Fréttablaðið - 20.05.2015, Qupperneq 2
20. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
ÍRLAND Karl Bretaprins hitti Gerry Adams, formann Sinn Fein, á
Írlandi í gær en Karl er í fjögurra daga heimsókn þar í landi.
Handaband þeirra í gær er sögulegt fyrir þær sakir að Sinn Fein
var stjórnmálaarmur IRA, skæruliðasveita sem börðust fyrir frelsi
Írlands forðum daga. Árið 1979 lést Mountbatten lávarður, frændi
Karls, í sprengjuárás IRA og hefur prinsinn aldrei fyrirgefið verkn-
aðinn, ekki síst ekki vegna ummæla Adams um að Mountbatten hafi
verið sama um að deyja því hann hefði sjálfur drepið svo marga. - þea
Karl Bretaprins hitti Gerry Adams, formann Sinn Fein:
Sögulegt handaband á Írlandi
HANDABAND Karl Bretaprins og Gerry Adams tókust í hendur á Írlandi í gær en
lengi hefur andað köldu á milli þeirra. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐUR
Sunnanstrekkingur og væta víða um land,
en þó er áfram útlit fyrir sólarglennur og
vorlegt veður norðaustanlands. Hiti þar
gæti farið yfir 10 gráðurnar, en syðra er
útlit fyrir fjögurra til níu stiga hita.
9°
7°
8°
6°
9
7
7
7
5
SJÁ SÍÐU 16
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
LMC hjólhýsiG
æði og
glæsileik
i
4°
SKIPULAGSMÁL Íbúar við Vatns-
stíg eru ósáttir við Sumargötur í
Reykjavík. „Þetta er í raun versta
gatan til að beina umferð niður
upp á mengun að gera því hún
gengur ekki þvert á Laugaveg og
þarna myndast alltaf teppa þegar
bílar þurfa að beygja niður af
Laugavegi,“ segir Valgerður Árna-
dóttir íbúi á Vatnsstíg.
Við opnun Sumargatna er
Laugavegi lokað fyrir bílaumferð
við Vatnsstíg og umferð beint þar
niður. Íbúar segja þetta skapa
mikil óþægindi þar sem umferð
sé mun meiri en vanalega og það
valdi miklum hávaða og meng-
un. „Um helgina var lokað við
Vatnsstíg á föstudagskvöld fram
á morgun, þá var opnað meðan
búðir voru opnar til klukkan 17,
svo var lokað aftur og þá var í
raun bara verið að beina djamm-
rúntinum niður okkar litlu götu.
Það voru svo mikil læti, öskur
og flaut að við gátum ekki sofið,“
segir Valgerður.
Hún segir íbúa hafa kvartað
ítrekað við borgaryfirvöld yfir
þessu fyrirkomulagi. Valgerður
segir íbúa vera hlynnta Lauga-
vegslokun en vilja að Laugaveg-
urinn sé allur lokaður eða verði
lokað við Barónsstíg þar sem sé
tvístefna, ekki einstefna líkt og
á Vatnsstíg. „Við höfum kvartað
en þeir gera aldrei neitt í þessu.
Við þurfum að þola stanslausan
hávaða og mengun. Ég get ekki
haft opna glugga hjá mér á heit-
asta tímanum. Borgarstjórn er
að reka síðustu íbúana úr hverf-
inu, maður býður ekki börnunum
sínum upp á þetta. Okkur sem
elskum miðbæinn finnst við vera
tilneydd til þess að flytja,“ segir
Valgerður. Hún hefur sett af stað
undirskriftalista þar sem þessu
er mótmælt. Tæplega 250 manns
hafa skrifað undir þar sem borg-
arstjórn er hvött til þess að loka
Laugaveginum öllum og í stað
þess bæta aðgengi fyrir fatlaða
við Laugaveginn.
Hjálmar Sveinsson, varafor-
maður umhverfis- og skipulags-
ráðs, segir vel koma til greina að
endurskoða lokunina við Vatnsstíg.
Það verði hins vegar ekki gert fyrr
en í haust.
„Það hefur oft verið rætt um að
það væri að sumu leyti eðlilegra að
hafa þetta við Frakkastíg. Það er
hins vegar svolítið flókið þar sem
á því bili eru nokkrar innkeyrslur
þar sem eru meðal annars íbúðar-
hús í bakhúsum. Þeir sem þarna
búa þurfa að komast leiðar sinnar
og það er ein ástæða þess að Sum-
argatan hefur byrjað við Vatnsstíg.
En það er ekkert því til fyrirstöðu
að skoða þetta í september þegar
þessu tímabili lýkur,“ segir hann.
- vh
Sumargötur valda
ónæði á Vatnsstíg
Íbúar við Vatnsstíg eru ósáttir við lokun umferðar við Laugaveg sé við götuna þar
sem öll umferð beinist þar niður. Varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs segir
til greina koma að endurskoða lokunina en það verði ekki gert fyrr en í haust.
VATNSSTÍGUR Mikil umferð er um götuna vegna lokunar á Laugavegi. Veldur þetta
íbúum miklu ónæði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VALGERÐUR
ÁRNADÓTTIR
HJÁLMAR
SVEINSSON
ANDLÁT Halldór Ásgrímsson, fyrr-
verandi forsætisráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins, er
látinn 67 ára að aldri. Hann lést á
Landspítalanum á mánudag eftir að
hafa fengið hjartaáfall síðastliðinn
föstudag.
Halldór lauk Samvinnuskólaprófi
árið 1965 og varð löggiltur endur-
skoðandi árið 1970. Á árunum 1971
til 1973 stundaði hann framhalds-
nám í Björgvin og Kaupmannahöfn.
Hann var fyrst kjörinn á þing árið
1974 og lét af embætti árið 2006, þá
formaður Framsóknarflokksins
og forsætisráðherra. Halldór
varð varaformaður Fram-
sóknarflokksins árið
1980 og formaður frá
1994 til 2006. Halldór
sat sem ráðherra frá
1983 til ársins 1991 og
aftur frá 1995 til loka
ferils síns á þingi,
árið 2006.
Davíð Oddsson,
fyrrverandi for-
sætisráðherra,
segir orðheldni Halldórs og
traust hafa verið sterkan eigin-
leika. „Þú gast treyst hverju orði
sem hann sagði. Það þurfti
ekki nema handtakið, þá ríg-
hélt það til áraraða. Það er
eiginleiki í stjórnmálum sem
maður metur mest, þegar
maður er í þeim slag.“
Halldór lætur eftir sig
eiginkonu, Sigurjónu Sigurð-
ardóttur, og þrjár uppkomn-
ar dætur, auk barnabarna og
barnabarnabarna. - sa
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er látinn:
Sat á þingi í þrjátíu og tvö ár
SVÍÞJÓÐ Fyrstu þrjá mánuði þessa
árs var 3.924 réttarhöldum í Sví-
þjóð frestað þar sem ákærðu
mættu ekki, eða fjórðungi réttar-
halda.
Í frétt á vef Dagens Nyheter
segir að lög sem sett voru í fyrra-
sumar og heimila dómstólum að
beita refsingum vegna þessa virki
ekki. Árlega kostar frestun réttar-
halda og ný réttarhöld samfélagið
að minnsta kosti 200 milljónir
sænskra króna eða um 3,2 millj-
arða íslenskra króna. - ibs
Ný refsilöggjöf áhrifalaus:
Fjórðungi réttar-
halda frestað
AFGANISTAN Bílsprengja sprakk
utan við hús dómsmálaráðuneytis
Afganistans í gær og varð fimm
manns að bana. Auk þess slösuðust
tugir starfsmanna.
Talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð
á árásinni sem er sú þriðja gegn
starfsmönnum dómskerfis lands-
ins í mánuðinum. Talsmaður
talibana, Zabihulla Mujahid, segir
dómskerfið allt tól sem afganska
ríkisstjórnin noti undir stjórn
Bandaríkjamanna til að brjóta á
föngum, þar á meðal talíbönum.
Árásin í gær var fimmta stóra
árásin í höfuðborginni í maí. - þea
Sprenging í Kabúl:
Bílsprengja
banaði fimm
BANDARÍKIN Barack Obama,
forseti Bandaríkjanna, opnaði
Twitter- aðgang sinn á mánudaginn
eftir sex ár í embætti. Þar með er
Obama orðinn fyrsti maðurinn til
að vera á Twitter samhliða því að
sitja í stól Bandaríkjaforseta.
Bandaríska fréttablaðið Wash-
ington Post varar notendur mið-
ilsins hins vegar við því að tala við
forsetann gegn um Twitter. Leyni-
þjónusta Bandaríkjanna, CIA, sér
nefnilega um að vista hjá sér öll
tíst og skilaboð sem notendur sem
samband hafa við forsetann hafa
nokkurn tímann sent frá sér. - þea
Obama kominn á Twitter:
Leyniþjónustan
vistar öll tíst
NÁTTÚRUVERND Landsnet fagnar úrskurði úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem fyrir-
tækinu er gert að skoða jarðstreng sem valkost við
lagningu Kröflulínu 3, frá Kröfluvirkjun austur að
Fljótsdalsstöð.
Í Fréttatilkynninu Landsnets segir að niður staðan
skýri þær kröfur sem gerðar verði til Skipulagsstofn-
unar og Landsnets við gerð umhverfismats í framtíð-
inni. „Til að eyða óvissu um á hvaða hlutum línuleið-
arinnar skuli meta jarðstrengi er mikilvægt að mati
Landsnets að fyrir liggi stefna stjórnvalda um lagn-
ingu raflína en fyrir Alþingi liggur nú þingsályktunar-
tillaga iðnaðar- og viðskiptaráðherra um stefnu stjórn-
valda um lagningu raflína,“ segir í tilkynningunni.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmda-
stjóri Landverndar, segist einnig fagna úrskurðinum
en telur hann jafnframt hafa fordæmisgildi fyrir frek-
ari vinnu Landsnets.
„Skipulagsstofnun stendur frammi fyrir ákvörðun
um hvort endurmeta eigi umhverfismat fyrir stórar
220kV raflínur, meðal annars frá Blönduvirkjun til
Akureyrar og frá Kröflu að iðnaðarsvæðinu á Bakka við
Húsavík,“ segir Guðmundur Ingi. „Úrskurður nefnd-
arinnar hlýtur að hafa áhrif á allar framtíðarákvarð-
anir Skipulagsstofnunar og þar með talið ákvarðanir
um endurgerð umhverfismats þar sem meðal annars
er komið inn á nauðsyn þess að meta umhverfisáhrif
jarðstrengja til jafns á við loftlínur.“ - sa
JARÐSTRENGUR Landsneti er gert að skoða lagningu jarð-
strengs til jafns við loftlínu hvað varðar Kröflulínu 3. Land-
vernd fagnar úrskurðinum. MYND/LANDSNET
Landsnet og Landvernd eru ánægð með úrskurð nefndar um Kröflulínu 3:
Telja úrskurð fordæmisgefandi
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
8
-4
2
5
C
1
7
D
8
-4
1
2
0
1
7
D
8
-3
F
E
4
1
7
D
8
-3
E
A
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K