Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Blaðsíða 19
n Vinna á lyklafrumvarpi stendur yfir í ráðuneytum
E
instaklingar sem ætla sér að
skoða lyklafrumvarpið sem
lausn fyrir heimili sitt, mega bú
ast við því að útfærslur á frum
varpinu verði kynntar á allra næstu
vikum. Lyklafrumvarpið gengur út á
að fólk geti skilað yfirskuldsettum fast
eignum til lánastofnana og losnað um
leið við eftirstöðvar.
Þetta kemur fram á vefnum spyr.is
sem er vefur sem kallar eftir upplýsing
um og svörum fyrir hönd almennings.
Spyr.is sendi fyrirspurn varðandi
lyklafrumvarpið til Alþingis, hvenær
megi eiga von á því að það taki gildi
ef það verður samþykkt og hvort
hægt sé að fylgjast með ferlinu. Al
þingi beindi fyrirspurninni áfram á
innanríkisráðu neytið. Jóhannes Tóm
asson, upplýsinga fulltrúi innanríkis
ráðuneytisins sendi Spyr.is svar þar
sem segir að ríkis stjórnin leggi mikla
áherslu á að auka ráðstöfunartekjur
og koma til móts við skuldsett heimili.
Umrætt verkefni sé hluti af aðgerða
áætlun ríkisstjórnarinnar þess efnis.
Jafnframt sagði hann að nú standi
yfir vinna í velferðarráðuneytinu og
innanríkisráðuneytinu um hvernig
unnt sé að gera eigendum yfirskuld
settra íbúða kleift að losna án gjald
þrots undan eftirstöðvum sem veðið
sjálft stendur ekki undir eins og lagt er
upp með í aðgerðaráætluninni. Þeirri
vinnu sé að ljúka en niðurstöður verða
kynntar á næstu vikum. n
gunnhildur@dv.is
Skuldavandi heimilanna Það
væri hægt að leysa vanda sumra
heimila með lyklafrumvarpinu.
Mynd: © dV ehf / Sigtryggur Ari
Varað við
offjárfestingu
í Bretlandi
Í Bretlandi er aftur framboð á
lánum þar sem vextir eru aug
lýstir lágir miðað við markaðs
virði eigna. Lánaframboðið hef
ur orðið til þess að hleypa vexti
í fasteignakaup og í júlímánuði
jukust kaup þeirra sem eru að
kaupa sína fyrstu húseign um 41
prósent, miðað við sama tíma á
síðasta ári.
Þar í landi vara menn kaup
endur fasteigna við offjárfest
ingu og minna á að betra sé að
taka ábyrgð til lengri tíma en
skemmri.
Erfðabreytt
matvæli
rannsökuð
Yfirvöld í Bandaríkjunum rann
saka nú tvö mál sem varða
erfðabreytt matvæli.
Tveir bændur sem rækta
hveiti annars vegar og alfa
alfa spírur hins vegar, fá ekki
að selja uppskeru sína. Báð
ir bændurnir reyndust ætla að
selja erfðabreytt matvæli. En í
Washingtonfylki voru nýver
ið settar reglur um merkingu
erfðabreyttra matvæla og gilda
strangar reglur um hvaða mat
væli skal skilmerkilega merkja
fyrir neytandann, svo virðist
sem bændur reyni að fara fram
hjá reglugerðinni en yfirvöld
útiloka heldur ekki að uppskera
þeirra hafi orðið fyrir smiti og
stendur yfir víðtæk rannsókn á
málinu.
IKEA þróar
nýtt app
Húsgagnarisinn IKEA hefur
þróað nýtt app fyrir neytend
ur sína. Með appinu má sjá fyr
ir sér hvernig tiltekið húsgagn
mun koma til með að líta út í
íbúð neytandans. Sjá hvort skrif
borðið passar á ganginum, hvort
sófinn passar vel í stofunni og
svo framvegis.
„Þegar Google Glass kem
ur á markað á næsta ári, verður
þetta enn áhrifameira, segir Dr.
Andrew Hudson Smith, sérfróð
ur um hugbúnað sem þennan í
viðtali við The Guardian. „Með
Google Glass þá munu app sem
þessi gera fólki kleift að sjá hús
gögnin fyrir sér þar sem þau eru
í stofunni.“
Útfærslurnar kynntar fljótlega
Svona tekur þú Slátur
n Ódýr og hollur matur n Færð mikið fyrir lítinn pening n Allir geta tekið slátur n DV birtir nokkrar góðar uppskriftir
Uppskriftir
Blóðmör:
n 1 l blóð
n 6,5–7,0 dl vatn
n 2 msk. gróft salt
n 400 gr haframjöl
n 500 gr rúgmjöl
n 500–600 gr brytjaður mör
Sigtið blóðið, blandið vatni og salti
út í ásamt haframjöli og látið standa
smástund á meðan saltið leysist upp
og haframjölið blotnar. Setjið rúgmjölið
út í ásamt mör og hrærið. Varist að
gera hræruna of þykka. Setjið hræruna
í keppina, hafið þá rúmlega hálfa og
saumið fyrir. Pikkið keppina með nál og
setjið í sjóðandi vatn með salti og sjóðið
í 2 til 3 klukkustundir. Pikka þarf aftur
þegar suðan kemur upp og keppirnir
fljóta upp.
Lifrarpylsa:
n 2 lifrar
n 4 nýru
n 2 msk. gróft salt
n 6 dl mjólk
n 1,5 dl heitt vatn
n ½ súputeningur
n 300 gr haframjöl
n 400 gr rúgmjöl
n 300–400 gr brytjaður mör
Himnuhreinsið lifur og nýru og maukið
í matvinnsluvél. Setjið lifrarhræruna
í rúmgott fat, blandið vökva, salti og
haframjöli saman við. Látið standa í um
það bil 5 mínútur á meðan saltið leysist
upp og haframjölið blotnar. Hrærið
rúgmjöli og mör saman við. Passið að
hafa hræruna ekki of þykka. Lifrarhrær-
an er þó höfð þykkari en blóðmörshrær-
an. Gott er að setja örlítinn sykur út í
hræruna. Hálffyllið keppina og saumið
fyrir með bómullargarni. Pikkið með
nál og setjið út í sjóðandi saltað vatn.
Sjóðið í minnst 2½ klukkustund. Pikka
þarf aftur þegar suðan kemur upp og
keppirnir fljóta upp.
(uppskriftir þessar má einnig finna í
bæklingi frá SS)
Margrét lét einnig fylgja með uppskrift af
sviðasultu. Hún bendir fólki sem prófar
að gera sviðasultu að vigta heimagerðu
sultuna og sjá hvað það er mikið ódýrara en
tilbúið út úr búð.
Frosnum sviðahausum raðað þétt í pott.
Vatni hellt saman við og látið fljóta yfir
1–2 msk. af salti sett út í.
Látið suðuna koma upp og fleytið froðuna
ofan af. Bragðið soðið til að athuga hvort
þurfi meira salt. Lækkið hitann og látið
sjóða í 2½ til 3 tíma. Hausarnir eru þá teknir
upp úr og allt kjöt hreinsað af beinum og
sett í formkökumót. Soðinu er hellt yfir
mótið og létt farg sett ofan á. Að því loknu
er mótið sett í kæli. Þetta er gert á meðan
sviðin eru heit. Gott er að nota nýja gúmmí-
hanska. Eyrun eru tekin af og hent ásamt
augasteinum. Frystið svo sviðasultuna í
hæfilegum bitum.
Uppruni
sláturs á
Íslandi
Á Vísindavefnum er fjallað um uppruna
slátursins. Þar segir að lifrarpylsa sé
fyrst nefnd í íslenskum heimildum á 18.
öld en verði ekki algeng fyrr en í lok
19. aldar. „Á nokkrum stöðum er greint
frá því í heimildum að hún sé að byrja að
sjást í ákveðnum héruðum upp úr miðri
19. öld.
Eftir að hinn vinsæli Kvennafræðari Elín-
ar Briem kom út um áramótin 1888–9
— en í honum var meðal annars
uppskrift að lifrarpylsu — breiddist
lifrarpylsan út með miklum hraða og
um aldamót er hún gerð á all flestum
sveitaheimilum á Íslandi.“
Orðið blóðmör þekktist ekki fyrr en á
17. öld en þó er ekkert sem mælir gegn
því að réttur með því nafni hafi verið til
áður, því matarrétta er ekki endilega
getið í gömlum heimildum. Þá segir jafn-
framt að lítið eða ekkert mjöl hafi verið í
blóðmör á fyrri öldum enda hafi skortur
á mjölmeti verið viðvarandi á 18. öld og
fram eftir 19. öld hafi hann að mestu
verið þykktur með fjallagrösum.
Sviðasulta
Slátur er afar ódýr matur en í Hagkaupum
var hægt að fá fimm slátur á 5.179 krónur
síðasta haust. Gróflega áætlað má gera
ráð fyrir að nota haframjöl, rúgmjöl og mör
fyrir um það bil 300 krónur í hverja upp-
skrift. Þannig kosta fimm slátur um 5.500
krónur sem gera 1.100 krónur fyrir eitt slát-
ur. Eitt slátur slátur dugar í 3 máltíðir fyrir
4 manna fjölskyldu og því kostar máltíðin
fyrir alla fjölskylduna um 370 krónur.
Til samanburðar var fundið verð á
nokkrum matvörum en verðin voru fengin
af heimasíðum verslana og í bæklingum
þeirra. Fyrir 4 manna fjölskyldur má gera
ráð fyrir 250 grömmum af fiski eða kjöti
á mann. Eins má ætla að gróflega kosti
meðlæti um 300–500 krónur fyrir fjöl-
skylduna en það er að sjálfsögðu misjafnt
eftir fjölskyldum.
Kjúklingabringur: 1.989 kr.
Meðlæti: 500 kr.
Samtals: 2.498 kr.
Ýsa í raspi: 1.398 kr.
Meðlæti: 500 kr.
Samtals: 1.898 kr.
Hakkbollur: 899 kr.
Meðlæti: 500 kr.
Samtals: 1.399 kr.
Grísabógur: 695 kr.
Meðlæti: 500 kr.
Samtals: 1.195 kr.
Dominos Pizza tvennutilboð: (2 stórar
pizzur, brauðstangir, sósa og kók)
Samtals: 3.956 kr.
Innan við 400 krónur fyrir máltíðina
Neytendur 19Mánudagur 16. september 2013