Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 6

Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 6
– fyrst og fremst ódýr! Mest seldi hryggurinn í Krónunni GILDIR AÐEINS Í DAG 21. DES. Fylgstu með Jóladagatali Krónunnar. Ný tilboð til jóla. Fylgstu með Jóladagatalinu á facebook síðu Krónunnar 1099kr.kg Verð áður 1299 kr. kg Krónan hamborgarhryggur. Stjórnmál „Við höfum gert leit að þessu í forsætisráðuneytinu og við finnum ekki bréfið frá Tong. Það hefur ekki borist hingað í ráðu­ neytið. Það er svo einfalt. Þannig er bara staðan. Við höfum ekki slíkt bréf undir höndum,“ segir Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, spurður hvort ráðuneytinu hafi borist erindi Anote Tongs, forseta Kíribatí, sem hann sendi öllum þjóðarleiðtogum um að sett yrði alþjóðlegt bann við nýjum kolanámum í heiminum í ljósi loft­ lagsbreytinga. Anote Tong talaði um fljót andi eyj ar, gríðar stóra sjáv ar veggi og aðrar aðgerðir til að bjarga eyrík inu frá af leiðing um hækk andi sjáv ar­ borðs. Forseti Kíribatí­eyja sagði að næðu menn ekki samkomulagi um hámarkshitun 1,5 gráður myndi Kíri­ batí sökkva í sæ. Í bréfi Tongs til þjóðarleiðtoga færir hann þeim blessun sína, „Kam na bane ni Mauri“, sem mætti útleggja sem „megi okkur alltaf heilsast vel“. Hann biður um stuðning í baráttu eyjaskeggja gegn loftlagsbreytingum með því að leggjast gegn byggingu nýrra kolanáma á alheimsvísu. Tong hefur miklar áhyggjur af því að Kíribatí muni sökkva í sæ vegna loftlagsbreytinga og segir aðkallandi að bregðast strax við og biður því um stuðning þjóðarleiðtoga. „Bygging hverrar nýrrar kolanámu grefur undan hverju því samkomu­ lagi sem við náum í París,“ segir hann í bréfinu. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, hefur lagt fram fyrirspurn til Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­ sonar forsætisráðherra um afstöðu hans til kröfu Kíribatí og spyr hvort krafa Kíribatí verði studd af Íslands hálfu. „Það er bagalegt ef ráðuneytinu hefur ekki borist bréfið því sam­ kvæmt þeim upplýsingum sem ég fékk var að það hefði verið sent öllum þjóðarleiðtogum. Í ljósi loftslagsráðstefnunnar í París og þess samkomulags sem var undir­ ritað þar er gríðarlega mikilvægt að þjóðir heims fari að taka afstöðu til nýrra verkefna á sviði jarðefnaelds­ neytis. Þetta skiptir auðvitað miklu máli fyrir þessar þjóðir, eyríkin sem eiga á hættu að hverfa undir vatn. Ég hefði talið að Ísland með sína endurnýjanlegu orkugjafa ætti að vera í forystu í svona málum á alþjóðavettvangi, þess vegna lagði ég fram fyrirspurnina.“ „Við munum svara fyrirspurn Katrínar en eins og ég sagði áður, þá hefur okkur ekki borist þetta erindi frá Tong,“ ítrekar Sigurður Már. Fréttablaðið spurðist einnig fyrir á skrifstofu forseta Íslands, hvort bréfið hefði borist þangað, en svo var ekki. kristjanabjorg@frettabladid.is Leituðu að bréfi Tongs Anote Tong, forseti Kíribatí, ritaði bréf til allra þjóðarleiðtoga og bað þá um stuðn- ing til að sett yrði alþjóðlegt bann við nýjum kolanámum. Í forsætisráðuneytinu kannast enginn við erindi Tongs og því hefur þess vegna ekki verið svarað. Anote Tong, forseti Kíribatí, sendi þjóðarleiðtogum bréf og bað þá um stuðning. Bréfið hefur ekki borist Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og því getur hann ekki svarað því. MynD/VAlGArður Allt á floti á Filippseyjum Stúlka með regnhlíf veður í gegnum flóðvatn á götu í úthverfi Maníla eftir heilmikla hitabeltisstorma sem gengu yfir Filippseyjar um helgina. 45 manns létust í óveðrinu. norDicphoToS/AFp Sýrland Að minnsta kosti fjöru­ tíu og þrír létust í nokkrum loft­ árásum á borgina Idlib í Sýrlandi í gær.  Frá þessu er greint á vef BBC. Borgarbúar halda því fram að Rússar séu ábyrgir fyrir árásunum en Rússar hafa sjálfir ekki staðfest að svo sé. Skotið var á markað í borginni, á heimili fólks og á opin­ berar byggingar. Rússar hófu loftárásir í Sýrlandi í september til að styðja við baráttu stjórnarhersins í landinu gegn uppreisnaröflum. Að sögn Rússa eru skotmörk þeirra einungis hryðjuverkamenn, sem flestir tengjast hryðjuverkasamtökunum ISIS. Samtök sem vilja Assad Sýr­ landsforseta burt segja hins vegar að árásir Rússa hafi flestar beinst að uppreisnarmönnum sem njóta stuðnings Vesturlanda. Að sögn samtakanna særðust að minnsta kosti 170 manns í árásunum. – ngy Felldu 43 í árásum í Idlib Borgarbúar í idlib telja rússa ábyrga fyrir árásunum en rússar staðfesta það ekki. MynD/EpA 2 1 . d e S e m b e r 2 0 1 5 m á n U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 C 0 -C 0 C 8 1 7 C 0 -B F 8 C 1 7 C 0 -B E 5 0 1 7 C 0 -B D 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.