Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Page 12
Sjálfsvígum fjölgar í Grikklandi
n Ástæðan rakin til aukinnar fátæktar og atvinnuleysis í kjölfar efnahagshrunsins
S
jálfsvígum í Grikklandi fjölg-
aði um 45 prósent á fyrstu
fjórum árunum eftir efna-
hagshrunið. Þetta kemur fram
í tölum heilsuverndarsamtakanna
Klimaka í Grikklandi og AP-frétta-
veitan fjallar um. Að sögn samtak-
anna voru sjálfsvíg í Grikklandi árið
2007 328 talsins en árið 2011 voru
þau 477. Hækkuðu þau lítillega frá
ári til árs.
Ekki eru til opinberar tölur um
sjálfsvíg fyrir árið 2012 og það sem
af er þessu ári, en að sögn forsvars-
manna samtakanna eru vís-
bendingar um að þeim hafi fjölgað
árið 2012.
Þrátt fyrir þessa aukningu er
tíðni sjálfsvíga einna lægst í Grikk-
landi af öllum Evrópuríkjum.
Ástæða fjölgunar sjálfsvíga, sam-
kvæmt Klimaka, er rakin til aukinn-
ar fátæktar og aukins atvinnuleys-
is, en Grikkland hefur komið einna
verst út úr efnahagshruninu af ríkj-
um Evrópu. Aris Violatzis, yfirsál-
fræðingur hjá Klimaka, segir að sam-
tökin hafi safnað upplýsingum frá
fjölskyldum þeirra sem framið hafa
sjálfsvíg, kirkjum, útfararstofnun-
um og sjúkrahúsum. Þær tölur gefi
til kynna að sjálfsvígum hafi haldið
áfram að fjölga.
Fulltrúar Klimaka, sem með-
al annars tekur á móti símtölum frá
fólki í sjálfsvígshugleiðingum, segja
að fjórum sinnum fleiri karlar svipti
sig lífi en konur. Ef aldursskipting er
skoðuð sést að karlmenn á fimm-
tugsaldri eru í hvað mestri hættu og
konur á fertugsaldri. n
einar@dv.is
Strauss-Kahn
fékk vinnu
Dominique Strauss-Kahn, fyrr-
verandi forstjóri Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, hefur samþykkt
að gerast sérstakur efnahagsráð-
gjafi ríkisstjórnar Serbíu. Strauss-
Kahn hætti sem forstjóri sjóðs-
ins árið 2011 í kjölfar ásakana
um að hann hafi beitt herbergis-
þernu kynferðisofbeldi á hóteli í
New York. Málinu lauk með sátt
en Strauss-Kahn hefur nú ver-
ið ákærður vegna annars máls,
en hann er grunaður um að hafa
tengst vændishring í frönsku
borginni Lille.
Aðstoðarforsætisráðherra
Serbíu, Aleksandar Vucic, seg-
ir að reynsla Strauss-Kahn úr
fjármálalífinu hafi legið að baki
ákvörðuninni um að ráða hann.
Vill opna
klaustrin fyrir
flóttafólk
Kaþólska kirkjan á ekki að
breyta tómum klaustrum í hót-
el til þess að græða á þeim. Þetta
sagði Francis páfi í síðustu viku,
að því er fram kemur í frétt-
um ABC News. „Tómu klaustrin
eru ekki eign okkar, þau eru fyr-
ir hold krists: flóttafólk.“ Páfinn
sagði þetta í tilefni heimsókn-
ar sinnar í flóttamannabúðirnar
Centro Astalli í miðborg Rómar á
þriðjudaginn. Páfinn hitti um 500
manns í heimsókn sinni sem stóð
í tæpa tvo tíma.
Páfinn hvatti presta og aðra
hátt setta innan kirkjunnar til þess
að nota klaustrin til þess að hýsa
flóttafólk sem flúið hefur aðstæð-
ur í heimalandi sínu. Ferðamenn
á Ítalíu hafa frá því fyrir árið 2000
getað borgað fyrir gistingu í ein-
hverjum af þeim mörgu klaustrum
sem þar er að finna. Þetta er ekki
góð þróun að mati páfans.
Francis páfi tók við embætti
páfa í upphafi árs og hefur þegar
vakið athygli fyrir viðhorf sem
þykja nýlunda hjá íhaldssamri
stofnun eins og Páfagarði. Francis
sem hét upphaflega Jorge Mario
Bergoglio og er frá Argentínu
var spurður út í afstöðu sína til
samkynhneigðar nýlega. Svar
hans var einfalt: „Hver er ég að
dæma þau?“ Fjöldi múslima var í
flóttamannabúðunum sem páfinn
heimsótti. Í samtali við þá sagði
hann algjöran óþarfi að óttast
ólíkar lífsskoðanir.
Mótmælt Grikkir hafa mótmælt ástandinu í landinu undanfarin misseri. Tölur sýna að
sjálfsvígum hefur fjölgað í kjölfar gríska efnahagshrunsins.
Uppreisnarmenn
berjast sín á milli
n Veraldleg öfl láta í minni pokann fyrir herskáum íslamistum í Sýrlandi
B
orgarastríðið í Sýrlandi sem
hefur nú staðið yfir í nærri
tvö og hálft ár fer stigvax-
andi. Í nýlegum fréttum hef-
ur komið fram að þriðjungur
þjóðarinnar er á flótta frá heimilum
sínum og er talið að mannfall sé á að
giska hundrað þúsund manns. Ekk-
ert lát virðist vera á stríðinu því upp-
reisnarfylkingarnar eru farnar að
berjast sín á milli. Þó einræðisherr-
anum Assad væri komið frá virðast
endalok stríðsins vera fjarri augsýn.
Hinir veraldlegu og andlegu
láta sverfa til stáls
Fréttaritari BBC í Sýrlandi ræddi ný-
verið við Abu Somer, sem var áhrifa-
mikill meðlimur í Saladín (Salah al-
Din) fylkingunni. Til að byrja með
var sú fylking með öllu veraldleg
og barðist hún fyrst og fremst fyr-
ir fráhvarfi harðstjórans Bashar al-
Assad og frjálsum kosningum. Abu
Somer segir að áherslubreyting í
Saladín-fylkingunni hafi fyrst kom-
ið fram fyrir tæpu ári síðan. Þá fór
að bera meira á öfgatrú og tilheyr-
andi þröngsýni. Í samtali við BBC
segir Abu Somer að í kjölfar yfir-
töku harðlínu íslamista á fylking-
unni hafi margoft verið reynt að taka
hann af lífi til að minnka áhrif hans í
landinu. Í dag stýrir hann hópi upp-
reisnarmanna sem hafa lausleg
tengsl við Saladín-fylkinguna. Hann
segir að hann hafi komið skilaboð-
um til íslam istanna og beðið þá um
að hætta morðtilraununum þar sem
þeir ættu jú sameiginlegan óvin. Þau
skilaboð koma ávallt til baka að þeir
séu saklausir og að það hafi verið
flugumenn Assad sem hafi reynt að
launmyrða hann.
Abu Somer segir að þessi saga sé
lýsandi fyrir ástand borgarastríðsins
í dag, það er að segja að innbyrðis
deilur uppreisnarfylkinga séu hafnar
áður en búið sé að koma Assad frá.
Í raun sé stríðið háð á milli margra
fylkinga. Flestir höfðu gert ráð fyr-
ir því að slík staða gæti komið upp
eins og mýmörg dæmi eru um, svo
sem átök Bræðralags múslíma og
veraldlegs hers í Egyptalandi bera
vitni um, en færri töldu að innan-
flokkserjur myndu hefjast áður en
stríðið væri unnið.
Tyfta við minnsta tilefni
Í baráttunni um hug og hjörtu Sýr-
lendinga virðast íslamistarnir hafa
sigurinn. Fréttaritari BBC lýsir
því svo að þar sem eitt sinn blakti
græni fáni veraldlegu uppreisnar-
mannanna blakti nú hinn svarthvíti
fáni íslamista. Gott dæmi um hvað
koma skal ef íslamistarnir hafa sigur
af hólmi er bærinn Saraqeb, en þar
ráða þeir lögum og lofum. Al-Nusra-
fylkingin stýrir bænum, en þeir eru
styrktir af hryðjuverkasamtökun-
um al-Qaeda. Komið hefur verið á
fót sharía-lögum í bænum með til-
heyrandi harðræði. Fréttaritari BBC
varð vitni að því er brjálaður múgur
tyfti mann sem var sakaður um að
leyfa dóttur sinni að giftast áður en
hún hafði lokið einangrunartímabili
sínu. Ákveðin undiralda virðist þó
vera í bænum því víðs vegar mátti sjá
veggjakrot svo sem „Burt með shar-
ía-lög í Saraqeb“. Í bænum er bæði
bannað að funda og mótmæla.
Vilja kalífadæmi
Augljóst er að framtíðarsýn þessara
andstæðu fylkinga stangast veru-
lega á. Hinir veraldlegu berjast fyrir
þingræðislegu lýðræði með svipuðu
sniði og tíðkast á Vesturlöndum. Sýn
íslamistanna á stjórnarfar landsins
eftir sigur gæti ekki verið ólíkari að
formi en vestrænt lýðræði. Þeir sjá
fyrir sér að stofna kalífadæmi, sem í
stuttu máli má lýsa sem samblöndun
konungsríkis og klerkaveldis. Þeir sjá
fyrir sér að útvíkka landamæri Sýr-
lands, sér í lagi á kostnað þess lands
sem þeir hata mest, Ísraels. Einn
viðmælenda BBC sagði að þó ríkis-
stjórn Assad myndi falla væri stríð-
inu ekki lokið fyrr en frelsun Palest-
ínu væri staðreynd. n
Hjálmar Friðriksson
blaðamaður skrifar hjalmar@dv.is
Hermaður Frjálsa hersins
Ef núverandi staða heldur áfram
er ólíklegt að Sýrland verði
lýðræðisríki í náinni framtíð.
12 Fréttir 16. september 2013 Mánudagur