Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 16. september 2013 Mánudagur Flestir eiga Samsung Flestir þeirra Íslendinga sem eiga snjallsíma eiga síma frá Samsung, eða 36,7 prósent. Þetta kemur fram í niðurstöð- um könnunar sem MMR fram- kvæmdi á tímabilinu 30. ágúst til 3. september. Vinsældir snjall- síma meðal Íslendinga hafa auk- ist ár frá ári og er nú svo komið að 66,4 prósent eiga snjallsíma samanborið við 38 prósent í nóvember 2011. Næstvinsælasti snjallsíminn í dag er iPhone, en 32,3 prósent eiga slíkan síma. Þar á eftir koma Nokia og LG. Verðbólga mun minnka Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,4 prósent í september frá fyrri mánuði. Hagstofan mun birta nýjar verðbólgutölur þann 26. september næstkomandi. Gangi spáin eftir hjaðnar tólf mánaða verðbólga úr 4,3 prósentum í 4,0 prósent í mánuðinum. Gerir Greining Íslandsbanka ráð fyrir að verðbólga verði síðan á svip- uðum slóðum næstu mánuði. Að mati bankans munu út- sölulok hafa nokkur áhrif á hækk- un vísitölunnar svo og skólagjöld og margs konar tómstunda- og afþreyingarstarfsemi. Aukin niður greiðsla á tannlækningum barna og lækkun flugfargjalda til útlanda mun hafa áhrif til lækk- unar auk þess sem hækkun elds- neytisverðs undanfarnar vikur hefur að mestu gengið til baka. WOW air til Svíþjóðar WOW air mun hefja flug til Stokk- hólms í Svíþjóð, stærstu borgar Skandinavíu, næsta vor. Í tilkynn- ingu frá WOW air kemur fram að félagið mun fljúga á Arlanda flug- völl sem er stærsti flugvöllur Sví- þjóðar og mikilvægur tengiflug- völlur fyrir Skandinavíumarkað. Þaðan eru flogið til 172 áfanga- staða og er þar mjög góð tenging til Austurlanda nær sem fjær. WOW air mun fljúga þrisvar sinnum í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá og með 1. júní 2014 og mun halda áfram áætlunarflugi allt árið um kring í tengslum við Bandaríkja- flug félagsins. Langt og flókið ferli n Umsóknarferli vegna fiskeldis í sjó er ekki iðnaðinum til framdráttar F erli vegna umsókna um fisk- eldi í sjó hér á landi er of langt og flókið. Þetta kem- ur fram í skýrslu sem Gerð- ur Guðmundsdóttir líffræðingur hefur tekið saman fyrir Landssam- band fiskeldisstöðva (LF), en hún kynnti skýrsluna á fundi með LF á fimmtudag. Mikill uppgangur hefur ver- ið í fiskeldi á Íslandi á undanförn- um árum og hafa fjölmörg fyrirtæki komið inn á markaðinn á með- an þau sem fyrir eru hafa stækk- að við sig og aukið framleiðslu. Að mati Gerðar er nýjum fyrirtækjum í greininni ekki gert auðvelt fyrir; ferlið sé langt og flókið og ekki eins skilvirkt og í þeim nágrannalönd- um okkar sem stunda fiskeldi. Tím- inn sem líður frá umsókn til útgáfu starfsleyfis, eða höfnunar þess, get- ur verið mun lengri hér enda séu ekki skýr tímamörk á ferlinu. Gerður telur nauðsynlegt að breyta þessu langa og flókna ferli en meðal þeirra stofnana sem koma að útgáfu leyfa með einum eða öðr- um hætti eru Umhverfisstofnun, Fiskistofa, Hafrannsóknarstofnun, Landhelgisgæslan, Matvælastofn- un, Siglingastofnun, Skipulags- stofnun, sveitarfélög og Veiðimála- stofnun. Meðal þess sem Gerður leggur til er að fækkað verði þeim tilvikum sem umsagnaraðilar fjalla um hverja umsókn og að ein stofn- un taki við umsóknum. Þetta muni leiða til hraðari afgreiðslu umsókna, minni kostnaðar og minni skörunar til hagsbóta fyrir alla. n einar@dv.is Fiskeldi Ferlið er of langt og flókið að mati Gerðar. Þrátt fyrir það hefur mikill uppgangur verið í fiskeldi í sjó undanfarin ár. Harðræði fátítt á leikskólum n Sextán ár liðin frá „límbandsmálinu“ í Hafnarfirði Á síðastliðnum fimm árum hafa samtals 26 ábendingar borist barnavernd sem beinast gegn starfsmönnum innan leikskóla- og grunn- skólakerfisins, ásamt íþróttafélög- um og áfangaheimilum. Ekki eru til sundurliðaðar upplýsingar um fjölda ábendinga. Árið 2008 bár- ust barnavernd engar tilkynn- ingar en tveimur árum síðar, árið 2010, bárust 15 tilkynningar. Í fyrra bárust barnavernd aðeins tvær ábendingar um að framgöngu starfsmanna væri með einhverjum hætti ábótavant. Framkvæmdastjóri barnavernd- ar Reykjavíkur, Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, segir í samtali við DV að sjaldgæft sé að barnavernd óski eftir lögreglurannsókn í kjöl- far tilkynninga. Málin séu oftast af þeim toga að hægt sé að leysa þau í samvinnu við skólastjórnendur. Börn með málþroska greina oft frá sjálf „Við fáum alltaf af og til tilkynningar til okkar þar sem grunur liggur á að einhver einn ákveðinn nafngreind- ur starfsmaður hafi meitt eða kom- ið illa fram við ákveðið barn. Þá eru það oft börn sem eru komin með þann málþroska að þau greina frá því sjálf heima hjá sér. Þau mál höf- um við unnið í góðu samstarfi við skóla og frístundasvið og viðkom- andi leikskólastjóra. Ef við metum málið þannig þá fer viðkomandi starfsmaður í frí á meðan málið er skoðað og ákvörðun er tekin í fram- haldinu, eftir því hvernig málin þró- ast,“ segir Halldóra Dröfn um það ferli sem ábendingarnar fara í. Það tekur mið af 35. grein laga um barna- vernd. Hún segir að algengara sé að ábendingar berist vegna gruns um kynferðislega misnotkun en vegna gruns um harðræði gegn börnum. Sjaldgæft sé að tilkynnt sé um slíkt. Atvikið sem átti sér stað á leik- skólanum 101 í Reykjavík á dögun- um vakti óhug fólks og umtal. Þá náði starfsmaður í sumarafleys- ingum rassskellingum á ungbarni á myndband, að því er heimild- ir herma. Lögreglurannsókn stend- ur nú yfir á málinu að beiðni barna- verndarnefndar og hefur eigandi leikskólans, Hulda Linda Stefáns- dóttir, lagt skólann niður. Samkvæmt Halldóru Dröfn, eru mál af þessu tagi ekki algeng á Íslandi. „Ef verið er að skoða þetta með tilliti til leik- skólans 101 þá kannast ég ekki við að áður hafi komið til okkar mál sem hefur verið jafn víðtækt og snert jafn marga á síðastliðnum 5 til 10 árum.“ Sigrún Björnsdóttir, upplýsinga- fulltrúi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, og Bragi Guð- brandsson, forstjóri Barnaverndar- stofu, taka, í samtölum við DV, und- ir með Halldóru. Bragi bætir því við að leikskólar á Íslandi séu til fyrir- myndar. „Almennt eru leikskólarn- ir okkar mjög góðar uppeldisstofn- anir. Starfsfólkið mjög hæft og gott og börnunum vel sinnt. Þetta mál er undantekning,“ segir Bragi um málið sem kom upp á leikskólanum 101. n Leikskólanum lokað Eigandi ungbarna- leikskólans, Hulda Linda Stefánsdóttir, lagði leikskólann 101 niður á dögunum vegna alvarlegra ásakana um harðræði gegn ung- börnum sem þar dvöldu. Mynd Kristinn Magnússon Harðræði er fátítt á íslenskum leikskólum Halldóra Dröfn Gunnars- dóttir segir í samtali við DV að lögreglurannsókn í kjöl- far tilkynninga sé sjaldgæf. Mynd sigtryggUr ari Svala Magnea Georgsdóttir blaðamaður skrifar svala@dv.is Óhugnaður fyrir sextán árum Límdi fyrir munn barns Sextán ár eru nú liðin frá límbandsmál- inu svokallaða þar sem starfsmaður varð uppvís að því að líma brúnt byggingarlímband yfir munninn á tveggja ára dreng vegna „ærslagangs og hávaða“ að sögn starfsmannsins. DV fjallaði um málið á sínum tíma. Við nánari rannsókn kom í ljós að starfsmaðurinn, ófaglærð kona á fimmtugsaldri, hafði beitt aðferðinni áður á fleiri börn og að samstarfsmenn hennar, einnig tvær ófaglærðar konur á fimmtugsaldri, höfðu horft upp á athæfið án þess að grípa inn í. Starfsmönnunum þremur var öllum sagt upp í kjölfarið og yfirvöld Hafnarfjarðarbæjar tóku við faglegri yfirstjórn leikskólans um tíma. Í ljós kom að mörg börn höfðu lent í sömu refsiaðgerð af hálfu starfsmannsins. „Almennt eru leik­ skólarnir okk­ ar mjög góðar uppeldis­ stofnanir. Starfsfólkið mjög hæft og gott og börnunum vel sinnt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.