Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 59
Jólatónleikar Hymnodiu frá Akureyri
fara fram í Akureyrarkirkju annað
kvöld, þriðjudaginn 22. desember,
en þeir hafa ávallt verið gríðarlega
vel sóttir. Á þeim er sköpuð kyrr
lát stemning, slökkt er á raflýsingu
kirkjunnar, ekkert er talað og engar
þagnir eru á milli laga. Tónleikarnir
mynda því rúmlega klukkustundar
langa heild, þar sem tónleikagestir
geta látið þreytu líða úr sér, notið
kyrrðar og samveru rétt fyrir jólin.
Eins og venjulega fær Hymnodia
góðan gest á tónleikana. Að þessu
sinni er það tenórinn Jón Þorsteins
son sem syngur með kórnum. Söng
ferill Jóns er stórglæsilegur, en hann
hefur staðið á óperusviði og í tón
leikasölum í flestum löndum Evr
ópu og í Bandaríkjunum. Við Ríkis
óperuna í Amsterdam söng hann yfir
50 hlutverk. Jón starfar sem
s ö n g ke n n a r i vi ð Tó n l i st a r
háskólann í Utrecht í Hollandi.
Í nóvember sl. kom út geisla
diskur þar sem Jón og Eyþór Ingi,
stjórnandi Hymnodiu, fluttu saman
jóla og áramótasálma.
Hymnodia vill stuðla að nýsköpun
en um leið virða venjur í efnisvali. Á
tónleikunum verða tvö ný lög frum
flutt, Börn Jarðar eftir þá Michael
Jón Clarke og Hannes Sigurðsson
og Jólaljóð eftir þau Gísla Jóhann
Grétarsson og Steinunni P. Haf
stað. Auk þess verða fluttir gamlir
góðir jólasálmar, lög eftir Sigurð
Flosason, ensk jólatónlist, verk eftir
Hafliða Hallgrímsson og að sjálf
sögðu flytur kórinn tvö lög sem
alltaf eru sungin á jólatónleikunum,
Það aldin út er sprungið og Heims
um ból, í sjö radda hátíðarútsetningu.
Eyþór Ingi mun leika á gamalt fót
stigið orgel og önnur hljóðfæri.
Miðaverð er 2000 kr. og er forsala
hafin í Eymundsson, Hafnarstræti. – mg
Jólatónleikar Hymnodiu í Akureyrarkirkju
Hymnodia og Jón Þorsteinsson.
Söngkonurnar Silva og Anna Sóley
hafa haldið saman nokkra tónleika
við góðar undirtektir. Í þetta sinn
spilar Anna Gréta Sigurðardóttir
með þeim á píanó. Spiluð verða
íslensk og erlend jólalög í djas
sútsetningum ásamt vel völdum
standördum. Tónleikarnir verða í
Djúpinu í kvöld kl 20.00 og kostar
1.000 kr inn.
Silva og Anna Sóley stunda báðar
nám við Tónlistarskóla FÍH en Anna
Gréta útskrifaðist frá sama skóla
vorið 2014 og stundar nú nám við
Kungliga Musikhögskolan í Svíþjóð.
Djúpið er hópasalur á neðri hæð á
veitingahúsinu Horninu við Hafnar
stræti í Reykjavík. Veitingahúsið
Hornið opnaði árið 1979 og er enn
í sinni upprunalegu mynd. Hornið
er með ítölskum blæ og var fyrsti
veitingastaðurinn í þessum stíl á
Íslandi. Djúpið var áður þekkt sem
djassklúbbur þar sem fram komu
ýmsir þekktustu djassleikarar á
Íslandi. Djassvakning hélt tónleika,
spunameistarar frá Evrópu komu
fram og Smekkleysukvöld voru
iðulega haldin í Djúpinu svo eitt
hvað sé nefnt. Staðurinn var vin
sæll tónleikastaður vegna þess að
hann þótti minna á stemminguna
sem myndaðist á djassklúbbum
erlendis. – mg
Jóladjass í Djúpinu
Silva og Anna Sóley.
Nokkrir listamenn hafa tekið sig
saman og opnað vinnustofu, gallerý
og búð á Laugavegi 33, efri hæð, sem
kallast Gallery Gallera. Hugleikur
Dagsson, Örn Tönsberg, Óli Gumm
og Bobby Breiðholt sýna þar verk
og starfa þar með einum eða öðrum
hætti. Gallerýið stefnir á að gefa
ungum listamönnum tækifæri til
þess að sýna verk sín með reglulegu
millibili og er fyrsti viðburðurinn
því tengdur XMart eða jólamark
aður í tilefni jólanna. Listamennirnir
sem eru með verk á markaðnum eru:
Sölvi Dúnn, Viktor Weisshappel,
Thordis Erla Zoega, Helgi Einars
son, Óli Gumm, Örn Tönsberg, Hug
leikur Dagsson, Kristín Morthens og
Bobby Breiðholt.
Listamennirnir Óli Gumm og
Örn Tönsberg sáu um undirbúning
og þeir hvetja fólk til þess að koma,
skoða spennandi listaverk og jafn
vel fjárfesta í spennandi jólagjöf. -mg
X-Mart í Gallery
Gallera
X-mart, jólamarkaður listamanna.
M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 39M Á n U D A g U R 2 1 . D e s e M B e R 2 0 1 5
2
0
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:2
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
C
0
-C
F
9
8
1
7
C
0
-C
E
5
C
1
7
C
0
-C
D
2
0
1
7
C
0
-C
B
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K