Fréttablaðið - 21.12.2015, Blaðsíða 64
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r
Síðumúla 16 | Opið mán - fös 8:30 - 17:00 | S: 580 3900
Falleg glös gleðja augað
Gigi Hadid
Ofurfyrirsætan Gigi Hadid skaust svo sannarlega upp á stjörnu-
himininn á árinu. Ekki nóg með það að hún hafi landað tísku-
sýningu hjá mörgum af flottustu tískuhúsum heims, þá hefur
hún líka setið fyrir á forsíðum fjölmargra tímarita, verið andlit
nokkurra tískuhúsa í auglýsingum og er með yfir 10 milljónir
fylgjenda á Instagram. Hún hefur verið mikið í sviðsljósinu
varðandi sitt einkalíf en bara á þessu ári hefur hún verið á
föstu með Cody Simpson, Joe Jonas og nú er talið að hún og
fyrrverandi One Direction meðlimurinn Zayn Malik séu að
stinga saman nefjum. Hún er besta vinkona Kendall Jenner en
þær gengu saman í Victoria‘s Secret tískusýningunni í fyrsta sinn.
Það er óhætt að segja að þetta ár hafi verið árið hennar Gigi.
Stjörnurnar
sem skinu skært
2015 Það var mikið af fersku og ungu fólki sem steig fram á sjónarsviðið á árinu og náði að stela senunni.
Brooklyn
Beckham
Sonur Victoriu og David Beckham hefur notið
gríðarlega mikilla vinsælda á þessu ári eftir að
hann byrjaði að vera virkur á Instagram. Hann er
með 5,4 milljónir fylgjenda þar og ljós-
myndarar mynda hann í bak og fyrir
þegar hann er á ferðinni. Hann hefur
verið að sitja fyrir í
auglýsingum fyrir
tískumerki ásamt
því að hafa verið
á forsíðu Teen
Vogue í sumar.
Daisy Ridley
Stjarna Daisy Ridley skín ansi skært um þessar mundir en hún fer
með aðalhlutverkið í nýju Star Wars myndinni. Hlutverkið er það
fyrsta sem Daisy tekur að sér í kvikmynd en það er afar stór biti
að kyngja. Frammistaða hennar í myndinni hefur fengið frábæra
dóma og er því ljóst að hún verði stórt nafn í Hollywood í fram-
tíðinni. Hún ætlar sér þó að hefja háskólanám strax eftir áramót ef
svo ólíklega vill til að leiklistardraumurinn dettur upp fyrir.
Dakota
Johnson
Aðalleikkona 50 Shades of Grey
hefur heldur betur slegið í gegn á
árinu. Þrátt fyrir að kvikmyndin
hafi ekki fengið góða dóma þá hefur
stjarna Dakotu skinið skært á árinu og
þá sérstaklega fyrir flottan klæðaburð
hennar. Hún var á öllum helstu tísku-
sýningum á árinu og sat fyrir í auglýs-
ingum og á forsíðum glanstímarita.
Lily-Rose Depp
Dóttir Johnny Depp og Vanessu Paradis hefur verið að gera
það gott á árinu. Í apríl á þessu sat hún fyrir í áströlsku
tímariti og eftir það vissu allir hver hún var. Fréttastofa E!
Entertainment sýndi frá tökunni og eftir það var Lily-Rose
fengin til þess að sitja fyrir í auglýsingum fyrir Chanel, sem
verður að teljast góður árangur miðað við að vera aðeins
16 ára. Hún hefur einnig verið að reyna fyrir sér í leik-
listinni. Faðir hennar hefur lýst yfir áhyggjum sínum
yfir því hversu hratt Lily-Rose sé að fullorðnast enda
er hún orðin eftirsótt fyrirsæta um allan heim.
Fetty Wap
Hinn 24 ára rappari Fetty Wap skaust rækilega upp á stjörnuhimininn á árinu með
lagi sínu Trap Queen sem er óhætt að segja að hafi verið lag sumarsins. Hann gaf
lagið að vísu út árið 2014 en það varð ekki vinsælt fyrr en um mitt ár 2015 og eftir
það hefur hann verið að gefa út hvern smellinn á fætur öðrum. Hann hefur einnig
komið fram í fjölmörgum lögum með öðrum tónlistarmönnum á borð við Ty
Dolla Sign og Drake. Hann var tilnefndur til tvennra Grammy verðlauna og er
ekki hægt að eiga von á öðru en að Fetty verð einn af þeim stærstu í bransanum
á næstu árum.
Ruby Rose
Það greip um sig æði um allan heim fyrir Ruby
Rose sem sló í gegn í Orange is the New Black
þáttunum í sumar. Konum og körlum þótti hún
ómótstæðileg og er óhætt að segja að hún hafi
orðið alheimsfræg á einni nóttu. Fyrir utan leiklist-
ina þá er hún líka vinsæll plötusnúður. Hún
sat fyrir í fjölmörgum tímaritum á
árinu ásamt því að vera
kynnir evrópsku MTV
verðlaunahátíðarinnar.
44 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
Lífið
2
0
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:2
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
C
0
-E
3
5
8
1
7
C
0
-E
2
1
C
1
7
C
0
-E
0
E
0
1
7
C
0
-D
F
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K