Fréttablaðið - 20.05.2015, Page 32
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 201510
Þetta er vörubíll með krók-heisi, sem þýðir að hægt er að hífa alls konar einingar
upp á hann. Enda var hugsunin
sú að nýta hann til að flytja stór-
an snjóbíl sem við eigum,“ segir
Elvar Steinn Þorvaldsson hjá
tækjaflokki Hjálparsveitar skáta
í Kópavogi. Þetta fyrirkomulag
getur stytt viðbragðstíma sveitar-
innar þegar nota þarf snjóbíl í út-
köll. „Snjóbíllinn er þá fastur á sér-
hönnuðu fleti sem við hífum beint
upp á vörubílinn.“
Vörubíllinn, sem er af gerð-
inni Iveco, er einnig ætlaður til að
flytja rústabjörgunargám sveitar-
innar. „Nú getum við farið með
gáminn hvert á land sem er.“
Kraftmeiri og lengri
HSSK pantaði bílinn í samstarfi
við Kraftvélar sem er með umboð
fyrir Iveco á Íslandi. „Samstarfið
gekk mjög vel og Kraftvélar komu
til móts við okkur þannig að bíll-
inn hentaði okkar þörfum,“ segir
Elvar en bíllinn er sjálfskiptur,
6x6, þriggja öxla með drifi á öllum
hjólum og því mjög góður í snjó og
torfærum.
Bíllinn kom að mestu leyti til-
búinn að utan en hann er með
stærri vél en var ætlunin í upphafi.
„Þegar þeir hjá Iveco úti heyrðu
hvað við værum að gera sögðu þeir
að vélin sem við höfðum pantað
væri of lítil. Í samvinnu við Kraft-
vélar var ákveðið að setja stærri
vél í bílinn. Þá var hann líka flutt-
ur til þjónustuaðila í Danmörku
þar sem hann var lengdur til að við
ættum möguleika á að flytja snjó-
bílinn,“ segir Elvar. Þá var fletið
fyrir snjóbílinn einnig sérsmíðað
í verksmiðjunni úti.
Bíllinn kom til landsins í des-
ember á síðasta ári og við tóku
nokkrar breytingar á honum sem
Kraftvélar sáu um. „Þeir græjuðu
allt rafkerfið fyrir okkur, akst-
ursljós, vinnulýsingu og öll fjar-
skipti,“ segir Elvar.
Nýtist mjög vel
Þótt bíllinn hafi komið til landsins
í desember var hann ekki formlega
afhentur hjálparsveitinni fyrr en
í byrjun mars. „Við höfum hins
vegar notað hann töluvert í útköll í
vetur og sótt hann þá niður í Kraft-
vélar,“ segir Elvar en óvenju mörg
útköll í vetur hafa krafist snjóbíls.
„Svo höfum við notað hann í æf-
ingaferðir líka.“
Bíllinn getur flutt þrjá farþega.
„Hann gæti því flutt áhöfn snjó-
bílsins en aftur á móti förum við
alltaf með á aukabíl upp á þæg-
indin,“ segir Elvar og bætir við að
vörubíllinn sé með öflugri björg-
unartækjum í torfærum og ám.
„Við vildum bíl sem gæti f lutt
snjóbílinn yfir helstu heiðar þótt
þær væru ófærar og komið okkur í
átt að útkallssvæðinu. Hann mun
einnig gagnast vel í aðstæðum líkt
og urðu þegar Múlakvíslin flæddi
yfir bakka sína en þá var notaður
trukkur til að ferja bíla yfir ána.“
Góður mannskapur
Hjálparsveit skáta í Kópavogi býr
yfir töluverðum tækjaflota. „Við
erum með hraðskreiðan bát, tvo
44 tommu jeppa, Sprinter-fólks-
f lutningabíl sem er 35 tommu
breyttur, HiAce-fólksflutninga-
bíl, Ford-pallbíl sem er ætlaður til
að f lytja vélsleða, fjóra vélsleða,
slöngubát, snjóbíl og vörubíl,“
telur Elvar upp og viðurkennir að
mikil vinna liggi í viðhaldi þess-
ara tækja. „Sem betur fer höfum
við mjög góðan mannskap í
kringum þetta og fólkið okkar
getur gert við flest. Við erum með
vélstjóra, bifvélavirkja og aðra
reynslumikla jeppamenn í okkar
röðum sem er nauðsynlegt enda
mjög sjaldan sem farið er í túr og
ekkert bilar.“
Flytur snjóbíl um ófærar heiðar
Hjálparsveit skáta í Kópavogi fékk nýverið afhentan splunkunýjan Iveco-vörubíl sem mun meðal annars nýtast til flutninga á snjóbíl
og rústagám sveitarinnar. Sveitin á mikið safn véla og, það sem er meira um vert, afar færa félagsmenn sem sinna viðhaldi þeirra.
Bíllinn er með krókheisi sem þýðir að hægt er að hífa alls konar einingar upp á hann.
Elvar Steinn Þorvaldsson.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
A
-1
7
6
C
1
7
D
A
-1
6
3
0
1
7
D
A
-1
4
F
4
1
7
D
A
-1
3
B
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K