Fréttablaðið - 21.12.2015, Page 16

Fréttablaðið - 21.12.2015, Page 16
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur úthlutað 120 milljónum króna í íslenskukennslu fyrir útlendinga fyrir árið 2016. Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í þjóðskrá*, tækifæri til að öðlast nauðsynlega færni í íslensku til að geta orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi. Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila sem annast kennsluna fylgja umsókninni. Umsóknargögn er að finna á www.rannis.is og skal skilað á rafrænu formi. Upplýsingar um sjóðinn veitir Jón Svanur Jóhannsson, verkefnastjóri á mennta- og menningarsviði í síma 515 5820 og á jon.svanur.johannsson@rannis.is * Hælisleitendur eru undanþegnir kröfu um skráningu í þjóðskrá meðan málefni þeirra eru til skoðunar hjá stjórnvöldum. H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Íslenskukennsla fyrir útlendinga Umsóknarfrestur til 1. febrúar 2016 menntamál  Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólunum á Bifröst og á Hólum verður gert að taka upp form­ legt samstarf samkvæmt tillögum starfshóps um ávinning af auknu samstarfi skólanna.  Rektorar gagn­ rýna tillögurnar sem þeir telja þurfa að greina miklu betur. Í skýrslu starfshópsins sem skilað var í nóvember er lagt til að skipaðir skuli tveir nýir starfshópar til að vinna hugmyndirnar frekar. Annar hópur­ inn verði skipaður fulltrúum háskól­ anna og menntamálaráðuneytisins til að finna leiðir að frekari samþættingu náms og ýmissar stoðþjónustu, svo sem tölvukerfa, bókhalds og umsjón verkefna háskólanna. Ríkið leggi vinnunni til fimmtíu milljónir króna.  Hinum hópunum, sem verði á vegum stjórnarráðsins, verði meðal annars falið að finna leiðir til að gera upp skuldir Landbúnaðarháskólans og Háskólans á Hólum við ríkissjóð sem og að endurfjármagna lán við Íbúðalánasjóð. Uppsafnaður halli Landbúnaðar­ háskólans nemur 422 milljónum króna og Háskólans á Hólum 170 milljónum króna. Björn Þorsteinsson, rektor Land­ búnaðarháskólans, og Erla Björk Örnólfsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, skiluðu bæði séráliti fyrir hönd sinna skóla þar sem þau gagn­ rýndu að ekki lægi fyrir neitt mat á kostum og göllum tillagnanna. Slíkt þyrfti að vera gert áður en ákvörðun um aukinn samrekstur yrði tekin. „Við viljum ekki breyta um rekstrar­ form bara sisvona, einn, tveir og þrír, án þess að það séu gerðar einhverjar úttektir á kostum og göllum rekstrar­ forma við háskóla,“ segir Björn. Að sögn Björns er efling sam­ starfsnets opinberra skóla mun betri lausn. Í skýrslu nefndarinnar er lagt til að ríkið setji 75 milljónir króna í að efla samstarfsnetið. „Það er miklu vænlegri kostur en að fara að skipuleggja samstarf skóla eftir einhverri pólitískri forskrift.“ Einnig er lagt til að háskólarnir fái samtals 182 milljóna viðbótar­ greiðslu á fjárlögum næsta árs svo þeir geti mætt kröfum sem gerðar séu til þeirra. Meirihluti fjárlaga­ nefndar hefur þegar lagt til að háskólarnir fái megnið af þeirri upphæð, samtals 133 milljónir króna. Björn gagnrýnir að lagt sé til að koma á nýjum garðyrkjuskóla á Flúðum eða Reykholti í Biskups­ tungum til viðbótar við núverandi garðyrkjuskóla Landbúnaðar­ háskólans á Reykjum í Ölfusi sem hafi verið fjársveltur síðustu ár. Hugmyndirnar hafi aldrei verið ræddar innan starfshópsins né heldur við stjórnendur skólans á öðrum vettvangi. „Við áttum okkur ekki á hvað formennirnir eru að hugsa. Þetta er bara ekki unnin tillaga að neinu leyti. Eins og sakir standa með okkar garðyrkjuskóla núna þá er hann mjög illa settur með ástand bygginga og annað,“ segir Björn. Formenn nefndarinnar voru Ásmundur Einar Daðason, þing­ maður Framsóknarflokksins, og Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. – ih Rektorar andvígir tillögum um samstarf Samfélag „Okkar hugmynd gengur út á það að byggja nýtt hús í Hamra­ borginni sem yrði ráðhús bæjarins. Hluti þess yrði þó væntanlega leigður undir aðra starfsemi, enda húsið stærra en þörf er á undir bæjarskrif­ stofur,“ segir Orri Árnason, arkitekt á arkitektastofunni Zeppelin. Tillöguna að uppbyggingu mið­ bæjar Kópavogs hefur Zeppelin unnið ásamt nokkrum fjárfestum. Vinnan var unnin í framhaldi af aug­ lýsingu Kópavogsbæjar um sölu á skrifstofum bæjarins og þróun mið­ bæjarsvæðisins. Starfshópur um húsnæðismál bæjarskrifstofu Kópavogs hefur ekki komist að samkomulagi um fram­ tíðarlausn og er klofinn í afstöðu sinni. Meðlimir hópsins geta ekki sammælst um hvort flytja eigi skrif­ stofur í annan hvorn af turnunum tveimur við Smáralind eða ráðast í endurbætur á núverandi húsnæði. „Ráðhúsið tæki mið af boga­ dregnum húsum í næsta umhverfi og auðvitað einnig af Kópavogskirkju, kennileiti bæjarins. Þjónustubygging sem myndi teygja sig út frá ráðhús­ inu og yfir á brúna yfir Kópavogsgjá myndi hýsa verslanir og veitingastaði og mynda skjól fyrir vindum, um leið og hún myndar ráðhústorg, ásamt tveimur byggingum sem standa sín hvorum megin brúarinnar,“ segir Orri og bætir við að á ráðhústorginu yrðu veitingastaðir og verslanir. Fjórar tillögur um nýjar bæjarskrif­ stofur bárust Kópavogsbæ eftir að auglýst var eftir þeim. Að sögn Orra virðist sem fjórða tillagan, tillaga Zeppelin, hafi dottið út af borðinu. „Tillöguna kynntum við á fundi þar sem einungis mættu tveir embættis­ menn fyrir hönd bæjarins,“ segir hann. Að sögn Orra eiga bæjarskrifstof­ urnar heima í ráðhúsi í miðbæ Kópa­ vogs, enda styrki slíkt fyrirkomulag allan brag og bæjarvitund. „Það vita allir að miðbær Kópavogs er í Hamraborginni  og við viljum halda skrifstofunum á svæðinu en þróa og fegra það í leiðinni. Öllum breytingum fylgja tækifæri og er umrætt svæði í slæmu ásigkomu­ lagi. Menn hafa lengi haft hugann við það að þarna verði flottur miðbær og lagt í það ómælt fjármagn. Í því sam­ bandi er sjálfgefið að nefna yfirbygg­ ingu sjálfrar gjárinnar, Gerðarsafn og Salinn. Okkar hugmynd er liður í því að styrkja enn frekar við þá uppbygg­ ingu,“ segir Orri Árnason. nadine@frettabladid.is Ráðhús Kópavogs verði í miðbænum Arkitektastofan Zeppelin í samvinnu við bygginga- og þróunarfélagið Mannverk lagði fram tillögu á dögunum að nýju ráðhúsi í Hamraborg í Kópavogi. Einn arkitektanna vill að bærinn gefi tillögunni meiri gaum. Hún styrki enn frekar uppbyggingu miðbæjarins. Tillöguna að uppbyggingu miðbæjar Kópavogs hefur Zeppelin unnið ásamt nokkrum fjárfestum. MYND/ZEPPELIN Vinnan var unnin í framhaldi af auglýsingu Kópavogsbæjar um sölu á skrifstofum bæjarins og þróun miðbæjarsvæðisins. MYND/ZEPPELIN Samkvæmt tillögu Zeppelin væri þjónustubygging á svæðinu sem myndi teygja sig út frá ráðhúsinu og yfir á brúna yfir Kópa- vogsgjá og myndi hýsa verslanir og veitingastaði og mynda skjól fyrir vindum. Um leið myndi hún mynda ráðhústorg ásamt tveimur byggingum sem standa sín hvorum megin brúarinnar. MYND/ZEPPELIN Í skýrslu starfshóps er rekstur nemendagarða sagður ósjálfbær miðað við nú- verandi skuldastöðu. fréTTabLaðIð/PjETUr Tillöguna kynntum við á fundi þar sem einungis mættu tveir embættis menn fyrir hönd bæjarins. Orri Árnason, arki- tekt hjá Zeppelin Við áttum okkur ekki á hvað for- mennirnir eru að hugsa. Þetta er bara ekki unnin tillaga að neinu leyti. Björn Þorsteinsson, rektor Landbúnað- arháskólans 2 1 . d e S e m b e r 2 0 1 5 m á n U d a g U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 C 0 -B B D 8 1 7 C 0 -B A 9 C 1 7 C 0 -B 9 6 0 1 7 C 0 -B 8 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.