Fréttablaðið - 20.05.2015, Síða 38
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 201516
Fyrsta þriggja tonna vörubif-reiðin rann f ljótlega út úr sameiginlegri verksmiðju
MAN-SAURER í Lindau við Boden-
see fyrir hundrað árum. Skömmu
síðar fylgdu fyrstu rúturnar, sem
notaðar voru sem langferðabif-
reiðar af Keisaralega póstfélag-
inu og fluttu farþega auk bréfa og
böggla.
Þetta var upphaf framleiðslu at-
vinnubifreiða hjá MAN, saga vel-
gengni sem hefur ekki aðeins
mótað sögu félagsins sjálfs held-
ur hefur MAN einnig haft veruleg
áhrif á þróun vörubíla og rúta með
þróuðum og oft byltingarkenndum
nýjungum sínum á undanförnum
100 árum – og heldur áfram að gera
það.
Þriggja öxla vörubílar
Árið 1928 kynnti MAN fyrsta
þriggja öxla vörubíl sinn, sem var
forveri allra seinni tíma MAN-
þungaflutningabíla. Á sjötta ára-
tugnum buðu MAN-verksmiðjurn-
ar upp á MAN F8 með 180 hestafla
V8 mótor, sem varð flaggskip efna-
hagsundurs hins nýja Sambands-
lýðveldis Þýskalands.
Á sama tíma sannaði MAN einn-
ig framtaksmátt sinn í strætisvagna-
smíði. Árið 1961 kynnti fyrirtæk-
ið til sögunnar MAN 750 HO, fyrsta
strætisvagninn í „modular design“.
Þetta var staðlaður undirvagn sem
var notaður með mismunandi gerð-
um og útfærslum yfir bygginga fyrir
strætisvagna, utanbæjarvagna og
langferðabifreiðar.
Trukkur ársins 1978
Ofarlega í minningunni hafa hins
vegar ávallt verið MAN „húdd“-
bílar fyrir byggingariðnaðinn
sem og langflutningabílar af gerð-
inni MAN 19.280, sem varð fyrsta
MAN-vörubifreiðin til að hljóta
„Truck of the Year“-verðlaunin
árið 1978.
MAN-rútur hafa einnig átt sína
hápunkta. Árið 1992 kynnti MAN
Lion’s Star-fólksf lutningabílinn
sem átti eftir ákvarða nöfn allra
komandi kynslóða MAN-rúta.
Nýjungar á nýrri öld
MAN byrjaði nýja öld á að inn-
leiða nýjungar. Árið 2000 setti
„Trucknology Generation Type A“,
einnig nefnt TGA, nýja staðla varð-
andi þægindi og vinnuvistfræði
sem og nýja tækni eins og MAN
TipMatic eða MAN Comfort-Shift
fyrir hagkvæmar gírskiptingar.
MAN styrkti stöðu sína í f lokki
lúxusrúta er það tók yfir NEO-
PLAN-vörumerkið árið 2001. Inn-
leiðing D20-véla með „Common
Rail“-innspýtingu árið 2004 voru
mikil tímamót í véltækni. MAN
varð fyrstur framleiðenda vöru-
flutningabifreiða til að taka upp
í öllum vélum sínum þessa hag-
kvæmu og umhverfisvænu raf-
eindastýrðu innspýtingu elds-
neytis.
Hybrid-drif
Árið 2010 hóf MAN fjöldafram-
leiðslu á „Hybrid“-strætisvögn-
um, eða Lion’s City Hybrid. Lion’s
City Hybrid sparar allt að 30 pró-
sent eldsneytis með tilkomu hins
nýja „hybrid“-drifs. Euro 6, nú-
gildandi staðall fyrir útblásturs-
mengun, var áskorun sem MAN
uppfyllti þegar árið 2012 með nýj-
ustu kynslóð af TG-gerðinni. Þeir
uppfylla ströngustu mengunar-
kröfur með hámarks eldsneyt-
isnýtingu. Haustið 2014 kynnti
MAN nýjustu vélakynslóð sína,
D38, sem er nú afrakstur 100 ára
þróunar véla í atvinnubíla.
Móta framtíðina
Deild innan MAN, „Framtíðar-
rannsóknir“, greinir alþjóðlega
þróun og ákvarðar stefnu fyrir
þróun komandi kynslóða öku-
tækja. Hönnuðir MAN eru nú
þegar að vinna að framleiðslu á
vörubíl, sem ekki þarfnast bíl-
stjóra við tiltekna starfsemi.
MAN Truck & Bus mun nota þess-
ar og aðrar nýjar hugmyndir til að
tryggja sjálfbæra þróun nútíma-
legra atvinnubíla í framtíðinni.
MAN-atvinnubílar í 100 ár
Á þessu ári fagna MAN-verksmiðjurnar því að hundrað ár eru síðan framleiðsla hófst á MAN vöru- og fólksflutningabifreiðum. Þann
21. júní árið 1915 var nýtt fyrirtæki, Lastwagenwerk M.A.N. – SAURER fært inn í viðskiptaskrá Nürnberg-borgar.
MAN hefur haft veruleg áhrif á þróun vörubíla og rúta með byltingarkenndum nýjungum sínum á undanförnum 100 árum.
Umhverfis- og skipulags-svið Reykjavíkur fékk ný-lega afhenta fimm nýja,
stóra f lokkabíla til reksturs og
umhirðu borgarlandsins. Bílarnir,
sem eru af gerðinni IVECO, voru
keyptir hjá Kraftvélum að undan-
gengnu útboði Reykjavíkurborgar.
„Með tilkomu þessara bíla verða
miklar breytingar á vinnuaðstöðu
starfsmanna hverfastöðvanna
sem starfa á þessum bílum,“ segir
Hjalti J. Guðmundsson, stjórnandi
skrifstofu reksturs og umhirðu
borgarlandsins. „Nýju bílarnir eru
öflugri og betur tæknilega búnir
en fyrirrennarar þeirra. Allir eru
þeir með krana og pall sem hægt
er að sturta af á þrjá vegu. Sæti eru
fyrir sjö manna öflugan vinnu-
flokk í hverjum bíl. Það er hægt
að láta þá framkvæma fleiri verk
en þá gömlu og þeir eru þægilegri
í allri notkun. Það má svo ekki
gleyma því að gömlu, appelsínu-
gulu bílarnir voru orðnir svolítið
laslegir þannig að þetta er nokk-
urs konar ímyndarmál fyrir okkur
líka. Nú getum við stoltir keyrt um
götur bæjarins,“ segir Hjalti og
brosir.
Appelsínugulu bílarnir hverfa
Bílarnir verða notaðir í verkefni úti
á hverfastöðvunum og hjá Þjón-
ustumiðstöð Reykjavíkurborgar
sem oft er kennd við aðsetur sitt
á Stórhöfða. Tveir bílanna fara á
hverfastöðina við Jafnasel, tveir
á hverfastöðina við Njarðargötu
og einn í umferðarskiltadeild á
Stórhöfða. Nýju bílarnir leysa af
hólmi gömlu appelsínugulu Benz-
flokkabílana sem flestir borgar-
búar kannast við en þeir hafa ekið
um götur borgarinnar í mörg ár.
Hjalti segir bílana verða notaða
í öll verk sem til falla við rekstur
borgarlandsins. „Þeir verða not-
aðir í allt frá minniháttar viðgerð-
um í borgarlandinu, svo sem mal-
biks-, kantsteina- og gangstéttar-
viðgerðir yfir í að vera notaðir til
aðstoðar við minniháttar jarð-
vegsframkvæmdir. Verkefnin sem
við sinnum eru mjög fjölbreytt og
koma nýju bílarnir til með að létta
okkur þau.“
Mikilvægir á veturna
Bílarnir verða einnig notaðir í
vetrarþjónustu Reykjavíkurborg-
ar þar sem þeir munu gegna stóru
hlutverki. „Bílarnir sem við höfum
notað undanfarin ár hafa haft
stórt hlutverk á veturna og munu
þessir nýju taka við því. Þeir verða
meðal annars notaðir við mokstur
allra stofnanalóða og til að ryðja
burt snjó frá strætóskýlum,“ út-
skýrir Hjalti.
Eins og áður segir munu nýju
bílarnir verða til þess að vinnu-
aðstaða starfsmanna batnar til
muna. „Það fer eftir verkefnum
hversu margir starfsmenn eru á
hverjum bíl en þeir eru yfirleitt
frá einum upp í fjóra. Dagsskipu-
lagið ræður því hvernig þetta rað-
ast,“ segir Hjalti.
Tæki í eigu borgarinnar eru
mörg enda verkin fjölbreytt. „Við
eigum að sjálfsögðu fullt af tækj-
um til að sinna þeim verkefnum
sem við höfum á okkar könnu.
Til dæmis sláttuvélar af ýmsum
stærðum og gerðum og erum við
alltaf að auka við þann flota. Einn-
ig alls konar þjöppur og önnur
tæki sem notuð eru úti í mörkinni
til að sinna þeim verkefnum sem
þörf er á.“
Keyra stoltir um á nýju bílunum
Nýir flokkabílar voru nýlega teknir í notkun hjá Reykjavíkurborg. Bílarnir létta starfsmönnum verkin sem eru mörg og misjöfn og auk þess
verður vinnuaðstaða þeirra mun betri. Nýju bílarnir frá Iveco leysa gömlu, appelsínugulu bílana, sem margir þekkja, af hólmi.
Starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur gegna hinum ýmsu verkum í borgarlandinu. Þeir fengu nýlega afhenta nýja
flokkabíla sem auðvelda þeim störfin. MYND/GVA
Nýju bílarnir eru
öflugri og betur
tæknilega búnir en
fyrirrennarar þeirra.
Allir eru þeir með krana
og pall sem hægt er að
sturta af á þrjá vegu.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
9
-4
C
F
C
1
7
D
9
-4
B
C
0
1
7
D
9
-4
A
8
4
1
7
D
9
-4
9
4
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K