Fréttablaðið - 21.12.2015, Page 4
Enn snjallara heyrnartæki
heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Nýja Beltone Legend heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone,
iPad og iPod touch. Pantaðu ókeypis heyrnarmælingu í síma
568 7777 og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð)
með iOS eða nýrra stýriker. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypisheyrnarmælingsíðan 2004
LögregLumáL „Þessi heimild var
veitt á laugardag,“ segir Ásgeir Þór
Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
um það að almennir lögregluþjónar
hafi verið vopnum búnir á vettvangi
á Kjalarnesi á laugardag.
Tilkynning barst lögreglu um
mann á sjötugsaldri sem væri
með skotvopn og sýndi af sér ógn
andi framkomu á heimili sínu.
Fréttablaðið greindi frá því í lok síð
asta mánaðar að um miðjan desem ber
yrði stefnt að því að skammbyssum
yrði komið fyrir í sérstökum vopna
kassa í lögreglubílum lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu í fyrsta sinn.
Að sögn Ásgeirs Þórs voru allar
verklagsreglur í kringum breyt
ingarnar tilbúnar í síðustu viku og
þriggja ára verkefni lokið. Vopna
kössum hefur verið komið fyrir í
nokkrum lögreglubílum á höfuð
borgarsvæðinu.
Lögregluþjónar munu ekki koma
til með að hafa aðgang að skamm
byssunum nema þar til bær yfir
maður láti þeim í té aðgangskóða
að vopnakassanum eftir að hann
hefur verið upplýstur um málavexti.
Yfirmaður mun þá meta nauðsyn þess
í hverju tilviki fyrir sig.
„Í þessu tilviki var það aðstoðar
yfirlögregluþjónn sem var bær yfir
maður til að veita hana. Ef verkefnið
þolir ekki bið þá getur hann sjálfur
tekið ákvörðun, annars þarf hann að
bera ákvörðun undir yfirmann sinn,“
segir Ásgeir.
Kristján Ólafur Guðnason að
stoðar yfirlögregluþjónn, sem veitti
umrædda heimild, segir að á laugar
dag hafi komið upp aðstæður þar sem
verklagið hafi átt við og að eftir því
hafi verið farið. – ngy
Nýttu heimildina til að opna vopnakassa lögreglubíla í Reykjavík
Allar verklagsreglur í kringum breytingar á vopnamálum hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu voru frágengnar í síðustu viku.
SamféLag Tvær fjögurra manna
albanskar fjölskyldur fengu á laugar
daginn ríkisborgararétt hér á landi.
Mál fjölskyldnanna tveggja vöktu
gríðarlega athygli eftir að þeim var
vísað úr landi fyrr í mánuðinum,
ekki síst fyrir þær sakir að í báðum
fjölskyldunum eru langveik börn.
Hinn þriggja ára gamli Kevi sem þjá
ist af slímseigjusjúkdómi og hinn átta
mánaða gamli Arjan sem fæddist með
hjartagalla.
Fjölskyldurnar tvær sóttu um ríkis
borgararétt síðastliðinn þriðjudag
og á laugardaginn var ljóst að úr yrði
þegar allsherjar og menntamála
nefnd lagði til að þeim yrði veittur
ríkisborgararéttur.
Alls var 49 einstaklingum veittur
ríkisborgararéttur en nefndinni bár
ust 64 umsóknir og tók Unnur Brá
Konráðsdóttir, formaður allsherjar
nefndar Alþingis, fram við málflutn
inginn á laugardag að ákvarðanir
Alþingis um veitingu ríkisborgara
réttar væru ekki fordæmisgefandi.
Arndís Anna Guðmundsdóttir,
réttargæslumaður Pepajfjölskyld
unnar sem er fjölskylda Kevis, segir
málið vissulega óvanalegt en fagnar
niðurstöðunni. Venja sé að slík mál
fari í gegnum Útlendingastofnun og
ráðuneyti en Alþingi hafi þó heimild
til þess að horfa fram hjá þeim skil
yrðum. Í flestum tilvikum þarf fólk að
bíða í nokkur ár áður en það á kost á
að sækja um ríkisborgararétt.
Hún segir fjölskyldurnar að vissu
leyti heppnar þar sem Albanía bjóði
upp á tvöfalt ríkisfang, ef svo væri
ekki þyrftu fjölskyldurnar að afsala
sér ríkisborgararétti sínum í Albaníu.
„Þau eru heppin, við skulum orða
það þannig. Albanía heimilar tvöfalt
ríkisfang en það á auðvitað ekkert
við um alla,“ segir hún og nefnir sem
dæmi að Sýrland bjóði ekki upp á
tvöfalt ríkisfang.
Arndís segir ríkisborgararéttinn
farsælan endi á máli fjölskyldnanna
þó að hann sé að mörgu leyti sér
stakur og ekki sjálfgefið að fara í slíkt
ferli. „Fólk kemur hingað og sækir
um dvalarleyfi en ekki um ríkis
borgararétt. Munurinn er gríðarlega
mikill,“ segir hún.
Hermann Ragnarsson, vinur fjöl
skyldnanna og vinnuveitandi annars
fjölskylduföðurins, opnaði styrktar
reikning þar sem stefnt er að því að
safna fyrir ferðakostnaði og ýmsu
sem fjölskyldurnar kemur til með
að vanhaga um á meðan þær koma
sér fyrir hér á landi á nýjan leik en
stefnt er að því að þær komi hingað
til lands í janúar.
„Planið er þann 10. janúar en ef
allt verður tilbúið fyrr þá flýtum við
því,“ segir Hermann en hann vinnur
auk þess að því að finna húsnæði
fyrir fjölskyldurnar að búa í.
Fjölskyldunum var á laugardaginn
tilkynnt í gegnum Skype að umsókn
þeirra hefði verið samþykkt og segir
Hermann það hafa verið frábæra
stund. Túlkur las upp bréf fyrir Pepaj
fjölskylduna og grétu foreldrar Kevis
af gleði við fréttirnar og sögðu þær
bestu jólagjöfina sem sonurinn hefði
getað fengið. gydaloa@frettabladid.is
Albönsku fjölskyldurnar tvær
með tvöfaldan ríkisborgararétt
Fjölskyldurnar fengu ríkisborgararétt á laugardaginn. Albanía býður upp á tvöfalt ríkisfang og því þurfa
þær ekki að afsala sér albönskum ríkisborgararétti. Væntanlegar til landsins þann 10. janúar næstkomandi.
Arjan Lalaj ásamt systur sinni en hann er með meðfæddan hjartagalla. Mynd/Stöð2
Þau eru heppin, við
skulum orða það
þannig. Albanía heimilar
tvöfalt ríkisfang en það á
auðvitað ekkert við um alla.
Arndís Anna Guðmundsdóttir, réttar-
gæslumaður Pepaj-fjölskyldunnar
menntamáL Tækniskólinn var með
tvöfalda útskrift á laugardaginn
og útskrifuðust 257 nemendur.
Þetta var fyrsta útskrift skólans
eftir sameiningu Tækniskólans
og Iðnskólans í
Hafnarfirði.
A t h ö f n i n
fór fram í
Silfurbergi
í Hörpu
og til að
þurfa ekki
að takmarka
fjölda gesta var
athöfninni skipt í
tvennt.
Dúx skólans er Óli Grétar Skarp
héðinsson af skipstjórnarbraut,
með einkunnina 9,52. Semidúx er
Vilhelm Þór Lundgrenn af tölvu
braut með einkunnina 9,47.
Í fyrsta sinn í sögu skólans
útskrifaði Flugskóli Íslands konu
af flugvirkjabraut. Hún heitir Elsa
Hrafnhildur Bjarnadóttir. – ngy
Tvískipt
útskrift hjá
Tækniskólanum
BárðarBunga Jarðskjálfti 3,5
að stærð varð í norðausturhluta
Bárðarbunguöskju aðfaranótt
sunnudags. Skjálftinn varð klukk
an 02.32 og nokkrum mínútum
síðar, klukkan 02.27, varð annar
skjálfti 3,1 að stærð. Í kjölfarið
urðu nokkrir minni skjálftar en
skjálftar eru algengir á svæðinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Veðurstofu Íslands.
Bárðarbunga er megineldstöð
undir Vatnajökli. Jarðhræringar
hófust í Bárðarbungu þann 16. ágúst
á síðasta ári og í kjölfarið hófst eld
gos í Holuhrauni sem stóð yfir í sex
mánuði og er eldgosið mesta hraun
gos sem orðið hefur á Íslandi í 230
ár. Hraunið sem kom upp í gosinu
þekur 85 ferkílómetra lands. – gló
Skjálfti í
Bárðarbungu
SamféLag Samkynhneigt fólk á
Íslandi verður reglulega fyrir haturs
glæpum og áreiti vegna kynhneigðar
sinnar. Þetta segir framkvæmdastjóri
Samtakanna ’78, en aðfaranótt sunnu
dags veittust fjórir menn um tvítugt
að samkynhneigðu pari í miðbænum.
Jóhann Örn Bergmann Benedikts
son greindi í gær frá því að umrætt
kvöld hefðu hann og kærasti hans
orðið fyrir aðkasti vegna kynhneigðar
sinnar þegar fjórir menn um tvítugt
veittust að þeim. Jóhann Örn lýsir
atvikum þannig að hann og kærasti
hans hafi verið á gangi eftir Lækjar
götu fyrrinótt þegar ókvæðisorðum
á borð við „faggaógeð“ og „homma
viðbjóður“ var hrópað að þeim.
Auður Magndís Auðardóttir, fram
kvæmdastjóri Samtakanna ’78, segir
reynslu Jóhanns síður en svo eins
dæmi. Atvik af þessum toga komi
upp reglulega. Hún telur skýrt að um
hatursglæp sé að ræða.
„Samkvæmt löggjöfinni á Íslandi
þá er árás á persónu sem beinist gegn
henni vegna kynhneigðar mjög klár
lega flokkuð sem hatursglæpur. Þarna
í þessu tilfelli er mjög skýrt að orðin
sem eru látin fylgja árásinni eru vegna
kynhneigðar,“ segir Auður.
Þrátt fyrir það sé ekki mikið um
að fólk tilkynni slíkt ofbeldi til lög
reglu. Þó að mikið hafi unnist séu
fordómar víða. Því sé nauðsynlegt að
gefa hvergi eftir í fræðslu, sérstaklega
hjá börnum. – þþ
Verða reglulega fyrir hatursglæpum
Framkvæmdastjóri Samtakanna ´78. Mynd/JökuLL JóhAnneSSon
„Faggaógeð“ og
„hommaviðbjóður“ var
hrópað að kærustupari í
Lækjargötu í fyrrinótt.
»
2 1 . d e S e m B e r 2 0 1 5 m á n u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
0
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:2
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
C
0
-A
D
0
8
1
7
C
0
-A
B
C
C
1
7
C
0
-A
A
9
0
1
7
C
0
-A
9
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K