Fréttablaðið - 20.05.2015, Side 4
20. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Jón, ertu að spá í að breyta
nafninu í Frostfugl?
„Já, og ég auglýsi eftir plássi í
frystikistum fólks fyrir kjöt sem má
ekki borða fyrr en eftir verkfall.“
Jón Magnús Jónsson er eigandi Ísfugls sem
frystir nú alla kjúklinga sem fyrirtækið slátrar
samkvæmt skilyrði dýralækna fyrir undan-
þágu frá verkfalli þeirra.
LEIÐRÉTT
Í frétt í gær af ákvæði í ráðningarsamn-
ingi nýs sveitarstjóra í Skaftárhreppi
var missagt að hann hefði verið ráðinn
til Mýrdalshrepps.
ALÞINGI Sigrún Magnúsdóttir
umhverfisráðherra segist hafa
lagt ríka áherslu á að farið yrði
í einu og öllu eftir verkferlum
rammaáætlunar. Þess vegna
hefði hún kosið að verkefnis-
stjórn hefði fjallað um virkj-
anakosti í neðrihluta Þjórsár.
Hún sé hins vegar sammála því
að Hvammsvirkjun verði færð
í nýtingarflokk, eins og forveri
hennar, Sigurður Ingi Jóhanns-
son, lagði til.
„Það segir sig sjálft að ég stend
alveg með mínum forvera í því að
ég hefði eflaust gert eins og hann
að setja fram Hvammsvirkjun.
Þá eru, eðli málsins samkvæmt,
hinir kostirnir áfram í verkefna-
stjórninni.“
Sigrún segist hins vegar standa
frammi fyrir orðnum hlut og hún
verði að virða þingræðið. Forseti
hafi úrskurðað tillögu atvinnu-
veganefndar þingtæka og hún
sætti sig að sjálfsögðu við það.
En mun hún styðja tillöguna?
„Við sjáum bara hvernig
atkvæðagreiðslan fer.“
Sigrún segir að hún hafi farið
á fund atvinnuveganefndar í des-
ember, þegar hún var þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins,
þar sem fjallað var um umrædda
virkjanakosti.
„Ég mætti á þann nefndarfund
og bað menn að fara nokkuð var-
lega. Það ætti ekki að fara of
geyst. Það var mitt mat sem þing-
flokksformaður Framsóknar.“
Sigrún hélt fundi með verkefn-
isstjóra rammaáætlunar, Stef-
áni Gíslasyni, þegar hún tók við
sem umhverfisráðherra um ára-
mótin. Hún segist hafa lagt ríka
áherslu á það að farið væri í einu
og öllu eftir lögum og reglum og
verkfærið Ramminn nýtt á rétt-
an hátt.
„Ég setti metnað minn í það
að vilja að einu sinni yrði þetta
verkfæri nýtt alveg. Nú var fjár-
magnið komið þannig að það var
ekki hindrun. Einmitt út af þessu
öllu saman sagði ég að ég gæti
ekki sætt mig við Hagavatns-
virkjun,“ segir Sigrún og vísar
til þess að hún hafði ekki verið
fullrannsökuð.
kolbeinn@frettabladid.is
Lofar ekki stuðningi sínum
Umhverfisráðherra hefði kosið að verkefnisstjórn rammaáætlunar fjallaði um virkjanir í Þjórsá. Ekki tilbúin að
lýsa yfir stuðningi við tillögu meirihluta atvinnuveganefndar. Sagði nefndinni í desember að fara sér hægt.
UMRÆÐUR Á ALÞINGI Mikið var deilt um hvort ætti að ræða tillögu atvinnuveganefndar áfram á þingi í gær. Umhverfisráð-
herra segist virða vald Alþingis til breytingartillagna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
➜ Ég get alveg tekið undir
með mörgum að meira og
minna allar virkjanir hafa eitt-
hvað inngrip í náttúru lands-
ins. Þetta þarf náttúrulega að
vega mjög mikið og til þess
fundum við upp þetta verk-
færi sem er rammaáætlun.
9.10.2014
Sigurður Ingi Jóhanns-
son leggur fram tillögu
um að Hvammsvirkjun
verði flutt úr bið- í
nýtingarflokk.
1.4.2015
Meirihluti atvinnu-
veganefndar leggur til
að það verði gert og
bætir fjórum kostum
við: Holtavirkjun,
Urriðafossvirkjun,
Skrokkölduvirkjun og
Hagavatnsvirkjun.
15.5.2015
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson segir
frá því í óundirbúnum
fyrirspurnartíma að
tillaga um Hagavatns-
virkjun hafi verið
dregin til baka.
TÍMASETNINGAR BREYTINGARTILLAGNA
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsfyrirtækið HB Grandi
hefur selt Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum tvö
eldri uppsjávarskip sín. Hluti af kaupunum er 0,68
prósent aflahlutdeild í loðnu en kaupverðið í allt er
2,1 milljarður króna.
Samningurinn er gerður með fyrirvara um sam-
þykki stjórna félaganna tveggja og ástandsskoð-
un skipanna en HB Grandi tilkynnti viðskiptin til
Kauphallar Íslands á mánudagskvöld.
Umrædd tvö skip eru Faxi RE 9, smíðaður 1987
í Póllandi, og Ingunn AK 150, smíðuð árið 2000 í
Síle.
Salan tengist kaupum HB Granda á tveimur
nýjum uppsjávarskipum í Tyrklandi – þeim Venusi
NS og Víkingi AK – en það fyrrnefnda er á siglingu
til heimahafnar á Vopnafirði. Víkingur er væntan-
legur til landsins síðar á þessu ári.
Lundey NS, sem er þýsk smíði frá árinu 1960
og er þriðja uppsjávarveiðiskip HB Granda, hefur
verið lagt og er skipið til sölu.
HB Grandi lætur smíða þrjá ísfisktogara
fyrir sig í Tyrklandi til viðbótar við fyrrnefnd
uppsjávar veiðiskip. Tveir þeirra verða afhentir á
næsta ári; Engey RE og Akurey AK. Síðasti ísfisk-
togarinn verður afhentur árið 2017 og mun bera
nafnið Viðey RE. - shá
HB Grandi rýmir fyrir nýjum uppsjávarveiðiskipum með sölu eldri skipa:
Vinnslustöðin kaupir af Granda
NÝI VENUS Tvö glæsileg skip leysa þrjú eldri af hólmi.
MYND/HBGRANDI
KJARAMÁL Öll tólf aðildarfélög
Landssambands íslenzkra versl-
unarmanna, LÍV, þar á meðal VR
sem er stærsta félagið, samþykktu
boðun verkfalls í gær. Atkvæða-
greiðslan stóð yfir frá 12. maí og
var nokkuð öruggur meirihluti
fyrir verkfalli hjá flestum aðildar-
félögum.
Hjá félagsmönnum VR starfandi
í fyrirtækjum SA sögðu 58 prósent
já en hjá félagsmönnum VR starf-
andi í fyrirtækjum FA sögðu 57
prósent já.
Upp úr slitnaði í viðræðum Sam-
taka atvinnulífsins (SA) við VR
og Flóabandalagið í gær, en verk-
fallsaðgerðir þær sem nú hafa
verið samþykktar hefjast undir
lok mánaðarins. Fram kemur á
vef VR að félagið sé ekki tilbúið
til viðræðna um hugmyndir SA
um breytingar á vinnutímafyrir-
komulagi. Nýr fundur hefur ekki
verið boðaður.
Í tilkynningu SA í gær er upp
komin staða sögð mjög flókin og
fáir góðir kostir í boði. „Vandséð
er að hægt sé að forða víðtækum
verkföllum verkalýðshreyfingar-
innar,“ segir þar.
Þá kemur fram í könnun sem SA
birti á vef sínum í gær að 55,4 pró-
sent aðildarfyrirtækja samtakanna
telji sig koma til með að þurfa að
bregðast við miklum launahækk-
unum sem yrðu í takt við kröfur
Starfsgreinasambandsins um 50
til 70 prósenta hækkun launa með
fækkun starfsfólks og verulegri
hækkun á verði fyrir vörur og þjón-
ustu. - þea
Fyrirtæki innan SA segjast þurfa að segja upp fólki og hækka vöruverð gangi ýtrustu launakröfur eftir:
Verslunarmenn samþykkja allir verkfall
Í KARPHÚSINU Þorsteinn Víglundsson,
framkvæmdastjóri SA, mætir til viðræðna í
vikunni. Sitjandi er Sigurður Bessason, tals-
maður Flóabandalagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
TÆLAND Yingluck Shinawatra,
fyrrverandi forsætisráðherra
Taílands, mætti fyrir dómstól í
gær þar sem réttað er yfir henni
fyrir embættisbrot vegna niður-
greiðslna ríkisins
til hrísgrjóna-
bænda í valdatíð
hennar. Shina-
watra á yfir höfði
sér tíu ára fang-
elsi verði hún
fundin sek.
Shinawatra
neitaði í gær
allri sök og segir
ákæruna pólitíska og til þess
gerða að halda henni frá stjórn-
málunum. Hundruð stuðnings-
manna forsætisráðherrans fyrr-
verandi hópuðust í kring um hana
fyrir utan dómhúsið í gær. - þea
YINGLUCK
SHINAWATRA
Yingluck neitar allri sök:
Réttað yfir
Shinawatra
SLYS „Maðurinn var um tíu mín-
útur í sjónum,“ segir Arnar Laxdal
björgunarsveitarmaður en bátur
með einum innanborðs sökk rétt
við Hellissand seinnipartinn í gær.
Skipverjinn komst hvorki í galla né
björgunarvesti og björgunarbátur-
inn virkaði ekki. Manninum var
svo bjargað um borð í Ólaf Bjarna-
son SH frá Ólafsvík.
Björgunarsveitin Lífsbjörg fékk
tilkynningu um lekan og vélar-
vana bát norðvestur af Rifi rétt
fyrir fimm í gær. Báturinn sökk
svo rétt fyrir utan Hellissand eða
um fjórar mílur norðaustur af Rifi.
Sjómaðurinn er sagður heill á húfi,
en var orðinn mjög kaldur þegar
honum var bjargað. - sáp
Bátur sökk við Hellissand:
Bjargaðist eftir
10 mínútur í sjó
SPURNING DAGSINS
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
21.–28. júlí.
Fjórbýli með öllu inniföldu
116.500 KR.
MALLORCA
FERGUS TOBAGO
Hótel á besta stað á Palmanova
þar sem Magaluf og Palmanova
mætast. Hægt er að ganga úr
hótelgarðinum beint á ströndina.
Fín sundlaug og lítil barnalaug.
m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 126.500 m.v. 2 fullorðna.
Þeir sem b
óka ferð til
Mallorca í
maí fá frítt
fyrir
alla fjölsky
lduna í
Aqualand,
á meðan
birgðir end
ast.
ALLTINNIFALIÐ
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
8
-F
9
0
C
1
7
D
8
-F
7
D
0
1
7
D
8
-F
6
9
4
1
7
D
8
-F
5
5
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K