Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Síða 13
Fréttir 13Mánudagur 16. september 2013 Stokkhólmsheilkennið á fjörutíu ára afmæli É g fæ kvíðakast í hvert skipti sem ég hugsa um þetta.“ Þannig lýsir eitt fórnarlamb­ anna líðan sinni eftir að hafa verið gísl í bankahvelfingu í hátt í viku í Stokkhólmi. Ráninu og dramatíkinni sem fylgdi því var sjónvarpað um alla Svíþjóð og er­ lendir fjölmiðlar streymdu til Sví­ þjóðar. Um þessar mundir eru 40 ár liðin frá þessu fræga bankaráni í Stokkhólmi, sem gat af sér það fyr­ irbæri sem kallað hefur verið Stokk­ hólmsheilkennið. Með því er átt við að fórnarlömb fái samúð með ofbeldismanni eða ­mönnum, sem í þessu tilfelli voru ræningjar eða gíslatökumenn. Þetta getur gengið svo langt að fórnar­ lömbin hneigjast til fylgis við mál­ stað gíslatökumanna sinna. „Partíið er byrjað“ ,Það var þann 23. ágúst árið 1973 sem maður að nafni Janne Olofs­ son réðst inn í Kreditbanken í mið­ borg Stokkhólms, vopnaður vél­ byssu og sprengiefni og tók þar fjóra starfsmenn í gíslingu; þrjár konur og einn karlmann. Þegar ránið hófst gargaði hann á ensku: „The party has started,“ eða „partíið er byrjað!“ Síðar sagði Janne í fjölmiðlum um ránið að hann hefði „… verið eins og rotta sem skreið inn í risavaxna rottugildru.“ Þegar hann var kominn inn, var nefnilega ekki eins auðvelt að komast út! Krafðist að fá vin sinn til sín Janne var góðkunningi eins fræg­ asta glæpamanns Svíþjóðar, Clark Olofsson, sem á þessum tímapunkti sat í fangelsi í Norrköping. Krafa Janne í upphafi ránsins var að Clark yrði látinn laus og færður til hans. Einnig krafðist hann þriggja millj­ óna sænskra króna í reiðufé og að fá flóttabíl til umráða. Sænska lög­ reglan náði í Clark eftir ákvörðun dómsmálaráðherra landsins og þáverandi forsætisráðherra, Olof Palme (sem var myrtur árið 1986). Farið var með Clark til Stokkhólms og honum sleppt inn í bankann. Í heimildamynd frá 2003, þegar 30 ár voru liðin frá ráninu, kom fram að á leiðinni hafi Olofsson sagt við lögreglumennina sem fylgdu hon­ um að Olsson væri „stórhættulegur dópisti.“ Þeir hafi því boðið Olofs­ son fleiri helgarleyfi og jafnvel náð­ un, ef hann hjálpaði þeim að ráða niðurlögum hans. Þegar öllu var lokið neitaði lögreglan þessu. Gas! Gíslatakan stóð yfir í sex daga og var í beinni útsendingu í fjölmiðlum nánast óslitið. Fjöldi fólks tók sér frí úr vinnu til að fylgjast með beinum útsendingum af gíslunum í banka­ hvelfingunni. Aragrúi lögreglu­ manna var á staðnum, bæði venju­ legra og sérsveitarmanna. Einnig var fjöldi lögreglumanna á svæðinu sem ekki voru að vinna og töluðu þeir gjarnan við fjölmiðla, enda allt fullt af fjölmiðlafólki og freistandi að kom­ ast í kastljós þeirra. Þetta leiddi með­ al annars til þess að ýmsar „skrök­ sögur“ fóru á kreik. Samkvæmt einni þeirra var m.a. að um Araba að ræða. Miklar upplýsingar um aðgerðir lög­ reglunnar birtust í fjölmiðlum og gátu Janne og Clark fylgst með öllu því sem lögreglan gerði. Taugarnar þandar Mikil taugaspenna myndaðist á staðnum og allar samningaumleit­ anir fóru út um þúfur. Að endingu brá lögreglan á það ráð að bora gat í gólf yfir hvelfingunni og sprauta inn gasi. Meðan á því gekk hótaði Janne Olsson að skjóta gíslana, en lét ekki verða af því. Einnig hótuðu þeir félagarnir að hengja gíslana í snörum. En gerðu það sem betur fer ekki. Gasið hafði tilætluð áhrif, gíslatökumennirnir gáfust upp og gíslarnir voru frelsaðir. Í dóms­ máli sem fylgdi í kjölfarið hlaut Janne 10 ára dóm fyrir ránið. Clark Olofsson var einnig dæmdur, en sá dómur var síðar felldur niður, Clark sagðist einfaldlega hafa verið í bankahvelfingunni til að „vernda“ gíslana. Eftir þetta var Clark hins vegar margsinnis dæmdur fyrir aðra glæpi. Stokkhólmsheilkennið fætt Það sem hins vegar stendur eftir er sú staðreynd að á meðan ráninu stóð fengu gíslarnir samúð með ofbeldismönnunum og þess vegna hefur þetta verið kallað Stokk­ hólmsheilkennið. Ýmis konar sögur hafa verið á reiki um það sem gerðist í hvelf­ ingunni á þessum dramatísku dög­ um, meðal annars að Janne Olsson hafi haft samfarir við eina konuna. Það er hins vegar óstaðfest. Meðan á ráninu stóð var tekið upp 45 mínútna langt samtal á milli forsætisráðherra Svíþjóðar, Olof Palme, og starfsmanns bank­ ans, Kristin Enmark. Af þessu sam­ tali hurfu 20 mínútur sporlaust og veit því enginn hvað þessi hluti samtalsins innihélt. Hins vegar heyrist vel þegar Enmark, hellir sér yfir Olof Palme og skammar hann fyrir að ganga ekki að kröf­ um ræningjanna: „Láttu þá fá það sem þeir biðja um, ég treysti þeim,“ sagði Enmark við Palme. Ræningj­ arnir höfðu meðal annars beðið um fleiri byssur. Þetta sýnir ágæt­ lega að hún hafði tekið stöðu með gíslatökumönnunum. Einnig frétt­ ist það síðar að á meðan Janne og Clark hvíldust, skiptust gíslarnir á um að vera á vakt. Peningar hurfu Það var nóg af peningum í Kredit­ banken, sem var í hjarta viðskipta­ lífs Svíþjóðar. Janne hafði krafist þriggja milljóna króna, eins og fram hefur komið. Þá kröfu fékk hann hins vegar ekki í gegn, þar sem bæði hann og Clark voru handteknir eftir ránið. Hins vegar hurfu um 150.000 sænskar krónur samkvæmt grein sem birtist um ránið í dagblaðinu Dagens Nyheter. „Ég stal öllu sem ég komst yfir,“ sagði Olofsson í sam­ tali við DN. Þetta er staðfest af rann­ sóknarlögreglumanni sem vann við málið. Ein af þeim sögusögnum sem gengu um ránið var meðal annars sú að Clark hefði smyglað út peningum með því að stinga seðl­ um upp í endaþarminn á sér. Í áð­ urnefndri heimildamynd vildi hann ekkert segja um það, enda kannski um nokkuð viðkvæmt mál að ræða. En ef til vill nokkuð dæmigert fyrir jafn bíræfinn glæpamann og Clark Olofsson. n Glæpamaðurinn Clark Olofsson Fékk 14 ára dóm 2009 Brotaferill Clark Olofsson er langur og fjölbreyttur. Hann er fæddur árið 1947 og það voru áfengisvandamál á heim- ilinu. Þegar við sextán ára aldur var hann kominn í vist á unglingaheimili fyrir ýmsa smáglæpi. Í ágúst árið 1965 braust hann ásamt tveimur félögum inn vinnubústað sænska forsætisráð- herrans, Tage Erlander, við staðinn Harpsund í Mið-Svíþjóð. Í kjölfarið á því réðst hann á tvo lögreglumenn og hlaut fyrir það sinn fyrsta dóm, þriggja ára fangelsi. Eftir atburðina í Stokk- hólmi árið 1973 framdi hann vopnuð bankarán í Kaupmannahöfn og síðar í Gautaborg. Lærði til blaðamanns Í fleiri skipti hefur honum tekist að flýja úr fangelsum. Brot hans eru allt frá líkamsárásum og morðtilræðum, til rána, ölvunaraksturs og eiturlyfja- smygls. En hann hefur ekki bara stundað glæpi, því innan múranna tókst honum einnig að verða sér úti um próf sem blaðamaður! Hins vegar virðist hann ekki geta hætt að fremja glæpi, því árið 2009 var hann dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl. Situr hann núna í Kumla-fangelsinu í Svíþjóð, sem er eitt helsta öryggisfangelsi landsins. n n Frægasta rán Svíþjóðar n Sex dramatískir og spennuþrungnir dagar n Vakti heimsathygli Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Janne handtekinn Partíið búið. Sænskir sérsveitarmenn með gasgrímur handtaka Janne Olsson. Ránið og gíslatakan í Kreditbanken í Stókkhólmi vöktu heimsathygli. Alræmdur Clark Olofsson er einn alræmdasti glæpamaður Svíþjóðar, með morðtilraunir, rán og fjölda annarra afbrota á bakinu. Hann var dæmdur í 14 ára fangelsi árið 2009. Gíslinn Patty Hearst Gerðist ræningi en var náðuð af Bill Clinton Eftir ránið í Stokkhólmi eru til dæmi um það þegar fórnarlömb fá samúð með afbrotamönn- um. Eitt hið þekktasta er ránið á Patty Hearst, sem var dóttir blaðakóngsins William Hearst. Það var hópur vinstrisinnaðra öfgamanna sem rændi henni og kærasta hennar í febrúar árið 1974 á heimili hennar í Kaliforníu. Málið dróst fram til vors en í byrjun apríl tilkynnti Patty að hún hefði gengið til liðs við hreyfinguna og tekið sér nafnið „Tanía.“ Um miðjan apríl tók hún síðan þátt í bankaráni, en var handtekin. Hún viðurkenndi að hún hafi verið minotuð kynferðislega og heilaþvegin í prísundinni. Bill Clinton náðaði hana árið 2001 og var það síðasta embættisverk hans. n Kristin Enmark Hellti sér yfir Palme. Í löngu samtali meðan á ráninu stóð skamm- aði starfsmaður bankans, Kristin Enmark, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, Olof Palme. Hún vildi að hann gengi að kröfum ræningjanna. „Láttu þá fá það sem þeir biðja um, ég treysti þeim. Hótað lífláti Þegar lögreglan hafði borað gat á bankahvelfinguna lét hún myndavél síga niður og þá náðist þessi einstaka mynd af Clark Olofsson og gíslunum. Olofsson hafði útbúið snörur og hótaði að hengja gíslana ef gasi yrði sleppt niður. Það gerðist sem betur fer ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.