Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Side 17
Sport 17Mánudagur 16. september 2013
Frumsýningin fór aðeins forgörðum
n Fyrsti leikur tveggja dýrustu knattspyrnumanna heims endaði með jafntefli
É
g er himinlifandi yfir að hafa
skorað mitt fyrsta mark í
spænsku deildinni og hafa
hjálpað liði mínu að tryggja sér
annað stigið á erfiðum útivelli,“ lét
Gareth Bale, dýrasti knattspyrnu
maður heims, hafa eftir sér að lokn
um fyrsta leik hans með stórliði Real
Madrid gegn Villareal um helgina.
Liðið náði þó aðeins 2–2 jafntefli.
Eftir margra mánaða bollalegg
ingar í velflestum fjölmiðlum af hálfu
velflestra sérfræðinga hvort Bale færi
til Real og þá fyrir hvað mikið og þá
hvort það gengi að hann spilaði sam
hliða Cristiano Ronaldo reyndist
furðu lítið fútt í fyrsta leik þessara
stórstjarna að mati spænskra miðla.
Vissulega skoruðu báðar stjörnurn
ar í leiknum og báðir áttu fínan leik
en eftir leikinn var meira talað um
stórleik markvarðar Real og skæða
sóknarmenn Villareal en að stjörn
urnar tvær hefðu skinið sérstaklega
skært eða verið framúrskarandi.
Einhverjum kann að finnast út í
hött að segja úrslitin léleg fyrir Real
Madrid enda erfiður útivöllur og þar
náðist í eitt stig þrátt fyrir allt. En á
Spáni voru margir blaðamennirn
ir ekkert yfir sig hrifnir ef frá er talið
íþróttablaðið Marca sem jafnan er
mjög á bandi Real. Meira að segja
þar var það stórleikur markvarðar
ins Diego Lopez sem átti fyrirsögn
ina á vef þeirra að leik loknum en
ekki allra dýrasti knattspyrnumaður
heims.
Á það var bent að Gareth Bale
væri um það bil jafndýr leikmaður og
allt byrjunarlið Villareal og ekki síður
er staðreynd að Villareal er nýkomið
upp í efstu deild á Spáni eftir nokk
ur mögur ár en liðið var meðal sterk
ustu liða á Spáni árin 2004 til 2008.
Stórlið Real var því hættulega nálægt
því að tapa fyrir nýliðum í deildinni.
Það þykir aðdáendum þess ekki upp
á marga fiska.
Sjálfur tók Bale enga gagnrýni
inn á sig enda var honum skipt út
af á 62. mínútu eða áður en sókn
ir heimamanna í Villareal urðu sem
skæðastar. Hann lýsti yfir mikilli
ánægju á twittersíðu sinni í kjölfar
leiksins og sagðist vart geta beðið
þriðjudags þegar Real heimsækir
Galatasaray í Tyrklandi í Meistara
deildinni. Það var einmitt Meistara
deildin sem var ein ástæða þess að
Bale vildi fara frá Tottanham að eig
in sögn. n
É
g held að það leiki enginn vafi
á að Ferguson lætur heyra í sér
endrum og sinnum enda ekki
hægt að labba si svona út eft
ir áratugi í boltanum,“ segir Ás
mundur Friðriksson, fyrrum skip
og bæjarstjóri, sitjandi þingmaður
og gallharður aðdáandi Manchester
United. DV fékk Ásmund til að spá
í leikina í Meistaradeild Evrópu á
þriðjudagskvöld og ræddi við hann
um nýjan stjóra Manchester United,
David Moyes.
Þingmaðurinn hefur lengi fylgst
með sínu liði og oft lagst í víking til að
sjá lið sitt spila með berum augum. Ás
mundur er einnig einn af þeim sem
man persónulega eftir David Moyes
þegar sá var að sparka bolta í Vest
mannaeyjum fyrir margt löngu en þar
bjó Ásmundur og fjölskylda hans lengi
vel.
Trú á nýjum þjálfara
Þingmaðurinn hefur fulla trú á nýjum
stjóra og ekki skemmi þar fyrir að um
sé að ræða raunverulegan Íslandsvin.
„Ég hafði reyndar mjög gaman að því
þegar félagar mínir lýstu yfir óánægju
með ráðningu Moyes í stað Fergu
son. Margir töldu hann einskis nýtan.
Svo rammt kvað að gagnrýninni að
halda mætti að Moyes væri ekki fær
um að stýra knattspyrnufélagi Magna
á Grenivík.“
Ásmundur telur þó lítinn vafa leika
á að Moyes hafi getu til að ná langt
með United. „Ég held þó að hann sjálf
ur breytist við að koma í slíkt umhverfi
jafnvel þó hann hafi búið lengi í næsta
bæ. Þarna er svo mikið stærri umgjörð
og miklu meiri saga en hann er vanur.“
Aðspurður hvort ekki sé líklegt að
fráfarandi stjóri, Alex Ferguson, sé nú
eitthvað aðeins í sambandi við Moyes
þó hættur sé störfum telur Ásmundur
það mjög líklegt. „Ég held að það leiki
enginn vafi á að Ferguson lætur heyra
í sér endrum og sinnum enda ekki
hægt að labba si svona út eftir áratugi
í boltanum. Kannski hefur hann boðið
Moyes að hafa samband ef hann lenti í
vandræðum. En mér þykir ótrúlegt að
Ferguson láti sig engu varða hvað fram
fer hjá þessu liði.“
Fyrsti leikur Moyes í Meistara-
deildinni
Á morgun fara fram fyrstu leikir Meist
aradeildar Evrópu þessa vertíðina
þegar átta leikir verða leiknir og er hver
öðrum meira spennandi. Einn þeirra
er jafnframt fyrsti Meistaradeildarleik
ur David Moyes við stjórn United og
þess vegna fékk DV Ásmund til að spá
fyrir um úrslit þess leiks og hinna sjö
sem á dagskránni eru en þar á með
al halda út á völlinn Meistaradeildar
meistararnir sjálfir frá München,
spútniklið PSG frá París svo ekki sé
minnst á erkifjendur United hinum
megin í sömu borg. n
n Ásmundur Friðriksson þingmaður spáir í fyrstu leikina í Meistaradeild Evrópu
A-riðill
Manchester United - Bayer Leverkusen 3–1
„Hef trú á mínum mönnum þarna en Þjóðverjarnir
eru erfiðir og munu líklega halda sig aftarlega á
vellinum og verjast með kjafti og klóm“
Real Sociedad - Shaktar Donetsk 2–0
„Donetsk hafa oft komið á óvart en ég held að
Spánverjarnir ættu að hafa þetta á heimavellinum“
B-riðill
Galatasaray - Real Madrid 1–1
„Það er ekki heiglum hent að sækja Tyrkina heim og
mér kæmi ekki á óvart að stórliðið gæti lent þar í basli.“
FC Kaupmannahöfn - Juventus 1–0
„Þetta er áhugaverður leikur en mér finnst Danir vera
að gera góða hluti og held að þeir taki þennan leik.“
C-riðill
Benfica - Anderlecht 2–0
„Ég man vel eftir þegar Anderlecht var stórveldi í
Evrópu fyrir ekki svo mjög löngu síðan en þennan
leik vinnur Benfica“
Olympiakos - PSG 0–2
„Engin spurning þarna held ég. Frakkarnir taka þetta.
D-riðill
Bayern - CSKA Moskva 3–0
„Þetta held ég að sé ekki spurning um úrslit heldur
aðeins hvort mörk Þjóðverja verða tvö eða þrjú.“
Plzen - Manchester City 0–1
„Þessir gæjar verða náttúrulega að fara að vinna
einn leik og ekki tekst það í deildinni.“
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Ásmundur í pontu Hann eyðir ekki lengur
mörgum klukkustundum á dag að horfa á
knattspyrnuleiki en segist vart missa af stærri
leikjum síns félags sé þess kostur á annað borð.
Íslandsvinurinn David
Moyes þarf í fyrsta sinn að
stilla upp liði sínu í Meistara-
deild Evrópu annað kvöld.
Hefur fulla trú
á DaviD Moyes
Fyrsta leiknum lokið Gareth Bale stóð
sig vel í sínum fyrsta leik með sínu nýja liði
um helgina.
Úrslit
Enska úrvalsdeildin
Man.Utd – Crystal Palace 2–0
1–0 Persie v. (45.), 2–0 Rooney (81.)
Aston Villa – Newcastle 1–2
0–1 Arfa (18.), 1–1 Benteke (67.), 1–2
Gouffran (73.)
Fulham – WBA 1–1
1–0 Sidwell (22.), 1–1 McAuley (90.)
Hull – Cardiff 1–1
1–0 Davies (40.), 1–1 Whittingham (59.)
Stoke – Man.City 0–0
Sunderland – Arsenal 1–3
0–1 Giroud (11.), 1–1 Gardner v.(48.), 1–2
Ramsey (67.), 1–3 Ramsey (76.)
Tottenham – Norwich 2–0
1–0 Sigurðsson (28.), 2–0 Sigurðsson (49.)
Everton – Chelsea 1–0
1–0 Naismith (45.)
Staðan
1 Arsenal 4 3 0 1 8:5 9
2 Tottenham 4 3 0 1 4:1 9
3 Liverpool 3 3 0 0 3:0 9
4 Man.City 4 2 1 1 8:3 7
5 Man.Utd 4 2 1 1 6:2 7
6 Chelsea 4 2 1 1 4:2 7
7 Stoke 4 2 1 1 3:2 7
8 Newcastle 4 2 1 1 3:5 7
9 Everton 4 1 3 0 3:2 6
10 West Ham 4 1 2 1 2:1 5
11 Southampton 4 1 2 1 2:2 5
12 Cardiff 4 1 2 1 4:5 5
13 Fulham 4 1 1 2 3:5 4
14 Norwich 4 1 1 2 3:5 4
15 Hull 4 1 1 2 2:5 4
16 Aston Villa 4 1 0 3 5:6 3
17 Cr. Palace 4 1 0 3 4:6 3
18 Swansea 3 1 0 2 3:5 3
19 WBA 4 0 2 2 1:4 2
20 Sunderland 4 0 1 3 3:8 1
Þýska deildin
Hertha Berlin – Stuttgart 0–1
0–1 Gentner (49.)
Bayern Munchen – Hannover 2–0
1–0 Mandzukic (51.), 2–0 Ribery (64.)
Leverkusen – Wolfsburg 3–1
1–0 Sam (24.), 1–1 Olic (39.), 2–1 Kiessling
(69.), 3–1 Kiessling (90.)
Werder Bremen – Frankfurt 0–3
0–1 Kadlec (14.), 0–2 Kadlec (34.), 0–3
Prödl sjm.(72.)
Mainz – Schalke 0–1
0–1 Boateng (34.)
Augsburg – Freiburg 2–1
0–1 Mehmedi (46.), 1–1 Altintop (62.), 2–1
Werner (89.)
Dortmund –Hamburger 6–2
1–0 Aubamayang (19.). 2–0 Mkhitaryan
(22.), 2–1 Lam (26.), 2–2 Westerman
(49.), 3–2 Aubamayang (65.), 4–2
Lewandowski (73.), 5–2 Reus (74.), 6–2
Lewandowski (81.)
Hoffenheim – Gladbach 2–1
1–0 Modeste (45.), 2–0 Volland (54.), 2–1
Hrgota (75.)
Braunswcheig – Nurnberg 0–1
0–1 Hlousek (28.)
Staðan
1 Dortmund 5 5 0 0 15:4 15
2 Bayern M. 5 4 1 0 9:2 13
3 Leverkusen 5 4 0 1 11:6 12
4 Hannover 5 3 0 2 8:7 9
5 Mainz 5 3 0 2 8:8 9
6 Augsburg 5 3 0 2 5:7 9
7 Hoffenheim 5 2 2 1 14:13 8
8 H. Berlín 5 2 1 2 9:6 7
9 Schalke 5 2 1 2 7:9 7
10 Stuttgart 5 2 0 3 10:8 6
11 M‘gladbach 5 2 0 3 11:10 6
12 Wolfsburg 5 2 0 3 7:7 6
13 E.Frankfurt 5 2 0 3 7:9 6
14 W.Bremen 5 2 0 3 3:8 6
15 Hamb. SV 5 1 1 3 10:15 4
16 Nürnberg 5 0 3 2 5:8 3
17 Freiburg 5 0 2 3 7:11 2
18 Braunschw. 5 0 1 4 2:10 1