Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Síða 16
16 Umræða 16. september 2013 Mánudagur
Lars Guðmundsson Nú skilst
mér að þú sért mikill
hestamaður. Áttu marga hesta
og er einhver í sérstöku uppáhaldi?
Hefurðu séð Hross í oss?
Kári Stefánsson Ég á um það bil
70 hross, nokkur efnileg og svo á
ég Stakk frá Halldórsstöðum sem
er göfugasti alhliða hestur í sögu
Íslands.
Birgir Olgeirsson Hvor er betri
körfuboltaleikmaður að þínu
mati? Michael Jordan eða
LeBron James?
Kári Stefánsson
Michael Jordan er besti körfubolta
maður allra tíma og LJ kemst ekki með
tærnar þar sem hann var með hælana.
Sigurjón Hallgrímsson
Myndir þú loka RÚV eða alla
vega Rás 1 og Rás 2 ef það væri
það sem þyrfti til að hafa almennilegt
heilbrigðiskerfi?
Kári Stefánsson Ég myndi þrengja
að flestu í íslensku samfélagi til
þess að við gætum hlúð vel að
sjúkum og særðum og RÚV væri
ekki undanskilið. Mér þykir þó mjög
vænt um RÚV vegna þess að ég
ólst upp við að þvælast innan um
fréttamenn sem unnu þar.
Gunnar Jónsson Hver er
munurinn á starfsemi RNA og
DNA í frumum heilkjörnunga?
Kári Stefánsson RNA verður til úr
upplýsingum í DNA og síðan prótein
úr upplýsingum sem liggja í RNA
og síðan sprettur allt líf af starfi
eggjahvítuefnanna.
Árni Sigurðsson Er Ísland góð
staðsetning fyrir sprotafyrir
tæki?
Kári Stefánsson Nei.
Lommi Lomm Ertu uggandi
yfir stöðu ljóðsins?
Kári Stefánsson Nei,
ljóðið nýtur meiri vinsælda í dag en
nokkru sinni fyrr.
Fundarstjóri Hvers konar
viðbrögð hefur þú fengið við
greininni sem þú skrifaðir í
Morgunblaðið í vikubyrjun?
Kári Stefánsson Þeir sem hafa
tjáð sig um hana hafa hrósað mér
en mér finnst líklegt að þeir sem
eru óánægðir með hana séu svo
kurteisir að þeir hafi ákveðið að
hlífa mér.
Atli Bjarkason Ég hef heyrt
margar góðar körfuboltasögur
af þér. Nú veit ég ekki hversu
sannar þær eru en samkvæmt þeim
ertu mjög ástríðufullur körfuboltamað
ur sem átt til að tudda meira en góðu
hófu gegnir. Er körfubolti ekki leikur án
snertingar?
Kári Stefánsson Ég er svo
hófsamur maður og blíður að
mér finnst líklegt að sögurnar
séu lognar. Snerting er hins vegar
mikilvægur þáttur í leiknum.
Bergur Thor Er tæknilega
hægt núna að klóna mig?
Ísland þarf fleiri mig :)
Kári Stefánsson Mér finnst líklegt
að það sé hægt að klóna þig en
ólíklegt að Ísland þurfi fleiri þig.
Jón Reynisson Væri að þínu
mati hægt að nota
upplýsingatækni til að spara
meira í heilbrigðisgeiranum, til dæmis
með því að samkeyra upplýsingar í
auknum mæli og bjóða upp á aukna
þjónustu netlækna og vefforrita í
greiningu vægari einkenna?
Kári Stefánsson Án nokkurs vafa
væri hægt að gera heilbrigðiskerfið
skilvirkara með því að nýta sér
gagnasöfn og datamining.
Jón Magnússon Varstu
ánægður með tónleika
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
Hörpunni í gær? Hvaða verk þótti þér
standa upp úr í flutningi sveitarinnar?
Kári Stefánsson Ég var mjög
ánægður, sérstaklega með auka
lagið víóluleikarans.
Lars Guðmundsson Hvað
hefurðu farið á marga tónleika
í Hörpu?
Kári Stefánsson Ég hef ekki á
þeim tölu en þeir eru fleiri en tíu en
færri en þrjátíu.
Jón Magnússon Hver er
uppáhalds bíómyndin þín?
Kári Stefánsson Ég veit
það ekki.
Fundarstjóri Þessi barst í
tölvupósti: Fyrir hvaða
núlifandi Íslendingi berð þú
mesta virðingu?
Kári Stefánsson Ég held að það sé
fyrir Þorsteini frá Hamri.
Steingrimur Másson Hvað
þurfa stjórnvöld að gera til að
infrastrúktúrinn í þessu
samfélagi falli ekki saman innan frá?
Kári Stefánsson Ég er ekki viss
um að það sé í höndum stjórnvalda
eins og stendur. Ég held að lífeyris
sjóðirnir hafi framtíð samfélagsins í
höndum sér.
Fundarstjóri Einar Sigurðsson
sendi þessa: Hefur aldrei
hvarflað að þér að hella þér út í
pólitík?
Kári Stefánsson Nei. Ég er ein
faldlega gamall vísindamaður sem
kann ekki annan saum.
Jón Magnússon Ertu
sammála Grími Gíslasyni,
miðstjórnarmanni í
Sjálfstæðisflokknum, sem sagði nýlega
að það væri lítið við menningu að gera
þegar allir væru dauðir? Finnst þér
réttlætanlegt að stilla menningarlífinu
svona upp gegn heilbrigðiskerfinu?
Kári Stefánsson Ég er sammála
Grími að það sé erfitt að njóta
menningar í gegnum miðil. Ég er
hins vegar viss um að maðurinn lifir
ekki á brauði einu saman.
Fundarstjóri Ásta
Magnúsdóttir: Hvernig er hægt
að koma í veg fyrir atgervis
flótta heilbrigðisstarfsmanna?
Kári Stefánsson Með því að gera
þeim kleift að hlúa að okkur hinum
við nútíma aðstæður. Íslenskir
heilbrigðisstarfsmenn eru þeir
bestu við góðar aðstæður, ég get
borið vitni um það.
Bergur Thor Ef þú mættir
klóna einn núlifandi íslending,
hver yrði fyrir valinu?
Kári Stefánsson Ari, sonur minn.
Sigurjón Steinsson Hvaða
ráðleggingar hefur þú fyrir
aðila sem er að feta sín fyrstu
spor með nýsköpunarfyrirtæki?
Kári Stefánsson Að gera sér grein
fyrir að nýsköpun er frekar listgrein
en iðnaður.
Fundarstjóri Bjarki
Magnússon sendi þessa:
Hefurðu lesið Lovestar eftir
Andra Snæ? Ef svo er, hvernig fannst
þér vísindamaðurinn þar?
Kári Stefánsson Andri Snær er
í miklu uppáhaldi hjá mér sem
rithöfundur og baráttumaður en
ég man ekki nægilega mikið eftir
Lovestar til þess að geta tjáð mig
um hana. Andri Snær minnir mig
svolítið á Jonathan Letham, sem er
bandarískur rithöfundur.
Hafsteinn Árnason Hver
telur þú vera mestu mistökin,
sem stjórnvöld hafa gert á
síðustu tíu árum?
Kári Stefánsson Að hætta að
hlusta á fólkið í landinu og auka
ekki meira á gegnsæi í samfé
laginu.
Bergur Thor Þegar Ari sonur
þinn var lítill, spurði hann þig
af hverju sykurinn væri sætur
og hvar sólin væri um nætur?
Kári Stefánsson Nei, en hann
spurði mig hvers vegna ég væri
ekki meira heima. Ég er og var
vinnufíkill og sinnti ekki börnum
mínum sem skyldi, enda óþverri að
eðlisfari.
Helgi Borg Eiga þeir sem
spilla eigin heilsu með óhollu
líferni að gjalda þess með
hærri tryggingagjöldum og hærri
gjöldum í heilbrigðiskerfinu?
Kári Stefánsson Við fyrstu sýn
lítur það skynsamlega út en því
miður þá spilla menn oftast
heilsu sinni af því þeir fæðast með
tilhneigingu til þess að gera það
og það er ósanngjarnt að refsa
mönnum fyrir að velja sér slæma
foreldra.
Fundarstjóri Baldur Már
Helgason: Stjórnendur
Landspítalans telja að
núverandi áform um nýjan spítala séu
bráðnauðsynleg framkvæmd til að
bæta starfsskilyrði starfsfólks, ná
fram rekstrarhagræði og bæta öryggi
sjúklinga. Ert þú sammála þessu mati
að fjárfesting í steypu sé besta
fjárfestingin í íslensku heilbrigðiskerfi?
Kári Stefánsson Nei.
Bergur Thor Finnst þér Pink
Floyd góð hljómsveit?
Kári Stefánsson
Yndisleg.
Jón Reynisson Finnst þér fólk
vera raunverulega frjálst?
Eða: Að hversu miklu leyti, á
bilinu 0–100%, telurðu að valfrelsi
fólks sé óháð fyrirfram ráðinni virkni
líkamans sem ræðst af genum?
Kári Stefánsson Heilinn er bara
líffæri og starfsemi hans ræðst að
mestu af erfðum eins og starfsemi
annarra líffæra. Val okkar er eitt af
störfum heilans. Val okkar er alltaf
að miklu leyti af erfðum sem ráðast
af erfðamengi foreldra, slembivali
litninga i kynfrumur og svo endur
röðun.
Margrét Guðjónsdóttir Telur
þú að himintunglin og
hringrásir himintunglana hafi
einhver áhrif á DNA/RNA?
Kári Stefánsson Nei.
Eyþór Jóvinsson Hver telur þú
að meðallífaldur Íslendinga
verði eftir 100 ár eða jafnvel
eftir 500 ár?
Kári Stefánsson Með svolítilli
heppni gæti hann orðið 100 ár.
Jón Jakobsson Finnst þér
aðstæður og umhverfi
nýsköpunarfyrirtækja hér á
landi sambærilegt við það sem gerist á
hinum Norðurlöndunum? Ef ekki, hvað
fyndist þér að þyrfti að gera til að svo
mætti verða?
Kári Stefánsson Ég veit ekki
nægilega mikið um umhverfið á
Norðurlöndum til þess að geta tjáð
mig um þetta en við komum alltaf
til með að líða vegna smæðarinnar.
Róbert Pétursson Nú hef ég
ekki séð heimildamynd um
Decode, en í „trailer“ kemur
fram að þú hafir ekki viljað veita viðtal.
Á þjóðin ekki rétt á að heyra þig svara
öllum spurningum samviskusamlega?
Berð þú ekki beinlínis ábyrgð á því að
sannleikurinn komi fram ?
Kári Stefánsson Ég ræð því við
hvern ég tala og það er mikilvægt
fyrir mig að hafa skoðun á því við
hvern ég tala. Hvort sem það ert
þú eða einhver annar. Ég hef oft
neitað að tala við blaðamenn og
kvikmyndagerðarmenn en miklu
oftar talað við þá.
Páll Pálsson Mér skilst að þú
hafir verið hársbreidd frá því
að verða sjómaður á
unglingsárunum þínum svo ég reikna
með þú hafir einhverjar taugar til
sjómanna. Finnst þér að kvótaeigendur
eigi að koma til móts við ríkið með að
borga leigutekjur af okkar sameigin
legu auðlind ?
Kári Stefánsson Mér finnst mik
ilvægt að atvinnugreininni gangi
vel og að hún skili til samfélagsins
í samræmi við afkomu hennar í
hvaða formi sem það er gert.
Helgi Borg Væri hægt að
bæta forvarnir í heilbrigðis
kerfinu með því að skoða
genaveikleika einstaklinga og beina
forvörnum að markhópum með
veikleika? Ef svo, ætti að gera það að
þínu mati?
Kári Stefánsson Svarið er 120
desíbela já við báðum spurningun
um.
Kristinn Örn Jóhannesson
Var ekki frekar súrt að miðlægi
gagnagrunnurinn á heilbrigðis
sviði komst aldrei upp og hefði hann
ekki geta verið lykill að skilvirkara og
hagkvæmara heilbrigðiskerfi til lengri
tíma litið?
Kári Stefánsson Ekki nokkur vafi
í mínum huga að hann hefði gert
heilbrigðiskerfið skilvirkara. Það
er verið að setja saman svona
gagnagrunna víða um heim.
Árni Sigurðsson Er Aubrey de
Grey rugludallur eða snillingur?
Kári Stefánsson Hann er
heldur leiðinlegur rugludallur.
Birgir Olgeirsson Hversu lengi
heldurðu að mannkyninu muni
halda áfram að fjölga? Munu
sjúkdómar eða farsóttir granda fólki
þegar þéttleikinn verður of mikill. Ertu
bjartsýnn á framtíð mannkynsins?
Kári Stefánsson Þetta er of stórt
spurt fyrir lítinn mann eins og mig.
Páll Pálsson Hefur þú trú á
innan fárra ára verði til
„Google doctor“ sem getur
greint upplýsingar um heilsufar fólks
innan skynsamlegra skekkjumarka ?
Kári Stefánsson Já.
Einar Sigurðsson Hverju ertu
stoltastur af á ferli þínum sem
vísindamaður?
Kári Stefánsson Að leiða öfl
ugasta teymi í mannerfðafræði í
heiminum í dag, hér uppi á Íslandi.
Ísak Jónsson Hvað heldurðu
að það sé langt í að við munum
sjá fyrstu klónuðu manneskj
una?
Kári Stefánsson Ég er ekki viss um
að það gerist í bráð en ég er svolítið
smeykur við að lönd eins og Kína og
Rússland hvetji til þannig vitleysu
í tilraun sinni til þess að sannfæra
sig og aðra um að þau kunni til
verka í vísindum.
Helgi Borg Hvernig á að bæta
heilbrigðiskerfið okkar í fimm
skrefum?
Kári Stefánsson Eins og stendur
er kerfið svelt svo við verðum að
fóðra það áður en við leggjum í
breytingar.
Hjörtur Sveinsson Hvernig
stendur á því að DNA
rannsóknir vegna sifjaglæpa
og annarra þess háttar mála séu
framkvæmdar erlendis en ekki á Íslandi
þegar hér er staðsett mjög frambæri
legt fyrirtæki á sviði erfðafræðirann
sókna?
Kári Stefánsson Við höfum boðist
til þess að sinna þessu fyrir lítið
sem ekkert en stjórnvöld hafa til
þessa kosið að vinna frekar með
amatörum í Skandinavíu.
Birgir Olgeirsson Er ekki erfitt
að vera rómantískur ef val
okkar er ræðst að miklu leyti af
erfðum?
Kári Stefánsson Nei, rómantíkin
erfist eins og aðrar tilfinningar.
Páll Pálsson Tefldir þú
einhvern tíma við Bobby
Fischer. Ef svo var, hver hafði
vinninginn?
Kári Stefánsson Nei, ég tefldi
aldrei við Bobby en það er ekki til
raun sem þurfti að gera. Hann hefði
mátað mig áður en við hefðum
leikið fyrsta leik.
Hjörtur Sveinsson En hefur
ykkur ekki dottið í hug að
bjóða upp á erfðapróf fyrir
almenning eins og tíðkast til dæmis í
Bandaríkjunum, Bretlandi og reyndar
flestum öðrum ríkjum?
Kári Stefánsson Við vorum að
vinna í því áður en Amgen keypti
okkur. Það er verið að búa til nýtt
fyrirtæki sem mun gera það.
Ísak Jónsson Ef þú gætir
breytt einum hlut sem þú
hefur gert á lífsleiðinni, hvað
væri það?
Kári Stefánsson Ég myndi eyða
meiri tíma með börnunum mínum.
Áslaug Sigurbjörnsdóttir
Telur þú að það verði fljótlega
leyft að láta þá einstaklinga
vita sem hafa í sér stökkbreytt
krabbameinsgen sem auka líkur á
krabbameini? Eða ætti að leyfa fólki að
kanna það sjálft ef það vill vita hvort
það beri þetta gen?
Kári Stefánsson Mér finnst
líklegt að við förum fljótlega að
líta á stökkbreytingar eins og aðra
áhættuþætti og láta menn vita af
þeim (eins og háum blóðþrýstingi
eða hækkaðri blóðfitu).
Forstjóri íslenskrar erfðagreiningar kom á Beina línu á föstudag. Hann var mikið spurður um heilbrigðismál
„Óþverri að eðlisfari“
Nafn: Kári Stefánsson
Aldur: 64 ára
Menntun: Læknir
Staða: Forstjóri deCODE
Genetics
M
y
N
d
iR
K
R
iS
Ti
N
N
M
A
G
N
ú
SS
O
N