Fréttablaðið - 21.12.2015, Qupperneq 19
B 180 árgerð 2013, ekinn 38 þús. km,
sjálfskiptur, dísil, 109 hö.
Bakkmyndavél, árekstrarvari, krómpakki, hiti í framsætum,
16" álfelgur, inniljósapakki, sætisþægindapakki o.fl.
Verð 4.490.000 kr.
Afb./mán. 42.200 kr.*
Flug fyrir 2 með öllum notuðum Mercedes-Benz
Mercedes-Benz B–Class nýtur mikilla vinsælda, enda framúrskarandi
kostur. Öllum notuðum B-Class fylgja vetrardekk og þeir hafa
staðist þjónustuskoðun fyrir veturinn.
Að auki fylgir flug fyrir tvo með WOW Air öllum notuðum
Mercedes-Benz í eigu Öskju í desember. Tilboðið gildir fyrir
bifreiðar að verðmæti 1,5 milljónir eða meira.
*Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25%
og árleg hlutfallstala kostnaðar 11,06%
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-2
3
6
1
Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • www.notadir.is.
Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16.
Flug fyrir 2 til Kaupmannahafnar,
Berlínar, London eða Dublin.
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag Sú var tíð að á Íslandi ríkti trú-ræði. Kallaveldi: þeir ríktu yfir fólkinu hver af öðrum, kall af
kalli, koll af kolli. Efst trónaði guð
almáttugur en í neðra sat skrattinn
um sálirnar, ríkti yfir hvatasviðinu
og speglaði uppreisnargirnina.
Hin lúthersk-evangelíska kirkja
hafði um aldir einkarétt á prentverki
í landinu. Það jafngildir því að ráða
yfir öllum fjölmiðlum og stjórna
inter netinu nú á dögum. Prestar
höfðu hönd í bagga með lestrar-
kennslu og uppfræðslu barna. Börnin
lærðu að lesa á kverið sem var sam-
safn af guðsorðatextum; fermingin
var svo nokkurs konar próf í lestri
og þekkingu þar sem allt snerist um
Biblíufræði; stæðist maður ferming-
una var maður útskrifaður í guðsótta.
Mestöll þekkingarmiðlun átti sér
um aldir stað gegnum kirkjuna sem
miðlaði fastmótaðri heimsmynd
sinni. En um leið bundu lærðir menn
forna og heiðna visku í flókið rím
og eddumennt sem kirkjunni tókst
aldrei að ná tökum á.
„Ó syndin arga …“
Trúin gegnsýrði daglegt líf. Fólk fór
með bænir þegar það fór á fætur,
klæddi sig, mataðist, gekk til verka
sinna, tók á sig náðir; sjófarendur
fóru með sjóferðarbæn, sláttumenn
sláttubæn, alls staðar var guð hafður
með í ráðum.
Lífið var samfellt hreinsunarstarf:
innrætingin snerist um eilífa og
óafmáanlega sök; það var saknæmt
að vera til. Maðurinn fæddist synd-
ugur vegna erfðasyndarinnar og átti
öllum stundum að bæta fyrir það
frumbrot sitt að hafa etið af skiln-
ingstré góðs og ills. Reglulega fór
fram húslestur þar sem húsbóndinn
las úr predikunum sem biskupar
höfðu sérstaklega samið fyrir slík
tilefni. Félagslíf fólks utan heimilis
fór líka að mestu fram á forsendum
kirkjunnar – við messur á sunnu-
dögum og stórhátíðum. Sálmar
voru sungnir og lesnir. Kirkjan og
trúin umlukti allt. Yrði einhverjum
á að taka aðra trú eða jafnvel boða
hana – eins og Eiríkur frá Brúnum
mátti reyna svo seint sem á seinni
hluta 19. aldar – sætti viðkomandi
útskúfun og kárínum af hendi yfir-
valda.
Hræðslan var grunnkennd til-
verunnar. Orð eins og „guðsótti“ og
„guðhræðsla“ þóttu lýsa æskilegu
hugarástandi. Þetta var ósveigjan-
leg bókstafstrú og það var hamrað
á henni. Sannleikurinn var einn
og ótvíræður. Sá sem féllst á hann
var hólpinn – ef ekki varstu glötuð
sál. Þetta var trúræði. Samt þreifst
til hliðar við rétttrúnaðinn trú á
stokka og steina, huldufólk, tröll,
sjávarvættir, skrýmsli á borð við
Þorgeirsbola sem ég er enn að bíða
eftir fyrstu hryllingsmyndinni um.
Hið óstýriláta og óhlýðna hugarflug
finnur sér alltaf farveg.
Við lifum nú í sekúlaríseruðu
samfélagi. Kirkjan breyttist smám
saman, ný guðfræði leit dagsins
ljós, prestar tóku að leggja út af
orði Biblíunnar á nýjan hátt, leggja
áherslu á kærleika fremur en heift,
fyrirgefningu fremur en dóm. Efinn
á sér sinn stað, spurningarmerkinu
var hleypt inn í frásögnina. Þetta er
opinn texti en ekki lengur lokaður.
Kirkjan hefur nú allt aðra nær-
veru í samfélaginu en forðum tíð;
prestar líta almennt á sig sem þjóna
á vegum guðs fremur en herra yfir
sálarlífi alþýðufólks. Kirkjan er
samfélag, vettvangur fyrir samveru-
stundir á trúarlegum grunni í fremur
víðum skilningi. Þar er unnið líknar-
starf, reynt að styðja og styrkja,
líkna og hugga fremur en að hræða,
dæma og kúga til hlýðni.
Kirkjan á samt þessa sögu. Og
sagan kennir okkur hversu mikils-
vert það er fyrir okkur að búa í opnu
samfélagi þar sem við tökumst á
og ræðum saman um hugmyndir
og sannleika en fáum hann ekki
skenktan að ofan eins og hvern
annan lýsisskammt í skeið.
Boð og afboð
Trúræðistíminn er ekki rifjaður upp
til að draga fram hversu rangt hug-
myndakerfi kristin trú sé og að við
eigum að afneita henni og fordæma
hverja þá manneskju sem trúir því
að Kristur hafi fæðst og lifað og dáið
til þess að hver sá sem á hann trúir
öðlist eilíft líf – og hvað þá hitt að
rangt sé að elska drottin guð sinn
af öllu hjarta og náunga sinn eins
og sjálfan sig. Ógnin felst í hinu:
einokun hugmyndanna, innrætingu
lokaðs hugmyndakerfis; hvort sem
það kerfi er kennt við vísindi, þjóð-
félagsskipan eins og sósíalisma eða
kapítalisma; upphafningu þjóðernis;
trúarbrögð eins og kristni, íslam eða
gyðingdóm. Ógnin kemur frá bók-
stafstrúarmönnum hvers kyns hug-
myndakerfa sem túlka bókstafinn
einstrengingslega til að öðlast vald
yfir öðru fólki. Okkur á að standa
stuggur af þeim sem aldrei skjátlast
miklu fremur en hinum sveimandi
huga leitandi sálar sem vill finna sér
stað í lífsundrinu.
Og svo koma jólin. Við erum krist-
in og ókristin, heiðin og hindúar,
búddistar, múslimar, andatrúar eða
andtrúar, eða fólk sem einsetur sér
að trúa ótal ósennilegum hlutum
bara til að gefa lífinu lit. Öll fögnum
við ljósinu, af sömu þörf en með
ólíkar sögur á vörum. Það er gott.
Við eigum að fara varlega í að boða
trú – og afboða hana. Viss öfl nærast
á kúltúrstríðum og reyna að magna
sig og völd sín með því að beina póli-
tík í þann farveg fremur en að leyfa
henni að snúast um skiptingu gæða.
En við höldum sem sé jól. Það
gerum við til að fagna sólhvörfum.
Sagan um barnið í jötunni fangar á
fagran hátt hvernig lífsaflið sigrar
ævinlega, hversu meinvill sem við
liggjum í myrkrunum um vetrar
miðja nótt.
Og svo koma jólin
Við eigum að fara varlega í að
boða trú – og afboða hana. Viss
öfl nærast á kúltúrstríðum og
reyna að magna sig og völd sín
með því að beina pólitík í þann
farveg fremur en að leyfa henni
að snúast um skiptingu gæða.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19M Á n u d a g u R 2 1 . d e s e M B e R 2 0 1 5
2
0
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:2
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
C
0
-9
E
3
8
1
7
C
0
-9
C
F
C
1
7
C
0
-9
B
C
0
1
7
C
0
-9
A
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K