Fréttablaðið - 21.12.2015, Page 19

Fréttablaðið - 21.12.2015, Page 19
B 180 árgerð 2013, ekinn 38 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 109 hö. Bakkmyndavél, árekstrarvari, krómpakki, hiti í framsætum, 16" álfelgur, inniljósapakki, sætisþægindapakki o.fl. Verð 4.490.000 kr. Afb./mán. 42.200 kr.* Flug fyrir 2 með öllum notuðum Mercedes-Benz Mercedes-Benz B–Class nýtur mikilla vinsælda, enda framúrskarandi kostur. Öllum notuðum B-Class fylgja vetrardekk og þeir hafa staðist þjónustuskoðun fyrir veturinn. Að auki fylgir flug fyrir tvo með WOW Air öllum notuðum Mercedes-Benz í eigu Öskju í desember. Tilboðið gildir fyrir bifreiðar að verðmæti 1,5 milljónir eða meira. *Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25% og árleg hlutfallstala kostnaðar 11,06% H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 5 -2 3 6 1 Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • www.notadir.is. Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16. Flug fyrir 2 til Kaupmannahafnar, Berlínar, London eða Dublin. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Sú var tíð að á Íslandi ríkti trú-ræði. Kallaveldi: þeir ríktu yfir fólkinu hver af öðrum, kall af kalli, koll af kolli. Efst trónaði guð almáttugur en í neðra sat skrattinn um sálirnar, ríkti yfir hvatasviðinu og speglaði uppreisnargirnina. Hin lúthersk-evangelíska kirkja hafði um aldir einkarétt á prentverki í landinu. Það jafngildir því að ráða yfir öllum fjölmiðlum og stjórna inter netinu nú á dögum. Prestar höfðu hönd í bagga með lestrar- kennslu og uppfræðslu barna. Börnin lærðu að lesa á kverið sem var sam- safn af guðsorðatextum; fermingin var svo nokkurs konar próf í lestri og þekkingu þar sem allt snerist um Biblíufræði; stæðist maður ferming- una var maður útskrifaður í guðsótta. Mestöll þekkingarmiðlun átti sér um aldir stað gegnum kirkjuna sem miðlaði fastmótaðri heimsmynd sinni. En um leið bundu lærðir menn forna og heiðna visku í flókið rím og eddumennt sem kirkjunni tókst aldrei að ná tökum á. „Ó syndin arga …“ Trúin gegnsýrði daglegt líf. Fólk fór með bænir þegar það fór á fætur, klæddi sig, mataðist, gekk til verka sinna, tók á sig náðir; sjófarendur fóru með sjóferðarbæn, sláttumenn sláttubæn, alls staðar var guð hafður með í ráðum. Lífið var samfellt hreinsunarstarf: innrætingin snerist um eilífa og óafmáanlega sök; það var saknæmt að vera til. Maðurinn fæddist synd- ugur vegna erfðasyndarinnar og átti öllum stundum að bæta fyrir það frumbrot sitt að hafa etið af skiln- ingstré góðs og ills. Reglulega fór fram húslestur þar sem húsbóndinn las úr predikunum sem biskupar höfðu sérstaklega samið fyrir slík tilefni. Félagslíf fólks utan heimilis fór líka að mestu fram á forsendum kirkjunnar – við messur á sunnu- dögum og stórhátíðum. Sálmar voru sungnir og lesnir. Kirkjan og trúin umlukti allt. Yrði einhverjum á að taka aðra trú eða jafnvel boða hana – eins og Eiríkur frá Brúnum mátti reyna svo seint sem á seinni hluta 19. aldar – sætti viðkomandi útskúfun og kárínum af hendi yfir- valda. Hræðslan var grunnkennd til- verunnar. Orð eins og „guðsótti“ og „guðhræðsla“ þóttu lýsa æskilegu hugarástandi. Þetta var ósveigjan- leg bókstafstrú og það var hamrað á henni. Sannleikurinn var einn og ótvíræður. Sá sem féllst á hann var hólpinn – ef ekki varstu glötuð sál. Þetta var trúræði. Samt þreifst til hliðar við rétttrúnaðinn trú á stokka og steina, huldufólk, tröll, sjávarvættir, skrýmsli á borð við Þorgeirsbola sem ég er enn að bíða eftir fyrstu hryllingsmyndinni um. Hið óstýriláta og óhlýðna hugarflug finnur sér alltaf farveg. Við lifum nú í sekúlaríseruðu samfélagi. Kirkjan breyttist smám saman, ný guðfræði leit dagsins ljós, prestar tóku að leggja út af orði Biblíunnar á nýjan hátt, leggja áherslu á kærleika fremur en heift, fyrirgefningu fremur en dóm. Efinn á sér sinn stað, spurningarmerkinu var hleypt inn í frásögnina. Þetta er opinn texti en ekki lengur lokaður. Kirkjan hefur nú allt aðra nær- veru í samfélaginu en forðum tíð; prestar líta almennt á sig sem þjóna á vegum guðs fremur en herra yfir sálarlífi alþýðufólks. Kirkjan er samfélag, vettvangur fyrir samveru- stundir á trúarlegum grunni í fremur víðum skilningi. Þar er unnið líknar- starf, reynt að styðja og styrkja, líkna og hugga fremur en að hræða, dæma og kúga til hlýðni. Kirkjan á samt þessa sögu. Og sagan kennir okkur hversu mikils- vert það er fyrir okkur að búa í opnu samfélagi þar sem við tökumst á og ræðum saman um hugmyndir og sannleika en fáum hann ekki skenktan að ofan eins og hvern annan lýsisskammt í skeið. Boð og afboð Trúræðistíminn er ekki rifjaður upp til að draga fram hversu rangt hug- myndakerfi kristin trú sé og að við eigum að afneita henni og fordæma hverja þá manneskju sem trúir því að Kristur hafi fæðst og lifað og dáið til þess að hver sá sem á hann trúir öðlist eilíft líf – og hvað þá hitt að rangt sé að elska drottin guð sinn af öllu hjarta og náunga sinn eins og sjálfan sig. Ógnin felst í hinu: einokun hugmyndanna, innrætingu lokaðs hugmyndakerfis; hvort sem það kerfi er kennt við vísindi, þjóð- félagsskipan eins og sósíalisma eða kapítalisma; upphafningu þjóðernis; trúarbrögð eins og kristni, íslam eða gyðingdóm. Ógnin kemur frá bók- stafstrúarmönnum hvers kyns hug- myndakerfa sem túlka bókstafinn einstrengingslega til að öðlast vald yfir öðru fólki. Okkur á að standa stuggur af þeim sem aldrei skjátlast miklu fremur en hinum sveimandi huga leitandi sálar sem vill finna sér stað í lífsundrinu. Og svo koma jólin. Við erum krist- in og ókristin, heiðin og hindúar, búddistar, múslimar, andatrúar eða andtrúar, eða fólk sem einsetur sér að trúa ótal ósennilegum hlutum bara til að gefa lífinu lit. Öll fögnum við ljósinu, af sömu þörf en með ólíkar sögur á vörum. Það er gott. Við eigum að fara varlega í að boða trú – og afboða hana. Viss öfl nærast á kúltúrstríðum og reyna að magna sig og völd sín með því að beina póli- tík í þann farveg fremur en að leyfa henni að snúast um skiptingu gæða. En við höldum sem sé jól. Það gerum við til að fagna sólhvörfum. Sagan um barnið í jötunni fangar á fagran hátt hvernig lífsaflið sigrar ævinlega, hversu meinvill sem við liggjum í myrkrunum um vetrar miðja nótt. Og svo koma jólin Við eigum að fara varlega í að boða trú – og afboða hana. Viss öfl nærast á kúltúrstríðum og reyna að magna sig og völd sín með því að beina pólitík í þann farveg fremur en að leyfa henni að snúast um skiptingu gæða. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19M Á n u d a g u R 2 1 . d e s e M B e R 2 0 1 5 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 C 0 -9 E 3 8 1 7 C 0 -9 C F C 1 7 C 0 -9 B C 0 1 7 C 0 -9 A 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.