Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Qupperneq 27
Fólk 27Mánudagur 16. september 2013
Bjart framundan
hjá Björk
Skilnaður þeirra Bjarkar Guð-
mundsdóttur og Matthew Barn-
ey var gerður opinber nýverið.
Þau hafa slitið samvistum eft-
ir margra ára samband og eiga
saman eina dóttur, Ísadóru, sem
nú er orðin 11 ára gömul. Þær
Björk og Ísadóra dvöldu á Íslandi
nýverið og sáust glaðar á svip í
Melabúðinni að versla sér góð-
gæti í matinn. Þær dvöldu í húsi
Bjarkar á Ægisíðunni sem hef-
ur verið málað hvítt eins og til
að marka nýja tíma, en áður var
það kolsvart. Tónleikaferðalag
Bjarkar hefur verið lofað af gagn-
rýnendum og vonandi bjartir
tímar fram undan.
Tanja er
ungfrú Ísland
Tanja Ýr Ástþórsdóttir, nemandi
í Menntaskólanum við Sund, var
kosin Ungfrú Ísland 2013 í feg-
urðarsamkeppni Íslands sem
fram fór á veitingahúsinu Broad-
way um helgina. Hún var einnig
valin ljósmyndafyrirsæta ársins.
Hildur Karen Jóhannsdóttir varð
í öðru sæti og Karítas Maren
Sveinsdóttir í því þriðja.
Saga Garðars
dóttir rænd
Leikkonan skemmtilega, Saga
Garðarsdóttir, hefur ítrekað orðið
fyrir barðinu á þjófum síðustu
daga. Og svo virðist sem ung-
lingar sæki grimmt í eigur henn-
ar. „Símanum mínum var stolið í
gær, ekki af sama unglingi samt og
tók veskið mitt. Þannig er einung-
is hægt að ná í mig með símskeyt-
um og tölvupósti á meðan ég bíð
eftir batteríum í símboða föður
míns. Eigur mínar eru nú eftir-
taldar: 5.000 kall, brjóstsykur frá
lögreglunni, tölva, tvo gjafabréf í
Björnsbakararí fyrir átta manns og
gjafabréf á Fosshótel (ekki frá lög-
reglunni). Að gefnu tilefni: Passið
ykkur á pizzafeisunum!“
B
irgitta Jónsdóttir, þingmað-
ur Pírata, er ansi litskrúðug
þessa dagana og sker sig nokk-
uð úr á Alþingi, með fagurbláa
lokka. Birgitta hefur gaman af
því að brjóta upp útlitið og gera hinar
ýmsu litatilraunir á hárinu. „Ég aflitaði
nokkra lokka í sumar, þá var ég með
bleikrauðan lit í hárið. Í síðustu viku
henti ég svona bláleitum lit í hárið.“
Hún segist fá góðar viðtökur og þær
allra bestu frá þingmönnum og ráð-
herrum Sjálfstæðisflokksins. „Sjálf-
stæðisflokkurinn er mjög ánægður
með hárið á mér,“ segir Birgitta og hlær.
Framkoma og klæðaburður þing-
manna hefur verið talsvert til umræðu.
Gallabuxnafár varð á Alþingi og Elín
Hirst send heim í buxum sem þóttu
fyrir neðan virðingu þingsins.
„Einhvers staðar verður að draga
línur. Þetta snýst ekki um efnið. En
gallabuxur eru það óformlegur klæðn-
aður að hann passar ekki á Alþingi.“
sagði Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis við það tilefni og benti
á að það væri heiðursmanna og
-kvennasamkomulag að menn reyni
að hafa klæðaburð á Alþingi með
þokkalegum hætti.
Hárið hefur hins vegar ekki valdið
neinu fári á Alþingi þótt það sé óhefð-
bundið. „Það væri fáránlegt ef ein-
hvern myndi skamma mig fyrir hára-
litinn eða hárgreiðsluna, því það er
smekksatriði. Þeir hafa alltaf látið
mig í friði, ég hef alltaf fengið að vera
bara ég,“ segir Birgitta en stemningin
á Alþingi hefur tekið hressilegum
breytingum með tilkomu Pírata. n
Sjálfstæðismenn ánægðir með bláa hárið
n Birgitta fær engar ákúrur fyrir skrautlegt hár á Alþingi
Fær að vera hún sjálf
„Það væri fáránlegt ef
einhvern myndi skamma
mig fyrir háralitinn eða
hárgreiðsluna, því það
er smekksatriði,“ segir
Birgitta.
Kynlífsfræðingur með
stefnumótaþátt
R
agnheiður Eiríksdóttir
kynlífshjúkrunarfræð ing-
ur, betur þekkt sem Ragga
Eiríks, á frumkvæð ið að
nýjum íslenskum stefnu-
mótaþáttum sem fara í fram-
leiðslu á næstunni. Stefnt er að því
að raunveruleikaþættirnir, sem
bera heitið Í makaleit verði frum-
sýndir eftir áramót á Stöð 3, sem
er ný sjónvarpsstöð á vegum 365
miðla. Samkvæmt Röggu munu
þátttakendur fá þjálfun í að verða
eftirsóknarverðir á stefnumóta-
frontinum. „Þetta er ekki deit
þáttur beint, ég er að taka hóp
af fólki og í rauninni þjálfa það
í alls konar þáttum sem skipta
máli þegar maður er að huga að
rómantískum samskiptum,“ segir
Ragga og segir að áherslan verði
lögð á svokallað innra make-over.
„Við erum ekki að vinna með út-
lit heldur erum við að vinna með
andlegan styrk, kjark, mannasiði,
framkomu í hóp, líkamstján-
ingu, daður, kynlíf og fleira,“ segir
Ragga sem sjálf hefur staðið fyrir
kynlífsfræðslu í fjölmiðlum síðast
liðin ár.
Hún segist hafa fengið hug-
myndina eftir að hún varð ein-
hleyp fyrir rúmu ári síðan. „Mér
fannst ég heyra svo rosalega oft
að fólk væri að hrista hausinn
og segja þetta væri svo vonlaust
hérna á Íslandi, að það væri engin
stefnumótamenning, eitthvað
svona kvart og kvein,“ segir Ragga.
„Ég held að þetta snúist allt um
sjálfstraust, að finna að manni
líður vel í sjálfum sér, sé sáttur við
líkamann sinn, hæfileika og aðra
kosti. Ég held að allt of margir séu
góðir í að finna ókosti sína og að
tala niður til sín.“
Leiðsögn sérfræðinga
Ragga hefur kallað saman hóp
þekktra einstaklinga sem munu sjá
um að veita sérfræðilegt álit í ferl-
inu. „Helga Braga, Páll Óskar, Ás-
geir stöntmaður, Biggi Bootcamp
og Ágústa jógakennari munu
koma og vera eins og þjálfarar fyr-
ir hópinn þannig að fólk mun fá
mjög mikið út úr þessu“
Að þjálfun lokinni munu þátt-
takendur spreyta sig á því að fara
á draumastefnumótið. „Við vitum
náttúrulega ekkert hvað gerist í
þáttunum, hvort að fólkið í hópn-
um byrjar kannski allt saman,“ seg-
ir Ragga og hlær, „en það er ekki til-
gangurinn með þáttunum heldur
er tilgangurinn að gera þau tilbúin
til leiks þannig að þau hafi kjarkinn
og sjarmann til þess að fara á
draumadeitið í lokaþættinum.“
Sérstakur þáttur um kynlíf
„Þegar þátturinn um kynlífið
kemur verð ég sem sagt þjálfar-
inn í samskiptum tengdum kyn-
lífi“ segir Ragga sem er þrautþjálf-
uð í faginu. „Það verður engin
nekt – því miður. Ég verð að valda
áhorfendum vonbrigðum með
það“ segir hún hlæjandi, „en hins
vegar munum við ræða um sam-
skipti og gera æfingar sem snú-
ast um að geta staðið með sjálf-
um sér í kynlífi, að biðja um það
sem maður vill og þarf og að geta
tengst annarri manneskju á þessu
leveli.“ Aðspurð hvort Ragga sjálf
sé á lausu svarar hún því játandi,
„en það er ekkert endilega víst að
ég vilji finna mér maka eins og er,“
segir hún brosandi.
Tími umsókna stendur yfir
„Við ætlum að taka á móti um-
sóknum til 10. október og fara svo í
tökur í nóvember og sýnum fyrstu
þættina í janúar,“ segir Ragga að
lokum. Hægt er að fylgjast betur
með framvindunni á Facebook-
síðu þáttarins, Í makaleit, þar sem
einnig er hægt að sækja um þátt-
töku. n
n Markmiðið að verða eftirsóttur n Unnið með andlegan styrk
Svala Magnea Georgsdóttir
blaðamaður skrifar svala@dv.is
„Við vitum náttúru-
lega ekkert hvað
gerist í þáttunum, hvort
að fólkið í hópnum byrjar
kannski allt saman.
Mynd ÞorMAr
Kjarkur og sjarmi Ragga vill að
fólk öðlist kjark og sjarma svo það
geti farið á draumastefnumótið.