Fréttablaðið - 20.05.2015, Side 18
| 4 20. maí 2015 | miðvikudagur
Stjórnvöld eru meðvituð um
hversu seint gengur við upptöku
á löggjöf Evrópusambandsins og
innleiðingu í íslensk lög og að við
því þurfi að bregðast. Þetta segir
Margrét Einarsdóttir, lektor við
lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Margrét starfar með stýrihópi um
framkvæmd EES-samningsins
sem forsætisráðuneytið skipaði í
fyrra. Hún hefur að auki skrifað
grein um innleiðingarhallann.
Margrét segir í samtali við
Markaðinn að íslenska ríkið
standi frammi fyrir tvenns konar
verkefnum vegna aðildar sinnar
að Evrópusambandinu. Annars
vegar að taka upp í EES-samn-
inginn löggjöf sem stofnanir Evr-
ópusambandsins hafa sett, en lög-
gjöfi n getur bæði verið tilskipanir
og reglugerðir. Hins vegar, þegar
búið er að taka löggjöfi na upp í
samninginn, þá þarf að innleiða
löggjöfi na í íslenskan rétt.
Margrét segir að á árunum 2000
til 2010 hafi gengið ágætlega við
upptöku löggjafarinnar, en það hafi
farið að halla undan fæti frá árinu
2011. „Það eru örugglega margar
ástæður fyrir þessu en það sem
ég bendi á og tel vera stóran hluti
af ástæðunni er í fyrsta lagi efna-
hagshrunið árið 2008. Í kjölfarið
stendur stjórnsýslan frammi fyrir
niðurskurði, bæði hér heima og í
Brussel. Svo er mikið af verkefn-
um sem voru afl eiðingar hrunsins
og stjórnsýslan þurfti að sinna. Í
öðru lagi var, í þessu upptökuferli,
farið að hafa aukið samráð við
Alþingi. Það er jákvætt að mörgu
leyti en lengir tímann sem þetta
upptökuferli tekur,“ segir Mar-
grét.
Þriðja ástæðan sem Margrét
nefnir er lýðræðishalli sem er inn-
byggður í EES-samninginn. „Við
erum að taka upp í EES-samning-
inn og inn okkar landsrétt löggjöf
sem við höfum litla möguleika á
að hafa áhrif á. Þegar svo kemur
að því að taka þessa löggjöf upp í
samninginn og innleiða í landsrétt
þá þarf að vera meiri sátt um að
þetta er staðan,“ segir Margrét og
vísar þar í þennan lýðræðishalla.
Margrét segir að það hafi farið
fram meiri umræða um þennan
þátt í Noregi.
Fjórða ástæðan sem Margrét
nefnir er stjórnarskrárvandinn.
„Íslenska stjórnarskráin hefur
ekkert ákvæði sem heimilar fram-
sal á valdi til alþjóðlegra stofnana
og þetta hefur á undanförnum
árum skapað vandamál. Það hefur
alltaf öðru hvoru komið upp lög-
gjöf sem við þurfum að taka upp
í EES-samninginn en hefur verið
vafi á hvort standist stjórnar-
skrána. Þessi staða hefur valdið
töfum á upptöku löggjafarinnar. Og
það eru vísbendingar um að þetta
vandamál eigi eftir að verða meira
í framtíðinni,“ segir Margrét.
Margrét ítrekar að staðan sé
að skána. Innleiðingarhallinn hafi
verið 3,2 prósent í fyrra en núna
sé hann 2,8 prósent. Það er að í ár
eru Íslendingar ekki búnir að inn-
leiða um 2,8 prósent af þeim til-
skipunum sem þeir eiga að vera
búnir að innleiða. Markmið Evr-
ópusambandsins er að þessi halli
sé ekki meiri en eitt prósent. Með-
alhallinn í ESB-ríkjunum er 0,5
prósent og það er bara eitt ríki,
Slóvenía, sem er með meira en
eitt prósent innleiðingarhalla.
„Af þessum 28 ESB-ríkjum og
svo EES-ríkjunum erum við að
standa okkur verst. Þannig að
það er langt í land,“ segir Mar-
grét. Noregur er í tveimur pró-
sentum og stendur sig líka illa.
jonhakon@frettabladid.is
Stjórnvöld eru meðvituð um vandann
Stjórnvöld eru meðvituð um það hversu seint Íslendingum gengur að innleiða löggjöf Evrópusambandsins.
Ástæðurnar fyrir töfunum eru einkum fjórar en mjög ólíkar. Lektor í lögfræði segir að staðan sé að skána.
MIKILVÆGUR SAMNINGUR Margrét bendir á að mikil umræða hafi farið fram um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Það skipti ekki
síður máli að fram fari umræða um hvernig við leggjum rækt við EES samninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Af þessum 28
ESB ríkjum og
svo EES-ríkjunum
erum við að standa
okkur verst. Þannig
að það er langt í land.
Viðvarandi hærra vaxtastig hér á
landi miðað við í nágrannalöndum
kemur niður á samkeppnishæfni
fyrirtækja, ýtir undir verðbólgu
og gengissig sem kemur niður á
lífskjörum og dregur úr kaup-
mætti launa. Þetta er niðurstaða
rannsókna Jóns Helga Egilsson-
ar, doktorsnema í hagfræði við
Háskóla Íslands og varaformanns
bankaráðs Seðlabanka Íslands.
Jón Helgi segir að sé fjármagns-
kostnaður hærri á Íslandi miðað
við helstu viðskiptalönd valdi það
hærri framleiðslukostnaði sem
þurfi þá með einhverjum hætti að
bæta upp og líklegt sé að það sé í
formi lægri launa.
„Hærri framleiðslukostnaður
kemur fram í hærra verðlagi sem
dregur úr samkeppnishæfni inn-
lendra aðila. Ein afl eiðing þess er
minni útfl utningur og meiri inn-
fl utningur sem veikir gengi krón-
unnar sem aftur leiðir af sér verð-
bólgu og skertan kaupmátt,“ segir
Jón Helgi.
Samanburður á kaupmætti milli
landa valdi kröfu um áþekk laun
og í nágrannalöndunum að hans
sögn. Sé gengið að þeim kröfum
við óbreytt vaxtastig valdi það
frekari verðbólgu og gengisfell-
ingum segir Jón Helgi.
Þá bætir Jón Helgi við að ef
það þurfi að bæta upp hærri fjár-
magnskostnað með lægri launum
geti það stuðlað að því að ungt og
vel menntað fólk fl ytji úr landi.
Aðilar sem séu tilbúnir að sætta
sig við lægri kaupmátt fl ytji þá
frekar til landsins. „Það stuðlar
þá að því að hér sé byggt upp lág-
launaland“, segir Jón Helgi.
Jón Helgi segir mikilvægt að
þeir sem fari með stjórn peninga-
mála hér á landi átti sig á afl eið-
ingum viðvarandi hærra vaxta-
stigs. „Aðalatriðið er að menn
skilji skaðsemi af því að viðhalda
hærra vaxtastigi og fi kri sig þá í
átt að nýju jafnvægi með lægra
vaxtastigi,“ segir Jón Helgi. - ih
Hagfræðingur telur mikilvægt að vextir verði lækkaðir hér á landi:
Segir hátt vaxtastig
valda síðri lífskjörum
JÓN HELGI EGILSSON Varaformaður banka-
ráðs Seðlabankans segir mikilvægt að þeir
sem sitji í Peningastefnunefnd átti sig á
skaðsemi hærra vaxtastigs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Deutsche Bank hefur sett
á fót vinnuhóp til að kanna
hvort rétt sé að færa hluta af
breskum einingum bankans
til Þýskalands, ef Bretland
fer úr Evrópusambandinu.
BBC hefur eftir tals-
manni bankans að hópur-
inn hafi verið fullmyndaður
en engar ákvarðanir teknar
um starf hans. David Cam-
eron, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur lofað að fram
fari þjóðaratkvæðagreiðsla
um framtíð Bretlands í
Evrópusambandinu.
Um 9.000 manns starfa hjá
bankanum í Bretlandi. - jhh
Stjórnendur Deutsche Bank íhuga framtíð bankans eftir kosningar:
Yfirgefa hugsanlega Bretland
DAVID CAMERON
LEITAÐU RÁÐA HJÁ OKKUR
Hjá Ellingsen starfa sérfræðingar í öllum deildum. Við veitum faglega
og vandaða ráðgjöf og finnum réttu vörurnar sem uppfylla þínar þarfir.
Fiskislóð 1
Sími 580 8500
Tryggvabraut 1–3
Sími 460 3630
Mán.–fös. 10–18
Lau. 10–16
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK AKUREYRI OPIÐ
ellingsen.is
Fisléttar og fellanlegar
FÁNASTANGIR
Formenta-fánastangirnar eru léttar glertrefjastangir sem
hægt er að fella þegar illviðri ganga yfir.
• Sex, sjö og átta metra stangir
• Ekkert viðhald
• Gylltur húnn setur glæsilegan svip á stöngina
• Snúningstoppur svo fáninn snúist síður um stöngina
• Fánalína, línufesting og festingar fylgja
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
8
-C
7
A
C
1
7
D
8
-C
6
7
0
1
7
D
8
-C
5
3
4
1
7
D
8
-C
3
F
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K