Fréttablaðið - 21.12.2015, Blaðsíða 42
Það þarf ekki að vera erfitt að
finna jólagjöf handa kærustunni,
mömmu eða systur. Best er að
horfa til áhugamáls þegar finna
þarf gjöf. Flestar konur vilja föt
í jólagjöf eða fallegan hlut fyrir
heimilið.
Í könnun sem gerð var á meðal
kvenna í Noregi kom fram að flest-
ar óskuðu sér nytsamra hluta.
Svona lítur listinn út:
1) Bók
2) Föt
3) Gjafakort
4) Ferðalag
5) Eitthvað sniðugt fyrir eldhúsið
6) Eitthvað fyrir líkamsræktina
7) Peningar
Það getur verið mjög sniðugt að
skoða netverslanir til að finna hug-
myndir. Þar gæti leynst ýmislegt
sniðugt. Nýlegt áhugamál kvenna
er bakstur og er hægt að fá ýmsa
skemmtilega hluti til að skreyta
kökur. Þá eru margar konur dug-
legar að prjóna um þessar mund-
ir og þess vegna gæti karfa undir
prjónadót komið sér vel hjá þeim.
Ungar konur eru veikar fyrir
fallegum hönnunargripum fyrir
heimilið, en eins og flestir vita þá
hafa vörur frá Kähler slegið í gegn
hér á landi, svo sem Omaggio vas-
inn. Mjúkt og hlýtt sjónvarpsteppi
getur komið sér vel auk þess sem
nú er mikið úrval af þeim í versl-
unum. Handtaska eða skór eru allt-
af á vinsældalista konunnar.
Sé konan matgæðingur er auð-
velt að kaupa fallegan hlut. Falleg
svunta, góð kaffikanna eða sniðug-
ir hlutir sem einfalda matreiðsluna
eru alltaf vel þegnir að ógleymd-
um matreiðslubókum. Karfa með
sælkeravarningi ætti sömuleið-
is að gleðja matgæðinginn. Skart-
gripir eru að sjálfsögðu alltaf vel
þegnir og náttfatnaður sömuleiðis.
Sagt er að karlmenn kaupi dýr-
ari gjafir en konur. Þær ættu því
að fá fallegan hlut frá sínum betri
helmingi. Karlmenn draga það líka
oft fram á síðasta dag að kaupa
handa konunni. Þeir ættu að vera
fyrr á ferðinni og vera með inn-
kaupalista í farangrinum til að
skipuleggja sig.
Norski neytendahagfræðingur-
inn Silje Sandmæ spurði konur á
Facebook hvað þær myndu helst
vilja í jólagjöf. Svörin komu nokk-
uð á óvart.
1) Heimaprjónuð húfa eða sokkar
2) Heimagerð matreiðslubók með
uppskriftum mömmu eða ömmu
3) Árskort í skemmtigarð
4) Heimagerð jólakarfa þar sem
væri bók, jólasælgæti, kerti og te
eða kaffi
5) Gjafakort fyrir barnapössun frá
ömmu og afa
6) Stefnumót á veitingahúsi með
mat frá kærastanum
7) Sælkerakarfa
8) Fjölskylduferðalag
9) Fjölskylduspil
10) Myndaalbúm með eftirminni-
legum fjölskyldumyndum
11) Gjafakort í dekur
Samkvæmt netmiðli danska BT
eru líkur á að Danir eyði meira
í jólagjafakaup þetta árið en í
fyrra. Miðillinn segir að í ár óski
konur sér persónulegra gjafa svo
sem fatnaðar, skópara, ilmvatns
eða snyrtivara. Karlmenn vilja
heldur „harðar gjafir“. Svo er að
minnsta kosti niðurstaða skoðana-
könnunar sem PriceRunner gerði
á meðal 4.500 Dana. Fyrirtækið
hefur rannsakað neysluvenjur um
jól í ellefu ár.
Samkvæmt könnuninni vilja
konur helst fá gjafakort í versl-
unarmiðstöð í jólagjöf. Þær vilja
sjálfar velja jólagjöfina. Í næsta
sæti er ilmvatn frá Marc Jacobs og
síðan koma skartgripir. Þar fyrir
neðan eru hin klassísku handgerðu
trédýr frá Kay Bojesen.
Jólagjöfin þarf ekki að vera flókin
Það þarf ekki að vera erfitt að finna jólagjöf handa kærustunni, mömmu eða systur. Best er að horfa til áhugamáls þegar finna þarf gjöf.
Flestar konur vilja föt í jólagjöf eða fallegan hlut fyrir heimilið.
Flestar konur vilja persónulega jólagjöf. MYND/GETTY
NETvErsluN Kynningarblað
21. desember 20156
2
0
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:2
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
C
0
-D
E
6
8
1
7
C
0
-D
D
2
C
1
7
C
0
-D
B
F
0
1
7
C
0
-D
A
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K