Fréttablaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 16
| 2 20. maí 2015 | miðvikudagur
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
N1
49,6% frá áramótum
HB GRANDI
5,4% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
TRYGGINGAMIÐST.
-23,6% frá áramótum
HAGAR
7,1% í síðustu viku
7
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
8
1
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ
Hagstofan – Samræmd vísitala
neysluverðs í apríl 2015
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ
Eimskip – Uppgjör 1. ársfjórðungs
2015
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ
Hagstofan – Vísitala kaupmáttar
launa
Hagstofan – Mánaðaleg launa-
vísitala
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ
Hagstofan – Nýskráningar og
gjaldþrot fyrirtækja
Fasteignaskrá – Viðskipti með
atvinnuhúsnæði í apríl 2015
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ
HB Grandi – Uppgjör 1. ársfjórð-
ungs 2015
N1 - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2015
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsins
„Ég held að það sé ákveðið blóma-
skeið í landvinningum íslenskra
höfunda og hafi verið,“ sagði Arn-
aldur Indriðason, í samtali við
Fréttablaðið, eftir að hann tók við
sérstakri heiðursviðurkenningu
við afhendingu Útfl utningsverð-
launa forseta Íslands á Bessa-
stöðum. Verðlaunin voru afhent
á föstudaginn.
„Það hefur fjöldinn allur af titl-
um verið gefi nn út eiginlega um
allan heim, og ég held að eftir-
spurnin sé orðin það mikil að það
sé kominn skortur á þýðingum,“
sagði Arnaldur.
Arnaldur sagðist taka við verð-
laununum fyrir hönd íslenskra
bókmennta. Hann sagðist telja
að íslenskar bókmenntir væru
langfl ottasta útfl utningsgreinin
og hefðu verið það lengi. „Þetta
er vonandi hvatning fyrir mig og
aðra höfunda, að halda áfram á
sömu braut,“ sagði hann.
Íslenskar bókmenntir hafa
sannarlega notið vaxandi vin-
sælda erlendis upp á síðkastið.
Til marks um það var Snjóblinda
eftir rithöfundinn Ragnar Jón-
asson mest selda bókin á Kindle
hjá Amazon í Bretlandi um síð-
ustu helgi. Hún trónaði á toppi
metsölulistans í tvo sólarhringa.
Aðspurður hvort hans eigin vel-
gengni hafi haft áhrif á brautar-
gengi annarra höfunda segir
Arnaldur: „Það má vel vera að
íslenska glæpasagan hafi hjálp-
að til.“
Arnaldur segist vera búinn að
missa töluna á því í hve mörgum
löndum bækurnar hans eru gefn-
ar út. „Ætli það séu ekki svona
35-40. Það er alltaf áhugi hér
og þar á þessum bókum,“ segir
hann.
Hann segist alls ekki skrifa
bækur fyrir útlendinga. „Ég
held að það væri fráleitt að fara
að skrifa ofan í einhverjar vænt-
ingar lesenda. Ég hef alltaf skrif-
að fyrir íslenska lesendur og
íslenskt umhverfi og ég held að
það sé það sem veki athygli. Það
sé þessi íslenski vinkill,“ segir
Arnaldur og bætir við að fólk
vilji kynnast Íslandi í gegnum
íslenskar bækur, bæði landinu
og bókmenntunum.
Í bókum Arnaldar geta lesend-
ur fengið innsýn í sögu Íslands.
„Ég er mikill áhugamaður um
sögu. Flestar þessar bækur
tengjast einhvern veginn fortíð-
inni og fara fram og til baka í
tíma. Ég hef undanfarið einbeitt
mér meira að því en áður eins og
í Kamp Knox og í Skuggasundi.
Og ég býst við því að halda áfram
á þeirri braut,“ segir Arnaldur.
jonhakon@frettabladid.is
Bókmenntir flottasta
útflutningsgreinin
Bækur Arnaldar Indriðasonar eru gefnar út á tugum tungumála.
Hann segir íslenska höfunda upplifa blómaskeið í landvinningum
erlendis. Forseti Íslands heiðraði Arnald á föstudaginn.
HEIÐRAÐUR Arnaldur Indriðason tók við verðlaunum á Bessastöðum á föstudaginn.
Iceland air Group fékk sjálf útflutningsverðlaunin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
TILRAUN sjávarútvegsráðherra til að
framselja í raun varanleg yfi rráð yfi r
makrílnum í íslenskri landhelgi til
örfárra útgerðarfyrirtækja er runnin
út í sandinn. Kornið sem fyllti mælinn
var væntanlega tilkynning frá Fiski-
stofu um að stofnunin væri engan veg-
inn búin undir að standa fyrir fram-
kvæmd þeirra breytinga sem frumvarp
ráðherra felur í sér. Þingmeirihlutinn
fer ekki í stríð við þjóðina og mögulega
forsetann um þetta mál – ekki að sinni.
HARÐUR áróður hefur verið rekinn
fyrir því að íslenskur sjávarútvegur
sé svo sérstök atvinnugrein að um
hana gildi ekki almennar reglur,
sem annars gilda í öllum viðskipt-
um alls staðar. Grunnur arðbærs
sjávarútvegs hér á landi liggur í
því að nýta mjög verðmæta og
takmarkaða auðlind, sem er í sameign
þjóðarinnar.
FRAM til þessa hefur afl aheimildum
verið úthlutað til eins árs í senn og
veiðigjöld verið afskaplega hófl eg, alla
vega gagnvart stórútgerðinni, sem
auk þess að ráða yfi r megninu af bol-
fi skkvótanum situr á nánast öllum
uppsjávar kvóta.
Á SÍÐUSTU árum hafa stjórnvöld reynt
að koma á langtímaúthlutun á kvóta
sem felur í sér varanlegt framsal til
fárra á sameiginlegri auðlind þjóðar-
innar. Engu virðist breyta hvaða fl okk-
ar sitja í ríkisstjórn. Allir vilja þeir
koma kvótanum í varanlegt fóstur hjá
stórútgerðinni. Rökin hafa verið þau að
útgerð kalli á svo miklar fjárfestingar
að nauðsynlegt sé að fyrirsjáanleiki
ríki í greininni. Menn muni einfaldlega
ekki fjárfesta nema hafa fi skinn ávallt
tryggan alla vega 15 ár inn í framtíð-
ina. Fjárfestingarskortur muni leiða til
hnignunar íslensks sjávarútvegs og þar
með skerða lífskjör þjóðarinnar.
EN HELDUR þessi málfl utningur vatni?
Hver er munurinn á t.d. útgerðarfyrir-
tæki og fl utningaskipafélagi eða fl ug-
félagi? Ekki kallar fl utningastarfsemi
eða fl ugrekstur á minni fjárfestingar
en útgerð. Í öllum tilfellum standa eig-
endur fyrirtækjanna frammi fyrir því
að reksturinn er háður mikilli óvissu.
Hvernig þróast olíuverð? Hvernig þró-
ast almennt efnahagsástand í heimin-
um? Hvernig þróast verðlag vörunnar
sem verið er að selja? Hví þurfa ekki
skipafélög og fl ugfélög sérstaka niður-
greiðslu eins og útgerðin?
ÞAÐ ÞARF auðvitað ekki að afhenda
útgerðinni fi skinn í sjónum til varan-
legra afnota til að sjávarútvegur á
Íslandi skili þjóðarbúinu hámarks
tekjum. Það ætti að bjóða upp kvóta-
hlutdeild til hæstbjóðenda til skamms
tíma í senn, t.d. til 1-3 ára og hægt
er að tryggja með almennum reglum
að erlendir kaupendur sogi ekki auð-
lindina úr landi.
FRJÁLS markaður með afl aheimildir og
efl ing fi skmarkaða tryggir hráefnis-
öryggi þeirra sem stunda samkeppnis-
hæfa starfsemi. Svona fyrirkomulag
tryggir hámarksafrakstur til þjóðar-
innar af auðlindinni en ekki ofurhagn-
að örfárra handhafa kvótans, eins og
nú er.
Hvað er svona merkilegt við útgerð?
Viðsnúningur varð í rekstri Senu
sem hagnaðist um 144 milljónir
króna á síðasta ári en félagið tapaði
126 milljónum króna árið 2013.
Stærstur hluti tekna Senu er til-
kominn vegna heildsölu eða 1,2
milljarðar af 2,7 milljarða rekstrar-
tekjum. Fyrirtækið er rétthafi og
dreifi ngaraðili fjölda innlendra og
erlendra kvikmynda og tónlistar auk
tölvuleikja hér á landi.
Tekjur Senu af rekstri kvik-
myndahúsanna Smárabíós, Laugar-
ásbíós og Háskólabíós námu 871
milljón króna.
Þá nær tvöfölduðust tekjur vegna
viðburða milli ára og námu 330
milljónum króna en Sena fl utti tón-
listarmanninn Justin Timberlake til
landsins í ágúst á síðasta ári.
Eignir Senu nema 1,1 milljarði
króna og eigið fé 549 milljónum
króna. Handbært fé frá rekstri nam
143 milljónum króna í fyrra. Þá
kemur einnig fram í ársreikningi
félagsins að það hafi selt leikfanga-
deild sína fyrr á þessu ári en Sena
hefur m.a. fl utt inn Playmobil. - ih
Tekjur Senu vegna viðburða nær tvöfölduðust í fyrra en félagið flutti inn Justin Timberlake á árinu:
Sena hagnast um 144 milljónir
KÓRINN Nær tuttugu þúsund manns voru viðstaddir tónleika Justins Timberlake í Kórnum á
síðasta ári. MYND/ANDRI MARÍNÓ
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 119,00 14,4% 0,0%
Eik fasteignafélag* 6,38 -6,2% -1,2%
Eimskipafélag Íslands 227,00 -4,2% 0,9%
Fjarskipti (Vodafone) 39,10 11,7% 1,0%
Hagar 40,30 -0,4% -7,1%
HB Grandi 39,30 16,3% 5,4%
Icelandair Group 23,05 7,7% 3,6%
Marel 179,5 30,1% -1,4%
N1 34,70 49,6% 2,5%
Nýherji 8,39 62,0% -0,7%
Reginn 14,10 4,1% -0,4%
Reitir* 62,70 -1,3% 0,5%
Sjóvá 10,05 -15,9% 0,4%
Tryggingamiðstöðin 20,10 -23,6% -2,9%
Vátryggingafélag Íslands 7,73 -14,6% -1,7%
Össur 432,00 19,7% -1,8%
Úrvalsvísitalan OMXI8 1.423,77 8,6% 0,3%
First North Iceland
Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 25,40 12,4% 0,4%
Sláturfélag Suðurlands 1,85 0,0% 0,0%
*Skráð á árinu (þróun frá útboðsgengi).
Sk
jó
ða
n
SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem
lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
9
-7
4
7
C
1
7
D
9
-7
3
4
0
1
7
D
9
-7
2
0
4
1
7
D
9
-7
0
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K