Fréttablaðið - 20.05.2015, Síða 10
20. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Búnaður í Outlander Intense: 18" álfelgur, aðgerðastýri, upplýsingaskjár í mælaborði með bakkmyndavél, USB tengi og handfrjáls símabúnaður, hraðastillir, tvískipt tölvustýrð
miðstöð, upphituð framsæti, upphituð framrúða, AM/FM útvarp, CD/MP3 spilari, rafdrifnir og upphitaðir útispeglar með stefnuljósum, vindskeið að aftan með LED lýsingu,
þokuljós að framan, regnskynjari á rúðuþurrkum, sjö öryggispúðar, skyggt gler í hliðar- og afturrúðu, langbogar á þaki, þvottasprautur á aðalljósum, dagljósabúnaður.
Mitsubishi Outlander
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn frá:
NÝR MITSUBISHI OUTLANDER INTENSE
FYRIR HUGSANDI FÓLK
Mitsubishi Outlander Intense er fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll sem dúxar í sparneytni
og lágum útblæstri kolefnis en skilar samt framúrskarandi afköstum. Háþróaður öryggis-
búnaður, bakkmyndavél og handfrjáls símabúnaður eru bara örfáar ástæður til að hjálpa
þér að gera upp hug þinn. Komdu og prófaðu ævintýralegan Outlander Intense.
ÍRAK Eftir langa orrustu hopuðu
lögregla og herlið írösku ríkis-
stjórnarinnar frá borginni Ramadi
undan látlausri sókn hersveita Ísl-
amska ríkisins, ISIS, á sunnudag.
Ramadi er höfuðborg Anbar-hér-
aðs sem er fjölmennasta hérað
Íraks. Íslamska ríkið ræður nú
yfir um helmingi héraðsins.
Frá því Íslamska ríkið tók borg-
ina hefur ástandið þar valdið flótta
um 25 þúsund manns. Margir velja
frekar að sofa undir berum himni
utan borgarinnar án matar en að
hætta á að vera eftir í borginni.
Sameinuðu þjóðirnar hafa reynt
að koma flóttamönnunum til bjarg-
ar en fjármagnið er af skornum
skammti enda hefur þörfin lengi
verið mikil.
ISIS-liðar hafa gengið um borg-
ina og kveikt í húsum og versl-
unum fólks sem hliðhollt er
ríkis stjórn Íraks. Að auki hafa
ISIS-liðar opnað dyr fangelsa
borgarinnar og frelsað um fjögur
hundruð bræður sína og systur.
Íbúar borgarinnar segjast einnig
hafa séð liðsmenn Íslamska ríkis-
ins fleygja þeim látnu í ána Efrat
sem borgin stendur við.
Íraska ríkisstjórnin vann borg-
ina Tikrit aftur á sitt band í síðasta
mánuði og hefur síðan þá gengið
vel að herja á svæði Íslamska rík-
isins. Fall Ramadi er því stórt tap
fyrir Írak.
Íraska ríkisstjórnin er tilbúin
til samstarfs við herskáar upp-
reisnarsveitir sjíamúslima austan
borgarinnar til þess að ná borginni
aftur af ISIS.
Íbúar í Ramadi, sem flestir eru
súnnímúslimar, hræðast sveitir
sjíamúslima til jafns við Íslamska
ríkið. „Ef sveitir sjíamúslima kom-
ast inn í Ramadi munu þær gera
það sama og ISIS-liðar gera nú,“
hefur fréttaveita AP eftir búðar-
eigandanum Abu Ammar.
Talsmaður varnarmálaráðu-
neytis Bandaríkjanna, Elissa
Smith, segir fall borgarinnar ekki
marka viðsnúning í stríðinu gegn
Íslamska ríkinu en játar að það
muni þó ýta hressilega undir áróð-
ursvél ríkisins.
Íslamska ríkið berst nú víðs
vegar um Miðausturlönd og hefur
upp á síðkastið unnið stóra sigra í
Líbíu, Írak, Sýrlandi og Líbanon.
thorgnyr@frettabladid.is
ISIS-liðar hafa gengið
berserksgang í Ramadi
Liðsmenn Íslamska ríkisins náðu borginni Ramadi á sunnudag. 25 þúsund hafa flúið borgina. Sameinuðu þjóð-
irnar skortir fjármagn til að hjálpa flóttamönnum. Bandaríkjamenn segja sigurinn ekki marka viðsnúning.
FLÓTTAMANNABÚÐIR Einungis lítill hluti flóttamanna frá Ramadi gistir nú í tjöldum. Meirihlutinn sefur undir berum himni.
NORDICPHOTOS/AFP
Þyrlu bjargað
ÞÝSKALAND Bandarískir hermenn
fylgjast með því þegar Boeing CH-47
Chinook-þyrla bjargar Sikorsky UH-60
Black Hawk-þyrlu í Plankenfels í Þýska-
landi í fyrradag. Flugmenn síðarnefndu
þyrlunnar neyddust til að nauðlenda
henni á engi í grennd við Plankenfels
síðastliðinn föstudag eftir að þeim yfir-
sáust háspennulínur sem urðu í vegi
þeirra. Aðalskrúfa þyrlunnar klippti eina
línuna í sundur og skemmdist í leiðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
LÖGREGLUMÁL
Hélt hún væri á leið í frí
17 ára hollensk stúlka sem grunuð er
um að hafa með móður sinni smyglað
um tuttugu kílóum af fíkniefnum
hingað til lands í aprílbyrjun, kveðst
ekki hafa vitað af efnunum í farangri
sínum. Hún segir móður sína hafa
boðið sér til Íslands í þeim tilgangi
að skoða landið og séð um að pakka í
töskur. Þetta kemur fram á vef Hæsta-
réttar sem staðfesti í gær farbanns-
úrskurð yfir stúlkunni.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
A
-4
3
D
C
1
7
D
A
-4
2
A
0
1
7
D
A
-4
1
6
4
1
7
D
A
-4
0
2
8
2
8
0
X
4
0
0
9
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K