Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 30

Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 30
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmenn aUglýSinga Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439 Ábyrgðar- maðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is  Ghostlamp er ungt íslenskt mark­ aðstorg sem tengir samfélags­ miðlastjörnur við fyrirtæki sem vilja koma sér á framfæri við fylgjendur þeirra, t.d. með því auglýsa vörur sínar eða þjónustu. Stofnandi fyrirtækisins heitir Jón Bragi Gíslason og er 24 ára gamall. Hann segist hafa stofn­ að Ghostlamp til að leysa öll þau ótal vandamál sem auglýsingar í dag glíma við en þær er að sögn hans hægt að gera á miklu betri hátt en hingað til. „Í okkar tilfelli þá tengjum við saman fyrirtæki og samfélagsmiðlastjörnur sem hafa yfir 1.000 fylgjendur á ein­ hverjum samfélagsmiðli, t.d. Face­ book, Twitter eða Insta gram. Þar með hefur hæfileikaríkt fólk þann möguleika að fá borgað fyrir að deila uppáhaldsvörum sínum með fylgjendum sínum á samfélags­ miðlum. Netverslanir færa kaup­ endur og seljendur hverja nær öðrum og við það myndast helling­ ur af spennandi tækifærum. Þessi möguleiki var ekki til staðar áður og breytir í rauninni hvernig við hugsum um netverslanir.“ Fleiri tækifæri Hann útskýrir betur hvernig hug­ myndin virkar. „Segjum að Nike myndi setja inn auglýsingu í Ghostlamp appið og óska eftir því að einhver samfélagsmiðlastjarna taki mynd af sér í flík frá Nike og setji á Instagram. Þegar einhver samfélagsmiðlastjarna er svo búin að samþykkja þátttöku hefur hún ákveðinn tíma til að taka myndina og birta hana á miðlinum. Þegar því er lokið setur hún hlekkinn á myndina í Ghostlamp appið til staðfestingar og fær svo borgað nokkrum dögum seinna. Upphæð greiðslu fer algjörlega eftir því hversu mikið fylgi stjarnan hefur á viðkomandi samfélagsmiðli.“ Þannig fá samfélagsmiðlastjörnur borgað fyrir að auglýsa uppáhalds­ vörur sínar til fylgjenda sinna á skemmtilegan, fallegan og viðeig­ andi hátt að sögn Jóns Braga. „Það eru nefnilega ekki öll fyrirtæki sem hafa efni á að borga einhverj­ um eins og Justin Bieber fyrir að auglýsa fötin sín þó að Calvin Klein geti gert það. Hérna erum við í rauninni að taka eitthvað sem hefur hingað til einungis verið í boði fyrir stór fyrirtæki og gera það aðgengilegra fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.“ Lagði allt undir Varan kom á markað í byrjun þessa árs og viðbrögðin hafa verið hreint út sagt frábær að sögn Jóns Braga. „Við erum að vaxa hratt um þessar mundir. Sambæri­ legar þjónustur eru til nú þegar en flestar eru reyndar ekki eldri en tveggja ára. Samkeppnin hefur ekki verið mikil hingað til en er að aukast enda mjög spennandi vara.“ Í upphafi voru þeir þrír félagar sem stofnuðu fyrirtækið en í dag stendur Jón Bragi einn eftir. Hann hefur verið virkur í frumkvöðla­ samfélaginu hér á landi í tvö ár. „Mér gekk aldrei vel í skóla svo ég hætti og lagði allt undir til að stofna eigið fyrirtæki. Mér finnst menntakerfið eins og það er í dag vera úrelt enda var það smíðað fyrir eldri tíma. Ég hef gaman af því að skapa eitthvað nýtt og ég trúi því að það að stofna fyrir­ tæki sé besta leiðin til þess að læra.“ Sá lærdómur hefur þó ekki verið áfallalaus að hans sögn. „Það hefur verið svakalegur rússíbani að koma fyrirtækinu á þann stað sem það er í dag og gengið á ýmsu. Í dag er Ghostlamp með borgandi viðskiptavini og ég er að vinna með fjárfestum í að loka fjár­ festingarumferð til þess að flýta þróun og vexti. Það eru spennandi hlutir fram undan hjá Ghostlamp í vetur og við stefnum á að kynna spennandi nýjungar á næsta ári.“ gaman að skapa eitthvað nýtt Markaðstorg á borð við Ghostlamp breyta því hvernig við skilgreinum netverslanir. Nú geta samfélagsmiðlastjörnur fengið greitt fyrir að auglýsa vörur fyrirtækja og fá greitt í samræmi við fylgi sitt. Spennandi hlutir eru fram undan hjá Ghostlamp í vetur og spennandi nýjungar verða kynntar á næsta ári. „Þar með hefur hæfileikaríkt fólk þann möguleika að fá borgað fyrir að deila uppá- haldsvörum sínum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum,” segir jón bragi gíslason hjá ghostlamp. mynd/garðar PÉtUrSSOn Pantaðu fyrir 21. desember til að tryggja að pakkinn verði kominn fyrir aðfangadag! Ný og glæsileg vefverslun www.adidas.is Enginn sendingarkostnaður og 25% afsláttur við fyrstu kaup! Skemmtipakkinn 365.is | Sími 1817 FRÁBÆR DAGSKRÁ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Tryggðu þér áskrift á 365.is netVerSlUn Kynningarblað 21. desember 20152 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 C 0 -E D 3 8 1 7 C 0 -E B F C 1 7 C 0 -E A C 0 1 7 C 0 -E 9 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.