
eitthvað nýtt
Ljótar tölur
Halldóru Hagalín sagt upp hjá Birtíngi. – DVJóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna ósáttur við verðhækkanir. – DV
Forgangsmál nýrrar ríkisstjórnar
Spurningin
„Eftir að hafa horft á leikinn
gegn Sviss, þá held ég að það sé
leikmaður númer 7, Jóhann Berg
Guðmundsson.“
Stella Delli Zuani
10 ára nemi
„Ég hef ekki hugmynd um það.“
Björn Ómar
30 ára bókasafnsstarfsmaður
„Jóhann Berg er bestur.“
Haraldur Ólafsson
10 ára nemi
„Jóhann Berg.“
Petra Ósk Hafsteinsdóttir
14 ára nemi
„Það er ljóshærði víkingurinn
Birkir Bjarnason. Hann er djöfull
góður.“
Björn Guðbrandur Jónsson
55 ára líffræðingur
Bestur í lands
liðinu í fótbolta?
1 Hrottaleg nauðgun kaupsýslumanns Ók konunni rænulausri
í hjólastól. Dæmdur í 11 ára fangelsi.
2 Kviknakin og ögrandi Miley Cyrus gengur býsna langt í nýju tónlistar-
myndbandi.
3 Fyrrverandi eiginmaður Önnu Mjallar látinn Cal Worthington er
látinn 92 ára að aldri.
4 Fimm fæðutegundir sem þú ættir að borða Chia-fræ, sítróna og
kanill þar á meðal.
5 „Greinilega mikilvægara að lækka skatta á mönnum eins
og mér“ Kári Stefánsson gagnrýnir
fyrrverandi og núverandi ríkisstjórn fyrir
verja ekki heilbrigðiskerfið.
6 Stoppaði ekki fyrr en á Akranesi eftir að hafa ekið á mann
Varð svo skelkaður vegna viðbragða
mannsins sem hann ók á.
7 „Ég hélt nú reyndar bara á vasaljósinu“ Sara Birgisdóttir sótti
sér hvalkjöt á Snæfellsnes.
Mest lesið á DV.is
F
yrstu verk ríkisstjórnarinnar
hafa vakið athygli. Í forgangi var
að gefa erlendum ferðamönnum
afslátt á neyslusköttum og út
gerðarmönnum afslátt af veiðigjaldi.
Í sömu andrá kvartaði hún undan
slæmri stöðu ríkissjóðs og boðaði
niðurskurð. Það sýnir ekki mikinn
skilning á stöðu ríkisfjármála að af
sala ríkissjóði milljarða króna tekjum
og boða um leið niðurskurð í ríkis
rekstri til að bæta slæma stöðu. Það er
ekki trúverðugt eða líklegt til að auka
skilning á fækkun starfa á ríkisstofn
unum, skertri þjónustu við þá sem
reiða sig á velferðarkerfið eða frestun
á mikilvægum atvinnuskapandi verk
efnum.
Veiðigjald
Þegar stjórnarliðar verja afsláttinn á
veiðigjaldinu fullyrða þeir að þetta
hafi þurft að gera til að létta óhófleg
um gjöldum af litlum og meðalstór
um fyrirtækjum. Sú fullyrðing er röng.
Minnihluti þingsins gerði tillögu á
sumarþingi sem leitt hefði til þess að
324 litlar útgerðir greiddu ekkert sér
stakt veiðigjald og 102 aðeins hálft
gjald á meðan stóru útgerðirnar
greiddu áfram fullt gjald. Þessari leið
höfnuðu stjórnarþingmenn og stærsti
hluti afsláttarins kom í hlut stóru út
gerðarfyrirtækjanna. Fyrirtækja sem
standa afarvel og skila miklum arði til
handhafa sérleyfanna.
Óréttlætið í þessari aðgerð stjórn
valda er mikið vegna þess að út
gerðarfyrirtækin skila svo miklum arði
til eigenda sinna fyrst og fremst vegna
falls krónunnar og ódýrs sérleyfis sem
veitir aðgang að auðlindum þjóðar
innar. Þetta hefur ekki farið fram hjá
almenningi. Þeim sama og tapaði
umtalsvert á falli krónunnar og það
gerði ríkissjóður einnig og samdráttur
á þjónustu við almenning varð óhjá
kvæmilegur.
Hlutdeild sveitarfélaga
Í stað afsláttar á veiðigjaldinu til
útgerðarmanna hefði verið nær að
veita sjávarútvegssveitarfélögum
sanngjarna hlutdeild í því. Sveitar
félögin hafa borið kostnað af framsali
og hagræðingu í sjávarútvegi. Útgerðin
og þjóðfélagið í heild hafa hagnast af
hagkvæmum sjávarútvegi en sjávar
byggðirnar greiða fyrir hagræðinguna
með fækkun starfa og fækkun íbúa í
kjöl farið. Kvótakerfið með framsalsrétti
hefur þannig í för með sér kostnað sem
fallið hefur á sjávarbyggðir landsins í
formi atvinnuröskunar og tekjumissis.
Með hlutdeild í sérstaka veiðigjaldinu
fengju sveitarfélögin stuðning við upp
bygginu innviða, atvinnuþróun og
fjölgun starfa bæði í afleiddum grein
um sjávarútvegs og á öðrum sviðum.
Ferðaþjónusta
Fjölgun erlendra ferðamanna hér á
landi er fagnað einkum vegna þeirra
gjaldeyristekna sem þeir skila en
um leið er kvartað undan ágangi
á viðkvæmum svæðum, að erfið
leikar fylgi því að taka á móti mikl
um fjölda og skorti á uppbyggingu
innviða við ferðamannastaði. Samt
gefa stjórnvöld sama afslátt á hót
elgistingu frá almennu þrepi virðis
aukaskatts og gefinn er á matvæli.
Stjórnvöld ræða gjaldtöku við ferða
mannastaði en líta fram hjá einföld
um leiðum í gegnum neysluskatta
og afnám afsláttar. Athyglisvert er
að í skýrslu Ferðamálastofu um fjár
mögnun uppbyggingar og viðhald
ferðamannastaða er dregið fram að
frá árinu 2004 hafa tekjur til ríkisins
af hverjum ferðamanni lækkað um
40%. Þetta er sláandi mikil lækkun
og nauðsynlegt er að finna skýringar
á þessu. Skoða þarf allt umhverfi
ferðaþjónustunnar vandlega með
framtíðarstefnumótun í huga. Best er
að gera breytingar í uppsveiflu og þá
stefnu hafði fyrri ríkisstjórn markað
en núverandi hafnað. Markmiðið til
framtíðar fyrir ferðaþjónustuna hlýt
ur að vera að atvinnugreinin styrkist,
skapi verðmæt störf og skili um leið
góðum tekjum til samfélagsins.
Niðurskurður
Fulltrúar stjórnarliða í hagræðingar
hópi ríkisstjórnarinnar hafa verið
fyrir ferðarmiklir í fjölmiðlum og
undarlegustu hugmyndir verið hafð
ar eftir þeim. Þau hafa talað um
niðurskurð, m.a. til menningarmála,
hjá ríkisútvarpinu og einnig hjá eft
irlitsstofnunum sem verja eiga hag
almennings og voru fjársveltar í
hinu svokallaða góðæri. Fyrir hrun
þótti eftirlitsstarfsemi frekar aum
starfsemi og skapaði ýmiss konar
vesen fyrir þá sem eftirlitið átti að
beinast að. Því var starfsemin veikt
með slæmum afleiðingum fyrir al
menning. Og nú á að endurtaka
leikinn. n
Mörg eru haustverkin Það er að mörgu að hyggja í sveitum landsins, nú þegar tekur að hausta. Rúningin er hluti af þessum verkum. Sums staðar er þegar búið að smala og
bændur í óða önn. MyNd sigtryggur ariMyndin
Umræða 15Miðvikudagur 11. september 2013
Afi kveikti
áhugann
Jóhanna Vilhjálmsdóttir gefur út heilsubók. – DV
„Sveitarfélögin
hafa borið kostn
að af framsali og hag
ræðingu í sjávarútvegi
Kjallari
Oddný
Harðardóttir