Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Síða 2
E
fasemdir um háa umsýslu-
þóknun Thule Investments
sem er í eigu Gísla Hjálmtýs-
sonar komu fyrst fram fyrir
þremur árum síðan. Stjórn-
endur lífeyrissjóðanna, sem áttu
megin þorra hlutafjár í Brú II sem
Thule Investments rak, koma af fjöll-
um nú eftir umfjöllun Kastljóss um
fyrirtækið þrátt fyrir að þeir hafi haft
fulltrúa í fjárfestingarráði Brúar II og
þar með haft greiðan aðgang að árs-
reikningum. Vanþekking stjórnend-
anna á háum þóknunum Thule In-
vestments er því annað hvort ósönn
eða merki um vanhæft eftirlit með
fjárfestingum lífeyrissjóða. Í umfjöll-
un Kastljóss kom meðal annars fram
að verðmat tveggja stærstu eigna
sjóðsins árið 2011 var byggt á óend-
urskoðuðum reikningum. Sömuleið-
is kom fram að Thule Investments
hafi fengið yfir hálfan milljarð króna
fyrir umsýslu Brúar II. Sú þóknun var
byggð á verðmati sjóðsins sem nú
hefur komið í ljós að hafi verið held-
ur vafasamt. Megin þorri hlutafjár
sjóðsins var lagt til af þremur íslensk-
um lífeyrissjóðum: LSR, Gildi og Líf-
eyrissjóði verzlunarmanna. Eftir um-
fjöllun Kastljóss sögðust stjórnendur
lífeyrissjóðanna ekkert kannast við
háa umsýsluþóknun fyrirtækisins,
en sé betur að gáð virðist það hins
vegar vera rangt.
Efasemdir komu upp fyrir
þremur árum
Eins og fyrr segir komu þeir stjórn-
endur lífeyrissjóðanna sem tjáðu sig
af fjöllum og sögðust ekkert kann-
ast við sjálftöku Thule Investments.
Sé fundargerð frá aðalfundi Lífeyris-
sjóðs verzlunarmanna þann 17. maí
2010 skoðuð sést þó að strax þá voru
spurningar komnar upp um háa um-
sýsluþóknun Thule Investments. Í
fundargerð segir: „Ragnar Þór Ing-
ólfsson sjóðfélagi og stjórnarmaður í
VR kvaddi sér hljóðs og fjallaði m.a.
um tengsl stjórnenda við þau félög
sem sjóðurinn fjárfesti í ... Jafnframt
kom hann með fyrirspurn varðandi
umsýsluþóknun til Thule Invest-
ments ... Ragnar lagði fram áskorun
til stjórnar og starfsfólks um að stór-
auka gegnsæi í fjárfestingum og að-
gengi sjóðfélaga að upplýsingum í
ljósi þess að sjóðsins bíður það erf-
iða hlutverk að fjárfesta við afar erf-
iðar markaðsaðstæður og tortryggni
í samfélaginu.“ Stuttu síðar svaraði
Guðmundur Þ. Þórhallsson fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins fyr-
irspurninni varðandi Brú Capital.
Hann sagði að áætluð stærð Brú
Capital væri sex og hálfur milljarður
og að árleg umsýsluþóknun væri tvö
prósent.
Röng svör
Svar Guðmundar virðist vera bein-
línis rangt; í sjóðum sem þess-
um er venjan að umsjónaraðilar fái
tveggja prósenta þóknun af heildar-
fjárfestingum og er ætlast til að allur
kostnaður hluthafa við reksturinn sé
þar með talinn. Í tilfelli rekstrar Brú-
ar II var þóknunin tvö og hálft pró-
sent auk annars rekstrarkostnaðar,
lögfræðiþóknana, endurskoðunar
og aðkeyptrar sérfræðiþjónustu.
Var því umsýsluþóknunin samtals
nær þremur og hálfu prósenti. Þetta
hefðu stjórnendur lífeyrissjóðsins
átt að vita því þeir áttu fulltrúa í fjár-
festingarráði Brúar II frá stofnun og
því fengið ársreikninga sjóðsins.
„Það lítur allt út fyrir það að svörin
sem ég fékk hafi verið röng á þessum
fundi. Þær tölur koma engan veg-
inn saman við þær tölur og upplýs-
ingar sem Kastljós hefur. Það er klárt
mál að þessi tvö prósent eru fjarri
lagi. Það er mjög alvarlegt mál þegar
æðsta vald félagsins kemur ekki
hreint fram við sjóðfélaga,“ sagði
Ragnar Þór í samtali við DV.
„Marklaus þvæla“
Síðast liðinn fimmtudag tilkynntu
lífeyrissjóðirnir að til að eyða óvissu
yrði fenginn óháður þriðji aðili til að
skoða Brú II. Þar á meðal á að skoða
hvort eitthvað vafasamt hafi átt sér
stað hvað varðar eftirlit með fjár-
festingu, skattgreiðslum, þóknun-
um og umbunum. Ragnar Þór hef-
ur miklar efasemdir um að nokkuð
komi úr þeirri skoðun. „Þetta er ná-
kvæmlega eins og með rannsóknar-
skýrslu Alþingis. Þegar hún kem-
ur út þá ætla þeir loksins að fara að
skoða mál eins og Exista og annað
sem orkaði tvímælis. Í staðinn fyr-
ir að fá sambærilega rannsókn af
óháðum aðilum, þá skipa þeir sjálf-
ir í nefnd og velja fulltrúa sem þeir
telja vera óháða. Þeir fóru svo ekkert
eftir þeirri skýrslu og ekkert var gert
með hana. Allt tal um það að það eigi
að skoða hlutina í dag er algjörlega
marklaus þvæla eins og allt sem hef-
ur komið frá þeim hingað til. Ég hef
enga trú á því að það komi eitthvað
út úr þessari skoðun,“ segir Ragnar
Þór.
Næsti skandall lífeyrissjóðanna
Spurður um hvernig efasemdir um
óeðlilegar þóknanir Thule Invest-
ments hafi sprottið upp segir Ragn-
ar Þór: „Ég fæ upplýsingar frá heim-
ildarmanni um þetta mál sem snúa
að því að lífeyrissjóðirnir eru í bull-
andi vanda út af Thule Investments
og mikilli sjálftöku þar og samn-
ingi við Gísla sem þeir komast ekki
út úr. Þetta leit út fyrir að vera næsti
skandall lífeyrissjóðanna. Heim-
ildarmaðurinn fullyrðir við mig að
stjórnendur lífeyrissjóðanna séu
í miklum vandræðum með þenn-
an samning og hvernig þeir eigi að
komast út úr honum. Út frá þeim
upplýsingum bendir allt til þess að
stjórnendur lífeyrissjóðanna hafi
verið meðvitaðir um sjálftökuna sem
á sér stað inn í Thule Investments
út af hýsingu þessara sjóða.“ Ef frá-
sögn heimildarmanns Ragnars Þórs
er rétt þýðir það með öðrum orð-
um að stjórnendur lífeyrissjóðanna
hafi hylmt yfir mögulegum misbresti
í rekstri Thule Investments á Brú II.
Ekki náðist í Guðmund Þ. Þórhalls-
son, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna, við vinnslu fréttar-
innar. n
„Algjörlega út úr kú“
n Ómar Ragnarsson segir framkvæmdir við Gálgahraun vanvirðingu við Dag íslenskrar náttúru
N
áttúruverndarsamtökin
Hrauna vinir boðuðu til fjöl-
mennra mótmæla síðast liðinn
sunnudag vegna lagningu vegar
í Gálgahrauni. Segja má að mót mælin
beinist auk þess gegn sýslu manninum
í Reykjavík, en hann hafnaði nýver-
ið beiðni náttúruverndar samtaka um
lögbann á lagningu vegarins. Samtök-
in kærðu synjunina til héraðsdóms
en þrátt fyrir það hafa framkvæmd-
ir hafist. Ómar Ragnarsson sagði í
samtali við DV það fáránlega stöðu
að á meðan Dagur íslenskrar náttúru
sé haldinn muni „þeir sem stjórna
herdeildunum í hernaðinum gegn
landinu ramma daginn inn með því
að fara með jarðýtur á ósnortið hraun
Jóhannesar Kjarval.“
Ómari finnst það undarlegt að
framkvæmdir haldi áfram á Degi
íslenskrar náttúru sem er haldinn 16.
september ár hvert. „Ef þú berð þetta
saman við alla þá atburði sem eiga
sér stað um land allt til heiðurs og
virðingar íslenskrar náttúru, þá sérðu
að þessi gjörningur þeirra er algjör-
lega út úr kú. Þeir gátu ekki beðið í
tvo vinnudaga með framkvæmdirn-
ar, þeir þurfa að vera fyrstir í fyrramál-
ið til að fagna Degi íslenskrar náttúru
með því að ryðjast áfram í gegnum
hraunið. Mér finnst þetta álíka skrít-
ið og ef á Degi íslenskrar tungu myndi
einn skólinn auglýsa: Hér eftir verða
öll samskipti innan skólans á ensku og
ekkert annað mál má tala hér. Ég legg
þetta alveg að jöfnu, skólinn gæti sagt
að þetta væri mjög þörf framkvæmd.
Þeir gætu sagt: „það verður hvort eð
er töluð enska“ eins og þeir segja:
„það verður hvort eð er lagður vegur“.“
Ómar segir það viðeigandi að þeirra
fyrsta verk í fyrramálið verður að ryðja
burt íslenska fánanum.
Ómar sagði að mótmælin hafi
verið fjölmenn og mjög góður andi í
hópnum. „Við löbbuðum í gegnum
hraunið, sömu leið og vegurinn á að
vera. Ég ætlaði að fara með þeim en
ég áttaði mig ekki á því að þetta er
löng leið. Það er búið að skera þrisvar
í hnéð á mér svo ég varð að snúa við á
miðri göngu. Ég missti því af byrjun-
inni á fundinum en ég sá að það var
mikil stemning, ég kom bara í flasið á
henni!“ sagði Ómar. n
Rotaðist
eftir átök
Lögregla og sjúkralið voru köll-
uð að skemmtistað í Ingólfsstræti
rétt fyrir klukkan fjögur aðfaranótt
sunnudags. Þar hafði maður rot-
ast í átökum. Þegar lögregla kom á
staðinn hafði sá rotaði vaknað og
vildi ekkert gera frekar í málinu,
að því er fram kemur í tilkynningu
frá lögreglu. Árásarmaðurinn var
færður á lögreglustöðina. Þar gerði
hann grein fyrir sér og kvaðst hafa
verið að verja sig. Hann fór síð-
an frjáls ferða sinna að sögn lög-
reglu. Fimm ökumenn voru teknir
úr umferð aðfaranótt sunnudags
vegna ölvunaraksturs.
Handbolta-
kempa safnaði
milljónum
Gunnar Beinteinsson, fyrrver-
andi handboltamaður úr FH og
íslenska landsliðinu, safnaði 3,5
milljónum króna fyrir átakið Á
allra vörum. Þetta gerði Gunn-
ar með því að hlaupa svokallað
Jungfrau-maraþon í svissnesku
Ölpunum á laugardag. Gunn-
ar er starfsmannastjóri Actavis
og komu áheitin frá fyrirtækinu
og starfsmönnum þess. Hlaup-
ið sem um ræðir hefst í 570 metra
hæð yfir sjávarmáli og lýkur í 2.100
metra hæð, en hæst er farið í 2.320
metra. Hækkunin er því um 1700
metrar. Til gamans má geta þess
að hækkunin upp að Steini á Esj-
unni eru um 600 metrar. Það sem
gerir þetta hlaup erfiðara en mörg
önnur, er að langmesta hækkunin
er eftir rúmlega 25 kílómetra.
Stakk mann og
stakk svo af
Karlmaður stakk annan með hnífi
í Austurstræti um miðnæturbil á
laugardagskvöld eftir deilur og lét
sig síðan hverfa í kjölfarið. Lög-
regla reyndi að hafa upp á honum
en það hafði ekki tekist um miðjan
dag á sunnudag, eftir því sem DV
kemst næst.
Að sögn sjónarvotta deildi
árásarmaðurinn við annan mann í
Austurstræti þegar þann þriðja bar
að og reyndi að stilla til friðar. Ekki
vildi betur til en að annar deilenda
dró upp hníf og stakk friðmæl-
andann í lærið. Sá var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild en ekki
fást upplýsingar um hversu alvar-
leg meiðsl hans voru.
Stjórnendur áttu
að vita betur
n Lífeyrissjóðirnir flutu sofandi að feigðarósi í máli Thule Investments
Hjálmar Friðriksson
blaðamaður skrifar hjalmar@dv.is
2 Fréttir 16. september 2013 Mánudagur
Ragnar Þór Ingólfsson Stjórnarmaður
í VR segist ekki hafa mikla trú á því að
nokkuð komi út úr skoðun óháðs aðila á
starfsemi Thule Investments.
Gísli Hjálmtýsson Eigandi
Thule Investments og fram-
kvæmdastjóri fjárfestingar-
sjóðsins Brúar II hefur sagt að
umfjöllun Kastljóss sé tilraun
til að gera starfsemi fyrirtæk-
isins tortryggilega.
Gálgahraun Mótmælendur settu bæði
græna fána og íslenska fánann í hraunið þar
sem vegurinn á að fara yfir. MyND: ÞoRRI
„Það lítur allt út
fyrir það að svör-
in sem ég fékk hafi verið
röng á þessum fundi.